Morgunblaðið - 31.08.2006, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
fimmtudagur 31. 8. 2006
viðskipti mbl.isviðskipti
Starfsferill Hjördísar Árnadóttur hefur verið örlögunum háður » 12
ÖLLUM AÐGENGILEG
FIRMASKRÁ ÍSLANDS ER UPPLÝSINGAVEITA Á NETINU
UM ÍSLENSK FYRIRTÆKI OG STARFSEMI ÞEIRRA
LÁNSFJÁRMÖGNUN stóru
bankanna þriggja, Kaupþings
banka, Landsbanka og Glitnis, er
orðin umtalsvert dýrari en hún var
fyrir um ári síðan og kjör þeirra eru
lakari en annarra banka með sam-
bærilegt lánshæfismat. Verri láns-
kjör íslensku bankanna munu setja
þeim skorður í vexti, sem án alls efa
verður miklum mun minni en á und-
anförnum misserum og árum. Eins
er líklegt að verri lánskjör þeirra
kunni á endanum að lenda á við-
skiptavinum þeirra hér á Íslandi.
Á árinu 2005 gáfu stóru bankarnir
þrír, Kaupþing banki, Glitnir og
Landsbanki, út mikið af skuldabréf-
um í Evrópu og greiddu þá á bilinu
0,2–0,3% ofan á millibankavexti (LI-
BOR) en að undanförnu hafa Lands-
banki og Glitnir selt skuldabréf í
Bandaríkjunum og greitt frá á bilinu
0,65% og 0,9% ofan á millibanka-
vexti, allt eftir lengd og eðli bréf-
anna. Álagið ofan á millibankavexti
hefur því um það bil þrefaldast frá
því um mitt síðasta ár.
Kaupþing banki á enn eftir að end-
urfjármagna lán sem koma á gjald-
daga á næsta ári og nemur sú upp-
hæð um 340 milljörðum króna.
Líklegt er talið að bankinn þurfi að
leita víðar fyrir sér með fjármögnun
en í Bandaríkjunum einum.
Versnandi lánskjör þýða að sam-
keppnishæfni íslensku bankanna og
dótturfélaga þeirra erlendis hefur
versnað.
Eins er hætta á að stór íslensk fyr-
irtæki með alþjóðlega starfsemi leiti
í auknum mæli til erlendra banka
þar sem þeir geta væntanlega fengið
hagstæðari kjör en hjá íslensku við-
skiptabönkunum þremur.
„Þetta hefur skapað alveg nýtt
rekstrarumhverfi fyrir íslensku
bankana og þeir þurfa að útskýra
hvernig þeir ætla að bregðast við því,
m.a. í stefnumótun sinni. Til þessa
hafa þeir ekki verið mjög duglegir
við að veita upplýsingar um það,“
sagði erlendur greinandi sem Morg-
unblaðið ræddi við. » 8
Draga mun úr
vexti bankanna
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Velkomnir Íslenskir fjárfestar eru boðnir velkomnir til Írans. » 6
Verri lánskjör bankanna skerða
samkeppnishæfnina erlendis
SPARISJÓÐUR Færeyja, Føro-
ya Sparikassi, stefnir að skráningu í
Kauphöll Íslands á næsta ári. Hluta-
bréf í sparisjóðnum verða seld í út-
boði í næsta mánuði, sem hefst 11.
september, til að gera hann hæfan
til skráningar. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá eignarhalds-
félaginu Sparikassagrunninum, sem
er eini hluthafinn í sparisjóðnum.
Hlutabréf Sparisjóðs Færeyja
verða skráð á verðbréfamarkaði
Færeyja, sem á færeysku nefnist
Virðisbrævamarknaður Føroya. Það
er félag í Færeyjum sem heldur ut-
an um verðbréf á eyjunum en er með
samning við Kauphöll Íslands sem
rekur markaðinn.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir ánægju-
legt til þess að vita að helstu fjár-
málastofnanir Færeyja stefni að
skráningu í Kauphöllinni. Þetta séu
góð tíðindi.
