Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á UNDANFÖRNUM árum hef- ur Reykjavíkurborg unnið mark- visst að því að fjölga nemendum efri bekkja grunnskóla sem taka framhaldsskólaeiningar. Þeir skipta nú hundruðum árlega. Í um- ræðunni um ,,styttingu náms til stúdentsprófs“ sýndum við fram á að sveigjanleg skil grunnskóla og framhaldsskóla væru þegar komin á og við vildum vinna betur að þeim. Undir forystu minni vann menntaráð borg- arinnar ítarleg gögn upp í hendur mennta- málaráðuneytisins um endurskoðun grunnskólalaga, þar sem meðal annars var rætt um tengslin við framhaldsskóla. Í kosningabaráttunni í vor ræddi ég oft og ítarlega um þann kost að borgin tæki að sér ,,að gera það fyrir framhaldsskólann sem hún gerði þegar hún tók við grunnskól- anum af ríkinu“. Tilraun um framhaldsskóla Það er því í rökréttu framhaldi af þessu að Samfylkingin lagði til í menntaráði borgarinnar að hafnar yrðu viðræður við Menntamála- ráðuneytið um að borgin gerðist tilraunasveitarfélag um rekstur framhaldsskóla. Við lögðum til ,,að teknar verði upp viðræður við menntamálaráðuneytið um viðhorf þess til svona tilraunaverkefnis“. Einnig var mælst til að ,,stofnaður verði starfshópur sem fjalli um málið og undirbúi yfirtöku á rekstri framhaldsskóla frá ríkinu að fengnu samþykki menntaráðs“. Þessi tillaga var lögð fram í menntaráði og felld umræðulaust á innan við einni mínútu að við- höfðum þeim ummælum formanns, sem hann endurtók í útvarpi, að þetta gæti orðið, en hann vildi ekki knékrjúpa í ráðuneytinu. Svona frjó eru nú stjórnmálin í borginni þessa dagana. Menntamálaráðherra trompar Í útvarpi mátti svo heyra menntamálaráðherra kalla tillög- una ,,sýndarmennsku“, en það er hefðbundið af hennar hálfu að spara kurteisina ef menntamál í Reykja- vík ber á góma. Í til- lögu okkar felst auð- vitað ekkert það sem ráðherra vildi helst gera að umræðuefni, sem sé líkurnar á því að Reykjavík gerði svo miklu betur við sína nemendur en ríkið við þá sem búa úti á landi að misrétti hlytist af. Yfirtaka Reykjavíkur og annarra burðugra sveitarfélaga á þessu verkefni hefði sannarlega ekki það markmið að auka mis- rétti. Ráðherra ætti reyndar að vera kunnugt um að um árabil hef- ur viðgengist mikið misrétti í garð framhaldsskólanema af lands- byggðinni og væri nær að snúa sér að því verkefni strax en sýna af sér ólund þegar fulltrúar í mennta- ráði Reykjavíkur taka frumkvæði. Hvað segir Samband sveitarfélaga? Ráðherra menntamála er illa upplýst þegar hún segir tillögur Samfylkingarinnar ,,sýnd- armennsku“ og ,,ekkert sveitarfé- lag hafi talað við sig“ um málið. Tillaga okkar gekk reyndar út á það að tala við ráðuneytið og hefur beina skírskotun í stefnumótun Sambands sveitarfélaga og ríkisins sem kynnt hefur verið í ríkisstjórn. Svo háttar nefnilega til að í til- lögum verkefnisstjórnar átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem lagðar voru fram í ríkis- stjórninni á sínum tíma kemur fram eftirfarandi vegna framhalds- skólans: ,,Að sveitarfélögum verði gefinn kostur á að taka að sér rekstur framhaldsskóla með þjónustu- samningum á sama hátt og einkaaðilum, sem tilraunaverk- efni.