Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðríður ErnaÓskarsdóttir fæddist í Reykjavík 10. janúar 1924. Hún lést á Drop- laugarstöðum 31. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Óskar Georg Halldórsson útgerð- armaður, f. 17. júní 1893, d. 15. janúar 1953 og kona hans Guðrún Ólafsdóttir, f. 27. nóvember 1893, d. 22. ágúst 1939. Fóstra Ernu var Guðríður Jakobsdóttir, f. 16. september 1894, d. 19. janúar 1960. Systkini hennar voru: 1) Guðný, f. 1916, d. 1922. 2) Theódór Óskar, f. 1918, d. 1941. 3) Þóra, f. 1919, d. 2001, maki Þorsteinn Egilsson, f. 1910, d. 1987. 4) Guðný, f. 1921, d. 1993, maki Gunnar Halldórsson, f. 1921, d. 1973. 5) Ólafur, f. 1922, d. 1995, maki Hanna Kristín Gísladóttir, f. 1924, d. 1985. 6) Halldóra, f. 1925, d. 1993, maki Einar Sigurðsson, f. 1923, d. 1994. 7) Guðrún (Hamelý), f. 1930, d. 2006, maki Milutin Koj- ic, f. 1922, d. 1990. Hálfsystkini samfeðra voru Harald E. Gunn- arsson, látinn og Erna Hall- búð með Hugrúnu Elfu Hjaltadótt- ur, f. 27. september 1978, sonur þeirra er Óskar Georg, f. 23. des- ember 2004. b) Jón Arnar, f. 11. maí 1980, í sambúð með Jónu Guð- björgu Árnadóttur, f. 31. júlí 1981. c) Guðrún, f. 20. nóvember 1984. d) Þórunn, f. 24. desember 1989. 3) Herdís Þórunn leikskólakennari, f. 11. janúar 1952, gift Inga Jóni Sverrissyni leiðsögumanni, f. 28. mars 1951. Börn þeirra eru: a) Jón Sigurður, f. 22. september 1980. b) Ingibjörg Anna, f. 10. janúar 1984. c) Ólafur Örn, f. 15. janúar 1988. 4) Halla Guðríður, fulltrúi, f. 27. febrúar 1957. Dóttir hennar er Guðríður Erna Guðmundsdóttir, f. 9. september 1983. Erna ólst upp í Reykjavík, bjó lengst að Ingólfsstræti 21 en dvaldist mörg sumur á Bakka á Siglufirði. Hún gekk í Miðbæj- arskólann í Reykjavík, lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði og útskrifaðist frá The Hack Centenary Junior Col- lege i New Jersey í júní 1945. Hún vann við útgerðarfélag föður síns og í Útvegsbanka Íslands. Eftir að hún giftist var hún lengst af heimavinnandi, starfaði þó um tíma á Fasteignasölu Einars Sig- urðssonar og fyrir Rauða kross Ís- lands. Útför Ernu verður gerð í dag frá Dómkirkjunni og hefst athöfn- in klukkan 15. dórsson, látin. Erna giftist 27. maí 1949 Jóni Sigurði Ólafssyni frá Króks- fjarðarnesi, lögfræð- ingi, skrifstofustjóra í félagsmálaráðu- neytinu, f. 7. október 1919, d. 5. ágúst 1984. Foreldrar hans voru Ólafur E. Þórð- arson bóndi, f. 3. júní 1883, d. 17. sept- ember 1931 og kona hans Bjarney S. Ólafsdóttir, f. 22. júní 1886, d. 31. mars 1984. Börn Ernu og Jóns eru: 1) Ólöf Sigríður fulltrúi, f. 1. janúar 1950, gift Kjartani Gíslasyni rekstrarstjóra, f. 9. júlí 1950. Börn þeirra eru: a) Erna Guðríður, f. 16. nóvember 1979, gift Þorbirni Geir Ólafssyni, f. 30. maí 1975, sonur þeirra er Ólafur Geir, f. 26. apríl 2005. b) Ingibjörg Rós, f. 30. desember 1982, unnusti Ísleifur Birgisson, f. 23. febrúar 1981. c) Jón Ólafur, f. 6. júlí 1988. 2) Óskar Georg lyfja- fræðingur, f. 2. janúar 1951, d. 19. maí 2002, kvæntur Þórunni Hall- dóru Matthíasdóttur, BA kennara, f. 7. júní 1951. Börn þeirra eru: a) Matthías Þór, f. 7. maí 1975, í sam- „Mikið er hún mamma þín lagleg.“ Þetta var eitt af því fyrsta sem ég sagði við Óskar minn eftir að hafa hitt tilvonandi tengdamóður mína í fyrsta sinn. Síðan eru liðin nær þrjá- tíu og sjö ár og ég komst fljótt að því að hún Erna var ekki bara stórglæsi- leg kona sem bjó yfir einstakri út- geislun heldur var hún líka gull af manni. Í raun og veru á orðið fegurð svo vel við þegar lýsa á tengdamóður minni, sjálf var hún falleg í útliti en hún bjó líka yfir mikilli innri fegurð og orð hennar og athafnir einkennd- ust af því hve mikla umhyggju hún bar fyrir samferðamönnum sínum. Hún skynjaði líka fegurð náttúrunn- ar allrar, himins, hafs og jarðar. Ósjaldan urðum við vitni að óendan- legri hrifningu hennar þegar norður- ljósin dönsuðu um himinhvolfið. Sól- arlagið dró hana niður að sjó mörg síðsumarkvöldin og hafið minnti hana á dvöl hennar í sjávarplássum á árum áður. Hún átti sælureiti við