Morgunblaðið - 31.08.2006, Síða 43
Almodóvar er ekki þekktur að
tepruskap og í einu atriðinu ert þú til
dæmis mynduð á klósettinu. Hvað
finnst þér um slíkt?
„Ég sé ekkert athugavert við það
að pissa í einu atriði myndarinnar,“
segir hún og gerir sér upp móðursýk-
isrödd: „Guð minn góður, fólk á eftir
að átta sig á því að ég pissa eins og
annað fólk.“
Hún hlær.
„Ég hugsa ekki svona. Því raun-
verulegra sem hlutverkið er, þeim
mun meiri andagift fyllist ég yfir því.
Pedro hefur jafnvel beðið mig að raka
af mér allt hárið í mynd sem hann er
að skrifa. Ég mun gera það, svo lengi
sem atriðið er hættulaust fyrir mig.“
Nú er þetta þín þriðja kvikmynd
með Pedro Almodóvar og þú hefur
samkvæmt þessu tekið að þér hlut-
verk í ykkar fjórðu mynd saman.
Hvað veldur? Eigið þið sérlega gott
með samstarf?
„Pedro horfir á mig og hann veit
hvað ég er að hugsa. Oft veit ég líka
upp á hár hvað hann er að hugsa. Það
er merkilega römm taug á milli okk-
ar, eins konar andlegt samband sem
hefur verið til staðar allt frá því við
kynntumst fyrst. Raunar fann ég fyr-
ir þessum tengslum áður en ég
kynntist honum. Þau voru nokkur
skiptin, þegar ég var ung stúlka, sem
ég fann á mér að hann mundi verða á
vegi mínum, sem varð svo raunin.
Hann kannski gekk framhjá mér á
götu, var í sama kvikmyndahúsi eða
diskóteki. Og þegar hann óskaði fyrst
eftir að fá að starfa með mér þá rætt-
ist langþráður draumur minn.“
Fleiri myndir með Pedro
Hver verður næsta mynd ykkar?
„Næsta mynd með Pedro – hann er
reyndar búinn að biðja mig að vera í
tveimur sögum en ég veit ekki hvora
hann gerir fyrst eða hvernig hann
skrifar hana. Hann hefur talað meira
um aðra þeirra en ég hef ekki séð
neitt handrit. Þetta mun þó verða erf-
iðasta hlutverk sem ég hef leikið og
opnunaratriði myndarinnar verður
það öflugasta sem sést hefur. Ég hef
hrokkið upp af værum blundi af
áhyggjum yfir hvort ég eigi yfirleitt
taka þátt í því. En ég mun samt gera
það. Samband okkar Pedros gerir
það að verkum að ég treysti mér til
þess að ganga lengra með honum en
öðrum leikstjórum. Hann hefur
margoft fengið mig til að gera eitt-
hvað sem mér hefur þótt hræðilegt
og ógnvekjandi. Og hann hefur aldrei
svikið mig heldur verið til staðar þeg-
ar ég þarf á því að halda.“
Hann hefur sagst sækja persónu-
sköpun kvennanna í Volver mjög til
móður sinnar og fleiri hörkukvenna í
heimabæ sínum. Þekktirðu móður
hans?
„Ég hitti hana í kvöldverðarboði
þar sem Spánarkonungur var að
heiðra Pedro fyrir störf sín. Hún
sagði mér söguna af því þegar Pedro
sagði upp starfi sínu hjá Telefonica til
að freista gæfunnar á sviði kvik-
mynda og hversu órótt henni hafi ver-
ið við þá ákvörðun hans. Hún sagðist
hafa reynt að leiða honum fyrir sjónir
hversu mikið öryggi væri fólgið í
starfi hans hjá símafyrirtækinu.
Hann hefði beðið hana að hafa ekki
áhyggjur.“
Á undanförnum árum hefurðu
reynt fyrir þér í enskumælandi kvik-
myndum en í Volver virtist sem þér
veittist auðveldara að leika á
spænsku?
„Móðurmálið stendur hjarta mínu
vitanlega næst. Hlutverk á öðrum
tungumálum þýða mun fleiri vinnu-
stundir auk þess sem því fylgir
ákveðin spenna, en ég hef leikið á
fjórum tungumálum, einnig á frönsku
og ítölsku. Hins vegar hef ég gaman
af að takast á við slíkt, þó svo að ég
geri sjálfri mér ekki auðvelt fyrir í
þessum efnum. Það er eðlilegt að
enskan, sem mitt annað tungumál, sé
ekki jafn þægileg viðureignar og
spænskan en þetta lagast með hverri
mynd, hverju hlutverki sem ég fer
með á ensku. “
Ertu sátt við þau tækifæri sem þú
hefur fengið í bandarískum kvik-
myndum?
