Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Ný sending af glæsilegum haustfatnaði Vaskurinn af Lækkum verð sem nemur virðisaukaskatti á öllum vörum í versluninni föstudag og laugardag. Glæsilegt úrval af innigöllum fyrir konur á öllum aldri, leðurtöskur, slæður, skart og ilmvötn ásamt snyrtivörumerkjunum Sími 568 5170 Pils kr. 7.990 HÆ Ð A S M Á R A 4 S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 ils r. . undirfataverslun, Síðumúla 3, sími 553 7355. 30-60% afsláttur Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. Útsölulok 15% aukaafsláttur við kassa af Peter Murray kvenfatnaði laugardaginn 9. september Undirföt • Sundföt • Náttföt Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is Sigurstjarnan Opiðvirka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Hágæðavörur - Leonardo - Reganci Einnig öðruvísi vörur frá Austurlöndum Útsölulok 20-80% afsl. Vaxta lausar léttgr eiðslu r Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 www.damask.is Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. 10-60% AFSLÁTTUR Tilboðsdögum lýkur laugardag KVARTAÐ hefur verið undan verk- lagi lögreglunnar vegna meintrar til- efnislausrar frelsissviptingar og harð- ræðis í fjöldaátökunum við Skeifuna aðfaranótt sunnudags. Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri í Reykjavík kannast við að kvartanir hafi borist og lögreglan sé reiðubúin að biðjast afsökunar á mistökum ef um slíkt hafi verið að ræða. Ingimundur segir að foreldrar a.m.k. tveggja unglinga hafi hringt í lögreglu vegna framferðis hennar. Í öðru tilvikinu handleggsbrotnaði drengur undan kylfuhöggum lögregl- unnar en í hinu tilvikinu fékk móðir 18 ára unglings meintar rangar upplýs- ingar um fangavist piltsins á sunnu- dagsmorgun og olli það henni miklu hugarangri. Hafði sonur hennar ekki skilað sér heim um nóttina og óttaðist hún að eitthvað hefði komið fyrir hann og hringdi í lögreglu til að spyrj- ast fyrir um hann þar. Faðir drengs- ins sagði Morgunblaðinu að móðirin hefði þá fengið þær upplýsingar að nafngreindur sonur hennar væri ekki í vörslu lögreglunnar og stóð hún þá uppi í algerri óvissu um afdrif piltsins. Ekki nóg með það, heldur hefði hann verið handtekinn af fimm lögreglu- þjónum fyrr um nóttina án þess að vera tilkynnt um sakargiftir. Hann hefði ekki mátt hringja heim til sín eða fengið að pissa áður en hann var tekinn inn í lögreglubíl. Hefði lögregl- an sagt honum að míga bara á sig. Ingimundur segir engar kvartanir vera komnar inn á sitt borð vegna þessara mála en segist hins vegar hafa heyrt af þeim. Hann hafi grein- argerð lögreglumanns um það sem átti sér stað um kvöldið en hún sé ekkert í líkingu við þessar lýsingar. Hann tekur þó fram að þar sé um að ræða greinargerð eins lögreglu- manns. Vissu ekki um einstaklinginn í klefanum Varðandi það atriði sem foreldrar 18 ára piltsins telja hvað alvarlegast, þ.e. að lögreglumaður hafi sagt að hann væri ekki í fangageymslu, segist Ingimundur hafa heyrt af því. „Menn á vaktinni vissu ekki að einstaklingur var í klefanum þannig að þetta getur átt við rök að styðjast. Þetta myndi teljast til mistaka enda erum við ekk- ert að leyna því hverjir eru í klefanum hjá okkur. Það er algjör regla að við tilkynnum foreldrum um þessa hluti, bæði að eigin frumkvæði og að ég tali ekki um ef viðkomandi óskar eftir því. En sumir vilja ekkert láta foreldrana vita hvar þeir eru niðurkomnir.“ En telst það vera eðlilegt að hand- tekinn maður fái ekki að hringja til að láta vita af sér? „Í þessu tilviki, þ.e. að maðurinn hafi verið handtekinn fyrir múgæs- ingu við Skeifuna, þá er það af og frá að það sé réttlætanlegt að hann fái ekki að hringja.“ Ingimundur tekur þó fram að hann hafi ekki upplýsingar um hvort þetta hafi verið það sem raunverulega gerð- ist en lýsir hér vinnulagi lögreglu al- mennt. Hann segir að hann hafi ekki séð neitt skriflegt, hvorki frá foreldr- um né unglingunum sjálfum um þessi mál. Ef framferði lögreglu er kært, sér lögreglan um að bóka kæruna inn en hefur ekki meira af henni að segja þar sem ríkissaksóknari tekur kæruna til meðferðar og athugar hvort tilefni er til rannsóknar og jafnvel saksóknar fyrir dómstólum. Morgunblaðið hefur haft samband við embætti ríkissak- sóknara daglega undanfarna þrjá daga til að spyrjast fyrir um hvort lögreglan hafi verið kærð, en engin kæra hefur borist. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er hinsvegar verið að íhuga framlagningu kæru. Varðandi hina umdeildu upplýs- ingagjöf lögreglu vegna piltsins í fangaklefanum segjast foreldrarnir hafa fengið þá skýringu að í tölvukerfi lögreglunnar hafi gleymst að haka við dálk í tölvunni og það orðið þess valdandi að þegar móðirin spurði hvort sonur hennar væri hjá lögreglu var svarið nei. Kemur þá til greina að senda afsök- unarbréf ef lögreglan áttar sig á því að þarna hafi átt sér stað mistök sem ollu ótta hjá foreldrum? „Við erum alltaf reiðubúnir að biðj- ast afsökunar á mannlegum mistök- um eða ef við gleymum einhverju. Við erum alltaf tilbúnir til þess.“ Unglingur handleggsbrotinn eftir átökin í Skeifunni Hefði átt rétt á að hringja til að láta vita af sér Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111AUGLÝSINGADEILD »Níu unglingar voru hand-teknir í kjölfar samkvæmis í sal Húnvetningafélagsins sl. laugardagskvöld. » Sex unglinganna voru 18ára, tveir 16 ára og einn 17 ára. » Í skýrslu lögreglu kemurfram að óskað hafi verið eftir sjúkrabíl vegna drengs með meiðsli á handlegg. Litið er svo á að lögregla hafi óskað eftir sjúkrabílnum. »Síðasta skýrslutaka vegnamálsins fór fram um hádegi daginn eftir, á sunnudegi. Í HNOTSKURN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.