Þingvallavatn og þar leið henni vel og hún undi sér löngum við veiðar á vatnsbakkanum eða úti á báti og gat endalaust virt vatnið fyrir sér og dáðst að hreyfingum þess og marg- breytileika. Það var sama hvort jörð- in skrýddist grænum skrúða eða snjór lá yfir öllu, hvorttveggja var í huga Ernu tákn fegurðar. Þessar sömu tilfinningar gagnvart nátt- úrunni einkenndu líka Jón, tengda- föður minn, og höfðu áhrif á börnin þeirra þegar þau voru að alast upp og síðan á tengdabörn og barnabörn. Margar minningar tengjast því úti- vist og ferðalögum. Á sumrin var far- ið í sumarbústaði, útilegur og göngu- ferðir. Yfir vetrartímann voru skíðaferðir fastur liður í lífi fjölskyld- unnar. Þegar vel viðraði og skíðafæri gafst var haldið til fjalla þar sem allir gátu notið útiverunnar saman. Þegar ég kom inn í líf fjölskyld- unnar bjuggu Erna og Jón á Há- vallagötu 3 ásamt börnunum sínum fjórum. Mér varð strax ljóst að þar bjuggu hjón sem voru höfðingjar heim að sækja enda var oft gest- kvæmt á heimilinu og voru Erna og Jón einstaklega samhent við að láta gestum sínum líða vel. Það var sama hvort um var að ræða vini og skóla- félaga barnanna, heimilisvini, ætt- ingja eða venslafólk, öllum var tekið af sömu hlýjunni og gestrisninni. Það var gott að koma ,,á Hávallagötuna“. Árin liðu og smám saman stofnuðu börnin eigin heimili, heimili sem öll minna á einn eða annan hátt á bernskuheimilið. Það var okkur öll- um mikið áfall þegar Jón lést skyndi- lega í ágústbyrjun 1984. Rúmu ári seinna flutti Erna á Flyðrugrand- ann. Þá varð enn styttra á milli henn- ar og barnanna og henni fannst gott að vera í göngufæri við okkur öll og það var stutt fyrir barnabörnin að hlaupa yfir til ömmu Ernu. Erna var ákaflega frændrækin og mikil fjölskyldumanneskja, tengsl við fortíðina skiptu hana einnig máli. Hún hélt tryggð við vinkonur fóstru sinnar og aðra eldri fjölskyldumeð- limi og vini og hún hélt í heiðri minn- ingu foreldra sinna. Hún var dugleg við að segja okkur skemmtilegar og fræðandi sögur tengdar liðnum tíma. Síldarárin á Siglufirði voru henni hugleikin, ferðir sem hún fór með Óskari, föður sínum, þegar hann var að ganga frá viðskiptum erlendis, dvölin hjá honum meðan hann var búsettur í Kaupmannahöfn, undir- búningurinn við að koma vaxmynda- safninu á laggirnar og svo margt fleira sem ævintýraljómi hvíldi yfir. Henni tókst að gæða þessar frásagn- ir svo miklu lífi að okkur hefur alltaf fundist sem við höfum þekkt Óskar Halldórsson og höfum haldið áfram að miðla frásögnum hennar til yngri kynslóðarinnar. Hún kenndi okkur listina að viðhalda minningum þann- ig að þeir sem eru farnir haldi áfram að vera hluti af lífi okkar. Þannig varð afi Jón einnig raunverulegur barnabörnunum sem ekki náðu að kynnast honum í lifanda lífi og á sama hátt munu allar dýrmætu minningarnar halda áfram að skila sér til komandi kynslóða. Erna lifði á margan hátt tilbreyt- ingaríku lífi og hún var óhrædd við að takast á við ólíkar og breyttar að- stæður. Hún tók þátt í síldarævin- týrinu með Óskari, föður sínum, sigldi með Brúarfossi í skipalest til Ameríku á stríðsárunum til að mennta sig og ferðaðist meira um heiminn en margir af kynslóð henn- ar, fyrst með föður sínum og síðan með eiginmanni sínum. Hún var eft- irtektarsöm og opin fyrir nýjum sið- um. Þessi reynsla mótaði hana og hún vann á jákvæðan hátt úr því sem fyrir augu bar. Erna var að mörgu leyti á undan samtímanum hvað veisluhöld og óvæntar uppákomur snerti. Í vik- unni áður en við Óskar giftum okkur hringdi hún og spurði hvort ég gæti skroppið yfir til hennar. Þegar ég kom var stofan á Hávallagötunni þéttsetin stelpum á öllum aldri og á miðju gólfi var borð sem á stóð app- elsínugulur þvottabali fullur af smá- pökkum, tengdum stofnun heimilis. Ég á enn engin orð til að lýsa undrun minni þetta júníkvöld. Þessum sið hafði Erna kynnst í Ameríku og lagði á sig að hafa uppi á öllum gestunum og bjóða þeim í þetta skemmtilega boð sem auðvitað lauk með því að við gæddum okkur á kræsingum sem hún bar fram á þann hátt sem henni einni var lagið. Hún