Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 27
ÍLondon er aragrúi sögufrægra bygginga,staða, minja og merkja en elsta rómverskabyggðin, sem gaf borginni nafnið Lond-onium, er talin hafa risið skömmu eftir inn-
rás Rómverja árið 43 e.Kr. Varð borgin þá strax
mikilvægur verslunarstaður en það varð ekki fyrr
en 890 sem hún varð höfuðborg Englands sem þá
var komin undir stjórn engilsaxneskra konunga. Á
17. öld voru Lundúnir þungamiðja heimsverslunar
og ört stækkandi heimsveldis Breta og náði íbúa-
fjöldi þeirra þá um fjögur hundruð þúsundum. Ár-
ið 1665 lést hins vegar fjórðungur þeirra í plágu
sem þá geisaði en til samanburðar eru íbúar Lund-
úna rúmlega átta milljónir í dag. Árið 1666 var
annað hörmungaár í sögu borgarinnar en þá brann
nær öll borgin til ösku. Þá og eftir loftárásir Þjóð-
verja í heimsstyrjöldinni síðari hófst mikið end-
urbyggingarstarf.
Frægir ferðamannastaðir
Miðborgin eða The City eins og hún er jafnan
kölluð er miðstöð fjármála- og viðskiptalífs en þar
eru líka þekktar byggingar eins og St.Pálskirkjan
og miðaldakastalinn Tower of London. Í West-
minster, hjarta West End, er Buckinghamhöll, að-
setur bresku konungsfjölskyldunnar, þinghúsið og
krýningarkirkjan Westminster Abbey. Í nágrenn-
inu eru einnig Trafalgar Square og þekktir al-
menningsgarðar eins og Hyde Park, Kensington
Park og Regent́s Park auk dýragarðsins London
Zoo. Norður af Westminster er Soho, sem stund-
um er nefnt hið bleika hverfi Lundúna. London
Eye, sem byggt var í tilefni aldamótanna, síðustu
gefur útsýni yfir London sem engan svíkur og Big
Ben veit enn hvað klukkan slær.
,,Hvernig geta verið svona mörg athyglisverð
söfn í einni borg?“ spurði ferðamaðurinn leiðsögu-
manninn og féllust hendur þegar hann leit yfir
listann sem sá síðarnefndi hafði látið honum í té.
Hann gæti verið lon og don á söfnum alla ferðina!
,,Ég myndi vilja sjá Rembrandt sýninguna og sýn-
ingu impressjónistanna í The National Gallery en
það væri líka gaman að skoða The British Mu-
seum, geysistórt safn sem leggur áherslu á list og
menningu allra heimshluta frá örófi alda og til
dagsins í dag.“
Þá hafði hann alltaf haft áhuga á stríðssögu og
sá ekki betur en að Imperial War Museum væri
með mjög áhugaverðar sýningar þar sem fjallað
er um átök á milli ríkja og þjóða, einkum þó þau
sem breska samveldið hefur lent í frá heimsstyrj-
öldinni fyrri. ,,Hefur þú ekki svo mikinn áhuga á
nútímahönnun?“ spurði hann samferðamann sinn.
,,Við gætum skellt okkur á Design Museum. Það
er tiltölulega nýtt safn í London og nýtur vaxandi
vinsælda en áherslan er á iðnhönnun og bygging-
arlist, tísku og margmiðlun.“ Samferðamanninum
leist vel á það og stakk upp á, úr því að þeir væru á
annað borð komnir í nútímann að líta við á tveim-
ur öðrum söfnum. ,,Ég hef heyrt vel látið af vís-
indasafninu, Science Museum, en þar er sögu
vestrænnar tækniþróunar frá 1700 og til okkar
daga lýst og einstakir hlutar hennar sýndir, allt
frá samgöngum, orkunotkun og verkfræði og til
líf- og tölvutækni. Og þar sem þú ert svo listfeng-
ur þá getum við litið á meistaraverk eftir Picasso
og Matisse, verk frá tímum súrrealismans, þar á
meðal Dali, Ernst, Magritte og Miro.“ Svo litu
þeir hvor á annan og það var augljóst að þeim
hafði dottið það sama í hug. ,,Eigum við að enda
þetta á Freud Museum? Það er reyndar svolítið út
úr en Sigmund Freud skar sig auðvitað alltaf svo-
lítið frá öðrum.
Það er víst hægt að berja þennan fræga bekk
augum, fræðast um sálkannanir hans og kenn-
ingar um drauma. Gerum það.“
Saga og frægir ferðamannastaðir
Morgunblaðið/Ómar
Piccadilly Circus Við torgið, sem er skemmtilegur suðupottur og frægt
fyrir auglýsingaskiltin, eru tvær stórar tónlsitarverslanir.
Morgunblaðið/Halldor Kolbeins
Fjármálahverfið Er að verða eitt
vinsælasta hverfið í Lundúnum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Áhugavert Big Ben og útsýnishjól-
ið London Eye í baksýn.
