Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 42
|fimmtudagur|31. 8. 2006| mbl.is
Staðurstund
Leikararnir Matt Dillon og Mar-
isa Tomei eru stödd hér á landi í
tilefni af frumsýningu mynd-
arinnar Factotum á IIFF. » 47
kvikmyndir
Baggalútur er kominn á toppinn
á Tónlistanum. Kemst hann
hærra? Pottþétt er nú í öðru
sæti. » 46
tónlist
Spánarfljóðið lætur bíða eftir sér en tiplar loks innum garðhliðið og setur stefnuna á hvíta tjaldið þarsem viðtalið fer fram. Henni er pínulítið brugðið ogvottar fyrir vandræðasvip þegar ég kynni mig sem
blaðamann frá Íslandi. Það þýðir væntanlega að landar mín-
ir, sjónvarpsstjörnurnar í Strákunum, eru búnir að fá sitt
viðtal.
Penélope Cruz leikur aðalhlutverkið í Volver, nýjustu
mynd spænska leikstjórans Pedros Almodóvars, en hún á,
eins og fleiri spænskir leikarar, honum að hluta heimsfrægð
sína að þakka. Cruz er fædd í Madríd á Spáni, dóttir kaup-
manns og hárgreiðslukonu, og hóf þar leiklistarferil sinn
fimmtán ára gömul. Ein af hennar fyrstu myndum var Ósk-
arsverðlaunamyndin Belle Epoque sem kom út 1992 og
vann til fjölda verðlauna. Geysivinsæl mynd Pedros Almo-
dóvars, Todo sobre mi madre eða Allt um móður mína, kom
Cruz loks á heimskortið árið 1999 en þar fór hún með hlut-
verk afvegaleiddrar nunnu. Hlutverk hennar á móti Tom
Cruise í Vanilla Sky gerði svo útslagið um heimsfrægð
hennar hratt og örugglega, ekki síst vegna ástarsambands
þeirra. Samband þeirra var sannkallað slúðurblaðafóður allt
þar til yfir lauk og stimplaði það nafn Cruz vandlega inn í
huga fólks.
Sigurstranglegust í Cannes
Volver (Snúið aftur) fjallar um kraftmiklar konur sem
þurfa að takast á við afar óvenjulegar uppákomur í lífi sínu
og líkt og mörgum fyrri verka Almodóvars var myndinni vel
tekið á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þótti jafnvel sig-
urstranglegust lengi vel. Státar hún af sterkum leik-
kvennahópi sem sést best á því að dómnefnd kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes í vor þótti við hæfi að veita
þeim öllum leikkonuverðlaun Gullpálmans.
Raimunda, sem Penelope Cruz leikur, á unglingsdóttur
(Yohana Cobo) sem hún er tilbúin til að vaða eld og brenni-
stein fyrir. Systir hennar er hárgreiðslukonan Sole (Lola
Duenas) en foreldrar þeirra dóu í eldsvoða. Móðir þeirra
(Carmen Maura) tekur að birtast systur sinni (Chus Lamp-
reave) og síðar Sole dóttur sinni en það eru Raimunda og
nágrannakona hennar (Blanca Portillo), sem hún þarf að
gera upp við.
Sótt til Sophiu Loren
Raimunda minnir um margt á hlutverk hinnar ítölsku
Sophiu Loren þegar hún var upp á sitt besta. Það er ekki
einungis sláandi hversu útlitinu, barminum og hárgreiðsl-
unni svipar til hennar heldur einnig hreyfingum, fatnaði og
fasi. Ætli Cruz hafi meðvitað sótt í smiðju ítölsku gyðj-
unnar?
