Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
HVERNIG VÆRI BEGGA
AÐ VIÐ...
MÉR TÓKST NÆSTUM ÞVÍ AÐ BJÓÐA
HENNI HENNI ÚT ÁÐUR EN HÚN
LAGÐI Á MIG
ÉG VERÐ AÐ
TALA HRAÐAR
ÞÚ
ERT AÐ
FATTA
ÞETTA
ÉG HALD AÐ HANN EIGI
EFTIR AÐ VERÐA NÝR OG
BETRI MAÐUR
ÞAÐ ER ÓHUGGULEG
TILHUGSUN... ÉG HELD AÐ FÁTT SÉ JAFNHRÆÐILEGT OG KALLI
ÞEGAR HANN ER
HAMINGJUSAMUR
ÉG HELD
AÐ HANN
HAFI GOTT
AF ÞVÍ AÐ
EIGNAST
SYSTUR
HVERNIG Á
ÉG AÐ
BREYTA MÉR
TIL BAKA
ÞEGAR
BYSSAN ER
BILUÐ?
ÞAÐ ER NÚ EKKI SVONA
SLÆMT AÐ VERA UGLA. Á
MARGAN HÁTT ER ÞAÐ BETRA
EN AÐ VERA LÍTILL STRÁKUR
BETRA!
HVER-
NIG ÞÁ!
ÉG KUNNI EKKI
VIÐ AÐ SEGJA
ÞÉR ÞETTA ÁÐUR
EN LITLIR
STRÁKAR LYKTA
FREKAR ILLA
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA
HOBBES? ÉG GET EKKI
VERIÐ UGLA TIL
ÆVILOKA
HVAÐ ER Í
MATINN
HELGA?
Í KVÖLD ÞÁ BORÐUM
VIÐ SOÐNAR
GULRÆTUR...
...OG SOÐNA
KÁLHAUSA
ÞETTA ER HENNAR LEIÐ TIL AÐ
SEGJA MÉR AÐ HUNSKAST ÚT OG
VINNA FYRIR MEIRI PENINGUM
DANSKENNSLA UPP Á
GAMLA MÁTANN
...NÆST
TÖKUM VIÐ
SVO RÚMBU
HELDURÐU
AÐ VIÐ NÁUM
ÞESSU FYRIR
MORGUN-
DAGINN?
JÁ! ÉG ER BÚIN AÐ HAFA TILFORRÉTINA OG
AÐALRÉTTURINN ER
TILBÚINN TIL AÐ FARA Í
OFNINN
LANGAR
ÞIG EKKI AÐ
FARA Í
RÚMIÐ,
ÁSTIN MÍN
JÚ!
EN FYRST ÞURFUM VIÐ
AÐ FÆGJA SILFRIÐ, ÞVO
SPARISTELLIÐ OG...
HVAÐ ERTU AÐ GERA. ÞÚ
ÁTT VARLA AÐ ÞEKKJA
MIG
ÞETTA ER
ALLT Í LAGI.
ÉG ÚTSKÝRI
ÞETTA SEINNA
VÁ, ÞEIM TEKST AÐ LÁTA
ÞETTA GERVI SAMBAND LÍTA
ÚT EINS OG ÞAÐ SÉ
RAUNVERULEGT
KANNSKI ER M.J. EKKI
HAMINGJUSAMLEGA
GIFT
KÓNGULÓARMANNINUM BREGÐUR ÞEGAR M.J.
FAÐMAR HANN...
Ég leyfi mér að fullyrða aðaldrei hafi verið á jafn-litlum stað jafnítarlegarupplýsingar í boði um
fjármál og skipulagningu þeirra,“
segir Steingerður Steinarsdóttir,
kynningarfulltrúi sýningarinnar
Fjölskyldan og fjármálin, sem
haldin verður í Smáralind dagana
9. og 10. september.
„Á sýningunni verða sam-
ankomnir fulltrúar ótal fyrirtækja
sem koma að fjármálum fjölskyld-
unnar og efnahagsmálum. M.a.
verða fyrirtæki á sviði öryggis-
mála, tryggingafyrirtæki og við-
skiptabankarnir verða með kynn-
ingar á starfsemi sinni og
upplýsingar um hagstæðustu kjör-
in,“ segir Steingerður. „Það er til
marks um nýja tíma að samkeppni
er á þessum markaði sem ekki var
áður, til hagsbóta fyrir neytendur.
Það getur því margborgað sig fyr-
ir fólk að hafa góða yfirsýn yfir
það sem í boði er og skilja sem
best sín eigin fjármál. Kjörorð
sýningarinnar endurspegla þetta:
„Góðar upplýsingar eru gulls
ígildi“.“
Gestir í Smáralind geta fengið
ráðgjöf og upplýsingar, og tilboð í
viðskipti hjá fulltrúunum sem
verða á sýningunni: „Allir eiga er-
indi á þessa sýningu, bæði fjöl-
skyldufólk og fasteignaeigendur,
fullorðið fólk sem sest hefur í
helgan stein eða unglingar sem
vilja finna námsmannaþjónustu
sem hentar þeim vel. Þarna verða
á staðnum ráðgjafar sem vita best
hvernig svara má ólíkum þörfum
hvers og eins og geta aðstoðað
sýningargesti við að finna sér ein-
mitt þá þjónustu sem þeir þurfa á
að halda,“ segir Steingerður.