“ Hvaða sýndarmennskulið stóð nú fyrir þessu? Það voru eftirtalin, sem sátu í verkefnisstjórninni: Arnbjörg Sveinsdóttir (núverandi þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokksins), Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson (núverandi borgarstjóri) og Hjálmar Árnason, sem formað- ur (og núverandi þingflokks- formaður Framsóknarflokksins). Það er von að sjálfstæðismaðurinn sem er formaður menntaráðs í Reykjavík vilji ekki ,,knékrjúpa“ fyrir þessu liði, frekar en ráðherra menntamála. Frumkvæði Reykjavíkur um framhaldsskóla Stefán Jón Hafstein fjallar um rekstur framhaldsskóla »Ráðherra mennta-mála er illa upplýst þegar hún segir tillögur Samfylkingarinnar ,,sýndarmennsku“ og ,,ekkert sveitarfélag hafi talað við sig“ um málið. Stefán Jón Hafstein Höfundur er borgarfulltrúi Sam- fylkingar og fulltrúi í menntaráði. ALNÆMISVANDINN er enn helsti ógnvaldur íbúa í Afríku sunnan Sahara og er jafnan talað um svæð- ið sem þungamiðju faraldursins. Það kann þó að breytast á næstu árum ef nýsmit aukast í Asíu eins og spáð er. Í nokkrum löndum í sunnanverðri Afríku eru um það bil 30% fullorðinna smit- uð og er hlutfallið jafnvel enn hærra meðal ákveðinna sam- félagshópa. Alnæm- isfaraldurinn bitnar ekki síst harkalega á börnunum en um 12 milljónir barna í sunnanverðri Afríku hafa misst foreldra sína úr alnæmi og áætlað er að þeim fjölgi í rúmlega 18 milljónir innan fjögurra ára. Um 2 milljónir barna 15 ára og yngri í þessum heimshluta eru smitaðar af HIV-veirunni. Á morgun leitar Rauði kross Ís- lands eftir liðsinni landsmanna við að styðja við verkefni sem hafa það að markmiði að draga úr þján- ingum barna í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Rauðakrossfélög í þess- um heimshluta sjá um framkvæmd þessara erfiðu verkefna en innan þeirra starfar mikill fjöldi sjálf- boðaliða. Verkefni þeirra felast m.a. í því að hlúa að foreldrum sem hafa veikst þannig að þeirra njóti lengur við, útvega börnum föt og ábreiður, aðstoða þorpssamfélögin við að koma á fót athvörfum, styðja börn til skólagöngu og veita fræðslu um alnæmi. Fátæk sam- félög, sérstaklega stórfjölskyldan og ömmur og afar sem taka á sig mestu byrðarnar af þessum alvar- lega vanda í sunnanverðri Afríku, verða að fá utanaðkomandi aðstoð til þess að umönnun og vernd barnanna sé tryggð. Á morgun munu sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands ganga í öll hús á landinu og bjóða heimilisfólki að leggja þessu mikilvæga málefni lið. Það ætti ekki að fara á milli mála hvert tilefnið er þegar sjálf- boðaliði bankar. Hann verður vel merktur Rauða krossinum með barmmerki og rauðan söfn- unarbauk. Við hvetjum Íslendinga til að taka vel á móti sjálf- boðaliðum og leggja Rauða kross- inum lið. Til þess að sem bestur árangur náist þarfnast Rauði krossinn sjálf- boðaliða til að ganga í hús með söfnunarbaukana og safna fé. Söfn- unarsvæði eru skipulögð með hlið- sjón af póstnúmerum og innan hvers svæðis verða söfnunar- stöðvar þar sem tekið verður á móti sjálfboðaliðum. Hægt er skrá sig í dag á heimasíðu Rauða kross Íslands, redcross.is, eða í síma 570 4000. Á morgun er síðan einfald- lega hægt mæta í einhverja söfn- unarstöð Rauða krossins og