Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 31.08.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 47 menning Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Við leitum að 200-300 fm skrifstofuhúsnæði, staðgreiðsla í boði. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. ÓSKUM EFTIR SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 500-700 fm skrifstofuhúsnæði á einni hæð á einhverjum framangreindra staða. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI VIÐ BORGARTÚN, SKÚLATÚN EÐA Í MÚLAHVERFI ÓSKAST 50% afsláttur af gallafatnaði Gallabuxur háar í mittið st. 38-48 Gallabuxur lágar upp st. 25-30 Gallakvartbuxur Gallapils st. 36-48 Laugavegi 54 sími 552 5201 Helgar- brjálæði Magnea Sverrirsdóttir, löggiltur fasteignasali GRANDAVEGUR - RÚMGÓÐ Mjög glæsileg 91 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu húsi við Grandaveg. Eignin skiptist í hol, baðherb., tvö herbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sameiginlegt þvottahús á hæð. Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjólageymsla. Vandaðar innréttingar og gólfefni. V. 23,7 m. 5995 Afmælisþakkir Hjartans þakkir fyrir heimsóknir, gjafir og skeytasendingar í tilefni af 100 ára afmæli mínu þann 9. ágúst sl. Drottinn blessi ykkur öll. Guðrún Jónsdóttir. OPNUNARMYND Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í ár, hin banda- ríska Factotum, er byggð á sam- nefndri skáldsögu eftir skáldið og utangarðsmanninn Charles Bu- kowski. Í myndinni nefnist að- alpersónan Henry Chinaski (Dillon), það breytir engu, í myndinni jafnt sem sögunni er umfjöllunarefnið dagar í lífi drykkjumannsins sem er ómögulegt að lifa eðlilegu, fastmót- uðu lífi. Undir niðri brennur óstöðv- andi þorsti og þörf á að skrifa, móta hugsanir á blað, orðin hrópa á útrás og líf í vínlegnum huga Chinaskis. Chinaski er nánast rekinn úr einni vinnunni í aðra, störfin eru ekki beysin, hann keyrir út ís, vinnur lag- erstörf, á reiðhjólaverkstæði, þrífur skrifstofur, stendur við færiband í matvælaverksmiðju. Engu að síður reynast þau honum um megn. Ofan á ömurlegan vinnudaginn leggst óslökkvandi áfengisfíknin og lýsir Factotum innri baráttu Bu- kowskis einkar sannfærandi með ómissandi hjálp stórleikarans Dillons í strembnu hlutverki þar sem hann er nánast í mynd frá upphafi til enda. Dillon ljær skáldinu nauðsynlega virðingu, áhorfandinn greinir sárs- aukann og finnur til með því þegar það skröltir í gegnum vonbrigði dagsins með því að festa armæðuna á blað með sínum jaðarhúmor og drabbi sem heldur manninum gang- andi. Á hverju sem gengur kemur Chin- aski jafnan niður á fæturna, þótt þeir séu dálítið óstöðugir stundum. Dillon túlkar Chinaski/Bukowski gjör- samlega án meðaumkvunar, á „við- felldinn“ hátt, ef svo má segja um mann sem lifir og hrærist í áfeng- ismettuðu umhverfi íhlaupavinnu, nöturlegra knæpa og subbulegra leigukytra. Áhorfandinn greinir jafn- an í gegnum móðuna listamanninn sem er stærri og sterkari en róninn. Þar greinir á milli túlkunar Dillons og Mickeys Rourkes, sem dró upp brattari og sælli mynd af skáldinu í hinni almenningsvænu Barfly (’87), enda allt aðrar áherslur lagðar til grundvallar hjá Barbet Schroeder en Norðmanninum Bent Hamer, sem skrifar handritið og leikstýrir Fact- otum. Þeim Hamer og Dillon tekst að komast undir skinnið á persónunni og áhorfandanum, við blasir sól- undað líf sem ber alltof fátæklegan ávöxt. Leikkonurnar sem túlka kon- urnar í lífi Chinaskis eru utanveltu en nauðsynlegar til að fylla út í mynd um þjáða sál sem veltist áfram á alkóhóli, nikótíni og löngun til að móta orð. Þrátt fyrir berangurslegt efni og umgjörð; rónastræti Los Angeles, tekst Dillon að halda manni föngnum og sýningartíminn er úti áður en maður veit af. Factotum verður fyrst og fremst minnst fyrir afrek Dillons, þeim sem vilja kynnast betur geggj- un skáldsins er bent á smásögurnar hans og hina ógleymanlegu Storie di ordinaria follia (Tales of Ordinary Madness), sem Ítalinn Marco Ferr- eri gerði með snillingnum Ben Gazz- ara í hlutverki Bukowskis, og Or- nellu Muti, sem stóðst honum snúninginn. Skáld í strætinu Reuters Óstöðvandi þorsti „Þrátt fyrir berangurslegt efni og umgjörð, rónastræti Los Angeles, tekst Dillon að halda manni föngnum og sýningartíminn er úti áður en maður veit af,“ segir Sæbjörn Valdimarsson í dómi sínum. Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR IIFF: Smárabíó Leikstjóri: Ben Hamer. Aðalleikarar: Matt Dillon, Lili Taylor, Marisa Tomei, Fisher Stevens, Didier Flamand, Adri- enne Shelly, Tom Lyons. 95 mín. Banda- ríkin 2005. Factotum  ALÞJÓÐLEGA kvikmyndahátíðin Iceland Film Festi- val hófst í gær með frumsýningu kvikmyndarinnar Factotum sem byggð er á samnefndri skáldsögu Charl- es Bukowskis. Í tilefni af því var boðað til blaðamanna- fundar á Hótel Nordica þar sem aðalleikararnir Matt Dillon og Marisa Tomei voru viðstaddir, auk leikstjóra og framleiðanda myndarinnar. Meðal þess sem kom fram á fundinum var að á tímabili stóð til að Matt Dill- on kæmi til Íslands til að leika hlutverk í kvikmyndinni Cold Fever eftir Friðrik Þór Friðriksson, en Jim Stark, sem framleiðir Factotum, framleiddi einnig Cold Fe- ver. Ekkert varð hins vegar úr því þar sem hlutverk Dillons var strikað út úr handritinu. Dillon sagði einnig að hann hefði verið mikill aðdáandi Bukowskis og lesið allt eftir hann á sínum yngri árum. „Ég hélt reyndar að verið væri að biðja rangan mann um að túlka Bukowski og leit ekki á sjálfan mig sem slíka manngerð,“ sagði Dillon. Á myndinni eru frá vinstri Ísleifur B. Þórhalls- son, framkvæmdastjóri IFF, Jim Stark framleiðandi, Matt Dillon, Marisa Tomei og leikstjórinn Bent Hamer. Stjörnufans á Hótel Nordica Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.