Morgunblaðið - 31.08.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 37
skipti. Ég á mjög erfitt með að með-
taka þá staðreynd að eiga ekki eftir
að sitja á móti þér í morgunkaffinu
og plana vinnudaginn, ræða við þig
um tónlist sem var jú ástríða þín eða
liggja úti á köldum haustmorgni að
reyna að ná gæsum í morgunflug-
inu. Ég held að ég hafi aldrei séð þig
jafn ánægðan og þegar við veiddum
okkar fyrstu gæsir saman, fyrir
norðan í Hjaltadalnum, við hlógum
alla leið heim í kofann.
Þú varst ánægðastur úti í nátt-
úrunni og alltaf fyrstur til að stinga
upp á jeppaferð eða tjaldferðalagi
og sást svo nánast einn um að halda
uppi stemningu með kassagítar og
söng. Þér tókst undantekningalaust
að fá alla með þér í fjörið. Þessir
hæfileikar voru sannarlegar öfunds-
verðir.
Þú hafðir einnig þann dýrmæta
eiginleika að geta séð spaugilegu
hliðina á flestum vandamálum og
var þess vegna alltaf svo auðvelt að
koma til þín ef eitthvað lá þungt á
manni, tókst á því með þeim hætti
að manni leið alltaf betur eftir á og
vandamálið sýndist minna en áður.
Þú hefur reynst mér traustur vin-
ur alla tíð, gegnum súrt og sætt, en
hvort að slíkan vin maður finni oftar
en einu sinni á ævinni verður tíminn
að leiða i ljós.
Orð fá ekki lýst hversu mikið við
eigum öll eftir að sakna þín, Siggi
minn, það hefur stórt skarð mynd-
ast í tilveru okkar allra sem seint
verður fyllt.
Það eru forréttindi að hafa þekkt
þig, elsku drengur, og ég er betri
maður fyrir vikið.
Þinn vinur,
Baldur Freyr Gústafsson.
Þegar maður sest niður til að
setja staf á blað í minningu látins
vinar þá finnst manni ótækt annað
en að lýsa því hvers konar mann-
eskja þar var á ferð. Sigga verður
ekki gert skil án þess að minnast á
hversu einstaklega myndarlegur
drengur hann var. Siggi var einnig
sérstaklega skemmtilegur og ljúfur
strákur. Honum var margt til lista
lagt og hvort sem það var knatt-
spyrna, útreiðar, gítarspil, veiðar
eða hvað eina annað, allt virtist það
liggja fyrir honum. Þá var hann
mikill gleðigjafi og hrókur alls fagn-
aðar og sóttist fólk í miklum mæli í
hans félagsskap. En orð mín eru
máttvana fædd þegar slíkum gull-
mola er lýst og fæ ég það ekki betur
gert en þegar ég segi að allir strák-
ar vilja vera eins og hann og allar
stúlkur vilja fá mann eins og hann.
Ég minnist þess er ég kynntist
Sigga en það var á okkar fyrsta ári í
Menntaskólanum í Kópavogi. Ég
fann strax hversu almennilegur
drengur þar var á ferð sem lagði sig
í líma við að koma vel fyrir. Mikil
velvild einkenndi samskipti okkar
fyrstu árin en ég fór þó ekki að
kynnast honum almennilega fyrr en
það tók að líða á seinnihlutann á
dvöl okkar í skólanum. Fór svo að
ég og Siggi dimmiteruðum saman í
lok árs 2001 en sama dag fluttum
við sameiginlega ræðu fyrir hönd fé-
lagsfræðibrautarinnar í MK. Hefur
sú minning alltaf verið í heiðri höfð
hjá mér og ekki síður er við fórum í
sameiningu niður í skóla og var til-
kynnt það stuttu fyrir útskrift að við
hefðum náð öllu og myndum fylgja
hópnum á hinum háa herrans degi.
Mikil bjartsýni og gleði ríkti í okkar
hjarta og við héldum hátíðlega upp
á daginn. Sumarið eftir fór ég í
heimsókn til Sigga og Hilmars Pét-
urs en þeir höfðu ákveðið að flytjast
til Danmerkur bróðurpartinn af
sumrinu. Það var einstaklega
skemmtilegur tími og hafði Siggi
verið búinn að læra á gítar og var
gaulað hástöfum á hverju kvöldi við
undirspil frá kappanum. Bættust
margir góðir drengir úr Kópavog-
inum í hópinn, enda Hróarskelduhá-
tíðin í fullu fjöri og mjög gestkvæmt
hjá félögunum. Þetta var hins vegar
hvorki mín fyrsta né síðasta ferð
með Sigga, því árið áður höfðum við
félagarnir farið í útskriftarferð til
Krítar. Þá fór ég einnig með Sigga
ásamt Hilmari Pétri til Spánar fyrr í
sumar. Hvern hefði grunað að það
myndi verða okkar hinsta ferð sam-
an?
