Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t                                   ! " # $ %         &         '() * +,,,                Í dag Sigmund 8 Umræðan 30/33 Staksteinar 8 Forystugrein 28 Veður 8 Viðhorf 30 Úr verinu 14 Bréf 32 Viðskipti 15 Minningar 34/39 Erlent 16/17 Myndasögur 48 Höfuðborgin 20 Dagbók 49/53 Akureyri 20 Víkverji 52 Austurland 221 Staður/stund 50/51 Landið 21 Leikhús 46 Daglegt líf 22/27 Bíó 50/53 Menning 18, 42/48 Ljósvakamiðlar 54 * * * Innlent  Ellefu ára drengur var tekinn með nokkur grömm af kannabis- efnum í Reykjavík sl. föstudag. Lög- regla hafði samband við barna- verndaryfirvöld, enda drengurinn ekki sakhæfur. Ekki eru mörg dæmi um að lögregla hafi afskipti af svo ungum börnum vegna fíkniefna. » 1  Þyrlur varnarliðsins hverfa af landi brott eftir viku, þrátt fyrir að Landhelgisgæsla Íslands hafi óskað eftir því að þær verði hér á landi til 1. október, þegar fyrsta leiguþyrla gæslunnar kemur til landsins. Munnlegt samkomulag er við Norð- menn um aðstoð bili önnur hvor þyrla gæslunnar. » 56  Varnarliðið hætti að fylgjast með ómerktum flugvélum í lofthelgi Ís- lands seint í maí, og hefur Ísland því í raun verið loftvarnalaust í allt sum- ar þó orrustuþotur hafi verið stað- settar hér. Þetta þýðir að ekki er hægt að beita orrustuþotum nema ratsjárflugvél sé með í för. » 2  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir fyrsta sætinu á lista flokksins í suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Árni M. Mathie- sen, fjármálaráðherra, sækist eftir fyrsta sætinu á lista flokksins í suð- urkjördæmi, en fyrir síðustu kosn- ingar leiddi hann listann í suðvest- urkjördæmi. » 4 Erlent  Aukinn þrýstingur Þrýstingur eykst nú á stjórnina í Súdan vegna ástandsins í Darfur- héraði en þar munu herflugvélar stjórnvalda í Kartúm nýlega hafa gert loftárásir á þorp. Bandarískur öldungadeildarþingmaður vill að lagt verði bann við flugi yfir Darfur og krefst þess að stillt verði til frið- ar. Frakkar segja að til greina komi að sent verði friðargæslulið á vegum Sameinuðu þjóðanna til héraðsins án samþykkis Súdanstjórnar. » 1  Fjölgað verði í NATO-liði Yfirmaður herafla Atlantshafs- bandalagsins, NATO, Bandaríkja- maðurinn James Jones, segir brýnt að sendir verði fleiri hermenn til Afganistan vegna árása uppreisn- arliðs talíbana í sunnanverðu land- inu. Auk þess að berjast við talíbana kljást NATO-hermennirnir við vopnaða hópa nokkurra stríðsherra á svæðinu og fíkniefnasmyglara. » 1 Eftir Andra Karl andri@mbl.is KÓPAVOGSBÆR mun koma til móts við fjölskyldur ungbarna með því að greiða þeim mánaðarlega 30 þúsund krónur fyrir hvert barn frá lokum fæðingarorlofs þangað til barn hefur leikskólavist eða hefur náð tveggja ára aldri. Reiknað er með að byrjað verði að greiða út 1. nóvember. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, og Ómar Stefánsson, for- maður bæjarráðs, kynntu tillögu meirihluta bæjarstjórnar fyrir fjöl- miðlum í gærdag, skömmu eftir að hún hafði verið samþykkt á bæjar- ráðsfundi. Eftir að tillagan hafði verið lögð fram í bæjarráði óskuðu minni- hlutaflokkarnir jafnframt eftir því að vera meðflutningsmenn. Kostnaður Kópavogsbæjar 50–55 milljónir króna „Þetta er fyrst og fremst spurning um jafnræði og þá fyrir foreldra sem velja þá leið að vera með börnunum sínum lengur heima, að þeir sitji við sama borð og foreldrar sem ákveða að setja börn sín í gæslu hjá dagmóður,“ sagði Gunnar við kynninguna en í til- lögunni felst að allir foreldrar eða for- ráðamenn barna í Kópavogi fái greiddar 30 þúsund krónur fyrir hvert barn frá lokum fæðingarorlofs þar til það hefur náð 24 mánaða aldri – hvort sem barnið er hjá dagforeldri eða foreldrar eða aðrir annist það heima. Félagsmálastjóri Kópavogs mun vinna að útfærslu tillögunnar þannig að hægt sé að hefja greiðslur í byrjun nóvember. Kópavogsbær hefur hingað til greitt 30 þúsund krónur með hverju barni hjá dagmóður, en með nýju til- lögunni verður komið til móts við þá sem annaðhvort hafa ekki fengið pláss hjá dagmóður eða kjósa að hafa barn sitt heima, hvort sem annað for- eldri, ættingi eða barnfóstra gætir barnsins. Helsti ávinningurinn er þó talinn hjá fjölskyldum fjölbura. „Við teljum að við séum að koma verulega til móts við ungbarnafjölskyldur og gera þeim lífið léttara, sérstaklega þó fyrir fjölskyldur með fjölbura,“ sagði Gunnar og bætti við: „Það er oft erfitt að fá pláss hjá dagforeldri fyrir tví- bura og ég tala nú ekki um þríbura þannig að þessar greiðslur létta veru- lega á hjá fjölburafjölskyldum.