„Þessi tiltekni karakter þurfti að líta svona út. Mun-
úðarfullt útlit hennar er nauðsynlegt því að áhorfendur
verða að geta gert sér í hugarlund hvað gerðist í lífi hennar
þegar hún var ung stúlka að taka út kvenlegan þroska. Þeg-
ar við vorum að þróa þetta útlit leituðum við mjög fanga í
kvenpersónum ítalskrar kvikmyndagerðar. Við vorum undir
áhrifum þaðan enda táknuðu margar þeirra móðurhlut-
verkið,“ segir Cruz með sínum hnausþykka spanjólahreimi,
án þess að vilja tjá sig frekar um lánin. „Við skulum segja að
það hafi hjálpað mér mikið að beina orkunni niður í mjaðm-
ir, bætir hún þó við.“
Hún segist hafa gengið mjög nærri sér við persónusköp-
unina og þótt hlutverkið krefjandi. „Tilfinningahliðin á hlut-
verkum sem þessu getur tekið mjög á mann en ég reyni mitt
besta til að upplifa í raun allar tilfinningar persónunnar sem
ég leik. Ég vil ekki þurfa að leita í persónulega reynslu til
dæmis til að kalla fram tár. Enda er ég þurrausin eftir
vinnudaginn og líður eins og dauðyfli. Mamma á það
stundum til að verða hrædd um mig þegar ég kem
heim náhvít, eins og draugur. Þetta tel ég að
sé ástæðan fyrir því að ég þarf að taka mér
góðan hvíldartíma á milli bíómynda. Ég vil
gjarnan fá sem flest hlutverk af þessu
taginu en þau eru krefjandi og ég er ör-
magna eftir slík hlutverk.“
Hafði Raimunda þá mikil áhrif á þig?
„Já, ákaflega mikil. Fyrstu vikurnar
eftir að tökum myndarinnar lauk var
ég algjörlega óþolandi, alltaf að skrifa
Pedro og hringja í hann. Það reyndist
mér erfitt að aðlagast mínu venju-
bundna lífi aftur án Raimundu. Var
eiginlega hálfgert áfall. Ég hef aldr-
ei lent í þessu áður, að vilja hrein-
lega ekki aftengja mig hlutverk-
inu.“
Fóðraður rass
Hvað með annan undirbúning
fyrir hlutverkið? Í myndinni er til
að mynda áhrifarík sena þar sem
Raimunda er við uppvask og
heyrst hefur að það hafi þurft að
stækka á þér botninn fyrir hlut-
verkið?
„Jú ég fór reyndar að vaska
meira upp heima hjá mér en það
hef ég ekki þurft að gera nema
stöku sinnum. Það var því ekki um
annað að gera en að æfa sig og vaska upp
fjöldann allan af diskum til að uppvaskið
kæmi sem best út í myndinni. Auk þess varð ég
að taka þónokkra matreiðslutíma því ég hef ekki
eldað mat í fjölmörg ár.
Og það er rétt að ég þurfti að venjast því að ganga
með fóðraðan rass. Pedro þótti nauðsynlegt að
þyngja á mér afturendann til að fá meiri jarðteng-
ingu. Í sama tilgangi bað hann mig að lækka tóninn
í rödd Raimundu. Það merkilega er, að ég fann
strax betri jarðtengingu með þessum breytingum.“
Hvað með sönginn hennar, er hann þinn?
„Nei,“ segir hún hlæjandi. „Ég væri samt til í
það einn góðan veðurdag að þjálfa mig upp í að
gera söngvamynd, þar sem ég gæti bæði dansað
og sungið. Mér þætti það æðislegt enda á ég tals-
verðan dansferil að baki. Slíkt tækifæri hefur þó
ekki gefist enn.“
Á kvikmyndahátíð IIFF er nýjasta afrek
Pedros Almodóvars sýnt, myndin Volver,
með Penelope Cruz í aðalhlutverki. Soffía
Haraldsdóttir hitti leikkonuna að máli í
Cannes, þar sem myndin var frumsýnd
og vakti verðskuldaða athygli.
tónleikaferð
Íslenskt þungarokk í útrás
til Grænlands. Hljóm-
sveitin Pan leggur í
víking. » 46
frumsýning
Gerald Butler verður við
frumsýningu á Bjólfs-
kviðu í Háskólabíói í
kvöld. » 48
Óður Pedros til kvenna
Morgunblaðið / Halldór Kolbeins
myndlist
„… verk ýmissa listamanna sem
endurspegla listáhuga Sævars
Karls og opinn hug.“ Anna Jóa
dæmir sýninguna. » 45