ganga til góðs. Það er von okkar að sem flestir gangi í lið með okkur. Framlag hvers og eins er dýrmætt og með því að gefa eina til þrjár klukku- stundir af lífi þínu getur þú breytt lífi barns í Afríku. Bjargaðu barni á morgun Ómar H. Kristmundsson og Kristján Sturluson skrifa um fjáröflunarátak Rauða krossins til styrktar alnæmissjúkum börnum í Afríku » Það er von okkar aðsem flestir gangi í lið með okkur. Ómar H. Kristmundsson Ómar er formaður Rauða kross Íslands. Kristján er framkvæmda- stjóri Rauða kross Íslands. Kristján Sturluson SUNNUDAGINN 3. september síðastliðinn fóru nokkrir stjórn- málamenn í hestaferð um hluta Hengilssvæðisins í boði Eldhesta ehf. Með í för voru Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, formaður Samfylk- ingarinnar, Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Sam- fylkingarinnar, og Dagbjört Hann- esdóttir, fulltrúi Sam- fylkingarinnar í sveit- arstjórn Ölfuss – auk forsvarsmanna Eld- hesta og undirritaðs. Lagt var upp frá hestagerði í námunda við Kolviðarhól og rið- ið sem leið liggur upp Hellisskarð framhjá stöðvarhúsi Hellis- heiðarvirkjunar, en það stendur við rætur Reykjafells neðan við Dauðadal. Frá Hellis- skarði var riðið eftir veginum meðfram Skarðsmýrarfjalli í austurátt – þarna er forn þjóðleið milli hrauns og hlíða eins og kallað var. Á hægri hönd er mosavaxin hraunbreiðan á Hellis- heiði. Fljótlega eftir að henni sleppir er sveigt til norðurs milli Litla- og Stóra- Skarðsmýrarfjalls og þá blasir við Fremsti- dalur, einn þriggja svokallaðra Hengla- dala. Riðið var niður Fremstadal með Hengladalsá í átt að Bitru – sem er háslétta milli Hengilsins og Mold- dalahnúka ofan við Reykjadal í austri. Þaðan lá leiðin að Ölkeldu- hálsi í norðri þangað sem ferðinni var heitið. Þar biðu fulltrúar nokk- urra fjölmiðla sem óskað hafði verið eftir að kæmu á staðinn. Frá Öl- kelduhálsi var síðan riðið niður Reykjadal að hesthúsum Hvergerð- inga í ofanverðum Ölfusdal þar sem ferðin endaði. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum var markmiðið með þessari ferð að vekja athygli stjórnmála- manna og almennings á fyrirhug- uðum virkjunarframkvæmdum Orkuveitu Reykjavíkur á Ölkeldu- hálssvæðinu og þeim áhrifum sem slík virkjun hefði á umhverfi þess og náttúru verði hún reist – og kalla fram viðbrögð við því. Hug- myndin var að bjóða fulltrúum allra flokka í ferðina en ekki náðist í full- trúa stjórnarflokkanna og Frjáls- lynda flokksins í tæka tíð. Þeim hef- ur því verið boðið í sams konar ferð laugardaginn 9. september. Hengilssvæðið er í næsta ná- grenni við höfuðstöðvar Eldhesta að Völlum í Ölfusi og fyrirtækið var stofnað gagngert með það fyrir augum að bjóða erlendu og inn- lendu ferðafólki upp á hestaferðir um þetta svæði. Enda þótt Eldhest- ar hafi fært út kvíarnar á þeim tutt- ugu árum sem fyrirtækið hefur starfað er Hengilssvæðið ennþá helsti starfsvettvangur þess og því mikið í húfi að útivistargildi svæð- isins verði ekki rýrt frekar en orðið er með byggingu fleiri jarð- varmavirkjana. Hér skiptir Öl- kelduhálssvæðið sköpum því að í dagsferð Eldhesta er farið um svæðið og niður Reykjadal, en þessi ferð er veigamikill þáttur í