Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Blue Lagoon orkute Einstakt jurtate sem veitir aukna orku, jafnvægi og vellíðan. Inniheldur hvönn, vallhumal og mjaðurt úr hreinni íslenskri náttúru. Koffeinlaust. Fáanlegt í Blue Lagoon verslunum í Bláa lóninu, að Laugavegi 15, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í netverslun á www.bluelagoon.is www.bluelagoon.is Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is ÁRNI Mathiesen, fjármálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í suð- vesturkjördæmi, hefur ákveðið að færa sig yfir í suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti listans þar. Þetta tilkynnti hann á blaða- mannafundi í Reykjanesbæ um miðj- an dag í gær að viðstöddum nokkr- um forystumönnum Sjálfstæðis- flokksins þar. „Ég tel að það séu mjög mikil og spennandi verkefni framundan í suð- urkjördæminu,“ sagði Árni í samtali við Morgunblaðið af þessu tilefni. Hann sagði að á síðasta kjörtíma- bili hefði ýmislegt komið upp á í kjör- dæminu og hlutir farið öðruvísi en ætlað hefði verið og það hefði skapað erfiðleika. Þannig hefði Árni Ragnar Árnason alþingismaður veikst og fallið frá, efnt hefði verið til sérfram- boðs og fleira. Hins vegar hefði margt gengið mjög vel. Félagsstarf- ið hefði verið öflugt og flokkurinn náð mjög góðum árangri í sveitar- stjórnarkosningunum. Verkefnin væru krefjandi og þau þyrfti að leysa en sóknarmöguleikarnir væru mikl- ir. „Sem fyrrverandi 1. þingmaður Reykjaneskjördæmis, sem er annar forvera suðurkjördæmisins, rennur mér blóðið til skyldunnar að takast á við þessi verkefni og ég tel að ég hafi góðar forsendur til þess, bæði vegna reynslu, þekkingar og stöðu. Ég hef viljann til þess líka og tel að mínir kraftar muni nýtast betur í suður- kjördæminu en þeir myndu gera í suðvesturkjördæminu og held að ég þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því hvernig forustumálin geti skipast þar, þótt það viti auðvitað heldur enginn fyrirfram,“ sagði Árni einnig. Aðspurður sagðist hann hafa feng- ið talsvert af áskorunum þessa efnis frá samstarfsmönnum í kjördæminu, bæði frá Reykjanesi og eins annars staðar frá. Það hefði orðið til þess að hann hefði farið að athuga málið. Hann hefði fengið þannig svörun að hann teldi þetta rétt skref og teldi allar forsendur til þess að hann gæti orðið oddviti flokksins í væntanlegu prófkjöri og leitt lista hans í kjör- dæminu. Prófkjörinu væri að sjálf- sögðu ekki lokið og flokksmenn ættu síðasta orðið í þessum efnum. Í fram- haldinu gæti hann síðan tekist á við þau verkefni sem fælust í kosningum næsta vor og nýju kjörtímabili. Árni sagðist þekkja mjög vel til í suðurkjördæmi. Þar væru tveir af grundvallaratvinnuvegum þjóðar- innar mjög mikilvægir, bæði sjávar- útvegur og landbúnaður. „Ég er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra þannig að ég þekki mjög vel til þeirra mála sem skipta kjördæmið mjög miklu. Síðan er ég menntaður dýralæknir, þannig að ég þekki land- búnaðarmálin líka, og var dýralækn- ir í Árnessýslu á mínum yngri árum. Það munaði reyndar ekki miklu að ég settist þá að í sýslunni og þá hefðu hlutirnir kannski þróast öðruvísi. Ef ég hefði ekki farið til framhaldsnáms þá um haustið hefði ég sennilega sest að í uppsveitum Árnessýslu,“ sagði Árni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Árni M. Mathiesen tilkynnti um framboð sitt að viðstöddum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Árni Mathiesen færir sig yfir í suðurkjördæmi „Mikil og spennandi verkefni framundan í kjördæminu“ „Í LJÓSI ákvörð- unar Árna [Mat- hiesen] liggur það ljóst fyrir af minni hálfu að ég mun sækjast eftir því að leiða lista okk- ar sjálfstæðis- manna í suðvest- urkjördæmi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, 6. þingmaður suðvesturkjör- dæmis og varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, en Þorgerður var í 4. sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu fyrir alþing- iskosningarnar 2003. Aðspurð