Sparisjóður
Færeyja í
Kauphöllina
HEILDARVIÐSKIPTI Í Kaup-
höll Íslands í gær námu 9,9 milljörð-
um króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 3,7 milljarða. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 1,0% og er
lokagildi hennar 5.989 stig. Mest
hækkun varð á bréfum Atorku, eða
2,5%, en bréf Avion lækkuðu mest,
eða um 0,9%.
Úrvalsvísitalan
hækkar um 1,0%
Nýr markaður Dollar hefur leyst
evru af hólmi í skuldabréfaútgáfu.
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Staksteinar 8 Forystugrein 28
Veður 8 Viðhorf 30
Sigmund 8 Umræðan 30/31
Fréttaskýring 11 Minningar 32/38
Úr verinu 14 Staðurstund 42/48
Erlent 15/16 Leikhús 46
Listir 17 Myndasögur 48
Höfuðborgin 18 Dægradvöl 49
Akureyri 18 Bíó 50/53
Austurland 19 Dagbók 52
Landið 19 Víkverji 52
Daglegt líf 20/27 Ljósvakamiðlar 54
* * *
Innlent
Orkuveita Reykjavíkur mun ekki
kaupa grunnnet Símans. Þetta var
ákveðið á stjórnarfundi Orkuveit-
unnar í gær en Guðlaugur Þór segir
OR hafa áhuga á sameiningu fjar-
skiptaneta fyrirtækjanna. » 4
Fundur iðnaðarnefndar var hald-
inn í gær að ósk stjórnarandstöð-
unnar vegna öryggis Kárahnjúka-
stíflu. Skiptar skoðanir eru um
niðurstöðu fundarins en forstjóri
Landsvirkjunar telur hann hafa
hreinsað andrúmsloftið. » 2
Endurgangsetningu þeirra kera
sem tekin voru úr rekstri í álveri Al-
can í Straumsvík í júní síðastliðinum
lýkur í dag. Hafa viðgerðir og gang-
setning keranna gengið mun hraðar
en menn áttu von á. » 56
Flutningaskipið Polestar reynir
um þessar mundir að landa afla sem
veiddist af svonefndum sjóræn-
ingjaskipum á Reykjaneshrygg.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í sam-
vinnu við utanríkisráðuneytið og
önnur ríki innan NEAFC reynt að
koma í veg fyrir það. » 6
Viðskipti
Sparisjóður Færeyja stefnir að
skráningu í Kauphöll Íslands á
næsta ári. Forstjóri Kauphallarinnar
segir ánægjulegt að helstu fjár-
málastofnanir Færeyja stefni að
skráningu í Kauphöllinni. » 1
Lánskjör íslensku bankanna hafa
versnað umtalsvert og samkeppn-
isstaða þeirra erlendis veikst. Gera
má ráð fyrir mun hægari vexti bank-
anna á næstu misserum. » 8
Erlent
Jan Egeland, sem samhæfir
hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna,
sagði í gær að klasasprengjuárásir
Ísraelshers á sunnanvert Líbanon
væru „algjörlega siðlausar“. Um
100.000 ósprungnar smásprengjur
væru á svæðinu og um 90% þeirra
hefði verið beitt þegar vopnahlé var í
sjónmáli. » 1
Norrænu eftirlitssveitirnar á Sri
Lanka sökuðu í gær stjórnarherinn
um að bera ábyrgð á dauða sautján
hjálparstarfsmanna fyrr í mán-
uðinum. Morðin á mönnunum væru
gróft brot á vopnahléssamkomulagi
stjórnarinnar við uppreisnarmenn
tamílsku Tígranna. » 15
Bresk stjórnvöld tilkynntu í gær
að þau hygðust leggja bann við því að
eiga og horfa á ofbeldisfullt klámefni.
Varsla á slíku efni er ekki refsiverð á
Íslandi nema um barnaklám sé að
ræða. » 16
Leiðtogi sértrúarsafnaðar í
Bandaríkjunum hefur verið handtek-
inn fyrir kynferðisbrot gegn stúlku
undir lögaldri, fyrir að hafa komið í
kring hjónaböndum eldri manna við
barnungar stúlkur og verið vitorðs-
maður í nauðgunarmáli. »16
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra var ekki viðstödd fund
iðnaðarnefndar Alþingis sem hald-
inn var í gærdag en eftir því höfðu
fulltrúar stjórnarandstöðunnar ósk-
að. Formaður nefndarinnar taldi
ekki ástæðu til að boða ráðherrann
en á fundinum var m.a. farið yfir
málefni Kárahnjúkavirkjunar, þ.m.t.
greinargerð Gríms Björnssonar,
jarðeðlisfræðings og fyrrverandi
starfsmanns Orkustofnunar, um
virkjunina og endurskoðað áhættu-
mat.
