Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 56

Morgunblaðið - 31.08.2006, Side 56
SÍÐASTA kerið í kerskála 3 í álveri Alcan í Straumsvík verður gangsett í dag en taka varð öll ker skálans úr rekstri hinn 19. júní eftir að straum- laust varð í skálanum. Viðgerðir hafa gengið mun hraðar en búist var við í fyrstu. Af þremur kerskálum Alcan í Straumsvík framleiðir sá sem straumlaus varð í júní mest. Eftir straumleysið var áætlað að kervið- gerðum og endurgangsetningu yrði ekki lokið fyrr en í nóvember og um 20 þúsund færri tonn af áli yrðu framleidd. Markmið Alcan var í upp- hafi ársins að framleiða 180 þúsund an á einum og hálfum mánuði. Það er nánast með ólíkindum,“ segir Hrannar. Hann segir erfitt að segja hverju það muni fyrir fyrirtækið að svona vel hafi gengið að koma skál- anum í rekstur á ný. „Þetta er flókið reikningsdæmi og nú mun koma í ljós hvort þetta atvik hefur einhver áhrif á líftíma þessara tilteknu kera.“ Alcan er tryggt vegna rekstr- arstöðvunarinnar en Hrannar segir að sá skaði sem fyrirtækið hafi orðið fyrir sé skiljanlega minni en menn hafi óttast í fyrstu. Starfsmenn fyrirtækisins hafi unnið baki brotnu við endurgang- setningu keranna og síðustu vikur hafi fjögur til fimm ker verið sett í gang á hverjum sólarhring. Gangsetning tveimur mánuðum á undan áætlun tonn yfir árið. Að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa Alc- an á Íslandi, hafa viðgerðir keranna og endurgangsetning gengið mun betur fyrir sig en menn þorðu að vona í júní. Gróflega er áætlað að framleiðsla álversins muni því ein- ungis skerðast um 14 þúsund tonn. „Það er í sjálfu sér frábær árangur að ná að endurgangsetja skálann all- Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 243. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Hæg A-læg átt og bjart S-lands. Væta á NA-og NV- landi. NA átt, víða 5-10 m/s. Léttskýjað SV-til. » 8 Heitast Kaldast 17°C 8°C FJÓRIR vísindamenn eru nú að störfum við jarðhitasvæðið í Krýsuvík. Er um að ræða þver- faglegar rannsóknir á örverum en vís- indamennirnir eru frá Jarðvísindastofnun Há- skóla Íslands og líftæknifyrirtækinu Prokaria. Að sögn eins þeirra, Andra Stefánssonar frá Jarðvísindastofnun, er um að ræða þverfagleg- ar rannsóknir sem miða að því að kanna á hverju örverur sem þrífast á háhitasvæðinu lifa en slíkt er ekki vitað að fullu. Orkunefnd kostar verkefnið og munu rannsóknargögnin einnig nýtast til að meta verndargildi jarðhitasvæða. Morgunblaðið/Eyþór Fæða örvera á jarðhitasvæðum könnuð Láta sig hverfa án þess að borga máltíðir LÖGREGLA var kölluð út í fyrradag vegna uppákomu á matsölustað þar sem nokkrir gestir voru ekki tilbúnir að borga uppsett verð eftir máltíð. Fleiri ámóta mál hafa komið til kasta lögreglunnar í sumar, þar af tvö nýverið. Í öðru fór fimm manna hópur út að borða en þegar átti að borga reikninginn voru allir horfnir á braut nema einn. Sá var ekki borgunarmaður fyrir veitingunum og sat því í súpunni. Hitt dæmið er ekki ósvipað. Þá sat einn veislugesta eftir og hafði sofnað í þokka- bót. Hann var vakinn en reyndist þá ekki eiga peninga fyrir matnum. Af öðrum verkefnum lögreglunnar, sem rata sjaldnast í fjölmiðla, má nefna rifrildi ökumanna um bílastæði. Undanfarna daga hafa tvö slík mál komið upp. Lögreglan reynir að leysa úr slíkum málum af fremsta megni enda geta slíkar deilur undið upp á sig. Þetta kann að hljóma hjá- kátlega að sögn lögreglu en stundum þarf ekki mikið til að fólk missi stjórn á sér. STÆRSTA laxi sumarsins var landað við Ullarklöpp neðst í Þverá í gærmorgun. Laxinn, sem var 105 sentímetra langur og áætlaður tæp 28 pund, beit á hjá Valdi- mari Agnari Valdimarssyni á ellefta tím- anum í gær en Valdimar hafði reynt á öðr- um veiðistað í ánni fyrr um morguninn. Tók það um 40 mínútur að landa laxinum sem reyndist vera hrygna. