Morgunblaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 45
DAGBÓK
Alþjóðahúsið við Hverfisgötu er fimm ára íár og hefur starfsemi hússins aldrei ver-ið fjölbreyttari. Alþjóðahúsið er nú starf-rækt sem einkahlutafélag í eigu Reykja-
víkurdeildar Rauða kross Íslands og hefur það
aðahlutverk að vera upplýsingamiðstöð fyrir inn-
flytjendur um margvísleg málefni og um leið upp-
lýsingamiðstöð um málefni innflytjenda. Að sögn
Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Alþjóða-
hússins, er starfsemin í húsinu ekki hvað síst brú á
milli þeirra sem flutt hafa til landsins og þeirra sem
búa hér fyrir: „Við bjóðum upp á margs kyns sam-
félagsfræðslu fyrir innflytjendur og var t.d. mikið
starf unnið hjá okkur í tengslum við sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor, en þá höfðu um 4.500 erlendir
ríkisborgarar kosningarétt. Við fléttum oft ís-
lenskukennslu inn í námskeið okkar um íslenskt
samfélag, en Alþjóðahúsið stendur fyrir fjöl-
breyttum námskeiðum í íslensku.“
Einar segir Alþjóðahúsið bæði bjóða upp á al-
menn íslenskunámskeið, þar sem kennt er í blönd-
uðum hópum, og sérhæfð námskeið, s.s. fyrir
vinnustaði: „Þá lögum við námsefnið sérstaklega að
því sem fengist er við á vinnustaðnum. Þannig nálg-
umst við nemandann út frá hans nánasta umhverfi
og gerum honum kleift að beita nýrri kunnáttu
sinni í málinu, að segja má jafnóðum.“
Meðal námskeiða sem eru á döfinni hjá Alþjóða-
húsinu er íslenskunámskeið fyrir mæður og feður:
„Þetta er nýjung hjá okkur, og fléttum við saman
íslenskukennslu og hagnýtri fræðslu fyrir mæður
og feður af öllum toga. Við erum einnig að fara af
stað með kennslu fyrir foreldra í samstarfi við þrjá
leikskóla í Efra-Breiðholti í haust, þar sem íslenska
er kennd í gegnum starfsemi leikskólanna.“
Alþjóðahúsið býður jafnframt upp á túlka- og
þýðingarþjónustu á yfir 60 tungumálum og í Al-
þjóðahúsinu er starfrækt líflegt kaffihús þar sem
haldnar eru uppákomur reglulega og boðið upp á
fjölbreyttan alþjóðlegan matseðil. Einnig stendur
Alþjóðahúsið fyrir allskyns menningarstarfsemi
þar sem hæst ber Þjóðahátíð sem haldin er í febr-
úar ár hvert.
„Ráðgjafi og lögfræðingur eru hjá Alþjóðahúsinu
í fullu starfi og leiðbeina fólki sem hingað kemur
um allt milli himins og jarðar, allt frá því hvernig
innrita á börn í leikskóla, um réttindi í heilbrigð-
iskerfinu, og veita upplýsingar um atvinnu- og dval-
arleyfi svo nokkuð sé nefnt,“ segir Einar.
Líkt og undanfarin ár verður mikið um að vera í
Alþjóðahúsinu á Menningarnótt: „Yfir daginn ætl-
um við að vera með dagskrá fyrir börnin. Reist
verður stórt tjald í portinu bak við húsið þar sem
börnin fá að smíða hljóðfæri. Þegar hljómsveitin er
fullbúin verður haldið í skrúðgöngu til Listasafns
Íslands þar sem börnunum verða sagðar tröllasög-
ur. Tónleikadagskrá hefst kl. 17 og varir til mið-
nættis og verður örugglega skemmtileg stemning í
tjaldinu þar sem sýndir verða og kenndir balkan-
dansar, taílenskir og afrískir dansar og salsa.“
Innflytjendur | Íslenskukennsla fyrir mæður og feður meðal námskeiða framundan
Fræðsla og þjónusta í Alþjóðahúsi
Einar Skúlason fæddist
í Kaupmannahöfn 1971.
Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1991, BA-prófi í
stjórnmálafræði frá Há-
skóla Íslands 1998 og
MBA-gráðu frá Edinborg-
arháskóla 2003. Einar
var framkvæmdastjóri
Foxhall til 2000, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar Banka-
strætis 2000–2002 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahússins frá 2003. Hann
var formaður Sambands ungra framsókn-
armanna 1999–2002 og framkvæmdastjóri
Stúdentaráðs 1996–1997. Einar á þrjá syni.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
EM í Varsjá.
