Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 17

Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 17 MENNING EINN dáðasti rithöfundur Egypta, Nóbelsverðlaunahafinn Naguib Mahfouz, lést í gær, 94 ára að aldri. Mahfouz var fluttur á gjörgæslu- deild hinn 14. ágúst síðastliðinn þar sem hann lá milli heims og helju fram til dauða- dags, en ekki hef- ur verið greint frá banameini hans. Mahfouz fædd- ist í Kaíró í des- ember árið 1911. Hann var mikils metinn hugsuður og menntamaður í heimalandi sínu og var lærður heimspekingur frá Kaíró-háskóla. Hann hóf ritstörf 17 ára gamall og gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1939 en alls liggja eftir hann um 50 bækur. Kaíró-trílógían svokallaða, sem gefin var út milli 1955 og 1957, færði hann í framvarðasveit arabískra bókmennta. Ekki voru þó allir sam- mála um ágæti verka hans og var ein af skáldsögum hans bannfærð árið 1959 af áhrifamestu samtökum hins íslamska heims, Al-Azhar. Nób- elsverðlaunin féllu Mahfouz engu að síður í skaut 1988 en hann er fyrsti og eini arabinn sem hefur hlotnast sá heiður. Árið 1994 varð Mahfouz fyrir miklu áfalli þegar öfgamaður úr röð- um íslamstrúarmanna stakk hann í hálsinn með þeim afleiðingum að sjón hans og heyrn hrakaði verulega og taugaskemmdir í hálsi gerðu það að verkum að honum reyndist erfitt að sinna skriftum. Þrjár af bókum Mahfouz hafa ver- ið þýddar á íslensku. Sigurður A. Magnússon þýddi Míramar og Blindgötu í Kaíró og Úlfur Hjörvar bókina Þjófa og hunda. Naguib Mahfouz allur Handhafi bók- menntaverðlauna Nóbels 1988 lést í Kaíró í gær Naguib Mahfouz ÞRIÐJA táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur er „heillandi íslensk glæpasaga“, að mati Thomasar Harder, gagnrýn- anda danska dagblaðsins Politiken. Hann segir í um- sögn sinni, sem birtist á dög- unum, að sagan sé spennandi, dramatísk og leyndardómsfull en meginstyrkur hennar felist í óvenju velheppnuðum aðal- persónum. Hann segist bíða spenntur eftir næstu bók Yrsu. Þriðja táknið kom út hjá Aschehoug í Danmörku í lok liðinnar viku. Bókmenntir Politiken lofar Yrsu Yrsa Sigurðardóttir BARBARA Bonney syngur ekki á upphafstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands um næstu helgi, eins og ráð var fyrir gert. Amer- íski ljúflingssópraninn hef- ur frestað verkefnum sínum á næstunni, – en í hennar stað kemur rómuð norsk stjarna, Solveig Kringel- born, sem á undanförnum misserum hefur heillað áheyrendur sem og gagnrýnendur hvar sem hún kemur fram. Tónlist Kringelborn í stað Bonney Solveig Kringelborn BRESK sjónvarpsmynd, The Girl in the Café, Stúlk- an á kaffihúsinu, vann þrenn verðlaun á Emmy hátíðinni í vikunni. Sögusvið mynd- arinnar er Reykjavík, og baksviðið er fundur átta helstu iðnríkja heims sem þar er haldin. Þetta er ást- arsaga, en leikstjóri mynd- arinnar er Richard Curtis. Með aðalhlutverkin fara Bill Nighy og Kelly Macdonald. Myndin var valin besta sjónvarps- mynd ársins. Kvikmyndir Ást á íslensku kaffihúsi Bill Nighy FYRSTA starfsári Listasafns Reykjavíkur undir listrænni forstöðu Hafþórs Yngvasonar verður form- lega ýtt úr vör á morgun. Þá verður opnuð sýningin Pakkhús postulanna í Hafnarhúsinu en um er að ræða