Morgunblaðið - 17.08.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.08.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 23 J ónína hefur verið iðin við að ferðast um landið, halda fundi og ræða við flokksmenn eftir að hún tilkynnti framboð sitt til varaformanns Framsókn- arflokksins 10. júlí sl. Kvöldið fyrir viðtal okkar var hún að koma að vestan þar sem hún fundaði á Hólmavík, Hvammstanga, Pat- reksfirði og Ísafirði. Fyrir utan að hitta flokksmenn, hlusta á þeirra sjónarmið og lýsa sinni framtíðarsýn fyrir flokkinn hefur Jónína verið að kynna sér verksvið um- hverfisráðuneytis en þar tók hún við stjórn- taumunum um miðjan júnímánuð. Þrátt fyr- ir mikil ferðalög segist Jónína alltaf hafa jafn gaman af að hitta flokksmenn og henni hafi jafnan vel verið tekið. „Framsóknarmenn eru félagsvant, skyn- ugt fólk og skynsamt og valið á forystusveit er í þeirra höndum,“ segir Jónína þegar blaðamaður spyr um ferðalögin og fund- armenn. „Þegar ég var búin að gefa út til- kynninguna um framboð mitt fannst mér eðlilegt næsta skref að fara og hitta flokks- menn, og þá einnig vegna þess að ég var nýtekin við ráðuneytinu.“ Jónína segir fundina hafa verið góða, skemmtilega og afar gagnlegt hafi verið að heyra sjónarmið framsóknarmanna um land allt. „Það er fróðlegt þegar fólk er að huga að framtíð flokksins, hver hún verður og hvaða forysta er líklegust til að efla flokk- inn og skapa honum nýja ásýnd. Menn eru að velta mörgu fyrir sér, s.s. kynjaskiptingu og dreifbýlis- eða þéttbýlismálum,“ segir Jónína. Hún nefnir einnig að hún hafi heyrt það sjónarmið varðandi kynslóðaskiptin í forystunni að hægt sé að tala jafnt um líf- aldur og einnig um lengd þingsetu. „Frá því sjónarhorni er Jón Sigurðsson af nýrri kyn- slóð og ég skipa þá einnig þann hóp „nýrrar kynslóðar.““ Jónína sem er lærður lögfræðingur segist hafa byrjað í pólitík fyrir mikla hvatningu en hún hafði áður unnið mikið að skóla- málum. „Ég var meðal annars formaður Heimilis og skóla í sjö ár og áður formaður Landssamtaka foreldrafélaga leikskóla. Eins hafði ég unnið mikið að jafnrétt- ismálum og sérstaklega að eflingu atvinnu- reksturs kvenna, undirbjó ásamt hópi góðra kvenna Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) og var jafnframt fyrsti formaður þeirra samtaka. Það var því vegna brenn- andi áhuga á þessum málum og öðrum vel- ferðarmálum sem ég ákvað að taka þetta skref og tók fyrst þátt í prófkjöri árið 1999.“ Þrátt fyrir að hafa ekki verið lengi í póli- tík hefur Jónína verið þingmaður Fram- sóknarflokksins í rúm sex ár og sinnir nú starfi umhverfisráðherra. – En varstu alveg ákveðin frá upphafi að bjóða þig fram til varaformanns þegar ljóst varð um afsögn Halldórs Ásgrímssonar? Íhugaðirðu jafnvel formannsembættið? „Þegar það lá fyrir að Halldór ætlaði að hætta þá fékk ég mjög mikla hvatningu, og þá til að bjóða mig fram til formanns. Ég velti þessu auðvitað fyrir mér enda hef ég mikinn metnað fyrir hönd flokksins og vil leggja mitt af mörkum til að efla Fram- sóknarflokkinn á allan hátt. Hins vegar sá ég þegar Jón Sigurðsson gaf kost á sér að þar var kominn maður sem öðrum fremur gat safnað flokknum saman, þannig að hann yrði samstiga og liðsheildin sterkari. Þá fór ég að velta fyrir mér öðrum forystusætum, og þar sem það lá fyrir að bæði sitjandi varaformaður og ritari hugsuðu sér til hreyfings var eðlilegt að aðrir gerðu það einnig.“ Fékk mikla hvatningu frá flokksmönnum af öllu landinu Mótframbjóðandi Jónínu er sitjandi vara- formaður flokksins, Guðni Ágústsson, en bæði buðu þau sig einnig fram þegar síðast var kosið um embættið árið 2001. Þá vann Guðni sæti sitt með töluverðum yfirburðum, hlaut rúmlega 60% atkvæða, en Jónína hafði þá aðeins verið þingmaður í eitt ár. – Hvað hefur breyst frá því fyrir fimm árum þegar þið Guðni kepptuð síðast um embætti varaformanns? „Þá var ég nýkomin inn í pólitíkina. Ég fékk vissulega mikinn stuðning þá en ekk- ert í líkingu við það sem ég hef fengið núna. Þá voru ekki margir sem töldu mig sig- urstranglega þegar ég gaf kost á mér en mér þótti rétt að gefa flokksmönnum val og er að gera það aftur núna. Núna bý ég að rúmlega sex ára reynslu sem þingmaður og svo skulum við ekki gleyma því að við sem komum seinna inn í pólitíkina, og erum ekki alin upp í henni, höfum öðlast okkar mennt- un og reynslu, bæði lífsreynslu og starfs- reynslu, annars staðar og færum hana inn á vettvang stjórnmálanna.