Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is MIKILL fjöldi ferðamanna hefur heimsótt svæðið í kringum Kárahnjúka í sumar. Margir virðast vilja sjá það áður en byrjað verður að safna vatni í Hálslón en samkvæmt upplýs- ingum frá Landsvirkjun er fyrirhugað að það gerist í september. Yfir 400 manns ganga í sumar með Ferðafélaginu Augnabliki um svæðið sem fer undir vatn. „Hugmyndin með ferðunum okkar er að opna aðgengi og hlusta ekki á að þetta sé eitt- hvert rusl sem megi vel missa sig,“ segir Ásta Arnardóttir leiðsögumaður. „Landið talar fyr- ir sig sjálft og er í raun sterkasta röksemdin gegn virkjuninni,“ segir Ósk Vilhjálmsdóttir, sem einnig er leiðsögumaður fyrir fólk á veg- um Augnabliks. Náttúruperlur í hættu Ásta og Ósk neita því að á svæðinu frá Kára- hnjúkastíflu og inn að jökli sé lítið að sjá og tala raunar um það sem útivistarsvæði á heimsmælikvarða. „Það hversu fáir þekkja Kárahnjúkasvæðið gerði ráðamönnum auðvelt að ákveða að sökkva því. Það var meira að segja notað sem rök fyrir því að þetta mætti alveg missa sig – enginn hefði hvort eð er kom- ið þangað eða „nýtt sér það“,“ segir Ósk. Hún bendir á að fjölmargir hafi raunar nýtt sér svæðið, til dæmis hreindýr og heiðagæsir, og spyr hvort það sé einungis fólk sem gefi sköp- unarverkinu tilverurétt. „Það er fínt ef svæði fær að vera í friði fyrir fólki en á endanum getur það unnið gegn því. Skortur á aðgengi og upplýsingum getur, ef stefna stjórnvalda er eins og hún er í dag, orð- ið til þess að staðir séu beinlínis í bráðri hættu,“ segir hún. Ásta og Ósk eru þegar byrjaðar að skipu- leggja ferðir á svæði sem þær telja vera í hættu vegna virkjanaáforma, til dæmis Þeista- reyki og Landamannalaugar. „Við vorum of sein að bregðast við á Kárahnjúkum og koma svæðinu inn í vitund almennings. Það er mik- ilvægt að það gerist ekki aftur. Fólk verður að fræðast um þær náttúruperlur sem eru í hættu áður en endanlega verður ákveðið að fórna þeim,“ segir Ósk. | Tímarit Margir ganga um Kárahnjúkasvæðið Morgunblaðið/ÞÖK Göngufólk veður á nálægt Kárahnjúkum. Fyrirhugað er að byrja að safna vatni í Hálslón í september. Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is STEFÁN Ei- ríksson, ný- skipaður lög- reglustjóri höfuðborgar- svæðisins, segir að sam- eining lög- regluembætt- anna á höfuðborgar- svæðinu ætti að tryggja betri þjónustu við alla íbúa á svæðinu og þar með meira öryggi. „Við ætlum líka að mæta skýrri kröfu almenn- ings um að lögreglan verði sýni- legri en nú er. Ef sýnileiki lög- reglunnar skiptir miklu fyrir öryggiskennd íbúanna er sjálf- sagt að verða við þeirri kröfu.“ Aðspurður hvort honum þyki ástæða til að almennir lögreglu- menn beri skotvopn svarar Stefán neitandi. Hann segir að efling sérsveitar lögreglunnar hafi verið mikilvægt skref, því þannig hafi ákveðnum breyt- ingum í samfélaginu verið mætt. „Harkan hefur aukist og hér eru vopnuð rán, svo dæmi séu tekin. Lögreglan verður auðvitað að geta brugðist við slíkum aðstæðum og styrkur sérsveitarinnar gerir henni kleift að gera það. Ég vil ekki vopna almennu lögregluna og sérsveitin er liður í að við get- um áfram haft almennu lög- regluna óvopnaða.“ Sýnileg lögregla og vopnlaus Stefán Eiríksson  Sameining/14-15 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SALA á íslensku skyri í verslunum Whole Foods Market-keðjunnar (WFM) í Bandaríkjunum eykst stöð- ugt og fer nú á annað tonn af skyri vikulega vestur um haf. Boðið er upp á skyr með vanillubragði og bláberja- bragði, en von er á jarðarberjaskyri og hreinu skyri til viðbótar. Hreina skyrið verður m.a. notað í tilbúna eft- irrétti sem seldir verða í verslunum WFM, að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra átaksverkefnisins Áforms. Talsvert leggst til af smjöri við skyrframleiðsluna. „Smjörfjöll safn- ast fyrir hvarvetna í heiminum þar sem búnar eru til fitusnauðar mjólk- urafurðir,“ sagði Baldvin. „Nú hafa Whole Foods Market-búðirnar, sem allar eru með eigin bakarí, byrjað að baka úr íslensku smjöri. Þeim finnst það frábært hráefni. Við seljum þeim smjör í neytendapakkningum, en að- almagnið fer í baksturinn. Þeir keyptu af okkur 140 tonn af smjöri, sem voru birgðirnar sem okkur var sagt að væru til heima. Þeir eru reiðu- búnir að kaupa enn meira af íslensku smjöri og vilja líka fá það fyrir eldhús- in sín, sem nota gríðarmikið smjör.