inn- setningar eða gjörninga eftir unga ís- lenska listamenn sem eru fæddir eftir 1968. Hafþór boðar breyttar áherslur í starfsemi safnsins og má segja að opnunarsýningin gefi fyrirheit um það sem koma skal. Meðan Kjarvals- stöðum er ætlað að hýsa vandaðar sýningar reyndra listamanna sem vinna í hefðbund- ari miðla miðar sýningarstefna Hafnarhússins að því að kynna nýj- ustu stefnur og strauma í mynd- list og gera til- raunir með ný tjáningarform. Hafþór segir að í ljósi þess að safnið eigi í tvenn sýningarhúsakynni að venda sé tilvalið að virkja þau með ólíkum hætti. „Bæði húsin hafa alltaf verið rekin undir einni dagskrá en núna er verið að leita að víðtækari sýningardagskrá sem endurspeglar þá breidd sem er til staðar í myndlist í dag,“ útskýrir Hafþór sem vonar að með tvískiptingunni megi virkja fleiri í hópi bæði listamanna og áhorfenda. „Við viljum að í hinu virðulega hús- næði Kjarvalsstaða geti fólk gengið að mjög vönduðum málverkum vísum – því besta sem listamennirnir eru að gera á hverjum tíma. Hins vegar verður meiri uppreisnarandi í Hafn- arhúsinu.“ Meiri orka Pakkhús postulanna kallar Hafþór „jómfrúarsýninguna“ sem gefi fyr- irheit um þann anda sem komi til með að svífa yfir vötnum í Hafnarhúsinu. Í nóvember tekur svo við sýningin Un- certain States of America – banda- rísk list á þriðja árþúsundinu sem er ætlað að vera víðtækt yfirlit yfir bandaríska nútímalist. Sýning- arstjórar hennar eru engir aukvisar: Daniel Brinbaum, einn af ritstjórum Art Forum, Hans Ullrich Obrist, sýn- ingarstjóri í Serpentine-galleríinu í London, og Gunnar B. Kvaran, safn- stjóri Astrup Fearnley-samtíma- listasafnsins í Osló. Hlutverk þeirra var að ferðast vítt og breitt um Bandaríkin og velja á sýninguna úr hópi nærlega 1.000 listamanna fæddra eftir 1970. Hafþór segir að með sýningunni vilji hann halda lif- andi þeirri umræðu sem fer í gang með Pakkhúsi postulanna. Við setningu vetrarhátíðar í febr- úar verður svo opnuð sýning eftir ungan franskan listamann, Pierre Huyghe, í samvinnu við franska menningardaga. Þar á eftir verður Roni Horn með sýningu og svo kemur Gjörningaklúbburinn í haust inn í húsið með yfirlitssýningu á ferli þeirra sem þá spannar ellefu ár. Að síðustu verður í allan vetur boðið upp á stuttar sérsýningar á verkum ungra íslenskra listamanna – ungra í þeim skilningi að þeir hafa ekki áður fengið inni á söfnum. Allt um það þá er ljóst að það verð- ur nýr andi í húsinu – „meiri orka kannski“, með orðum Hafþórs. Hvað varðar Kjarvalstaði verður í lok september sett upp yfirlitssýning á verkum Þórdísar Aðalsteindóttur sem hefur getið sér gott orð í New York, þar sem hún er búsett. Þar á eftir verður húsinu svo lokað í tvo mánuði vegna viðgerða. Húsið verður svo opnað aftur með nýrri Kjarvals- sýningu sem Einar Garibaldi er sýn- ingarstjóri að. Í viðtali sem birtist í Morg- unblaðinu í janúar sagði Hafþór að hann sæi ákveðin sóknarfæri í að laða utanaðkomandi fjármagn að starf- semi Listasafns Reykjavíkur. Þegar þetta er hermt upp á hann segist hann enn vera bjartsýnn. „Ég held að fólk hafi viljað sjá hvaða áherslur fylgdu nýjum stjórnanda áður en það kæmi inn í samstarf við safnið. Nú þegar dagskráin liggur fyrir verð ég var við mikinn áhuga, sem gefur góð fyrirheit.