Morgunblaðið - 08.09.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!!"#$%&
'"()*
&!!+&
!
, - . *+
!!
!!
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
!
/
0& 12 34 ")5
$)+/
")5
2!
12 34 ")5
0& * 12 34 ")5
6
!!
0(2 12 34 ")5
7829* ")5
: 12 34 ")5
1$&*&2 8
*!& ")5
'
34;&*7 8
*!& ")5
:
*8
*!& <$
* ")5
2+$ ")5
&/
"& * ")5
= $
*&/ +2 $+3%
2
3%32>632?
2@ A@2)58
*!& ")5
B32 ")5
$
7
12 34 ")5
C6 12
*& ")5
,/+$
*&/ 12 34 ")5
D"+2A& ")5
2E77&*7
%&?(?&* ")5
F&**$3(?&* ")5
!
"
#
$%
$@32)G$
7 3?32$
* 0)5
$
&
'(
,H
I?
0&?!50+2?
!!
!
!
!
!
"
"
"
"
"
62+E&*7 )2@
)E22
0&?!50+2?
>
> > > > > > >
>
> > > >
> >
>
>
>
>
J
K
>
J >
K
J K
J >K
J > K
J >K
J >K
J >K
J >
K
J K
>
J K
J >K
J >K
J >
K
>
J >K
>
>
>
>
>
C+&$
20&?!&4&
7&*
&$8 ? I $ !
7L
'
34
$
5
5
5 5
5 5
5 5
5 5
5
5 5
5 >
>
>
>
>
>
>
F&?!&4& I ;95 !25
C5 M "373*
2$&& A($&
0&?!&4
>
>
>
>
>
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu 18,8 milljörðum
króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir um 1,8 milljarða. Úr-
valsvísitalan lækkaði um 0,65% og
er nú 6.033 stig.
Hlutabréf flestra félaga lækkuðu í
gær. Mest lækkun varð á bréfum FL
Group og Össurar, 1,6% hvoru félagi
um sig. Mest hækkun varð hins veg-
ar á bréfum Marels, eða 2,0%, en
einungis þrjú félög hækkuðu í Kaup-
höllinni í gær auk Marels, Actavis,
Avion og Atlantic Petrolium.
Lækkun í Kauphöllinni
● BAE Systems
hefur samþykkt
að selja 20% hlut
sinn í flug-
vélaframleiðand-
anum Airbus til
EADS fyrir 1,9
milljarða punda
eða um 240 millj-
arða íslenskra
króna. Samþykki
hluthafar söluna
mun EADS eiga Airbus að fullu. Frá
þessu er greint í frétt á fréttavef
BBC-fréttastofunnar.
BAE selur hlut sinn
í Airbus til EADS
A380 Stærsta far-
þegaþota heims.
ÍSLAND er ásamt Lúxemborg í 9.
sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi
þjóða og hefur fært sig upp um fjög-
ur sæti frá árinu 2005. Á síðasta ári
fékk Ísland einkunnina 7,7 af 10
mögulegum en í ár er einkunnin 7,9.
Þessar niðurstöður er að finna í
ársskýrslu um efnahagslegt frelsi
þjóða, sem unnin er af Samstarfs-
neti um efnahagslegt frelsi, en inn-
an vébanda netsins eru óháðar
rannsóknar- og fræðslustofnanir í
meira en 70 ríkjum. Rannsókn-
armiðstöð um samfélags- og efna-
hagsmál er hluti af Samstarfsnetinu
og birtir skýrsluna hér á landi.
Í ár eru bornar saman upplýs-
ingar um 130 þjóðir fyrir árið 2004,
sem eru nýjustu tiltæku upplýs-
ingar af þeirri gerð sem notast er
við.
Hong Kong heldur fyrsta sæti
listans, en flestar þær þjóðir sem
lægsta einkunn fá eru frá Afríku,
Suður- og Mið-Ameríku og fyrrum
kommúnistaríkjum. Botswana, sem
er í 35. sæti er efst meðal Afr-
íkuríkja sunnan Sahana. Chile, sem
er í 20. sæti, stendur best meðal
Suður- og Mið-Ameríkuríkja. Meðal
neðstu ríkja á listanum eru m.a.