kynntist snemma þeirri hefð Dana að hafa jólaglögg í desember og áður en slíkt varð algengt hér á landi hélt Erna á hverju ári kvennaboð í byrjun að- ventunnar og bauð upp á glögg og jólahlaðborð. Jólin skipuðu stóran sess í huga hennar og hún hafði mikla ánægju af að safna saman fjöl- skyldu og vinum á þessum árstíma. Í slíkum boðum sem öðrum voru síld- arréttirnir hennar ómissandi en hún kunni, best allra, að töfra fram góm- sæta rétti úr silfri hafsins. Erna og Jón héldu árum saman þorrablót á heimili sínu fyrir ættingja og vini og sáu sjálf um að matreiða alla réttina. Undirbúningurinn byrjaði á haustin þegar hráefnið kom að vestan frá æskustöðvum Jóns og sláturgerðin hófst. Haustin notaði Erna líka til berjatínslu, bæði á Þingvöllum og í garðinum sínum, og rifsberjasultan hennar er og verður sú eina sanna. Erna var gæfumanneskja í einka- lífinu og hún kunni svo sannarlega að meta það. Hún ólst upp í samhentum og skemmtilegum systkinahópi, átti góðar vinkonur, eignaðist mann sem hafði sömu gildi og hún að leiðarljósi og var alla tíð í nánu og góðu sam- bandi við börn, tengdabörn og barnabörn. Sjálf minntist hún oft á það hve lánsöm hún væri. Fjölskyld- an var henni allt og barnabörnin voru augasteinar ömmu sinnar. Hún fylgdist vel með því sem þau tóku sér fyrir hendur, bæði varðandi nám og tómstundir, og gladdist yfir sér- hverjum áfanga í lífi hvers og eins. Síðustu misserin bættust tveir lang- ömmustrákar í hópinn sem ávallt náðu að kalla fram fallega brosið hennar. Mér var hún ákaflega góð tengdamóðir og ég lærði margt af henni enda var hún alltaf tilbúin að rétta fram hjálparhönd og miðla af reynslu sinni. Síðustu ár hafa verið fjölskyldunni erfið og skuggi sorgar hvílt yfir tilverunni. Við leiðarlok er margs að minnast Erna Óskarsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, MARGRÉT KRISTINSDÓTTIR, Sólheimum 23, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju- daginn 29. ágúst, verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju í dag kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Thorvaldsensfélagið, sími 551 3509. Ólöf Magnúsdóttir, Örlygur Þórðarson, Katrín Magnúsdóttir, Bragi Björnsson, Sjöfn Kristinsdóttir, Grétar Nikulásson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulega ÞÓRUNN ELÍSABET BJÖRNSDÓTTIR kaupkona, Blönduhlíð 29, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 31. ágúst. Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 11. september kl. 13.00. Sigríður Flosadóttir, Björn Þór Jónsson, Bryndís Steinþórsdóttir. Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is Ástkær dóttir okkar, unnusta, systir og mákona, HULDA BJÖRK HAUKSDÓTTIR, sem lést af slysförum í Danmörku mánudaginn 28. ágúst, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, föstudaginn 8. september kl.13.00. Haukur Jónsson, Guðlaug Árnadóttir, Ivan Poulsen, Birkir Björn Hauksson, Sóley Guðjónsdóttir, Finnur Dagsson, Halldór Guðjónsson. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona, tengdadóttir og amma, MARÍA RÓSA JAKOBSDÓTTIR, Eyrarvegi 9, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. september kl. 13:30. Jóhannes Haukur Jóhannesson, Helgi Jakob Helgason, Ólöf María Jóhannesdóttir, Brigitte Bartsch, Lotta Wallý Jakobsdóttir, Jón Gústafsson, Jóna Bergdal Jakobsdóttir, Jörundur Torfason, Hilmar J. Jakobsson, Hanna Sigmarsdóttir, Konráð W. Bartsch, Kristín McQueen Rafnsdóttir, Jóhannes Kristjánsson, Ólafía Jóhannesdóttir og ömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdafaðir, bróðir og afi, SIGURJÓN G. ÞORKELSSON, Jórsölum 14, Kópavogi, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 5. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þóra Björg Ólafsdóttir, Anna Kristín Sigurjónsdóttir, Örn Svavarsson, Guðrún Björk Sigurjónsdóttir, Ólafur Guðlaugsson, Linda Guðríður Sigurjónsdóttir, Ingvar Guðjónsson, Sigurjón Þorkell Sigurjónsson, Lína Björk Ívarsdóttir, Hilmar Þór Sigurjónsson, Kristín Jóna Guðmundsdóttir, Hilmar Þorkelsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.