Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÞRJÚ verk voru á dagskránni á tón- leikum í Sigurjónssafni á þriðja degi vikunnar. Og þrír hljóðfæraleikarar, þau Chihiro Inda fiðluleikari, Pawel Panasiuk sellóleikari og Agnieszka Malgorzata Panasiuk píanóleikari. Fyrsta atriði tónleikanna, píanótríó í C-dúr K 548 eftir Mozart, var meira að segja í þremur köflum. Fyrir suma er þrír sjálfsagt heilög tala. Samt voru þessir tónleikar ekki eins góðir og þeir hefðu getað verið. Og þó byrjuðu þeir vel. Glaðlegt tríóið eftir Mozart rann snurðulaust áfram og maður dáðist að glitrandi píanóleiknum, sem var nákvæmur, skýr og fjörlegur. Fiðluleikurinn var líka pottþéttur; rödd fiðlunnar var hnitmiðuð og safarík, alveg sama hvort hún var sterk eða veik. Hins- vegar var sellóleikurinn síðri; hann var að vísu tær lengi framan af en dá- lítið loftkenndur og ófókuseraður. Sem betur fer var það ekki áberandi og því hljómaði verkið í heild yfirleitt prýðilega. Síðri var útkoman í næsta atriði dagskrárinnar, „Andað á sofinn streng“ eftir Jón Nordal. Titill verks- ins er úr ljóði eftir Snorra Hjartarson og er tónlistin eftir því ljóðræn; kyrr- lát, íhugul og full af óræðri merkingu. Til að njóta sín þurfa fínlegustu blæ- brigði að vera einkar vel mótuð, en því miður var ekki svo á tónleikunum. Vissulega voru draumkenndar upp- hafshendingar úr píanóinu afar fal- legar en einleiksstrófur sellóleik- arans, sérstaklega í byrjun, voru svo illa spilaðar að það var beinlínis pín- legt. Fiðluleikurinn var mun betri, en þar sem allra efstu nótur fiðlunnar hefðu mátt vera nákvæmari stóðst heildarútkoman ekki væntingar. Tríó í d-moll nr. 1 eftir Arensky var aftur á móti á ýmsan hátt ágætlega spilað. Sem fyrr var píanóleikurinn vandaður; hröð hlaup komu prýðilega út og rödd hljóðfærisins rann full- komlega saman við fiðluna og sellóið. Fiðluleikarinn var líka með allt sitt á hreinu en sellóið var á köflum hjá- róma, jafnvel falskt hér og þar, þótt það hafi vissulega hljómað betur en í verkinu á undan. Óneitanlega var forvitnilegt að heyra tónsmíð eftir Arensky, sem í dag er sennilega frægastur fyrir að hafa kennt Rakmanínoff og Skrjabín. Sem tónskáld hefur hann að mestu fallið í gleymsku og maður skilur af hverju. Tónlistin sem hér var flutt samanstóð af endalausum klisjum úr rússneskri síðrómantík; auðheyrt var að Arenskí var engan veginn sami snillingurinn og nemendur hans. Enda snilldin alltaf sjaldgæf. Á köflum hjáróma TÓNLIST Sigurjónssafn Tónlist eftir Mozart, Arenskí og Jón Nor- dal í flutningi Tríó Bellarti (Chihiro Inda fiðluleikara, Pawel Panasiuk sellóleikara og Agnieszka Malgorzata Panasiuk píanóleikara). Þriðjudagur 29. ágúst. Kammertónleikar Jónas Sen SÝNING skoska listamannsins Jim Colquhoun er innblásin af hryllings- sögunni „The hounds of Tindalos“ eftir Frank Belknap. Á heimasíðu listamannsins er tilvitnun í söguna sem varpar frekara ljósi á innsetn- ingu hans í Boxi, en þar segir m.a. „Handan lífsins – andlit hans varð hvítt af skelfingu – er eitthvað sem ég get ekki skilgreint. Það smýgur gegn- um horn. Líkamslaust, og mjakar sér hægt gegnum skörp horn“. (Lausleg þýðing RS) . Í Gallerí Boxi hefur Jim Colquhoun útrýmt öllum skörpum hornum, mýkt línur þar sem veggir mæta lofti, gólfi eða öðrum vegg, rýmið er eins og vatteraður klefi. Inn- setningin er fyndin þegar þessi texti er hafður í huga, en ég las hann nú ekki fyrr en eftir á því hann fylgir ekki innsetningunni og hefði líklega þrengt túlkunarmöguleika hennar um of. Í víðara samhengi má skoða innsetninguna sem tilraun til að gera út af við fyrirbærið „hvíta kubbinn“ með