“ Framboð á vist hjá dagforeldrum í Kópavogi hefur verið mun minna en eftirspurn og vonast Gunnar til að þessar greiðslur verði mörgum ung- barnafjölskyldum kærkominn val- kostur, s.s. á því að vera heima eftir að fæðingarorlofi lýkur. Talið er að kostnaður Kópavogs- bæjar vegna tillögunnar muni nema 50–55 milljónum króna á ársgrund- velli. Áætlaður kostnaður vegna verk- efnisins á núverandi ári er um níu milljónir króna og verður þeirri upp- hæð vísað til endurskoðunar fjár- hagsáætlunar. »Kópavogsbær stefnir ábreytt fyrirkomulag á greiðslum til foreldra ung- barna. » Í stað þess að greiða niðurkostnað með hverju barni hjá dagmóður verður greitt með hverju barni, óháð dagvist- un. »Stefnt er að því að fyrstverði greitt út 1. nóvember. »Áætlaður kostnaður bæj-arins nemur 50–55 millj- ónum króna á ársgrundvelli. Kostnaður á árinu er talinn munu verða um níu milljónir króna. Í HNOTSKURN Morgunblaðið/ÞÖK Létt á foreldrum Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, kynnti nýja tillögu um greiðslur til foreldra. Mánaðarlegar greiðslur til foreldra ungbarna 30 þúsund krónur frá lokum fæðingarorlofs til tveggja ára INGIMUNDUR Einarsson vara- lögreglustjóri í Reykjavík segist kannast við að kvartað hafi verið undan verklagi lögreglunnar vegna meintrar frelsissviptingar og harðræðis í fjöldaátökum við Skeifuna aðfaranótt sunnudags. Lögreglan sé reiðubúin að biðjast afsökunar á mistökum ef um slíkt sé að ræða. Að sögn Ingimundar hafa for- eldrar a.m.k. tveggja unglinga hringt í lögreglu vegna framferðis hennar. Um sé að ræða foreldra drengs sem handleggsbrotnaði undan kylfuhöggum lögreglunnar og móðir 18 ára unglings hafi fengið meintar rangar upplýsingar um fangavist piltsins á sunnudags- morgun. | 9 Reiðubúin að biðjast afsökunar á mistökum Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is EKKERT eftirlit hefur verið haft með ómerktum flugvélum í lofthelgi Íslands frá því í lok maí, þegar bandaríski herinn hætti að fylgjast með merkjum frá Ratsjárstofnun. Þetta þýðir í raun að eftirlits- kerfið hefur verið lagt niður. Að sögn sérfræðings í notkun ratsjárkerfisins, sem ekki vildi láta nafns síns getið, þýðir þetta að ekki hefði verið hægt að beita orrustuþotum hér við land í sumar, þótt þær hafi verið staðsettar hér, þar sem kerfið sem nú hefur verið lagt niður þarf til að stýra þotunum. Landið hafi m.ö.o. verið loftvarna- laust í allt sumar. Það þýðir ennfremur að ef verja á landið úr lofti með orrustuþotum frá Skotlandi, eða annarsstaðar frá, þarf að senda ratsjárvél með í för til að leiðbeina orrustuþotunum. Aðeins á annan tug ratsjárvéla er til í flugherjum ríkja Atlantshafsbandalagsins. Ratsjárstofnun rekur fjórar ratsjárstöðvar sem fylgjast með flugumferð um íslenska lofthelgi. Upp- lýsingar frá stöðvunum eru sendar í stjórnstöð varnarliðsins, þar sem hópur manna starfaði við það eitt að fylgjast með flugvélum, og gæta að því að engin óþekkt loftför kæmu inn í lofthelgina. „Trúðum aldrei að þeir myndu fara“ Búnaðurinn í stjórnstöðinni gerði svo varnarlið- inu kleift að bregðast við ef óvænt atvik yrðu, t.d. með því að senda orrustuþotur til móts við óþekkt loftför, segir Gunnlaugur M. Sigmundsson, for- stjóri Kögunar, en Kögun hefur sinnt þróun og við- haldi hugbúnaðarhluta íslenska loftvarnakerfisins. „Það er búið að segja okkur að það verði ekki keyrður neinn hugbúnaður í íslenska loftvarnakerf- inu eftir fyrsta október, en Ratsjárstofnun verði starfrækt enn um sinn,“ segir Gunnlaugur. „Þetta kom verulega flatt upp á okkur. Við trúð- um því aldrei að þeir myndu fara út og loka þessu. Þetta er keðja loftvarnakerfa allt frá Tyrklandi til Kyrrahafsstrandar Bandaríkjanna.“ Gunnlaugur segir brotthvarfið ekki hafa alvarleg áhrif á Kögun. Fyrirtækið hafi víkkað út starfsemi sína fyrir nokkru, og af 28 milljarða króna ársveltu sé velta af störfum tengdum stjórnkerfi ratsjár- stöðvanna rúmar 300 milljónir króna. Alvarlegra sé að sérfræðiþekking á þessu kerfi sem nú sé til stað- ar geti tapast þegar starfsmenn hverfi til annarra starfa, og því gæti orðið ómögulegt að koma kerfinu í gang nema það yrði innan skamms tíma. Segir Ísland hafa verið loftvarnalaust í allt sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.