“ Fleiri búðir bætast við Sala íslensku landbúnaðarafurð- anna í Whole Foods Market hefur farið fram í 29 verslunum keðjunnar á svonefndu Mið-Atlantshafssvæði sem er í kringum höfuðborgina Wash- ington DC. Baldvin hefur einnig átt fundi með fulltrúum sölusvæðis WFM í norðausturhluta Bandaríkj- anna, sem m.a. nær til Boston og New York, þar sem eru 35 verslanir. „Þeir vilja allir gera nákvæmlega sama og við höfum gert hér á Washington- svæðinu og fara að selja íslenskar af- urðir um leið og við fáum nægilegt magn,“ sagði Baldvin. „Við stefnum á að byrja í New York í september næstkomandi með skyr, osta og smjör. Svo kemur lambið líka í byrjun september. Við þyrftum að fá að minnsta kosti helmingi meira af lambakjöti en lítur út fyrir að við fáum í haust, til að geta uppfyllt óskir markaðarins.“ Heill gámur af súkkulaði frá Nóa- Síríus, í gömlu smjörpappírspakkn- ingunni frá 1933, er væntanlegur til Bandaríkjanna á næstu dögum. Suðu- súkkulaðið er í fjórum styrkleik- um og hefur vakið mikla lukku meðal bandarískra neyt- enda. Það þykir súkkulaðinu til framdráttar að vera framleitt úr íslensku mjólkur- dufti. Upprunavottaður fiskur Í haust verður einnig byrjað að selja upprunavottaðan ferskan ís- lenskan fisk í verslunum WFM. Þá geta viðskiptavinirnir fengið upplýs- ingar um hvar fiskurinn veiddist og hvenær og af hvaða báti. Hægt verð- ur að skoða mynd af bátnum og skip- stjóranum. Eins eru WFM verslan- irnar að athuga með að nota sjófrystan íslenskan fisk í tilbúna fisk- rétti sem væntanlegir eru á markað í haust. Þar verður m.a. boðið upp á steiktan fisk að íslenskum hætti og plokkfisk. Þá er einnig til athugunar að selja frystan íslenskan fisk í neyt- endaumbúðum. Þá á að taka íslensk- an saltfisk til sölu og verður sett upp sérstök útvötnunarstöð á vegum WFM til að útvatna saltfiskinn og búa hann í hendur neytenda. „Við erum að selja í 29 WFM-búðir á Washington-svæðinu og 35 til við- bótar hafa staðfest að þær eru að hefja viðskipti, eða alls 64 búðir. Eftir standa 125 búðir sem allar vilja vera með. Við munum sinna þeim eftir því sem vörumagnið að heiman eykst,“ sagði Baldvin. Í október og nóvember í haust verður sérstakt Íslandsátak og kynning í 29 verslunum á Wash- ington-svæðinu og þar á eftir viku- löng Íslandskynning í WFM-verslun- um í New York og önnur vikulöng kynning á Boston-svæðinu. Þá verður lögð áhersla á að koma eins miklu af íslenskum afurðum á framfæri og mögulegt er. Baldvin taldi að á þessu ári yrðu flutt 400 – 500 tonn af íslenskum land- búnaðarafurðum til Bandaríkjanna. Allt bendir til þess að magnið geti tvö- faldast á næsta ári, ef hægt er að framleiða nóga vöru. Í viðbót kemur eldisfiskur frá fiskeldi Samherja og aðrar ferskar sjávarafurðir sem þykja lofa mjög góðu. „Þetta ræðst ekki lengur af því hvort markaðurinn vill afurðirnar, það er þegar skortur á afurðum að heiman,“ sagði Baldvin. Vantar mun meira lamba- kjöt til Bandaríkjanna Baldvin Jónsson „Þetta er langhæsta verð sem við sjáum fyrir útfluttar vörur hjá okkur og skilar mjög ásættanlegu verði til okkar framleiðenda,“ sagði Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri MS, um útflutning landbúnaðarvara til Banda- ríkjanna. Hann kvaðst líta á þennan útflutning sem þró- unarverkefni, en verkefnið virtist lofa mjög góðu. Sky- rútflutningurinn hefði verið hrein viðbót og þrátt fyrir ýmsan kostnað væri það sem fæst fyrir skyrið vest- anhafs vel viðunandi. Sama væri að segja um ostana sem seldust á ágætis verði. Margar ostategundanna væru til- tölulega feitar og hjá MS væri umframframleiðsla af mjólkurfitu. Guðbrandur sagði að öll sala mjólkurfitu á hærra verði en heimsmarkaðsverði væri hreinn ávinningur fyrir fyr- irtækið. „Það er nákvæmlega það sem maður sér varðandi smjörútflutn- inginn og jafnvel ostana í þessum skilningi,“ sagði Guðbrandur. Verkefnið lofar mjög góðu Guðbrandur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.