“ ELLEFU ungir listamenn standa að sýningunni Pakkhús postulanna sem ríður á vaðið í starfsemi Listasafns Reykjavíkur í ár. Er þeim treyst fyrir að setja tóninn fyrir þann anda uppreisnar og nýjunga sem Hafnarhúsinu er ætlað að fóstra í vetur og er dagskipunin að ganga þvert á viðteknar venjur starfseminnar. Sýningin hefur verið lengi í burðarliðnum. Fyrir um níu mánuðum leitaði forstöðumaður Listasafnsins, Hafþór Yngvason, til tveggja ungra sýningarstjóra, þeirra Daníels Björnssonar og Hugins Þórs Arason- ar, og fékk þeim það hlutverk að ná til nýrrar kynslóðar með nýjum lista- mönnum sem hafa ekki sýnt í safninu áður. Daníel segir að þeir Huginn hafi lagt af stað með ákveðnar hugmyndir um að unnið yrði með bygginuna sjálfa og arkitektúr hennar. Eftir viðræður við safnið leituðu þeir svo eftir tillögum frá tuttugu listamönnum sem þeim þótti freistandi að starfa með. Úr þeim hópi völdu þeir svo til sýningarinnar. Viðburðinn telur Daníel vera heldur betur áhugaverðan og standa undir því sem lagt var upp með. „Kjallarasalurinn verður meira á „performískum“ nótum. Þannig verður t.d. langur og stór performans á opnuninni, auk þess sem það verða viðburðir með reglulegu millibili út sýningartímabilið. Við fengum svo til liðs við okkur hönnunarhópinn Borðið, sem vann markvisst að því að breyta aðgengi við safnið. Hann segir titil sýningarinnar hafa tvíbenta tilvísun. „Annars vegar vísar hann til uppvaxtarskilyrða listamann- anna sem hlut eiga að máli, en Pakkhús postulanna var heiti á hópi hústökufólks sem hélt svokölluð reifpartí þegar reifmenningin reis sem hæst á tíunda áratugnum. Hins vegar er Hafnarhúsið gamalt pakkhús og listamaðurinn eins konar postuli. Fyrir utan það er þetta flott nafn.“ INDVERSKI kvikmyndaleikstjór- inn Hrishikesh Mukherjee er horf- inn til feðra sinna, 84 ára að aldri. Mukherjee er þekktastur fyrir myndir á borð við Anand, Chupke Chupke og Abhiman sem allar segja látlausar sögur af indversku mið- stéttarfólki og samskiptum þess. Ár- ið 2001 hlaut hann virtustu kvik- myndaverðlaun Indlands, Dada Saheb Phalke-verðlaunin. Kunnur Bollywood- leikstjóri látinn GOOGLE-LEITARVÉLIN hefur um nokkurt skeið boðið upp á ókeyp- is niðurhal á klassískum bók- menntum sem falla ekki lengur und- ir höfundarréttarlög. Hingað til hefur þó aðeins verið mögulegt að lesa bækurnar af skjánum. Nú hyggst Google hins vegar gera not- endum sínum kleift að prenta bæk- urnar. Bókarleit Google er hluti af stærra verkefni sem gengur út á að gera bækur aðgengilegar á netinu og er unnið í samvinnu við háskóla á borð við Oxford, Harvard, Stanford og bókasafn New York-borgar. Hægt að prenta bækur af Google Myndlist | Listasafn Reykjavíkur hefur starfsárið með opnun í Hafnarhúsinu Vettvangur tilrauna Listasafns Reykjavíkur Morgunblaðið/Ásdís Óhefðbundin Listamennirnir á bak við opnunarsýningu Listasafns Reykjavíkur feta óhefðbundnar slóðir, eins og þetta verk Helga Þórssonar ber með sér. Hafnarhúsið mun hýsa tilraunakenndari verk í vetur. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is Hafþór Yngvason Dagskipunin uppreisn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.