“ – Guðni þykir sterkur andstæðingur sem nýtur mikils fylgis, sérstaklega á lands- byggðinni. En þú ert hvergi bangin? „Nei, mér heyrist á flokksmönnum að þeir telji það mjög óljóst hvernig nið- urstaðan verður. Guðni er sitjandi varafor- maður en hans kjörtímabil rennur út núna á flokksþinginu. Hann hefur setið í fimm ár og nýtur fylgis víða um land og það geri ég einnig. Ég hef fundið fyrir miklum meðbyr og hefði ekki farið út í þetta nema fyrir mikla hvatningu, ekki aðeins frá framsókn- armönnum í Reykjavík heldur alls staðar af landinu. Það er til marks um að fólk vill sjá aðra og nýja ásýnd flokksins og breyttar áherslur við þessi kaflaskil sem nú verða,“ segir Jónína og bætir við að núverandi for- ysta Framsóknarflokksins hafi haft tæki- færi til að stilla saman strengina og styrkja stöðu flokksins. „Nú standa flokksmenn frammi fyrir því að leggja mat á frammi- stöðu forystunnar, velja nýja forystu og er framtíð flokksins í þeirra höndum.“ Fer fram á eigin forsendum – Mikið hefur verið rætt um kosninga- bandalög frambjóðenda í fjölmiðlum að und- anförnu. Hvernig sérðu þessi mál, eru bandalög frambjóðenda á milli? „Ég fer fram fullkomlega á eigin for- sendum og ekki í bandalagi við neinn. Það skiptir öllu máli að forystan sé samstiga, þess vegna hef ég horft til Jóns Sigurðs- sonar. Ekki síst vegna þess að hann er að koma nýr inn í þennan hóp og í starf fyrir flokkinn á þessum vettvangi. Hann hefur ekki verið aðili að neinum átökum eða ágreiningi innan flokksins og er þess vegna vel til þess fallinn að skapa þá liðsheild sem við þurfum á að halda. Að öðrum ólöstuðum tel ég hann hafa það fram yfir aðra,“ segir Jónína. „Ég tel hann hafa það sem þarf og tel auk þess að flokkurinn geti notið fyrri reynslu og starfa Jóns.“ – Mikið hefur verið rætt um gengi Fram- sóknarflokks í liðnum sveitarstjórnarkosn- ingum. Er hægt að segja að fylgið hafi hrunið af flokknum á undanförnum árum? Hvaða hugmyndir hefur þú til þess að styrkja innviði flokksins og auka fylgi? „Það er ekki hægt að segja að fylgið hafi hrunið vegna þess að þetta er svona eins og í lífinu sjálfu, það skiptast á skin og skúrir. Það heldur enginn stjórnmálaflokkur fylgi sínu óbreyttu áratugum saman og við höf- um bæði átt meira og minna fylgi en mælist nú. Eins og er, þá er ljóst að markmiðið hlýtur að vera að auka fylgi flokksins og ég er reiðubúin til að taka virkan þátt í þeirri sókn. Innra starf flokksins og uppbygging er fyrst og fremst verk- og ábyrgðarsvið rit- ara, en auðvitað þarf öll forystan að vinna samhent að því. Eitt af því sem þarf að gera er að styrkja liðsheildina. Ég vil stuðla að því að svo sé og tel mig geta gert það. Það held ég að verði einnig til þess að auka fylgi flokksins,“ segir Jónína sem telur afar mikilvægt að efla traust á Framsókn- arflokknum, auka virðingu hans og styrkja sjálfsmynd flokksmanna. „Við þurfum að endurvekja það mikla traust sem kjósendur hafa lengstum haft á Framsóknarflokkn- um.“ – Sérðu fram á einhverja breytingu á stefnumálum hjá Framsóknarflokknum til að byggja upp þetta traust? „Ekki á stefnumálunum sem slíkum. Stefnan er ákveðin á flokksþingi sem er æðsta vald í málefnum flokksins. Hins veg- ar eru flokksmenn ekki á eitt sáttir um hversu vel þeim hefur verið fylgt eftir. Sumir kenna stjórnarsamstarfinu um en ég er stolt af verkum þessarar ríkisstjórnar og öllu því sem hefur áunnist. Mörgum flokks- mönnum finnst auk þess Framsókn- arflokknum ekki hafa verið þakkaður góður árangur til jafns við samstarfsflokkinn. Markmiðið er að efla flokkinn og við viljum auk þess sjá að við njótum þessa góða stjórnarsamstarfs og árangursins sem það hefur skilað þjóðinni.