Morgunblaðið - 17.08.2006, Page 31

Morgunblaðið - 17.08.2006, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 31 UMRÆÐAN ÞVÍ miður fell ég í hóp hinna fjölmörgu Íslendinga sem vanrækt hafa ferðir um hálendi Íslands og var því stefnuskrá sumarsins rituð með það að leiðarljósi að kynna sér nátt- úruperlur landsins. Fyrsta ferð sumarsins var austur á Kára- hnjúka þar sem púls- inn var tekinn á and- spyrnubúðum Íslandsvina. Förin austur var nú ekki betri en svo að þegar heim var komið fengu foreldrar mínir í hend- urnar afvegaleiddan hugsjónamann blind- aðan af náttúrufegurð landsins. Eftir að hafa dagana eftir heimkom- una tautað í tíma og ótíma um paradísina í austri sáu foreldrar mínir sér ekki annað fært en að skoða nú þetta landsvæði sem svo oft hafði borið á góma í umræðu síðustu daga. Við komum að Snæfelli eftir tveggja daga keyrslu þvert yfir Ís- land. Þar höfðu búðir mótmælenda staðið en samkvæmt fréttum höfðu þær verið færðar að Lindum fyrr í vikunni sökum veðurofsa við Snæ- fell. Sá flutningur fór víst ekki bet- ur en svo að þegar meirihluti mót- mælenda hafði komið sér fyrir við Lindur lokaði lögregla á svæðinu veginum sem liggur þangað og meinaði matarbíl mótmælenda að- gang. Við gistum í tjaldi en eftir stormasama nótt var ákveðið að spóka sig á svæðinu sem fara á undir vatn. Á leiðinni hittum við fyrir puttaferðalang sem reyndist vera einn af kokkum mótmæl- endaeldhússins en hann spurði okk- ur hvort við gætum skutlað honum upp að Lindum. Við svöruðum ját- andi enda töldum við það sjálfsagt að fólkið fengi að borða. Þegar komið var að afleggjaranum sem lá að Lindum stoppaði lögreglumaður okkur. Af handaveifunum og öskr- um þar sem orðin „stöðvið á stund- inni“ komu við sögu var hægt að draga þá ályktun að á því svæði sem við værum að keyra í átt að væri að finna geislavirk efni sem myndu drepa okkur hið snarasta. Það reyndist ekki vera málið held- ur enn alvarlegra mál en geislavirk efni, mótmælendabúðir í grennd við Kárahnjúka, höfuðverkur löggæslu- liða síðastliðinn mánuð. Lög- reglumaðurinn tók föður minn á tal og spurði hann hvað við vildum á þetta lokaða svæði. Faðir minn sagði eins og var að við værum að skutla þreyttum ferðalangi að búð- unum. Löggan varð þá enn þung- brýnni en áður og leit í aftursæti bílsins þar sem við hlið mér og bróður míns leyndist kokkurinn, sem greinilega með matseld sinni var ógn við allt það sem má teljast heilagt í þessu landi (!). Þegar löggan hafði með augnaráðinu einu reynt að murka lífið úr mann- greyinu sneri hún sér að föður mínum og spurði hið snarasta hvort við værum nokkuð að flytja mat í búðirnar. Faðir minn hvorki játaði né neitaði heldur brosti góð- látlega og sagði að hann vissi ekki með matarflutninga en hann væri hinsvegar að smygla konu og fjór- um börnum. Ekki virtist lögreglan skemmta sér jafn vel og faðir minn sem ekki gat annað en hlegið yfir því að vera stoppaður á hálendi Ís- lands af lögreglu og sakaður um þann alvarlega glæp sem við öll vit- um að matarflutningar eru. Hún sleppti okkur og leyfði að keyra upp að Lind- um en ég verð að segja að gaman hefði verið að sjá þann laga- bálk sem heimilar lög- reglu að svelta fólk á hálendi Íslands. Þegar fjölskyldan var komin aftur til Reykjavíkur kom í fréttum að búðunum hefði verið lokað að beiðni Landsvirkjunar. Þá sagði talsmaður lögreglunnar að helsta ástæðan fyrir því að búðunum hefði verið lokað hefði verið að fólkið