Ruanda, Búrundí, Alsír, Venesúela
og Zimbabwe.
Skýrslan, sem stundum er nefnd
Frelsisvísitalan, mælir að hvaða
marki stefnumið og stofnanir ríkja
styðja við efnahagslegt frelsi.
Ísland í 9. sæti á
frelsislistanum
VÖRUHÚSI Debenhams við Drottn-
ingargötuna, stærstu verslunargöt-
una í Stokkhólmi, verður lokað í jan-
úar á næsta ári en í staðinn verður
opnað vöruhús í stíl við vöruhús NK
(Nordiska Kompaniet). Þetta kemur
fram í frétt á vef Dagens Industri þar
sem rætt er við Åke Hellquist, versl-
unarstjóra vöruhúss Debenhams.
Hann segir Debenhams hafa þurft
að standa undir miklum leigukostnaði
við Drottningargötuna og til þess hafi
þurft mikla sölu. Það hafi ekki tekist.
Baugur Group opnaði Debenhams-
verslunina í Stokkhólmi haustið 2002.
Hellquist vildi í samtali við DI ekki
gefa upp hvað rekstur Debenhams-
verslunarinnar í þessi fjögur ár hefði
kostað eigendurna.
Í frétt DI segir að mörgum hafi á
sínum tíma þótt þetta vera afar
áhættusamt verkefni. „Það tókst ekki
að bjóða upp á vöruúrval sem hentaði
sænska markaðinum en það er al-
gengt þegar erlendir aðilar hyggjast
ná fótfestu í Svíþjóð.“
DBH Holding, eigandi Deben-
hams-verslunarinnar, ætlar að opna
nýtt vöruhús í Drottningargötu
næsta vor þar sem meiri áhersla verð-
ur lögð á hátískufatnað fyrir ungt
fólk. DBH mun þó ekki standa fyrir
rekstri verslana í vöruhúsinu heldur
leigir öðrum verslunum og vöru-
merkjum aðstöðu með svipuðu sniði
og gert er í vöruhúsum NK í Svíþjóð.
Stórverslun Debenhams í
Stokkhólmi verður lokað
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
GLITNIR banki hlaut í gær verð-
launin Ársskýrsla ársins 2005, sem
félagið Stjórnvísi veitir. Bakkavör
Group og Össur hlutu einnig sér-
staka viðurkenningu Stjórnvísi fyrir
vel gerðar ársskýrslur.
Í rökstuðningi dómnefndar
Stjórnvísi segir að ársskýrsla Glitnis
sé aðgengileg og vönduð og gott
jafnvægi ríki á milli einstakra mála-
flokka. „Hún er mjög upplýsandi fyr-
ir hluthafa, fjárfesta og aðra hags-
munaaðila bankans og tekur á öllum
helstu þáttum í starfsemi hans og
framtíðaráformum. Hún uppfyllir í
öllum aðalatriðum þær kröfur sem
Kauphöll Íslands og dómnefndin
gerir til góðrar ársskýrslu um efni
og framsetningu.“
Fram kemur í tilkynningu frá
dómnefndinni að það sé ánægjulegt
að merkja megi verulegar framfarir í
gerð ársskýrslna skráðra félaga á
undanförnum árum. Ársskýrslur
verði sífellt alþjóðlegri og yfirgrips-
meiri enda sé slíkt til þess fallið að
auka tiltrú fyrirtækja.
Stjórnvísi eru frjáls félagasamtök
sem hafa það að markmiði að stuðla
að umbótum í stjórnun íslenskra fyr-
irtækja.
Í dómnefnd ársskýrsluverð-
launanna 2005 voru Þorkell Helga-
son, Heimir Haraldsson og Stefán
Halldórsson. Kauphöll Íslands er
bakhjarl verðlaunanna.
Glitnir með árs-
skýrslu ársins 2005
Morgunblaðið/Sverrir
Afhendingin Árni M. Mathiesen og Vala Pálsdóttir, Kjartan Arnfinnsson og Magnús Torfason frá Glitni.
SEÐLABANKI
Íslands hefur
mislesið bæði
stöðuna á íbúða-
og vinnumarkaði
og með stefnu
sinni er hann á
öfugu róli miðað
við hagsveifluna
og mun því
magna sveifl-
urnar frekar en
að draga úr þeim. Bankinn sér ekki
það sem flestir aðrir þykjast sjá að
niðursveiflan sé hafin og verðbólg-
an sé að lækka mjög hratt.