málningarlímbandi, hvítri máln- ingu og handafli. „Hvíti kubburinn“ er hugtak sem lýsir hefðbundnu sýn- ingarrými fyrir myndlist og myndlist- armenn hafa nú um langt árabil leit- ast við að brjóta sig út úr. Í slíku samhengi er innsetning Colquhoun líka fyndin en felur um leið í sér þau skilaboð að nauðsynlegt sé að forðast stöðnun. Sjónrænt nær hann að skapa nokkuð sterkt andrúmsloft í þessum litla kassa sem Boxið er. Frammi í stofunni hefur Baldvin Ringsted sett upp verkið „I have a dream“, unnið út frá samnefndri ræðu Martin Luther King. Fram- setning verksins er hógvær og það krefst þess af áhorfandanum að hann setji sig inn í það og lesi þær upplýs- ingar sem með fylgja. Þessi ræða Martins Luther King, sem hann flutti í ágúst 1963 er söguleg og mjög til- finningalega hlaðin. Baldvin hefur tekið ræðuna og yfirfært hana tækni- lega yfir á nótur fyrir sellóleikara og var hluti þess fluttur á opnun. Tónar sellósins hafa án efa náð að einhverju leyti að skila tónfalli og tilfinningu ræðunnar. Nóturnar sem hér eru sýndar eru áhugaverðar að því leyti að áhorfandinn les í þær og ímyndar sér hæðir og lægðir í tónfalli, eins er það spennandi í sjálfu sér að velta fyrir sér sjónrænni framsetningu tungumálsins á þennan máta því allt sem við segjum felur í sér sterka hrynjandi. Hér eru nóturnar eins og verks- ummerki um eitthvað liðið, en þegar við hugsum til ræðu King er efniviður hennar óréttlæti sem enn er ekki liðið undir lok og er enn svo áleitið í sam- félagi okkar, – líka hér á landi, að að- eins tilhugsunin verður til þess að verk Baldvins verður eins og fagleg stílæfing í heimi sem frekar þarfnast réttlætis. Þessi staðreynd vekur spurningu um hlutverk listamannsins í samfélaginu og um tilfinningaleg mörk. Árið 1995 skrifaði dans- gagnrýnandinn Arlene Croce um- deilda grein í The New Yorker og sagði að hún ætlaði sér ekki að skrifa um danssýningu svarta, eyðnismitaða danshöfundarins Bill T. Jones vegna þess að raunverulegt fólk með krabbamein og eyðni var hluti af sýn- ingunni. Slíkt var að hennar mati handan allrar gagnrýni, væri list „fórnarlamba sem ekki væri hægt að skrifa um“. Í þessu samhengi er áhugavert að velta því fyrir sér hvort Baldvin Ringsted Vignisson frá Ís- landi geti tekið eins innihaldsríkan sögulegan atburð og þennan og notað hann í eigin listaverk? Hvaðan koma þær tilfinningar sem hann spilar svo sterklega á hjá áhorfandanum, fær hann þær að láni hjá Martin Luther án þess að spyrja? Hjá svörtum þræl- um sögunnar? Spurningar sem erfitt er að svara en gera verkið eftir- minnilegt og tilefni til umræðu. Hver á þjáninguna? Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Gallerí Box, Akureyri Til 14. september. Opið fim. og lau. frá kl. 14–17. Aðgangur ókeypis. Jim Colquhoun og Baldvin Ringsted Skoti með húmor Jim Colquhoun. ÞEGAR Matt Saunders hittir Jenny Johnson í fyrsta sinn telur hann sig hafa hitt hina fullkomnu stúlku. Áður en langt um líður finnst honum hún orðin full ráðrík, stjórnsöm og afbrýðisöm. Hann ákveður því að slíta sambandinu. Jenny er engan veginn sátt við málalyktir og ákveður að beita of- urhæfileikum sínum til að ná fram hefndum. Það sem fór fram hjá Matt var að Jenny er ofurhetja, svokölluð G-stúlka. Á meðan þessu vindur fram kemst á samband milli Matt og starfssystur hans, Hönnu. Þetta gerir illt verra og Jenny verð- ur ævareið. Það voru örlagarík skref þegar Matt (leikinn af Luke Wilson) bauð hinni glæsilegu og sakleysislegu Jenny (leikin af Uma Thurman) út í fyrsta sinn. Honum óraði ekki fyrir því hve hefnigjörn, illgjörn og ríkjandi kona hún er. Frumsýning | My Super Ex-Girlfriend Varasamt kvendi Spennandi Það drífur ýmislegt á daga skötuhjúanna Matt og Jenny, sem leikin eru af Luke Wilson og Umu Thurman. Metacritic 50/100 Hollywood Reporter 40/100 Variety 50/100 The New York Times 50/100Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is Kortasala hafin! