Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ HÚS Í DAG KL.17–18.30
LANGHOLTSVEGUR 22 – EINBÝLI
Gullfallegt og algjörlega end-
urnýjað einbýli á 2 hæðum
ásamt rúmgóðum bílskúr. Efri
hæð: Forstofa, gestanyrting,
2 stofur, eldhús og borð-
stofa, Neðri hæð: Vinnuher-
bergi, geymsla, baðherbergi,
þvottahús, gangur, forstofa
og 3 svefnherbergi. Nýtt
gegnheilt parket á stofum og
herbergjum, ný vönduð inn-
rétting og tæki (burstað stál) í
eldhúsi, allt nýtt í baðherbergjum, upphengd wc, nuddhornbaðkar, náttúru-
flísar á gólfum. Hús og þak tekið í gegn í fyrra, gluggar og gler nýlegt. Stór
bílskúr með vatni, hita og bílskúrshurðaopnara. Stór hornlóð. Afstúkuð sól-
baðsverönd á lóðinni. Verð 52 millj.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ÆTLA Á ÍMYNDAÐ STEFNUMÓT Í
KVÖLD, GRETTIR SORG-
LEGT!
MEIRA AÐ SEGJA ÍMYND-
UNAR AFLIÐ ÖRVÆNTIR
NEI, ÉG
HELD EKKI AF HVERJU?
ÞAÐ VAR MIÐUR. EF HÚN
HEFÐI FÆÐST ÞAR ÞÁ HEFÐI
HÚN FENGIÐ ALLAR NÍU
SINFÓNÍUR BEETHOVENS
ÓKEYPIS
FÆDDIST
SYSTIR ÞÍN Á
LANDS-
SPÍTALANUM?
VIÐ SKULUM
PRÓFA
BYSSUNA
MIÐAÐU HENNI Á MIG OG
HUGSAÐU UM
PTERODACTYL
ÉG GET HRÆTT ALLT
HVERFIÐ!!! SVO ÞEGAR
LÖGGAN KEMUR ÞÁ
GETURÐU BREYTT
MÉR AFTUR Í STRÁK
ER ÞETTA EINHVERS-
KONAR PADDA?
NEI, ÉG ER
AÐ TALA UM
FLJÚGANDI
RISAEÐLU.
EKKI SKJÓTA
EF ÞÚ VEIST
EKKI HVAÐ
ÞETTA ER!
ÞAÐ ER KOMINN TÍMI
Á „HVERSDAGS-
SKATTINN“
HVAÐ ÁTTU VIÐ
MEÐ
„HVERSDAGSSKATT“
ÞAÐ ER EINFALDLEGA
SKATTUR SEM ÞÚ BORGAR Á
HVERJUM DEGI
MIKIÐ ERTU
GAMALDAGS
GRÍMUR. ÉG
ER BARA MEÐ
ÞRÁÐLAUST
ÚFF! HVAÐ ERAÐ ABBY?
ÉG SAGÐI MÖMMU AÐ ÉG
MUNDI SJÁ UM
FÖSTUHÁTÍÐINA. VEISTU
HVAÐ ÞAÐ ER MIKIL VINNA?
VIÐ
HJÁLPUMST
BARA AÐ
AUÐVITAÐ! VIÐ GETUM
HJÁLPAST AÐ AÐ ÞRÍFA,
ÉG ELDA OG ÞÚ FERÐ
MEÐ BORÐBÆNINA
Á ÉG AÐ FARA MEÐ
BORÐBÆNINA!!!
RÓLEGUR
ÉG SÉ ÞIG ÞÁ Í
MAT Á EFTIR,
PETER
ÞÚ MEINAR AÐ
ÞÚ SJÁIR KÓNGU-
LÓARMANNINN
MUNDU BARA AÐ
ÞYKJAST VARLA ÞEKKJA
HANN!
BÍDDU BARA
ÞANGAÐ TIL ÞÚ
HEYRIR NÝJU
HUGMYNDINA
UM ÁSTAR-
ÞRÍHYRNINGA Á
MILLI MÍN, HANS
OG PETER
Galasýning á dýrustu mynd Ís-landssögunnar, Bjólfskviðu,
fer fram annað kvöld í Háskólabíói
á vegum IFF-kvikmyndahátíð-
arinnar sem nú stendur yfir. Holly-
wood-leikarinn Gerard Butler verð-
ur meðal gesta ásamt fleirum
aðstandendum
myndarinnar en
Butler er rísandi
stjarna vestra. Í
öðrum hlut-
verkum eru
Ingvar E. Sig-
urðsson, Stellan
Skarsgard og
Sarah Polley.