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Valdimar hafa notað tiltölulega litla flugu, svokallaðan „Undertaker“ og að aðstæður hefðu verið ágætar til laxveiða. Spurður hvort um mikil átök hefði verið að ræða sagði Valdimar að þetta hefði verið „al- gjört bíó“. Ekki þótti annað koma til greina en sleppa hrygnunni, svo hrognfull var hún, og vonaðist Valdimar eftir því að sú aðgerð skilaði sér í meiri fiski í ánni næsta sumar. 28 punda laxi landað ORKUVEITA Reykjavíkur mun ekki kaupa grunnnet Símans eins og hugmyndir voru um en viðræður fyrirtækjanna um hugsanlega sam- einingu fjarskiptanetanna halda áfram. Þetta staðfesta bæði Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, og Brynjólf- ur Bjarnason, forstjóri Símans. Guðlaugur Þór segir að frekar en að leggja tvöfalt kerfi sé heppilegra að samkeppnin snúist um að miðla efni á netinu. Brynjólfur Bjarnason segir að viðræður um kaup Orkuveitunnar á grunnnetinu hafi verið nokkuð langt komnar á sínum tíma en nýr meirihluti hafi eðlilega viljað endurskoða málið. Gagnaveitan aðskilin Orkuveitan hefur ákveðið að aðskilja gagna- veitu fyrirtækisins frá annarri starfsemi og stofna sérstakan stofnfjárefnahag um rekstur- inn. Guðlaugur Þór segir að þar sé um að ræða fyrsta skrefið í að aðskilja gagnaveituna frá annarri starfsemi en vill þó ekki segja til um hvort stofnað verði sérstakt hlutafélag um hana. Ný stjórn Orkuveitunnar fundaði í fyrsta sinn í gær og var meðal annars ákveðið að fela for- stjóra að fara yfir stefnu fyrirtækisins með um- hverfismál í huga. Guðlaugur Þór segir að lögð verði aukin áhersla á samstarf við háskóla- samfélagið hér á landi auk þess sem skoðað verði hvort bifreiðafloti fyrirtækisins geti nýtt vistvænt eldsneyti enn frekar. Þá var á fundi stjórnar lögð fram tillaga um að fela forstjóra að ganga til samninga við ný- sköpunarfélagið Brú um að ýmiss konar starf- semi sem Orkuveitan hefur staðið í, svo sem risarækjueldi, starfræksla ljósmyndabanka og hörframleiðsla, verði aðskilin og sett inn í sjóð í eigu Brúar en Orkuveitan eignast í staðinn hlut í Brú. Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Orkuveitan kaupir ekki grunnnet Símans Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is  Viðræðum | 4 „ÞAÐ eru málefnalegar ábendingar um ákveðna hluti í framkvæmdinni sem menn vilja gjarnan setjast yfir og skoða hvort hægt sé að gera með öðrum hætti,“ segir Gylfi Arn- björnsson, fram- kvæmdastjóri Al- þýðusambands Íslands, en á fundi sambandsins í gær var tekið fyr- ir bréf Öryrkja- bandalags Íslands þar sem óskað er stuðnings vegna til- tekinna atriða í skerðingu örorkulíf- eyris yfir 2.000 öryrkja 1. nóvember nk. Miðstjórn ASÍ óskaði eftir því að lífeyrisnefnd sambandsins tæki málið til skoðunar og segir Gylfi að það verði gert fljótlega. Landbúnaðarmál voru einnig rædd á fundinum en í síðustu viku gerðu 17 formenn aðildarfélaga Starfsgreina- sambands Íslands þá kröfu að sam- bandið mótaði sameiginlega stefnu aðildarfélaga um íslenskan landbún- að. Þar segir að málflutningur ASÍ um afnám tolla og frjálsan innflutning landbúnaðarafurða sé ekki í anda að- ildarfélaga sambandsins. Gylfi segir hins vegar að láðst hafi að geta í ályktuninni að ASÍ hafi verið með til- lögu um mjög öflugar mótvægisað- gerðir og afstaða ASÍ hafi auk þess verið að þróast um margra ára skeið. „Við viljum fá breytingar á innflutn- ingsverndinni og breyta henni yfir í beinan stuðning við bændur.“ Mál ÖBÍ sent til lífeyrisnefndar ASÍ Gylfi Arnbjörnsson ÍRANAR hafa áhuga á því að fá íslenska aðila til að taka þátt í uppbyggingu orku- vera í landinu. Þetta sagði Hamid Chitchi- an, aðstoðarráðherra í íranska orku- málaráðuneytinu, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. „Þegar ég heimsótti Ísland kom skil- virkni orkukerfisins mér á óvart,“ sagði Chitchian. „Hún er meiri en í flestum öðr- um ríkjum. Það er meðal annars af þessum sökum sem Íranar hafa áhuga á að eiga samvinnu við íslensk fyrirtæki. Við hefð- um þannig áhuga á að fá íslenska aðila til að taka þátt í uppbyggingu orkuvera í Ír- an. Við bjóðum íslenska fjárfesta vel- komna til landsins.“ | Viðskipti 6 Íslenskir fjárfestar velkomnir til Írans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.