rekstri fyrirtækisins. Einnig er farið um Ölkelduháls í nokkrum lengri ferð- um á vegum Eldhesta. En málið snýst að sjálfsögðu um fleira en hagsmuni Eldhesta og annarra fyr- irtækja í ferðaþjónustu sem bjóða upp á ferðir um Hengilssvæðið; það varðar ekki síður útivist og um- hverfis- og náttúruvernd á svæðinu. Í viðtali við fréttastofu RÚV sem tekið var á Ölkeldu- hálsi áréttaði Hróðmar Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Eld- hesta, að Ölkelduháls- svæðið væri á náttúruminjaskrá. Hann sagði Eldhesta- menn vera andsnúna því að virkjað yrði á svæðinu. Orkuveitan hafi þegar lagt vest- urhluta Heng- ilssvæðisins undir Hellisheiðarvirkjun og eigi að halda sig innan hans. Ölkelduhálsinn eigi að þeirra mati að vera friðaður áfram, vera friðlýst svæði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir mikilvægt að við látum tæknina vinna með okkur í þessu sambandi. Rétt sé að bíða og sjá hvað kemur út úr djúpboranaverk- efni sem unnið er að áður en farið verði inn á ósnortin svæði á borð við Ölkelduháls. Hugs- anlegt sé að með djúp- borunum gefi svæði sem þegar hafa verið virkjuð af sér margfalt meiri orku en þau gera í dag. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, bendir á að þetta mál geti orðið ágætur próf- steinn á það hvort vilji sé til þess að sætta ólíka hagsmuni og sjónarmið varðandi landnýtingu og nátt- úruvernd. Orkuiðnaðurinn hafi þeg- ar fengið vesturhluta Heng- ilssvæðisins og geti fullnýtt hann og því spurning hvort Ölkelduhálsinn og dalirnir ofan við Hveragerði og svæðin niður að Grafningi yrðu lát- in óáreitt í þágu ferðaþjónustu og útivistar. Hér hittir formaður Vinstri grænna naglann á höfuðið og víst er að engar sættir takast með ferða- þjónustuaðilum á Hengilssvæðinu og Orkuveitu Reykjavíkur ef Orku- veitan fylgir eftir áformum sínum um að reisa jarðvarmavirkjun á Öl- kelduhálsi – svæði sem er á nátt- úruminjaskrá og ferðaþjónustuað- ilar hafa hagsmuni af að nýta og í fullkominni óþökk þeirra sem unna náttúru landsins. Það verður því forvitnilegt að heyra hver afstaða fulltrúa stjórn- arflokkanna og Frjálslynda flokks- ins er varðandi fyrirhugaðar virkj- unarframkvæmdir Orkuveitu Reykjavíkur á Ölkelduhálsi þegar þeir koma í ferðina með Eldhestum næstkomandi laugardag. Skyldu þeir líta svo á að hér sé verið að fórna minni hagsmunum fyrir meiri og hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu og unnendur íslenskrar náttúru verði einfaldlega að lúta því eða kemur eitthvað annað á daginn? Sköpum sátt um Hengilssvæðið Stefán Erlendsson fjallar um fyrirhugaðar virkjunarfram- kvæmdir Orkuveitu Reykjavíkur á Ölkelduhálsi Stefán Erlendsson »… víst er aðengar sættir takast með ferðaþjón- ustuaðilum á Hengilssvæðinu og Orkuveitu Reykjavíkur ef Orkuveitan fylgir eftir áformum sínum um að reisa jarðvarmavirkj- un á Ölkeldu- hálsi … Höfundur er leiðsögumaður í hestaferðum á Hengilssvæðinu. Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi. Gunnar Jóhannesson skrifar um trú og vísindi. Guðjón Sveinsson: Rík þjóð en fátæk í anda. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Fáðu úrslitin send í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.