Norður
♠Á8
♥K8542 S/Allir
♦K872
♣D8
Vestur Austur
♠K92 ♠G764
♥DG3 ♥6
♦Á1096 ♦G53
♣ÁG5 ♣109763
Suður
♠D1053
♥Á1097
♦D4
♣K42
Ísland vann Noreg 22–8 í sjöttu um-
ferð Evrópumótsins í fjörmiklum leik,
sem sýndur var beint á norræna vef-
setrinu Swangames.com. Ballið byrjaði
á því að Tor Helness gaf Jóni Bald-
urssyni og Þorláki Jónssyni slemmu
með því að spila undan ás – og átti hann
þó trompásinn til hliðar! Slíkt var
traustið á „relay“-kerfi Íslendinganna,
sem höfðu farið illa út af sporinu í þre-
pasvörunum.
Spilið að ofan kom strax í kjölfarið. Í
lokaða salnum varð Matthías Þorvalds-
son sagnhafi í fjórum hjörtum í norður
og fékk út spaða frá gosanum. Matthías
hitti á að láta tíuna og það dugði honum
til vinnings með því að trompa tvo tígla
í borði. Svo virðist sem geimið tapist í
norður með öðru útspili, en með ná-
kvæmri tímasetningu getur sagnhafi
hreinsað upp láglitina og sent vestur
inn á þriðja trompið til að spila frá
spaðakóngnum. Sú leið fór þó fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum sagnhöfum.
Í opna salnum varð suður hins vegar
sagnhafi eftir opnun Helgemos á einu
fjórlitarhjarta:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Helness Þorlákur Helgemo
-- -- -- 1 hjarta
Dobl 3 grönd * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Stökk Helness í þrjú grönd er góð
hækkun í fjögur hjörtu, en án stuttlitar
til hliðar.
Vestur er illa endaspilaður strax í
fyrsta slag og Jón gerði sér grein fyrir
því. Það virðist illskást að spila út
spaða, en það gefur samninginn snar-
lega, og líka ás í láglitunum.
Er skemmst frá því að segja að Jóni
leist ekki á neinn hefðbundinn kost og
lagði af stað með hjartadrottningu!
Enginn „heilvita“ maður spilar frá DGx
í trompi og Helgemo var ekki höndum
seinni að drepa á kónginn og spila
meira hjarta. Honum brá illilega þegar
Þorlákur henti í slaginn, en nú var ekki
lengur hægt að trompa tvo tígla og spil-
ið lak einn niður.
Þetta útspil fer í sögubækurnar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O
5. Bd3 c5 6. Rf3 d5 7. O-O dxc4 8. Bxc4
Rbd7 9. a3 cxd4 10. axb4 dxc3 11. bxc3
Dc7 12. Be2 Rd5 13. c4 Rc3 14. Dc2
Rxe2+ 15. Dxe2 b6 16. Bb2 Bb7 17.
Hfc1 Hfd8 18. Rd4 Rf8 19. c5 bxc5 20.
bxc5 e5 21. Rf5 Rg6 22. Rd6 Bc6 23.
Ha6 Dd7 24. Dc4 Hf8 25. Hca1 h6 26. f3
Kh7 27. H1a5 Hab8 28. Hxa7 Dd8 29.
De2 Dg5 30. Bc1 Rh4 31. Kh1 Dh5 32.
e4 f5 33. Ha1 fxe4 34. Rxe4
Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu
kvennamóti sem lauk fyrir skömmu í
Krasnoturyinsk í Rússlandi. Rússneski
alþjóðlegi meistarinn Nadezhda Kos-
intseva (2472) hafði hvítt gegn löndu
sinni og kollega Svetlönu Matveevu
(2454). 34 … Rxf3! 35. gxf3 Dxf3+ 36.
Dxf3 Hxf3 37. He7, hvítur hefði einnig
haft tapað tafl eftir 37. H7a4 Bxa4 38.
Hxa4 Hf1+. 37 … Bxe4 38. Kg1 Hbf8
39. Bxh6 Kxh6 40. Hxe5 H8f4 og hvít-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik
70 ára afmæli. Í dag verður BragiGuðmundsson, Spóahólum 16 í
Reykjavík, sjötugur. Bragi verður að
heiman á afmælisdaginn.
60 ára afmæli. í dag er Erlingur K.Stefánsson vélvirki sextugur.
Hann er að heiman á afmælisdaginn.
Vegna skrifa „hugleysingja“
SUNNUDAGINN 13. ágúst skrifar
maður sem hefur ekki kjark og þor
til að standa undir nafni enn á ný.
Hann titlar sig aðstandanda og seg-
ist skýla sér á bak við það að hann sé
að vernda viðkomandi sjúkling. Ég
er ekki sammála honum. Fyrir utan
alvarlegar aðdróttanir sem hafa ver-
ið tilgreindar sakar hann starfsfólk
um að „hlutirnir hverfi á dularfullan
hátt“, sem er mjög alvarleg ásökun í
garð þess starfsfólks sem þarf að
sitja undir orðum hans.