hvort öðruvísi hefði farið ef ákvörðun Árna hefði ekki legið svo snemma fyrir tel- ur Þorgerður ekki rétt að vera með neinar vangaveltur í þá veru. „Það liggur fyrir að Árni er búinn að vera mjög farsæll leiðtogi okkar hér í þessu kjördæmi og líka kjörtímabilið þar á undan, þegar hann leiddi okkur í gamla Reykjaneskjördæminu,“ segir Þorgerður. „Ég held að við séum fyrst og fremst að styrkja flokkinn á landsvísu. Árni hefur ver- ið farsæll í sínum störfum sem ráð- herra, hann er mikill og góður leið- togi og ég tel að hann muni njóta farsældar í störfum sínum sem odd- viti flokksins í suðurkjördæmi.“ Þorgerður telur að nú skipti mestu máli að vel raðist niður á framboðslista sjálfstæðismanna í kjördæminu þannig að hann endur- spegli þá breidd sem er í flokknum og sé í góðum tengslum við sam- félagið. Svæðið sem núverandi suð- vesturkjördæmi nær yfir hefur löngum verið eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins. Í alþingiskosn- ingum árið 2003 hlaut flokkurinn 38,4% fylgi sem tryggði honum fimm þingmenn. Þá var Þorgerður Katrín í fjórða sæti en auk Árna voru á lista- num þau Gunnar I. Birgisson og Sig- ríður A. Þórðardóttir. „Um leið og Árni, sem er búinn að reynast okkur vel, hverfur á brott tekur sá er sæk- ist eftir því að leiða listann að sér mikið ábyrgðarhlutverk; að leiða þetta sterka vígi okkar,“ segir Þor- gerður. „Sem betur fer byggist þetta ekki allt á einum einstaklingi, heldur hef ég þvert á móti talið að helsti styrkleiki okkar felist í breiddinni sem endurspeglast í listanum í suð- vesturkjördæmi og þeim fjölda fólks sem hefur komið að starfi flokksins á svæðinu.“ Mun sækjast eftir því að leiða listann Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir »Kjördæmisráð Sjálfstæð-isflokksins í suðurkjördæmi fundar í lok mánaðarins og liggur fyrir tillaga um að listi flokksins í kjördæminu verði valinn í prófkjöri. »Kosið var í fyrsta skipti ínýju suðurkjördæmi í síð- ustu kosningum árið 2003, en kjördæmið varð til úr Suður- landskjördæmi og hluta Reykjaneskjördæmis, þ.e. Suð- urnesjum. Í HNOTSKURN FORMENN stjórnarandstöðuflokk- anna á Alþingi eru sammála um að stefna ekki að kosningabandalagi flokkanna fyrir þingkosningarnar næsta vor. Að því er hins vegar stefnt að flokkarnir stilli saman strengi sína á þinginu í vetur. Þá eru þeir jafnframt sammála um að ef ríkisstjórnarflokkarnir fá ekki meirihluta í kosningunum þá verði fyrstu kostur stjórnarandstöðu- flokkanna að kanna samstarfs- grundvöll þeirra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, og Guðjón A. Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokksins, hittust heima hjá Ingibjörgu Sól- rúnu í fyrradag þar sem þau ræddu um hugsanlegt samstarf flokkanna. „Við vorum öll sammála um það að við værum ekki að stefna í kosn- ingabandalag,“ segir Ingibjörg Sól- rún. „Við ætlum hins vegar að stefna að því að stilla saman streng- ina og sjá hvernig það svo þróast á þinginu. Það er ekkert meira í því en það. Við ætlum að reyna að vera meira samstiga á þinginu.“ Guðjón A. Krisjánsson segir að það hafi aldrei staðið til að stjórn- arandstöðuflokkarnir mynduðu kosningabandalag. „Það liggur hins vegar í hlutarins eðli að ef ríkis- stjórn sem situr fær ekki meirihluta í kosningum þá hljóti hinir að bera þá skyldu að kanna hvort þeir nái saman,“ segir hann. Ekkert kosn- ingabandalag Stjórnarandstaðan stefnir að því að stilla saman strengi sína á þinginu ORÐS skáldsins – heilbrigð sál í hraustum líkama – svifu yfir vötn- um í Egilshöllinni í gær, en þar fer nú fram heilsu- og vellíðunarsýn- ingin 3L Expo. Um 150 fyrirtæki og félög taka þátt í sýningunni með ýmiss konar vörukynningum, auk þess sem boðið verður upp á tugi fróðlegra erinda er varða efnið á laugardag og sunnudag, en sýning- unni lýkur á mánudaginn. Á myndinni má sjá Höllu Birgis- dóttur kynna nýjan próteindrykk Kötlu fyrir gestum sýningarinnar. Morgunblaðið/Ómar Heilsusýning í Egilshöll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.