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Litla hryllingsbúðin – síðustu aukasýningar Fös 8. sept kl. 19 UPPSELT Lau 9. sept kl. 19 UPPSELT Lau 9. sept kl. 22 UPPSELT Sun 10. sept kl. 20 örfá sæti laus Fim 14. sept kl. 20 Ný aukasýn. í sölu núna! Fös 15. sept kl. 19 örfá sæti laus Lau 16. sept kl. 19 UPPSELT – síðasta sýning Leikhúsferð með LA til London Expressferdir.is - 5000 kr. afsláttur fyrir kortagesti. www.leikfelag.is 4 600 200 Rokksveit Rúnars Júlíussonar í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar. www.kringlukrain.is Sími 568 0878 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 10/9 kl. 14 Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Sun 10/9 kl. 20 Sun 24/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 FOOTLOOSE Lau 9/9 kl. 20 Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20 Fim 28/9 kl. 20 HÖRÐUR TORFA AFMÆLISTÓNLEIKAR Í kvöld kl. 19:30 Í kvöld kl. 22 ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Áskriftarkort á 5 sýningar á 9.900. Þeir sem gerast áskrifendur fyrir 20.sept. fá gjafakort í Borgarleikhúsið í kaupbæti. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is PINA BAUSCH LOKSINS Á ÍSLANDI! Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn Pinu Bausch verður með 4 sýningar á verkinu Aqua í Borgarleikhúsinu. Sun 17/9 kl. 20 UPPS. Mán 18/9 kl. 20 Þri 19/9 kl. 20 Mið 20/9 kl. 20 Aðeins þessar 4 sýningar. Miðaverð 4.900. MIÐASALA HAFIN. MEIN KAMPF Lau 23/9 frumsýning UPPS. Mið 27/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 MIÐASALA HAFIN. ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir! Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar- son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson. Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney. Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „AÐEINS AULAR ERU SPÉHRÆDDIR.“ Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is GRETTIR EFTIR ÓLAF HAUK SÍMONARSON, ÞÓRARIN ELDJÁRN OG EGIL ÓLAFSSON Mr. Skallagrímsson - leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Föstudag 8/9 kl. 20 Uppselt Laugardag 9/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 10/9 kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 13/9 kl. 20 Uppselt Föstudagur 15/9 kl. 20 Uppselt Laugardagur 16/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 17/9 kl. 20 Uppselt Laugardagur 23/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 24/9 kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 27/9 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 28/9 kl.20 Laus sæti Fimmtudagur 5/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 6/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 7/10 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 8/10 kl. 20 Örfá sæti Fimmtudagur 12/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 13/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 14/10 kl. 20 Örfá sæti Sunnudagur 15/10 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 19/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 20/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 21/10 kl. 20 Laus sæti Sunnudagur 22/10 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 26/10 kl. 20 Síð. sýn. á árinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.