hefði verið inni á yfirlýstu vinnusvæði og gæti þar af leiðandi komið sjálfu sér og öðrum í hættu. Mér hefur ómögulega tek- ist að skilja þessu skýringu lögregl- unnar þar sem búðirnar voru í margra kílómetra fjarlægð frá næsta vinnusvæði. Sömu ástæðu notaði lögreglan til að leita í tjöld- um hjá fólki en ekki get ég séð að lögreglan hafi nokkra heimild til þess. Þetta er nú ekki það eina sem ég hef út á vinnubrögð lög- reglu að setja en nú síðastliðinn þriðjudag, þegar ég horfði á Ísland í dag, fauk heldur betur í mig þeg- ar Óskar Bjartmarz lögreglustjóri á Egilsstöðum sagði ósatt í beinni útsendingu. Þar var hann spurður hvort það væri satt að lögreglan hefði meinað matarflutning á svæð- ið. Hann sagði að um ósannindi væri að ræða. Þarna þurfti ég að horfa upp á lögreglumann ljúga að fjölmiðlafólki en almenningur á rétt á að vita sannleikann sem er sá að lögreglan reyndi markvisst að svelta fólkið í búðunum með því að hindra matarflutninga á svæðið. Ég spyr: Hverslags landi búum við í þegar jafnvel lögreglan gerir sig seka um að sniðganga eigin starfs- reglur í tilraun sinni til að þóknast fulltrúum Landsvirkjunar. Á lög- reglan ekki að vera hlutlaust afl með hagsmuni allra að leiðarljósi? Að hún verði uppvís að því að brjóta gegn grunnstoðum stjórn- arskrárinnar, reglum sem setja okkur í hóp stoltra lýðræðisríkja. Enginn á að þurfa að lenda í sömu aðstöðu og foreldrar mínir þegar þeir þurftu að útskýra fyrir 7 ára bróður mínum að lögreglan væri að reyna að svelta mótmælendurna. Lögreglan fyrir austan ætti að skammast sín fyrir framferði sitt en ég vona innilega að lögfræð- ingar hér á landi taki upp hansk- ann fyrir mótmælendur og sjái til þess að valdníðsla sem þessi sjáist ekki framar þegar horft er á að- gerðir lögreglu. Valdníðsla á hálendi Íslands Steinar Logi Helgason skrifar um mótmæli á hálendinu ’Á lögreglanekki að vera hlutlaust afl með hagsmuni allra að leiðarljósi?‘ Steinar Logi Helgason Höfundur er 16 ára nemandi og ferðalangur ÞAÐ er alkunna að stjórn- málamenn kveða oft óljóst að orði. Jón Sigurðsson, nýorðinn iðn- aðarráðherra og stjórnmálamaður, hefur oftar en einu sinni fullyrt að stjórn- völd ráði ekki lengur neinu um uppbygg- ingu stóriðju á land- inu. Þetta hefur ýms- um þótt dálítið óljóst og óskað eftir skýr- ingu. Síðast nefndi hann þetta í breiðsíðuviðtali við Agnesi Bragadótt- ur í Morgunblaðinu laugardaginn 5. ágúst; hún hefur eftir honum að „stjórnskipulaginu og lögunum“ hafi verið breytt árið 2003 þann- ig „að ríkisvaldið er ekki lengur með frum- kvæðið og forsjá í stór- iðju- og virkj- anamálum, heldur er frumkvæðið og forsjáin úti á mark- aðnum.“ Agnes lét undir höfuð leggjast að spyrja ráðherrann hvað hann ætti við með þessu, svo hann slapp vel frá hinum fyrrum óvægna blaðamanni. Ég notfærði mér hins vegar þá stór- kostlegu tækni sem gerir manni mögulegt að sitja heima hjá sér á síðkvöldum og kynna sér á verald- arvefnum öll þau lög sem hafa verið samþykkt á hinu háa Alþingi og þau þingskjöl og ræður sem við eiga. Engin lög fann ég sem gætu átt við í þessu tilfelli en ég er náttúrlega ekki lögfræðingur svo mér getur skjöpl- ast. Hins vegar fann ég lög númer 12 frá 11. mars 2003 þar sem heimild er veitt til að semja um stækkun ál- verksmiðju í Reyð- arfirði og önnur sem fjalla um álbræðslu á Grundartanga; þau eru númer 85 og voru sam- þykkt 26. mars 2003. Í þingskjölum og ræðum fann ég líka ýmislegt en þó var