Þetta segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins (SA), í leiðara á vef
samtakanna.
Hann bendir á að verðbólguvænt-
ingar hafi gerbreyst og að lækkun
verðbólgunnar nú sé vegna þess að
umframeftirspurnin í hagkerfinu
sé að dragast hratt saman með
minni fjárfestingum miklu frekar
en vegna hækkandi gengis krón-
unnar. Þá bendir hann á að geng-
isskellurinn í mars hafi gefið til
kynna að markaðurinn hafi misst
trú á að síhækkandi gengi krón-
unnar stæðist löngu áður en svo
væri sorfið að útflutnings- og sam-
keppnisgreinum að það dragi nægi-
lega úr eftirspurn og verðbólgu eft-
ir þeim leiðum.
„Því er hætta á að Seðlabankinn
sé að segja sig frá hagstjórninni í
næstu uppsveiflu með því að lækka
ekki vextina nú þegar niðursveiflan
er hafin.“
Seðlabanki
magnar
sveiflurnar
Vilhjálmur
Egilsson
FJÁRFESTAR óskuðu eftir að
kaupa meira en tífalda þá upphæð
sem í boði var fyrir þá í fyrsta áfanga í
hlutafjárútboði í fjárfestingarfélaginu
Exista í gær. Um var að ræða útboð á
hlutum Kaupþings banka í Exista.
Seldir voru 300 milljónir hluta til fag-
fjárfesta á genginu 21,5 krónur á hlut
og nam söluverðið því 6,45 milljörðum
króna. Tilkynnt hafði verið um sölu
Kaupþings á 150 milljónum hluta á
genginu 19,5 til 21,5. Samtals óskuðuð
fjárfestar eftir að kaupa hlutabréf
fyrir rúmlega 75 milljarða króna.
Hlutafjárútboðið er liður í undir-
búningi fyrir skráningu Exista í
Kauphöll Íslands 15. september.
Hátt gengi að mati LÍ
Greiningardeild Landsbanka Ís-
lands telur að útboðsgengi Exista,
sem gefið var upp á bilinu 19,5–21,5
krónur á hlut, sé hátt. Greining
Glitnis telur hins vegar að útboðs-
gengið sé sanngjarnt. Þetta kemur
annars vegar fram í Sérriti greining-
ardeildar Landsbankans og hins veg-
ar í Morgunkorni Greiningar Glitnis.
Í Sérriti greiningardeildar Lands-
bankans segir að starfsemi Exista
byggist á góðri viðskiptahugmynd.
Eignir félagsins séu traustar og
stjórnendur þekktir fyrir góðan ár-
angur í fjárfestingum sínum. Þá segir
í ritinu: „Til að útboðsgengið teljist
hagfellt fyrir fjárfesta þarf að vera
meira af duldum eignum í félaginu en
við teljum raunhæft að gera ráð fyrir
og ávöxtun til framtíðar þarf að vera
talsvert yfir markaðsávöxtun.“ Grein-
ingardeildin telur þrátt fyrir þetta að
góðar líkur séu á að bréf Exista
hækki til skamms tíma litið.
Í næstu viku, frá mánudeginum 11.
september til miðvikudagsins 13.
september verða 65 milljónir hluta
seldir almenningi á sama verði og
hlutaféð sem selt var fagfjárfestum.
Umframeftirspurn
í hlutabréf Exista
»Seldir voru 300 milljónhlutir í fyrsta áfanga fyrir
6,45 milljarða króna.
»Fagfjárfestar óskuðu eftirað kaupa fyrir rúmlega 75
milljarða.
»Næstkomandi mánudaghefst almennt útboð. Boðn-
ir verða 65 milljón hlutir.
Í HNOTSKURN
)
&
#'
5N5
5N5
5N5
5N 5N
5
5N 5N #$%
& '()
*+,$,
(
-
'
(
.
(
%(
./0*1
/234 *+
*+,
*+
*+
*+
*+-
*+-
*+
+.
+.
O& PI!& &*!3**
♦♦♦
♦♦♦