WEST END er miðstöð skemmt-
analífsins í London. Þar eru flest
leikhús borgarinnar auk ensku
þjóðaróperunnar, Royal Opera
House. Flóran af leiksýningum,
söngleikjum, óperum, ballettum og
danssýningum er slík að hætt er
við eyjarskeggjar sem alist hafa
upp í fámenni eigi erfitt með að
velja og hafna. Ólíkt Íslendingum
og ef til vill af praktískum ástæðum
eru Bretar skipulagðari og gera oft
áætlanir um skemmtanir sínar fram
í tímann. Ætli Íslendingur því að
fara á vinsælt leikrit, söngleik eða
óperu í Lundúnum þá er eins gott
að hann breyti um lífsstíl í smá-
stund, annars er hætt við að mið-
arnir verði uppseldir þegar hann
loksins drepur niður fæti í West
End. Heimasíðurnar www.official-
londontheatre.co.uk/ og www.timeo-
ut.com eru fínar uppsprettur upp-
lýsinga um leikhús, söngleiki og
atburði líðandi stundar en á þeirri
síðarnefndu má finna umsagnir sem
geta hjálpað til við valið. Góðu
fréttirnar eru þó þær að jafnvel
þótt Íslendingurinn lifi bara fyrir
líðandi stundu má oftast ná í miða á
einhverjar sýningar samdægurs
eða með nokkurra daga fyrirvara –
það er bara ekki jafnöruggt.
Hvernig er best að bera sig að ef
maður vill sjá leikrit, söngleik eða
uppákomu?
Fara inn á fyrrnefndar heimasíð-
ur og afla sér frekari upplýsinga
um sýninguna.
Hringja í leikhúsið/söngleikja-
húsið/óperuna, athuga hvort til séu
miðar og panta þá í gegnum síma.
Panta miða og greiða í gegnum
netið. Þetta er oft auðveldasta leið-
in og iðulega eru leiðbeiningar á
heimasíðu leikhússins sem hýsir at-
burðinn eða þar sem atburðurinn
er kynntur.
Freista þess að kaupa miða sam-
dægurs í leikhúsunum sjálfum eða
hjá miðasölunum á Leicester
Sqare.
Í West End er margt götu-
sölufólk sem er ð selja miða á vin-
sæl leikrit og söngleiki en þar er
oft misjafn sauður í mörgu fé. Þeir
sem eru löggiltir eiga að geta fram-
vísað einkennismerki STAR (The
Society of Ticket Agents & Retai-
lers).
Fótbolti
Í höfuðvígi ensku knattspyrn-
unnar ættu áhugasamir að skella
sér á völlinn. Séu leitarorðin „UK
tickets“ sett inn á leitarsíðu kemur
upp aragrúi síðna þar sem panta
má miða á leik. Má þar nefna www.
ticketmaster.co.uk undir krækjunni
football. Hægt er að velja sæti á
vellinum og fer miðaverð eftir því.
Miðana er oft best að sækja í miða-
söluna á leikdegi.
Nokkrir Íslendingar leika með
Lundúnaliðum. Heiðar Helguson
sem spilar með Fulham, Hermann
Hreiðarsson og Rúrik Gíslason með
Charlton og Ívar Ingimarsson og
Brynjar Björn Gunnarsson hafa
gert garðinn frægan hjá Reading.
Leikhús, söngleikir og fótbolti
Morgunblaðið/Kristinn
DÆMI ÚR FLÓRU
SKEMMTANALÍFSINS
Í LONDON VETURINN
2006–2007
Söngleikir: Chigago, Footloose,
Les Miserable, Lord of the Rings,
Sound of Music
Leikrit: The Alchemist, Avenue Q,
Love and Money, The Comedy of
Errors, Don Juan in Soho.
Óperur: Carmen, La Bohéme, The
Cave, The Marriage of Figaro, The
Queen of Spades.
Ballett og dans: The Sleeping
Beauty, Moxix: Lunar Sea, Cop-
pélia. (Athugið að hver sýning er að-
eins sýnd í fáeina daga).
REYKVÍKINGAR eru ekki þeir einu sem eru svo
lánsamir að hafa á sem rennur í gegnum höf-
uðborg sína. Það fer reyndar fáum sögum af lax-
veiði í Thames þeirra Lundúnabúa, a.m.k. ekki í
miðborginni, en áin er sú önnur stærsta á Bret-
landseyjum. Þó það sé löngu úrelt máltæki að
vera sigldur má Lundúnafari fyrir engan mun
missa af siglingu á Thames. Þannig sér hann
borgina frá allt öðru sjónarhorni en frá árbakk-
anum má sjá margar af fallegustu byggingum
Lúnduna. Brýrnar yfir Thames eru svo kapítuli
út af fyrir sig en þær eru um hundrað talsins frá
ýmsum tímum og einstakur vitnisburður um
bæði verkfræðilega kunnáttu og fjölbreyttan
arkitektúr.
Morgunblaðið/Ómar
Thames Brýrnar yfir ána eru fjölbreyttar og
siglingin bæði fróðleg og rómantísk.
Sigling á Thames
Fréttir
í tölvupósti
Vika á Florida
kr. - ótakmarkaður akstur, allar tryggingar,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
17.800*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar