Morgunblaðið - 16.07.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 49
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI
AÐ SKORA
eeee
KVIKMYNDIR.IS
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
S.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
SUPERMAN kl. 12:40 - 1:40 - 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
SUPERMAN LUXUS VIP kl. 1:40 - 4:50 - 8 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 3:50 - 6 - 8 - 8:15 - 10:20 - 10:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 12:30 - 1 - 3 - 5:30
CARS M/ENSKU TALI kl. 1 - 3:30
SHE´S THE MAN kl. 6
SUPERMAN kl. 1 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN.
BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 1 - 3:30 - 6
THE BREAK UP kl. 8:20 - 10:30
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
HLJÓMSVEITIN Koja hefur gefið
út sína fyrstu geislaplötu sem ber
titil sveitarinnar. Sveitin er úr
Reykjanesbæ en Kojuna skipa
Björgvin Ívar Baldursson, gítar,
raddbönd og slagverk, Davíð Örn
Óskarsson, söngur og gyð-
ingaharpa, Högni Þorsteinsson, gít-
ar, Rúnar Dór Daníelsson, bassi og
raddir, og Sverrir Örn Leifsson
lemur húðir. Koja varð til í núver-
andi mynd um síðustu jól en áður
höfðu þeir Högni, Björgvin og Rún-
ar þróað tónlist sína í einhvern
tíma. Þá voru þeir að æfa á pípu-
lagningaverkstæði þar sem hljóm-
sveitarnafnið kom til.
„Við vorum að rífast um nafn og
einhver kom með mjög kjánalega
uppástungu. Þá ætlaði Rúnar að
gera lítið úr uppástungunni með því
að koma með álíka vont nafn og leit
í kringum sig og benti svo á koju
sem þarna stóð og stakk upp á
henni sem nafni.“ Hæðnin virkaði
ekki betur en svo að allir gengust
undir hugmynd Rúnars og hljóm-
sveitin tók upp nafnið Koja.
Þegar Davíð og Sverrir bættust í
hópinn fóru hjólin svo að snúast fyr-
ir alvöru hjá hljómsveitinni. Aukinn
metnaður greip drengina og þeir
sömdu og útfærðu fimm lög á
skömmum tíma sem þeir fóru með í
Geimstein og tóku upp á fimm
klukkutímum. Björgvin segir að
sveitin sé nú þegar farin að vinna að
næstu plötu og segir hann að hún
muni verða töluvert stærri.
Tónelskir flugvallarstarfsmenn
Allir vinna þeir á sama ferkíló-
metranum við mismunandi störf í
Leifsstöð. Tveir eru í Fríhöfninni,
einn er lagerstjóri, annar er í toll-
inum og einn er í veitingadeildinni.
„Við hittumst oft í vinnunni,“
segir Björgvin. „Við þurfum nátt-
úrlega alltaf að hitta þann sem
vinnur í tollinum þegar við erum að
fara úr vinnu og hann athugar
hvort við séum að stela einhverju.“
Um þessar mundir æfa dreng-
irnir í gamalli steypustöð þar sem
þeir þétta spilamennskuna fyrir
komandi tónleikahald og vinna að
næstu skífu. Á fimmtudaginn næst-
komandi mun Koja halda tónleika á
Paddy’s í Keflavík ásamt hljóm-
sveitunum Ælu og Lokbrá og um
verslunarmannahelgina spila þeir á
Innipúkanum sem haldinn er á
Nasa. Þá hafa þeir einnig skipulagt
tónleika við Kárahnjúka hinn 19.
ágúst þar sem þeir ætla að leika
tónlist sína fyrir verkamennina sem
vinna að virkjuninni.
„Okkur datt þetta í hug og höfð-
um svo samband við Impreglio. Við
munum spila á stað sem er kallaður
„The Club“ sem mér skilst að sé ein-
hver matsalur fyrir starfsfólkið.
Við getum kallað það útgáfu-
tónleikana okkar,“ segir Björgvin.
Hægt er hlusta á nokkur lög með
Koju á www.myspace.com/
kojaband þar sem einnig er að finna
ýmsar upplýsingar um sveitina.
Tónlist | Koja sendir frá sér sína fyrstu plötu
Útgáfutónleikar
við Kárahnjúka
Koja spilar á Paddy’s í Keflavík á fimmtudaginn ásamt Ælu og Lokbrá.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
inum. Hún við-
urkennir þó að
hafa notað
bleikiefni til að
gera tennur sín-
ar hvítari er hún
lék í nýjustu
mynd kvik-
myndaleikstjór-
ans Woody Al-
len, Match Point.
„Yfirþyrmandi hlutfall þeirra
leikkvenna sem ég fylgist með eru
of grannar, segir hún í viðtali við
skoska blaðið Daily Record. „Það
eru þjóðarmorð, hungur og far-
aldrar en fólk vill ekki tala um
þess háttar. Það vill bara tala um
það hvað hver borðar hvað í há-
degismat. Hverjum er ekki sama?
Ég held að Bandaríkjamenn séu
haldnir þráhyggju varðandi þyngd
sína og það er ekki rétt.
BrandonRouth
sem leikur Of-
urmennið í
kvikmyndinni
Superman
Returns hefur
verið boðin
hálf milljón
Bandaríkja-
dala fyrir að sitja nakinn fyrir á
ljósmyndum fyrir kvennablaðið
Playgirl. Bandaríska tímaritið In
Touch greinir frá þessu og segir
að Routh sé að velta tilboðinu fyr-
ir sér.
Þær sögur hafa einnig flogið
fjöllum hærra að draga hafi þurft
úr skugga framan á nærbuxum
Ofurmennisins í eftirvinnslu kvik-
myndarinnar, þar sem miðsvæðið
hafi þótt fulláberandi. Routh er
skemmt yfir þessu slúðri og segir
tökulið líklega hafa komið kvitt-
inum af stað.
Leikstjóri myndarinnar hafi
sagt honum að ekki væri nægt fé
til svo umfangsmikilla lagfæringa,
en eins og alþjóð veit er Of-
urmennið í þröngum búningi og
nærbuxunum utan yfir sokkabux-
unum.
Hin kunna sveitasöngva-hljómsveit Köntrísveit
Baggalúts hefur sent frá sér glóð-
volgan hálendisköntríslagara, en
eins og áður hefur komið fram mun
hljómdiskur Baggalúts, Aparnir í
Eden, koma út innan fárra daga.
Lagið „Allt fyrir mig“ er eftir
Braga Valdimar Skúlason en
köntrísveitinni til fulltingis eru
meðal annarra blásararnir heims-
kunnu og útlensku Jim Hoke og
Neil Rosengarden. Það er sjálfur
ástmögur þjóðarinnar, Björgvin
Halldórsson,
sem syngur
lagið óaðfinn-
anlega. Upp-
tökur á laginu
fóru fram í fjór-
um hljóðverum;
Geimsteini í
Keflavík, Omni
Sound Studios í
Nashville, Sýrlandi og Félagsheim-
ilinu að Flúðum.
Fólk folk@mbl.is
Leikkonan Scarlett Johanssonhefur lýst því yfir að henni
finnist allt of mikil áhersla lögð á
útlit kvenna í kvikmyndaheim-