Elsku vinur, ég vil þakka þér fyr-
ir kynnin og allar þær góðu stundir
sem ég hef átt í þínum félagsskap,
þeirra verður ævinlega minnst.
Að endingu vil ég votta foreldrum
og fjölskyldu Sigga mína dýpstu
samúð.
Kári Ólafsson.
Allt of snemma hefur yndislegur
strákur, Siggi vinur okkar yfirgefið
þennan heim. Við áttum svo margar
góðar stundir saman, sem verða að
minningum sem hjálpa okkar á tím-
um sorgar og saknaðar.
Siggi hreif alla með sér í lífsgleði
sem smitaði út frá sér, sama hvort
væri grár mánudagsmorgunn eða
diskóball með dansi og gamani.
Hann var þessi hressi og skemmti-
legi sem strákarnir litu upp til og
stelpurnar dáðust að. Við eyddum
hverjum degi með Sigga og vina-
hópnum úr Þinghólsskóla, á daginn
var það skólinn, á kvöldin var það
oftar en ekki eitthvert útihangs, yf-
irleitt voru strákarnir á fótboltaæf-
ingum og við á kóræfingum en á
endanum skyldum við ramba á sama
staðinn, sama hvort það var fyrir ut-
an Kársnesskóla, inní félagsmið-
stöðinni Ekkó, eða úti við hitablást-
urinn hjá sundlauginni.
Um helgar var það svo videogláp,
bíóferðir þar sem strætóferðirnar
fram og til baka tóku yfirleitt lengri
tíma en myndin sjálf eða tjaldgist-
ingar úti í görðum sem enduðu sem
náttfatapartý vegna kulda. Að
ógleymdum hinum fjörugu skóla- og
fermingarferðalögum.
En sama hvaða furðulegi hangi-
staður eða óvenjulega uppátæki
varð fyrir valinu, lentum við í æv-
intýrum, hlógum og nutum þess að
vera til.
Eftir gaggó tók hópurinn að fara í
ólíkar áttir og hittast sjaldnar og
sjaldnar, en reglulega hittum við þó
Sigga og strákana aftur, rifjuðum
upp gamla tíma og deildum þeim
nýju. Við héldum smá ,,reunion“
þegar Siggi fékk lánaðan bústaðinn
hjá foreldrum sínum fyrir nokkrum
árum og var frábært að verja þar
tíma saman á ný. Þar var Siggi
prýðilegur gestgjafi, sýndi okkur
svæðið um miðja nótt, kenndi okkur
að skauta á lopasokkum í kraftgöll-
um og hvernig best væri að grilla
pulsur klukkan 5 á nóttu í miklu
frosti. Algjör ævintýraferð þar. Á
síðustu árum hefur sambandið ekki
verið mjög mikið, þó alltaf hafi verið
jafn gaman að hitta Sigga okkar aft-
ur og skiptast á fréttum og hvers-
dagssögum.
Elsku Siggi, við söknum þín og
þökkum fyrir yndislegar stundir
sem við áttum saman. Við biðjum
góðan Guð að hjálpa fjölskyldunni á
þessum erfiðu tímum og passa upp á
Sigga okkar og gefa honum ham-
ingju á nýjum stað.
Minninguna um Sigga varðveitum
við í hjörtum okkar um ókomna tíð.
Steinunn og Tinna.
Oft er spurt ef þú ættir að lýsa
einhverju með einu orði hvaða orð
yrði það þá. Ef ég ætti að lýsa Sig-
urði Rúnari Þórissyni með einu orði
þá yrði það auðvelt. Orðið yrði gam-
an því alls staðar þar sem Siggi var,
þar var gaman.
Í fljótu bragði rifja ég upp tvær
sögur þar sem við vorum staddir í
mjög svo leiðinlegum aðstæðum án
þess þó að minningarnar um þær
séu leiðinlegar. Slíkum aðstæðum er
sjaldnast lýst sem skemmtilegum en
þér tókst einhvern veginn alltaf að
láta fólkið í kringum þig skemmta
sér vel. Fararstjóri á tunglinu er
starf sem þér hefði án efa tekist að
sinna með ágætum vegna þess að
aðstæður skiptu ekki máli þegar þú
varst með í för, það var alltaf gam-
an.
Þín verður alltaf minnst sem
hróks alls fagnaðar og með gleði í
hjarta fyrir þá tíma sem við áttum
saman ásamt miklum söknuði yfir
þeim tímum í ókominni framtíð þar
sem þú verður ekki til staðar.
Því sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur til allra þinna nán-
ustu því að meiri missi er ekki hægt
að hugsa sér í þessum heimi.
Stefnir Agnarsson.
