Morgunblaðið - 08.09.2006, Page 22
|föstudagur|8. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Tákn með tali er aðferð til tjá-
skipta ætluð heyrandi fólki sem
á við mál- og talörðugleika að
stríða. » 25
bækur
Nú er íslenska grænmetið al-
best, segir Heiða Björg Hilm-
isdóttir sem býður til upp-
skeruveislu. » 26
matur
Ungt par, Vera Þórðardóttir og
Phil Edward Harrison, rak
Hótel Núp í Dýrafirði í sumar og
lætur vel af ævintýrinu. » 24
daglegt líf
ÍSLENSKA fyrirtækið Theo ehf. sem
framleiðir fatnað á hunda tók á dögunum
þátt í gæludýrasýningunni New York Pet
Fashion Week. Þetta var frumraun tísku-
sýninga af þessu tagi þar sem hátíska á
hunda og mannfólk var kynnt og sýnd á
sama tíma. Sýningin var haldin í Metropol-
itan Pavillion í New York þar sem margir
frægir tískuhönnuðir hafa sýnt föt sín.
Theo var með þrjár innkomur á sýning-
unni og fékk góð viðbrögð hjá áhorf-
endum.
tíska
Theo með
gæludýratísku
í New York
Ljósmynd/Daniel P. Gagnon
Nýstárlegt Þetta var í fyrsta sinn sem
tískusýning af þessum toga er haldin í
New York og vakti hún mikla athygli.
Guðbjörg Magnúsdóttirverður hátíðarstjóri áMiklatúni á morgun, enþar ætla íbúar Mið-
borgar og Hlíða að efna til sam-
eiginlegrar hverfahátíðar, nú í
fyrsta skipti. Á hátíðinni troða upp
ýmsir skemmtikraftar úr hverf-
unum tveimur og er stefnt að því
að viðburðurinn verði árlegur hér
eftir.
Auk Þjónustumiðstöðvar Mið-
borgar og Hlíða koma að hátíðinni
Háteigs-, Hlíðar- og Austurbæj-
arskóli, félagsmiðstöðvarnar
Frostaskjól og Tónabær, Háteigs-
kirkja og Hallgrímskirkja,
Skátafélagið Landnemar, Fé-
lagsmiðstöð aldraðra við Vest-
urgötu 7, Íþróttafélagið Valur og
Kramhúsið.
Íbúar hverfanna tveggja nálgast
nú ríflega sautján þúsund, þar af
teljast íbúar Miðborgar vera rúm-
lega átta þúsund og íbúar Hlíðar-
hverfis ríflega níu þúsund talsins.
„Oft hafa verið haldnar litlar há-
tíðir í hverfunum á vegum skól-
anna, en núna eru menn að taka
sig saman í fyrsta sinn um stóra
og veglega hátíð. Við viljum efla
tengslanetið milli aðila sem eru að
vinna með börnum í hverfunum.
Markmiðið er að byggja upp fé-
lagsauðinn og forvarnir í hverf-
unum. Það er nóg í boði fyrir
krakkana og flest held ég að þau
séu bara í góðum málum,“ segir
Guðbjörg, sem starfar sem frí-
stundaráðgjafi hjá Þjónustu-
miðstöð Miðborgar og Hlíða.
Hún bætir við að tímasetning
hátíðarinnar hafi verið valin nú
þegar allt starf sé að fara af stað á
ný eftir sumarið, bæði barnastarf
og eins félagsstarf aldraðra.
Þegar Guðbjörg er innt eftir því
hvernig frístundaráðgjafinn kjósi
að verja eigin frítíma svarar hún
því til að listin eigi hug hennar all-
an. „Nauðsynlegt er að eiga sér
áhugamál og rækta þau eins og
maður frekast getur. Mín áhuga-
mál liggja í menningunni, tónlist,
myndlist, ljósmyndun, leikhúsum
og ferðalögum. Ég hef verið dug-
leg að sækja tónleika og þá bæði
með íslenskum tónlistarmönnum
og erlendum. Menningarnóttin var
því nokkuð þétt skipulögð hjá mér
og ég stefni næst á tónleikana með
Nick Cave, en ætli bestu tónleik-
Morgunblaðið/Eyþór
Hátíðarstjórinn Guðbjörg Magnús-
dóttir frístundaráðgjafi fer á tón-
leika hvenær sem tækifæri gefst og
býr til glaðlega muni úr keramiki
þess á milli.
Morgunblaðið/Ellert Grétarsson
Í hátíðarskapi Nóg verður í boði
fyrir krakka á Miklatúni.
Hátíðarstjórinn eyðir
frítímanum í keramik
arnir sem ég hef upplifað hafi ekki
verið Damien Rice-tónleikarnir.“
Myndlistin skipar stóran sess
hjá Guðbjörgu enda er hún sjálf
útskrifuð úr keramikdeild MHÍ
sem nú heitir Listaháskólinn. „Ég
er búin að koma mér upp voða
notalegri vinnustofu við Keilufell í
Breiðholti og sel hlutina mína í
Gallerí Fold. Mínir munir eru stíl-
hreinir, litaglaðir og stundum með
smá húmor.“ » Mælt með | 23
Morgunmatur: Cheerios eða drykkjarjógúrt.
Sundlaug: Sundlaugin í Hafnarfirði.
Gönguleið: Nauthólsvík og Elliðaárdalur.
Matsölustaður: Vegamót og Krua Thai á Tryggvagötunni.
Tími dags: Ég er algjör kvöldmanneskja því þá hefur maður tíma
til að sinna áhugamálunum.
Guðbjörg mælir með
HVAÐA foreldri kannast ekki við þá
neyslustaðreynd að unglingurinn lít-
ur ekki við íþróttaskóm nema þeir
séu rándýrir? Krakkarnir horfa líka
til fyrirmynda sinna og stórstjörnur
á borð við Michael Jordan hafa lánað
nafn sitt á Nike-skó sem kosta
kannski litlar 15.000 krónur. En nú
hefur þessu blessunarlega verið
breytt, því ein helsta stjarnan í
bandaríska körfuboltanum og fyr-
irmynd unga fólksins, Stephon
Marbury, hefur nú lagt sitt af mörk-
um til þess að hinir efnaminni hafi
ráð á því að kaupa góða íþróttaskó á
börnin sín. Hann leggur nafn sitt við
Starbury-íþróttaskó sem eru vand-
aðir en kosta aðeins um 1.000 krón-
Alvöru íþróttaskór
fyrir þúsund krónur
ur (15$). Skórnir eru ekki aðeins
kenndir við hetjuna, heldur leggur
hún líka mikið upp úr því að spila
sjálf á vellinum í Starbury-skóm.
Stephon Marbury segir það mark-
mið sitt að sýna fólki fram á hversu
lítið það þarf að kosta að
framleiða hágæða-
íþróttaskó.
Og viðbrögðin hafa
ekki látið á sér standa,
skórnir eru sjóðheitir
og aðalmálið hjá ungu
kynslóðinni og renna út
eins og heitar lummur.
Fyrirmynd Stephon Marbury er knár með
knöttinn og leikur í Starbury-skóm.