þar ekkert um að ríkisstjórnin hefði af- salað sér rétti til af- skipta af þróun stóriðju á Íslandi. Þvert á móti. Geir H. Haarde fjár- málaráðherra sagði haustið 2003, þegar hann mælti fyrir fjár- lögum ársins 2004: „Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjmrn. bendir flest til þess að fram undan sé nýtt hag- vaxtarskeið sem getur orðið eitt hið lengsta í íslenskri hag- sögu. Næstu ár munu áðurnefndar framkvæmdir við uppbyggingu stór- iðju ráða miklu um hagvöxtinn. Þá skiptir mestu að viðhalda þeim stöð- ugleika í efnahagsmálum sem ein- kennt hefur íslenskt efnahagslíf undanfarin ár. Mikilvægt er að beita ríkisfjármálunum með þeim hætti að þau dragi úr innlendri eftirspurn þegar framkvæmdir eru sem mestar en hjálpi til við að auka hana að þeim loknum, eftir því sem þörf krefur. Einnig verður óhjákvæmilegt að draga úr framkvæmdum á vegum ríkisins á meðan stóriðjufram- kvæmdirnar standa sem hæst. Framkvæmdir verða síðan auknar á ný þegar dregur úr hagvexti. Ákveð- ið verður í fjárlögum hverju sinni hvaða framkvæmdir munu koma hér við sögu.“ Hér sýnist mér vera hvort tveggja talsvert frumkvæði stjórnvalda og nokkur forsjá. 13. mars 2003 ræddi Kjartan Ólafsson, 8. þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Suðurlandskjördæmi og fulltrúi í iðnaðarnefnd, um framtíð állandsins Íslands í tilefni af því að þá var verið að ræða í nefndinni um heimild til að leyfa stækkun ál- bræðslunnar á Grundartanga. Framtíðarsýnin var þessi: Í nýjum og stækkuðum álverum yrði álfram- leiðsla á Íslandi aukin næstu 10 til 12 árin í eina milljón tonna á ári, sem yrði 25. hluti af heimsframleiðslu áls. Sunnudaginn 5. mars í vetur stóð í Morgunblaðinu: „Íslensk stjórnvöld og fyrirtækið Alcoa gerðu á miðviku- daginn samkomulag um að hefja ít- arlega könnun á því hvort hag- kvæmt sé [væri] að reisa 250 þúsund tonna álver á Bakka við Húsavík.“ Hinn 18. maí um vorið segir í sama blaði: „Íslensk stjórnvöld og fyr- irtækið Alcoa undirrituðu í New York í gær samkomulag um ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reist verði [yrði] 250 þúsund tonna álver á Bakka við Húsavík.“ Við hvað er átt í raun og veru með orðunum „að ríkisvaldið er ekki lengur með frumkvæðið og forsjá í stóriðju- og virkjanamálum, heldur er frumkvæðið og forsjáin úti á markaðnum“ og hverju breyttu þessi lög, sem ég fann ekki? Hvaða lög eru það? Hvar eru állögin frá 2003, Jón? Þorgrímur Gestsson skrifar um lög um stóriðju Þorgrímur Gestsson ’Engin lög fannég sem gætu átt við í þessu til- felli …‘ Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. Fréttir á SMS Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 461-2960 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Legacy er mjög kraftmikill bíll og sérlega þægilegur og mjúkur undir stýri - hvort sem þú ert að sækja börnin í leikskólann eða á leiðinni upp í sumarbústað. Legacy er rétti bíllinn fyrir íslenskar aðstæður, og þig. Umboðsmenn um land allt * Á meðan birgðir endast. Sumartilboð á Legacy 2.470.000 kr. SEDAN VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ Sjálfskiptur 2.620.000 2.470.000 WAGON VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ Beinskiptur 2.690.000 2.490.000 Sjálfskiptur 2.790.000 2.640.000 SUMARTILBOÐ Á LEGACY TAKMARKAÐ MAGN UPPSELDUR www.subaru.is ...eftir þínu höfði Lyngháls 4 – s: 517 7727 – www.nora.is Frumlegur vínkælir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.