Morgunblaðið - 31.08.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 41
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Ein
stö
k k
jö
r;
all
t a
ð
95
%
lán
sh
luf
all HELLUVAÐ 1-5, Norðlingaholti
Dæmi um greiðslukjör á 4ra herbergja íbúð
Útborgun (eigið fé) kr. 1.280.000,-
Lán frá Íbúðalánasjóði (40 ára lán) kr. 17.000.000,-
Lán frá sparisjóði (40 ára lán) kr. 2.050.000,-
Lán frá seljanda (20 ára lán) kr. 5.070.000,-
Heildarverð íbúðar kr. 25.400.000,-
Greiðslubyrði 128 þús. á mánuði.
*miðað er við fasta vexti 4,7% frá Íbúðalánasjóði, 5,4%
frá sparisjóðum og 6,9% frá seljanda.
4ra-5 herbergja glæsilegar, fullbúnar íbúðir
(án gólfefna) í lyftuhúsi. Örstutt er í frábær útivistarsvæði eins
og Heiðmörk, Rauðavatn og Elliðavatn. Sérinngangur er í allar
íbúðir og sértimurverönd fylgir íbúðum á jarðhæð.
Sölumenn Eignamiðlunar - veita nánari upplýsinga
HREINSUNARDAGUR Grund-
arhverfis á Kjalarnesi var hald-
inn á laugardaginn og þótti þátt-
taka íbúa góð.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri mætti og gekk til
verka með íbúum og starfs-
mönnum borgarinnar. Var meðal
annars sett upp nýtt mark á leik-
svæði í miðju hverfinu við mikinn
fögnuð unga fólksins. Verkefnum
var deilt út til starfsmanna og
sjálfboðaliða úr hópi íbúa og náð-
ist að vinna úr öllum þeim efni-
viði sem vinna átti úr. Voru m.a.
þökulagðir um 1.500 fermetrar.
Hverfastöðin á Kjalarnesi naut
liðsinnis um tuttugu starfsmanna
annarra hverfastöðva fram-
kvæmdasviðs og garðyrkjudeild-
ar umhverfissviðs borgarinnar
auk starfsmanna frá þjónustu-
miðstöð Grafarvogs og Kjal-
arness.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Kjalnesingar tóku hressi-
legan þátt í hreinsunardegi
NORÐURLANDAMÓT vagnstjóra
fór nýlega fram í Helsinki í þrí-
tugasta sinn. Tilgangur þessa
móts er að auka og viðhalda
færni og þekkingu vagnstjóra á
ökutækjum sínum. Höfuðborg-
irnar fimm skiptast á að halda
keppnina og skipa sex vagn-
stjórar hvert lið, sem ekur
keppnisbraut sem samanstendur
af tíu þrautum sem þarf að leysa
á sem skemmstum aksturstíma,
auk þess sem tímarefsingar fást
fyrir villur sem hver keppandi
gerir í brautinni. Fimm lið keppa
um Norðurlandatitil og 30 vagn-
stjórar innbyrðis og keppendur
eiga ekki að sjá keppnisbrautina
fyrr en á keppnisdag.
Reykvískir vagnstjórar Strætó
bs. urðu að sætta sig við silf-
ursætið að þessu sinni, en liðið
hefur unnið til gullverðlauna síð-
ustu fjögur árin. Finnar sigruðu,
Svíar urðu í þriðja sætið, Norð-
menn í fjórða sæti og Danir ráku
lestina í fimmta sæti.
Ljósmynd/Ólafur Sveinsson
Ökuleikni Keppnislið Strætó bs.: Efri röð frá vinstri: Rögnvaldur Jón-
atansson, Markús Sigurðsson, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech,
Kjartan Pálmarsson og Sigurjón Guðnason. Neðri röð frá vinstri: Jóhann
G. Gunnarsson, Kristján Kjartansson og Hörður Tómasson.
Vagnstjórar Strætó bs. unnu silfurverðlaun
DAGANA 31. ágúst–3. september
verða seldir pennar til styrktar
starfi aðildarfélaga Krabbameins-
félags Íslands, en slík sala er orðin
árviss. Selt verður við verslanir og
gengið í hús þar sem því verður við
komið.
Allur ágóði rennur til aðild-
arfélaga Krabbameinsfélagsins en
það eru svæðisbundin krabbameins-
félög og stuðningshópar sem stofn-
aðir hafa verið til að sinna fræðslu
og félagslegri þjónustu við þá sem
hafa fengið krabbamein.
Undanfarin ár hefur verið unnið
að því að efla starf svæðisbundnu fé-
laganna. Hafa nokkur þeirra þegar
tekist á við verkefni í heimabyggð
sinni. Stuðningshóparnir hafa unnið
mikið og óeigingjarnt starf í þágu
krabbameinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra. Pennasölunni er ætlað
að styðja við þessa starfsþætti. Hver
penni er seldur á 1.000 krónur.
Krabbameinsfélagið væntir þess
að landsmenn taki sölufólki vel og
noti þetta tækifæri til að efla barátt-
una gegn krabbameini.
Pennasala
Krabbameins-
félagsins
FRÉTTIR
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir ökumanni á svörtum BMW bíl
vegna atviks mánudaginn 28. ágúst
um kl. 19.30. Þá var reiðhjóli ekið
af Hallarmúla í Reykjavík inn að
bifreiðastæðum við Nordica hótel,
þar kom á móti BMW bíllinn og er
hann mætti reiðhjólinu féll öku-
maður reiðhjólsins við og slasaðist.
Óskað er eftir að ökumaður BMW
bílsins og vitni gefi sig fram við
rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík í síma 444 1000.
Lýst eftir vitnum
Rangt
reikningsnúmer
GREIN eftir mig, Veðurspámaður á
Blönduósi, birtist í Morgunblaðinu
sl. sunnudag. Í lok greinarinnar var
góðfúslega óskað eftir þátttöku
áhugasamra lesenda með fjár-
framlögum þeirra í sjóð til stuðnings
verkinu sem sagt var frá í greininni.
Því miður voru upplýsingar um
reikning ófullnægjandi. Hið rétta er
að reikningurinn er hjá Glitni,
Kringlunni, númer 515-14-611888,
kt. 0510363449.
Þór Jakobsson,
veðurfræðingur.
LEIÐRÉTT