Birkir Jón Jónsson, formaður iðn-
aðarnefndar, sagði alveg ljóst að
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, hefði tekið málið í
tvígang upp á Alþingi og þá hafi Val-
gerður verið til svara. Hún hafi svar-
að með viðlíka hætti og í þeirri um-
ræðu sem farið hefur fram að
undanförnu og því hafi ekkert nýtt
verið í þeim efnum. Því hafi ekki ver-
ið ástæða til að boða hana á fundinn
auk þess sem hann vildi kalla til þá
aðila sem léku stærst hlutverk í at-
burðarásinni árið 2002, s.s. fulltrúa
Orkustofnunar, Landsvirkjunar auk
Gríms.
Alið á efasemdum og ótta
Birkir sagði fundinn hafa verið
upplýsandi en segist ósáttur við mál-
flutning stjórnarandstöðunnar.
„Mér finnst margir úr þeirra her-
búðum hafa alið á efasemdum og ótta
við öryggi þessarar framkvæmdar.
Ég hef tekið það skýrt fram að ég
treysti þeim tugum verkfræðinga og
sérfræðinga sem hafa komið að þess-
ari framkvæmd og það er ljótur leik-
ur að ala á efasemdum og jafnvel
hræðslu um að framkvæmdin sé
ótrygg,“ sagði Birkir Jón. Stjórnar-
andstaðan hafði óskað eftir því að
Valgerður skýrði m.a. út hvers
vegna hún hafi, sem þáverandi iðn-
aðarráðherra, ekki talið rétt að upp-
lýsa Alþingi um greinargerð Gríms
og hvað hún hafi átt við með því að
Alþingi hafi fengið upplýsingar um
allt það sem skipti máli og varðaði þá
ákvarðanatöku sem þingið stóð
frammi fyrir að taka.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, var ekki sátt-
ur með fjarveru Valgerðar og sagði
hana þýða það fyrst og fremst að
ráðherrann hafi veikan málstað að
verja. „Þegar ráðuneytismenn voru
svo spurðir, m.a. ráðuneytisstjóri,
um hvernig þessi mál hefðu gengið
fyrir sig og hver hefði fengið grein-
argerðina í hendur gátu þeir engu
svarað, en vísuðu í fjölmiðla og það
er aðeins farsakennt. Ég er á því að
það er alvarlegt þegar menn svara
svona,“ segir Sigurjón og bætir við
að einhvers staðar sé pottur brotinn
þegar ráðuneytismenn vitni í fjöl-
miðla en geti ekki skýrt frá gangi
mála.
Sigurjón segir enn veigamiklum
spurningum svarað, sem þjóðin eigi
rétt á að vita, s.s. hvort að Valgerður
leyndi greinargerðinni eða ekki og
hvers vegna hún var stimpluð sem
trúnaðarskjal. „Það sem orkumála-
stjóri sagði var að þetta hefði verið
gert í einhverjum hálfkæringi. Þá
spurði ég hann hvort að margar
skýrslur væru stimplaðar sem trún-
aðarmál, og það er ekki. Það er
greinilegt að öllu sem er óþægilegt
er stungið undir stól.“
Fundur iðnaðarnefndar Alþingis um Kárahnjúkavirkjun
Skiptar skoðanir
um ágæti fundarins
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Ósáttur Sigurjón
Þórðarson
Upplýstur Birkir
Jón Jónsson
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, gerði grein fyrir
hlut Landsvirkjunar í málinu og var
hinn ánægðasti eftir fundinn. „Ég
held að hann hafi hreinsað and-
rúmsloftið og nefndarmönnum
hlýtur að honum loknum að vera
ljóst að á sínum tíma var tekið á at-
hugasemdum Gríms með viðeig-
andi hætti og því sinnt af sérfræð-
ingum Landsvirkjunar eins og til
verður ætlast,“ sagði Friðrik.