„Ég hef aðeins starfað sex ár í Am-
eríku en 16 ár í Evrópu. Evrópubúar
hafa þar af leiðandi kynnst betur því
sem ég get gert. Ég hef verið heppin
með hlutverk í Ameríku en vonast til
að geta fengist við flóknari persónu-
sköpun þar í framtíðinni.“
Ræðir ekki einkalífið
Fyrir nokkrum árum áttir þú í
sambandi við einn af þekktustu leik-
urum heims og því fylgdi mikil fjöl-
miðlaathygli …
Penelópa pakkar strax í vörn, áður
en næst að klára spurninguna, og
hálfhvæsir á mig að þetta komi Volv-
er ekkert við. Hún vilji aldrei ræða
einkalíf sitt í fjölmiðlum.
… Telur þú að þessi skyndilega
heimsathygli hafi breytt miklu fyrir
þig, til hins betra eða verra?
„Nei, ég skal segja þér hvernig
þetta var,“ segir hún og hvessir aug-
un. „Þegar ég var 16 eða 17 ára lék
ég í Jamón, Jamón sem sló í gegn á
Spáni og víðar um Evrópu. Eftir það
lék ég í Belle Epoque og í kjölfarið
þurfti ég að takast á við frægðina.
Ég var mjög ung og frægðin ruglaði
mig talsvert í ríminu. Sumir hófu
mig upp til skýjanna og aðrir rifu
mig niður. Fljótlega varð mér ljóst
að ég mátti hvorki trúa því slæma né
því góða. Það var mín leið til að
vernda mig gegn þessu. Svo fór ég að
vinna í Frakklandi og Ítalíu og loks í
Ameríku. En þetta er allt hluti af
einum og sama ferlinum. Aðeins lítill
hluti fjölmiðla, hvort sem er í Am-
eríku eða Evrópu, hefur áhuga á
málum sem þessum.
Blaðamenn sem koma hingað til
Cannes vilja kynna sér kvikmynd-
irnar en hafa hreint ekki áhuga á að
hnýsast í einkalíf okkar.“ Hún kveð-
ur fast að orði en lýkur þar með
skammarræðunni.
Kölluð amma
Hvað með fjölskyldulíf, viltu eign-
ast stóra fjölskyldu?
„Einungis ef að minnsta kosti
helmingur barnanna er ættleiddur.
Ef ekki, þá sé ég ekki tilganginn með
að fæða mörg börn í heiminn. Ég vildi
þó gjarnan fæða eitt, kannski tvö
börn sjálf. Ég hef reyndar mjög
sterka verndartilfinningu og eignist
ég bara eitt barn gæti það orðið aum-
ingjans barninu ofviða. Ég er svona
við alla sem mér þykir vænt um. Vinir
mínir kalla mig „ömmu“ vegna þess
að ég þreytist ekki á að passa upp á
þá. En mig langar virkilega mikið til
að ættleiða börn og það yrði jafnvel í
forgangi.“
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 43
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
18
6
HEFUR ÞÚ REKIST
Á BETRA TILBOÐ?
Í TILEFNI 35 ÁRA AFMÆLIS NISSAN Á ÍSLANDI BÝÐUR INGVAR HELGASON
ÓTRÚLEGT REKSTRARLEIGUTILBOÐ* Á ÖLLUM NISSAN BÍLUM
ÞÚ FÆRÐ MEIRA FYRIR MINNA MEÐ NISSAN
*Innifalið í rekstrarleigu er smur- og þjónustueftirlit skv. þjónustubók.
Rekstrarleiga getur tekið gengisbreytingum myntkörfu fjármögnunarfyrirtækis.
Leiga miðast við 39 mán. og 65 þús. km.
Nissan X-Trail Elegance 50.918 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur 75.300 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Note Tekna sjálfskiptur 32.069 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Patrol Elegance 80.757 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Micra beinskiptur 24.753 kr. á mánuði m/vsk.
» Og það er rétt að égþurfti að venjast því
að ganga með fóðraðan
rass. Pedro þótti nauð-
synlegt að þyngja á mér
afturendann til að fá
meiri jarðtengingu.