✝ Ásta Krist-insdóttir fædd-
ist í Reykjavík 4.
júlí 1917. Hún lést
á hjartadeild Land-
spítalans hinn 18.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Árna Margrét
Þorvaldsdóttir
Andersen frá
Skálanesi á Mýr-
um, f. 18. sept
1897, d. 1991, og
Kristinn Júlíus
Markússon, f. 5.
mars 1894 í Reykjavík, d. 16.
maí 1973. Ásta ólst upp með
móður sinni og stjúpa, Mogens
Löve Andersen, ásamt fimm
hálfsystkinum. Aðeins eitt
þeirra er á lífi í dag, Mary And-
ersen, f. 23. maí 1926.
Ásta giftist 1935, Jakobi Lín-
dal Jósepssyni, f. 24. apríl 1917,
d. 27. des. 1993. Börn þeirra
eru: 1) Reynir Jak-
obsson, f. 22. nóv.
1936. 2) Gréta
Hulda Hjart-
ardóttir, f. 30. jan.
1938. 3) Hilmar
Jakobsson, f. 18.
mars 1940.
Seinni maður
Ástu var Haukur
Hólmsteinn múrari,
f. 26. feb. 1917, d.
25. júlí 1964. Synir
þeirra, Haukur
Birgir Hauksson, f.
16. mars 1944, d.
30. júlí 1973; Rúnar Hauksson, f.
10. júlí 1946; og Hörður Sævar
Hauksson, f. 21. sept. 1951. Af-
komendur Ástu eru 63 talsins.
Ásta stundaði ýmis störf. Síð-
ustu starfsárin hjá útgáfufélagi
Vikunnar og fleiri tímaritum.
Ásta verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku mamma, mig gat ekki órað
fyrir því að það væri í síðasta sinn
sem ég sæi þig á lífi, þegar ég kom í
heimsókn til þín á spítalann þann 18.
Þú talaðir um að þú fengir kannski
að fara heim á Hrafnistu eftir helgi.
En svona er lífið, enginn veit sinn
næturstað.
Ég var send í fóstur til móðursyst-
ur þinnar Ólafíu Þorvaldsdóttur og
manns hennar Hjartar Guðbrands-
sonar. Þarna átti ég góða æsku. En
aldrei varst þú langt frá mér.
Ég á margar góðar minningar frá
þeim tíma er ég kom í heimsókn til
þín og strákanna. Það var stundum
erfitt að vera eina stelpan innan um
fimm stráka. Þeir voru ekki alltaf
ánægðir að hafa stelpu með í fótbolta
eða öðrum þeim leikjum sem strákar
voru mest í. En þetta voru bræður
mínir og mér þótti mjög vænt um þá
alla.
Elsku mamma, þú varst ótrúlega
dugleg, kvartaðir aldrei, þótt þú
værir sárþjáð. Tvisvar lærbrotnaðir
þú, þetta er að lagast, var viðkvæðið,
ekkert mál. Sumir eru ver haldnir en
ég.
Í mörg ár bjóst þú ein í Bláhömr-
um. Þú varst mjög dugleg að fara í
Kolaportið, þó að þú þyrftir að taka
þrjá strætóa. Þú sagðist alltaf hitta
einhverja sem þú þekktir. Þegar
heilsu fór að hraka og þú áttir erfitt
með að vera ein þá lögðust allir á eitt
þannig að þér gæti liðið sem best.
Hilmar kom og var hjá þér, þó svo að
hann yrði að sofa á gólfinu. Síðustu
tvo mánuðina varst þú á Hrafnistu.
Svo kom reiðarslagið hjartað gaf
sig, kannski ekki skrítið, búin að
strita mikið alla tíð.
Það er erfitt að kveðja, en ég veit
að nú líður þér vel, elsku mamma.
Þín dóttir
Gréta.
Ég vil segja nokkur kveðjuorð til
minningar um elskulega tengdamóð-
ur mína Ástu Kristinsdóttur sem við
söknum svo sárt. Við kveðjum þessa
yndislegu og ljúfu konu sem reyndist
mér svo góð tengdamóðir og amma
barnanna minna. Við erum aldrei
undir það búin þegar kallið kemur
frá æðri máttarvöldum. Við Ásta
höfðum báðar þá lífsreynslu að hafa
þurft að kveðja eitt af börnunum
okkar langt um aldur fram. Mér
fannst hún alltaf svo sterk og hugljúf
þó svo að lífshlaup hennar hefði orðið
mér um megn.
Elskulegi maðurinn minn, systkini
þín og börnin, megi Guð vera með
ykkur öllum.
Í vináttu
jafnt sem í ást
sækjum við æ
í félagsskap
þar sem okkur
leyfist að vera
að fullu og öllu
við sjálf.
(André Maurois.)
Megi Guð umlykja þig í sínum
örmum að eilífu.
Þín tengdadóttir
Elsabet Sigurðardóttir.