Hann segir að eftir fund fulltrúa
Landsvirkjunar og Orkustofnunar
um greinargerð Gríms hafi menn
talið að málinu væri lokið enda búið
að svara öllum
þeim spurn-
ingum sem þar
komu fram, að
undanskildri
þeirri um land-
sigið sem skilað
var inn nokkru
síðar. „Ég vona
að mönnum sé
það núna alveg
fullkomlega ljóst
að það var enginn að reyna að
leyna fyrir Alþingi einhverjum upp-
lýsingum sem þangað hefðu átt að
berast, nema síður sé.“
Hreinsaði andrúmsloftið
Friðrik
Sophusson
SIGURVEGARAR í lagakeppni
Vinnuskóla Reykjavíkur, Jón Ferd-
inand og Ólafur Birgir, fluttu sig-
urlag sitt, Reytum arfa, á útskrift
Vinnuskólans sem haldin var í Iðnó í
gær. Um 150 ungmenni voru þar
saman komin meðal annars til að
hlýða á skemmtiatriði og koma sam-
an í síðasta skipti eftir erfiði sumars-
ins. Einnig veittu Vinnuskólinn og
Samtök iðnaðarins 38 ungmennum
viðurkenningu sem fyrirmynd-
arnemendur í skólanum í sumar en
samtökin munu m.a. mæla með þeim
fyrir sumarstarf á næsta ári. Morgunblaðið/Eggert
Vinnuskól-
anum lokið
TIL leigu er nú á vefsíðunni
www.leiguskrá.is 180 fm húsnæði í
Mosfellsbæ „fyrir allt að sjö Pól-
verja“ eins og tilgreint er í auglýs-
ingunni. Um er að ræða hús með
nokkrum herbergjum og er verðið 19
til 29 þúsund krónur á mann á mán-
uði. Athygli vekur að sérstaklega er
tekið fram að húsnæðið rúmi „allt að
sjö Pólverja“ og ekki síður að sagt er
að aðeins eitt herbergi sé í húsinu.
Í auglýsingunni er símanúmer
leigusalans gefið. Morgunblaðið
hafði samband við manninn og sagði
hann m.a. að í reynd væri um fimm
herbergi að ræða. Ástæða þess að
tilgreint væri eitt herbergi í hinu 180
fm húsnæði væri að annars myndi
væntanlegur leigjandi með þörf fyrir
eitt herbergi líta framhjá húsinu sem
leigukosti. Og um ástæðu þess að
biðlað er til allt að sjö Pólverja segir
leigusalinn að hann sé þegar með
nokkra pólska leigjendur í húsinu og
þætti því öðrum Pólverjum gott að
vita til þess að þeir myndu leigja með
samlöndum sínum. Orðalagið „fyrir
allt að sjö Pólverja“ sé því ekki byggt
á fordómum af neinu tagi.
Greiði sjö leigjendur 29 þúsund kr.
á mánuði í leigu eru leigutekjur um
200 þúsund kr. á mánuði.
Húsnæði í boði fyrir
allt að sjö Pólverja
OLÍUFÉLÖG lækkuðu eldsneytis-
verð í gær. Olíufélagið ehf. reið á
vaðið og lækkaði verðið um tvær kr.,
en verð á dísilolíulítra um fimmtíu
aura. Í kjölfarið fylgdu önnur félög
sem lækkuðu til jafns eða einum til
tveimur aurum meira. Ástæða lækk-
unarinnar er lækkandi heimsmark-
aðsverð í kjölfar minnkandi óróa fyr-
ir botni Miðjarðarhafs og minnkandi
ótta um að fellibyljir valdi skaða á
olíumannvirkjum í Mexíkóflóa.
Algengasta verð í sjálfsafgreiðslu
hjá Olíufélaginu, Olíuverzlun Íslands
og Skeljungi er 125,6 kr. fyrir bens-
ínlítra og 122,4 kr. fyrir lítra af dísil-
olíu.
Eldsneytisverð
lækkar
Yf ir l i t