Auk þess að geta fengið upplýs-
ingar á sýningarbásum geta gestir
hlýtt á fyrirlestur um fjármál fjöl-
skyldunnar: „Ingólfur Ingólfsson
hjá www.Spara.is, sem m.a. skrif-
aði bókina Þú átt nóg af pen-
ingum, verður með ókeypis fyr-
irlestur, Úr mínus í plús, fyrir
sýningargesti kl. 14 báða dagana.
Hann er ötull námskeiðahaldari og
búinn að sýna það og sanna að
hann kann að kenna fólki að nýta
peningana sína vel og fá sem mest
út úr kaupinu sínu,“ segir Stein-
gerður en fyrirlestrar Ingólfs
verða haldnir í lúxussal Smára-
bíós.
Bylgjan verður með útsendingu
á svæðinu báða sýningardaga og
segja frá helstu viðburðum og leik-
horn er í boði fyrir börnin þar sem
þau geta leikið sér með þroska-
leikföng frá Leiksmiðjunni.
Ekki er nóg með að sýningin sé
með öllu ókeypis, heldur geta sýn-
ingargestir unnið til pen-
ingaverðlauna: „Til sýnis verður
14 karata gullmoli, sem líklega er
sá verðmætasti sem sýndur hefur
verið hér á landi. Almenningur
getur fengið að virða hann fyrir
sér og giskað á þyngd hans, og
fær sá sem kemst næst þyngdinni
100.000 kr. verðlaun í boði Gull-
vildar Glitnis,“ segir Steingerður,
en gullklumpsins er vandlega gætt
af öryggisvörðum Securitas.
Sýningin Fjölskyldan og fjár-
málin er opin á afgreiðslutíma
Smáralindar, frá kl. 11 til 18 laug-
ardaginn 9. september og kl. 13 til
18 sunnudaginn 10. september.
Sýning | Í Smáralind 9. og 10. september
Fjölskyldan
og fjármálin
Stein-
gerður
Stein-
arsdóttir
fæddist í
Reykjavík
1959. Hún
lauk stúd-
entsprófi
frá Mennta-
skólanum
við Hamra-
hlíð 1980, BA-prófi í ensku og fjöl-
miðlafræði frá Háskóla Íslands
1992, árið 1993 prófi í hagnýtri fjöl-
miðlun frá sama skóla, og lauk árið
2006 prófi frá Leiðsöguskóla Ís-
lands. Steingerður hefur starfað
sem blaðamaður í 16 ár, fyrst á
Þjóðviljanum, og síðan hjá ýmsum
tímaritum, en hún starfar nú á Vik-
unni. Steingerður er gift Guðmundi
Bárðarsyni stýrimanni og eiga þau
tvö börn.
Rod Stewart segist finna til meðsir Paul McCartney og skilja
hugarangur hans vegna skilnaðar
hans og Heather Mills. Stewart
skildi sjálfur við fyrirsætuna Rachel
Hunter og segir það mjög sorglegan
kafla í lífi sínu.
„Ég hef aldrei verið eins þung-
lyndur og þegar Rachel fór í burtu,“
sagði Stewart eftir að hafa tekið við
verðlaunum frá tímaritinu GQ sem
valdi hann mann ársins. „Það var
eins og ég hefði orðið fyrir eldingu.
Það var hræðilegt.“
„Hugsið ykkur hvernig Paul
McCartney líður núna. Ég finn til
með honum,“ sagði skoski söngv-
arinn raunamæddur. „En ég áfellist
ekki Rachel. Elsta dóttir mín er sex
árum eldri en Rachel var þegar við
hittumst fyrst. En það var eins og að
heimurinn væri að farast þegar hún
fór. Ég var alls ekki undir þetta bú-
inn. Ég vitkaðist og þroskaðist hratt
eftir þetta.“
Sting hefur krafist þess að veiði-kofi skammt frá sveitasetri
hans í Wiltshire á Englandi verði rif-
inn niður vegna þess að hann spillir
útsýninu úr svefnherbergi hans.
Sting hefur kært
nágranna sinn
fyrir að reisa lít-
inn veiðikofa án
tilskilins bygging-
arleyfis.
„Ég get stað-
fest að Sting hef-
ur andmælt
þessu,“ sagði tals-
maður söngv-
arans. Hann bætti við að veiðikofinn
væri liður í gróðabralli auðjöfurs og
spillti svæði sem væri þekkt fyrir
náttúrufegurð og hefði einnig „sér-
stakt vísindalegt gildi“.
Sveitasetur Stings, sem heitir
réttu nafni Gordon Summer, er met-
ið á sjö milljónir punda, sem svarar
900 milljónum króna. Sting dvelur
þar þó sjaldan og kýs frekar að una
sér í sveitasælunni á Ítalíu þar sem
hann á enn stærra setur. Starfs-
menn hans þar sjá honum fyrir ólífu-
olíu og víni sem þeir framleiða sjálf-
ir.
Sting og eiginkona hans, Trudi
Styler, eiga einnig íbúð í London og
nota hana þegar þau eru í Bretlandi.
Fólk folk@mbl.is