Almennar sýningar á myndinni
hefjast á morgun.
Fólk folk@mbl.is
Eitt vinsælasta námskeiðEndurmenntunarstofn-unar Háskóla Íslands síð-ustu ár er námskeið
Tryggva Sigurbjarnarsonar, Verk-
efnastjórnun I, en næstu námskeið
verða kennd 6. og 7. september:
„Þetta er grunnnámskeið þar sem
farið er yfir grundvallaratriði fræði-
greinarinnar. Að námskeiðinu loknu
eiga nemendur að þekkja nokkuð vel
til verkefnastjórnunar og hvernig
má beita fræðunum, og hafa til-
einkað sér þá grundvallarhugsun
sem liggur að baki farsælli verk-
efnastjórnun,“ segir Tryggvi en
hann hóf að kenna Íslendingum
verkefnastjórnun eftir að hafa lært
undir leiðsögn Morten Fangel.
Tryggvi segir verkefnastjórn-
unarnámið njóta sívaxandi vinsælda:
„Gaman hefur verið að fylgjast með
þróun námskeiðsins frá því ég byrj-
aði að kenna það fyrst fyrir röskum
20 árum, en þá var almennt álitið að
nám af þessu tagi hentaði einungis
verkfræðingum og tæknifræðingum.
Með tímanum hafa æ fleiri stéttir
uppgötvað kosti námsins og séð að
beita má fræðunum við hvers konar
starfsemi sem hefur einkenni verk-
efnis. Þróunin sést til dæmis á því að
margar stofnanir og fyrirtæki hafa
endurskipulagt starfsemi sína, ekki
samkvæmt hefðbundnu píramída-
skipulagi, heldur samkvæmt verk-
efnisskipulagi. Nú er svo komið að
mest áberandi eru á námskeiðinu
fólk úr fjármálageiranum, hugbún-
aðargeiranum og stjórnsýslu.“
Námskeið Tryggva spannar tvo
daga en einnig býður Endurmennt-
unarstofnun upp á enn ítarlegra
nám í verkefnastjórnun sem kennt
er yfir tvær annir: Verkefnastjórnun
og leiðtogaþjálfun: „Á því námskeiði
sækjumst við helst eftir nemendum
sem hafa bæði vissa grunnmenntun
úr háskóla og reynslu úr atvinnulíf-
inu. Árangursrík verkefnastjórnun
byggist á bæði áætlunargerð og eft-
irfylgni sem og mannlegum sam-
skiptum og er farið ítarlega í þessa
þætti á námskeiðinu,“ segir Tryggvi.
„Þetta nám hefur sömuleiðis verið
mjög vinsælt, en á skólaönninni sem
nú er að hefjast sóttu 90 manns um
30 laus pláss.“
Þá hefur Tryggvi tekið þátt í að
koma á laggirnar meistaranámi í
verkefnastjórnun hjá verkfræðideild
Háskóla Íslands. Námið er til
tveggja ára og gerir forkröfur til
nemenda bæði um menntun og
reynslu á vinnumarkaði. „Við höfum
kennt námið í eitt ár og útskrifum
næsta vor fyrstu nemendurna með
meistaragráðu frá verkfræðideild,
og verða þeir í stakk búnir til að
gera stóra hluti á sviði verk-
efnastjórnunar, bæði á vinnumark-
aði og einnig á akademískum vett-
vangi.“
Nánari upplýsingar um námskeið
Endurmenntunarstofnunar HÍ má
finna á slóðinni www.endurmennt-
un.is. Upplýsingar um meistaranám
í verkefnastjórnun er á slóðinni
www.mpm.is
Menntun | Námskeiðið Verkefnastjórnun I
Vinsælasta námskeið
Endurmenntunar
Tryggvi Sig-
urbjarnarson
fæddist á Þing-
borg í Árnes-
sýslu 1935.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Mennta-
skólanum á
Laugavatni
1954 og námi í raforkuverkfræði
frá Tækniháskólanum í Dresden
1961. Tryggvi starfaði sem raf-
veitustjóri á Siglufirði, stöðv-
arstjóri í Soginu og loks yfirmaður
yfir háspennulínum hjá Lands-
virkjun. Í 14 ár starfrækti Tryggvi
verkfræðistofuna Rafteikningu hf.
ásamt öðrum en hefur frá árinu
1898 unnið við verkefnastjórnun og
skylda starfsemi, bæði sem ráðgjafi
og kennari. Tryggvi er kvæntur
Siglinde Sigurbjarnarson, verk-
fræðingi og bókasafnsfræðingi, og
eiga þau þrjú börn og átta barna-
börn.