Ég tel mig hafa talsverða þekk-
ingu á því sem þarna gerist innan-
dyra. Ég get fullyrt að allt starfsfólk
sem vinnur þarna, hvort sem um er
að ræða lækna, hjúkrunarfólk eða
annað starfsfólk, leggur sig fram að
alúð og kærleika við að bæta líðan
sjúklinga eins og kostur er. Það er
skoðun mín að íslensk sjúkrahús
standi mjög framanlega í gæðum og
þjónustu ef við miðum við millj-
ónaþjóðir eins og Þýskaland, Hol-
land og England til dæmis. Þess
vegna hvet ég hann til að kynna sér
betur hvernig þetta er í þessum
löndum til samanburðar. Þá er
spurning hvort hann myndi nota
orðið „heilsubæli“ um sjúkrahúsin í
þessum löndum, eins og hann notaði,
og gerði lítið úr íslenskum sjúkra-
húsum og starfsfólki með niðrandi
umfjöllun. Það verður að fjalla um
hlutina í málefnalegri umræðu, ræða
hvernig þeir eru og hvernig þeir eiga
að vera, frekar en að stunda niðurrif.
Þess vegna hvet ég höfund til að
koma fram undir nafni í stað þess að
vera í skotgrafahernaði með bundið
fyrir andlitið svo hann sjáist ekki. Þá
væri hann meiri maður. Nú þarf
hann ekkert að óttast nema sjálfan
sig.
Jóhann Páll Símonarson
sjómaður.
Um blómabeð og græn tún
Nú eru orðin ansi fá græn tún eftir í
Reykjavík. En á þeim sem eru eftir,
til dæmis Landakotstúni, er búið að
setja ein 6 blómabeð sem lítið er
hugsað um og má ekki hreyfa vind,
þá fyllast þau af pappírsrusli.
Blómabeð eru mjög falleg en það
þarf að hugsa vel um þau til að þau
haldist falleg. En einnig eru græn
tún þar sem krakkar geta hlaupið
um og leikið sér mjög falleg.
060630–4109
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
60 ára afmæli. Í gær, 16. ágúst,varð Brynja Pétursdóttir frá
Kirkjubæ, Réttarholtsvegi 13, Garði,
60 ára. Af því tilefni býður hún ætt-
ingjum, vinum og samferðafólki að
þiggja kaffi sunnudaginn 20. ágúst kl.
16.00 í Slysavarnarhúsinu (Þor-
steinsbúð) við Gerðaveg í Garði.
Síðustu sýningardagar á sýningu
bandarísku myndlistarkonunnar
Bec Stupak; „no no no no no no no
no no no no no there’s no limit!“ í
sýningarýminu Galleríi Dverg eru
nú á föstudag og laugardag kl. 18–
19.
Gallerí Dvergur er staðsett í
kjallara bakhúss á Grundarstíg 21
í Þingholtunum. Bec Stupak (1977)
býr og starfar í New York og hef-
ur bæði sýnt verk sín og komið
fram sem vj-listamaður (flutt lif-
andi vídeógjörninga) mjög víða í
Bandaríkjunum en einnig á Eng-
landi og í Rússlandi. Hún hélt ný-
verið einkasýningu sína í einu
þekktasta galleríi New York-
borgar; „Deitch Projects“, og
starfar með myndlistarhópnum
„Assume Vivid Astro Focus“, sem
hefur m.a. sýnt á Whitney-
tvíæringnum í New York, í MoCA;
Museum of Contemporary Art í
Los Angeles, í Barbican Center í
London, hjá Peres Projectgall-
eríinu í Los Angeles, á Liverpool-
tvíæringnum og með Deitch Proj-
ects á myndlistarmessunni Art Ba-
sel Miami 2005.
Bec Stupak var í fyrra valin úr
miklum fjölda myndlistarmanna til
þátttöku í fyrsta raunveru-
leikaþættinum um myndlistarfólk,
sem er sambærilegur við Idol-
þættina þekktu, og er framleiddur
af Deitch Projects. Þættirnir voru
nýverið sýndir á sjónvarpsstöðinni
Gallery HD.
Bec Stupak kom fyrst fram sem
vj-listamaður í reifsenu tíunda ára-
tugarins og er vel þekkt sem slík-
ur, undir listamannanafninu Ho-
neygun Labs. Vídeóverk hennar,
gjörningar og innsetningar eru
flestar af erótískum toga, með vís-
anir í sýrulist áttunda áratugarins,
goðsagnir, dulúð, götulist og æv-
intýri.
Bec Stupak sýnir
í Galleríi Dverg
Musikkoret Köbenhavn
ásamt hljómsveit verður á
ferð um Ísland dagana 16.–
22. ágúst og mun halda
tvenna tónleika. Þeir fyrri
verða í Langholtskirkju
föstudaginn 18. ágúst kl
20.00 og þeir síðari í Skál-
holti sunnudaginn 20. ágúst
kl. 16.00. Aðgangur er
ókeypis.
Stjórnandi kórsins er Lo-
uise Adrian, einsöngvari Eva
Trudsö og píanóleikari Eva
Gaarn.
Musikkoret Köben-
havn ferðast um
landið