“ – En ef ekki þarf til breytingu á stefnu- málum, hvað þarf að gera? „Við framsóknarmenn sitjum oft undir því að hugmyndafræði okkar sé óljós. Sam- fylkingin kennir sig við jafnaðarstefnu og stéttarbaráttu og Sjálfstæðisflokkurinn við einstaklingsframtakið. Hins vegar virðist oft vera óljósara í hugum fólks hver sé meginhugmyndafræði framsóknarmanna. Við þurfum að skerpa á hugmyndafræðinni og áherslum flokksins fyrir kjósendur því Framsóknarflokkurinn á síst minna erindi til kjósenda en hann hefur átt frá upphafi. Við eigum okkar hlut í velmeguninni sem við búum við í dag og sannarlega hefur vel tekist til á undanförnum árum við uppbygg- ingu á öllum sviðum velferðarmála.“ – En nú er fylgi flokksins fremur bágbor- ið á höfuðborgarsvæðinu. Er til að mynda ekki þörf á að gera góðan skurk í fylgi- ssöfnun þar? „Á Stór-Reykjavíkursvæðinu, og innan eins til tveggja klukkustunda aksturs- fjarlægðar þaðan, búa um 70% þjóðarinnar. Á því svæði hefur mikil fólksfjölgun orðið en fylgi flokksins hefur að sama skapi ekki aukist. Þannig að það er alveg ljóst að þar eru sóknarfærin og það er þar sem við þurfum að auka fylgi okkar.“ Flokksmenn vilja sjá fólk með sem ólíkastan bakgrunn Flokksþing Framsóknarflokksins verður sett á Hótel Loftleiðum nk. föstudag, en sjálfar kosningarnar verða hins vegar haldnar á laugardag. Framkvæmdin er þannig að fyrst er kosið til embættis for- manns, þegar niðurstaða formannskjörsins liggur fyrir er kosið til varaformanns og að lokum þegar niðurstaða liggur fyrir þar fer fram kosning til ritara. – Nú eru konur í framboði í allar þrjár stöður. Sérðu möguleika á því að forystu- sveit Framsóknarflokksins muni aðeins verða skipuð kvenmönnum? Hver er ákjós- anlegasta kynjaskiptingin? „Við skulum ekki útiloka neitt, en hins vegar hefur mér fundist mjög athyglisvert þegar ég hef fundað með flokksmönnum að karlmenn hafa viðurkennt að það sé nauð- synlegt að það sé kona í forystusveitinni. Þeir tala gjarnan um að það geti verið tveir karlmenn og ein kona en virðast síður gera ráð fyrir tveimur konur og einum karli og þaðan af síður að sjá þrjár konur skipa for- ystusveit flokksins. Ég ætla að flokksmenn vilji sjá fólk með sem ólíkastan bakgrunn, en fyrst og fremst hæfustu einstaklingana í forystusveit flokksins.“ „Þetta er hópstarf og hópurinn þarf samstiga forystu“ – Ef við gefum okkur að þú lútir í lægra haldi á nýjan leik – hver eru þá næstu skref hjá Jónínu Bjartmarz? „Þegar maður býður sig fram hlýtur mað- ur að gera ráð fyrir hvoru tveggja, að sigra eða tapa. Auðvitað gaf ég kost á mér með það að markmiði að ná kjöri en hver svo sem niðurstaða forystukjörsins verður þá er ég ekki á leiðinni að hætta í pólitík. Ég er búin að starfa á þessum vettvangi í til- tölulega stuttan tíma, miðað við marga, og hef í hyggju að fara fram í næstu kosn- ingum,“ segir Jónína sem segir pólitíkina vera hópstarf og það verði að hugsa um liðsheildina. „Það kemur í ljós á laugardaginn hverja fulltrúar Framsóknarflokksins á þinginu telja hæfasta til að skipa forystusæti í flokknum með hagsmuni hans og framgang að leiðarljósi.“ Efla þarf traust flokksins Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra býður sig fram til varaformanns Framsókn- arflokksins, gegn Guðna Ágústssyni, sitjandi varafor- manni, en kosið verður á flokksfundi Framsóknar á Hótel Loftleiðum nk. laug- ardag. Andri Karl ræddi við Jónínu í ráðuneyti hennar um framboðið, Framsóknarflokk- inn og framtíðina. Morgunblaðið/Ásdís „Svo skulum við ekki gleyma því að við sem komum seinna inn í pólitíkina, og erum ekki alin upp í henni, höfum öðlast okkar menntun og reynslu, bæði lífsreynslu og starfsreynslu, annars staðar og færum hana inn á vettvang stjórnmálanna,“ segir Jónína Bjartmarz. andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.