Elskulega Ásta amma mín hefur
kvatt okkur. Spor ömmu í lífinu voru
ekki alltaf létt en hún hafði svo ein-
staka lund að hún gat tekið lífinu
með mátulegum hátíðleika. Húmor-
inn hennar smitaði langt út frá sér
og fékk ég oft að njóta yndislegra
stunda með henni þar sem mikið var
hlegið og gantast. Fyrstu minning-
arnar sem koma upp í hugann eru
frá því ég var lítil í heimsókn hjá
ömmu og voru það senjoríturnar í
flottu kjólunum, fossalampinn sem
hreyfðist og koppurinn hennar undir
rúminu sem vöktu mesta athygli.
Næstu áratugina sankaði ég að mér
ótal fallegum minningum um Ástu
ömmu mína og þær mun ég geyma í
hjarta mér að eilífu. Kærastar eru
minningarnar frá þeim tíma er ég
bjó heima hjá henni fyrstu mennta-
skólaveturna mína. Amma gerði allt
sem hún gat til að mér gæti liðið vel
við þröngar aðstæður og verður það
aldrei fullþakkað. Okkur leið vel
saman í Suðurhólunum og Bláhömr-
unum og fannst mér svo gaman að
þrífa allt hátt og lágt heima hjá henni
áður en hún kom úr vinnu og heyra
svo í henni ánægjuróminn þegar hún
kom heim. Á kvöldin sátum við oft
við sjónvarpið og borðuðum kókos-
bollur sem hún keypti í Kolaportinu,
það var sko uppáhald hjá okkur báð-
um.
Eftir að ég fór að búa sjálf með
frumburðinn minn kom hún nær
daglega við í bæjarröltinu sínu, fékk
sér kaffi og spjallaði heil ósköp. Hún
hafði gaman af að spjalla og hitta
fólk, hún amma mín, og það var alltaf
gaman að vera nálægt henni. Ásta
amma var líka afskaplega hreinskilin
en það var aldrei hægt að taka því
illa, hún amma var bara þannig. Dill-
andi hláturinn hennar lífgaði upp á
allt og jákvætt viðhorf hennar til lífs-
ins var einstakt. Þrátt fyrir að líkami
hennar væri orðinn gamall og lúinn
síðustu mánuðina var andinn alltaf
léttur og stutt í húmorinn.
Elsku fallega amman mín, ég
þakka þér allt sem þú hefur kennt
mér frá því ég kom í þennan heim.
Þú mátt vera stolt af því sem þú skil-
ur eftir þig og mun ég ávallt muna
þig með bros í hjarta. Guð geymi þig,
amma.
Með eilífri ást.
Þín sonardóttir,
Særún.
Hér blundar hún, sem birtu og ljós
oss bar um langa stund,
og kærleik veitti og vann í trú
sitt verk með fúsri mund.
Því vekst nú upp svo ótal margt
frá ára langri braut,
um hennar starf og táp og tryggð
og trú í sæld og þraut.
Guð gleðji þig á himni há
og huggi oss grætta á jörð,
uns seinna í dýrð hans sjáumst vér
með sælli þakkargjörð.
(F. Friðriksson.)
Elskuleg kona hefur kvatt okkur.
Kynni okkar „Ástu ömmu“ eins og
börnin mín kölluðu hana alltaf, hóf-
ust fyrir nærri fjörutíu árum er ég
kom inn í fjölskylduna hennar.
Ásta sýndi mér alla tíð mikla hlýju
og elsku og umfram allt einlæga vin-
áttu. Hún var einstaklega skapgóð
og það fylgdi návist hennar gleði og
kátína.
Hún naut þess að hafa fólk í kring-
um sig og það var alltaf notalegt að
kíkja inn í kaffisopa í Bláhamrana. Í
hvert sinn er við hittumst var mikið
spjallað og hlegið, hún vildi fylgjast
með barnabörnunum og þeirra fjöl-
skyldum. Þeim var hún góð amma og
þau minnast hennar með þakklæti.
Og það voru líka góðar samveru-
stundirnar sem hún og mamma áttu
saman, þegar þær hittust í afmæl-
isboðum hjá fjölskyldum okkar. Fyr-
ir þetta allt þakka ég henni.
Ég þakka öll árin sem við höfum
átt saman, allar samverurnar og öll
hlýju faðmlögin hennar.
Yndisleg kona hefur fengið hvíld-
ina. Veri hún Guði falin.
Innilegar samúðarkveðjur til
barna hennar og annarra aðstand-
enda.
Rúna Gunnarsdóttir.
Ásta Kristinsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar alla útgáfudag-
ana.
Skilafrestur | Ef birta á
minningargrein á útfarardegi
verður hún að berast fyrir há-
degi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef
útför hefur farið fram eða grein
berst ekki innan tiltekins skila-
frests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningar-
greinar
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði