Morgunblaðið - 21.09.2006, Qupperneq 44
Næstkomandi laugardag verðurblásið til stórtónleika í Þjóðleik-húskjallaranum. Þar stíga á sviðhljómsveitirnar Langi Seli og
Skuggarnir, Jeff Who? og Ske.
Þótt líf Langa Sela og Skugganna sé ófá
ár hefur lítið til þeirra spurst síðustu ár.
Þar til á Menningarnótt í sumar þegar
sveitin kom í fyrsta sinn í langan tíma op-
inberlega saman og lék fyrir dygga aðdá-
endur sem og nýja. Sveitin er að vinna að
nýrri plötu um þessar mundir og er
því aldrei að vita nema tónleikagest-
ir fái smjörþefinn af því.
Hljómsveitin Jeff Who? átti að
margra mati eina bestu íslensku
plötu síðasta árs, Deth Before
Disco. Sveitin er nýkomin
frá Danmörku þar sem
hún hélt tónleika í Kaup-
mannahöfn.
Hljómsveitin Ske
skartar nú tveimur nýj-
um liðsmönnum, þeim
Höskuldi Ólafssyni, fyrr-
um liðsmanni Quarashi, og breska trommu-
leikaranum Paul Maguire, sem áður hefur
leikið með sveitum á borð við Echo and the
Bunnyman og The Las.
Að sögn Guðmundar Steingrímssonar,
liðsmanns Ske, er þetta í fyrsta sinn sem
sveitin kemur fram í þessari mynd, en þeir
hafa æft saman síðan í vor.
Spurður um breyttar áherslur í Ske með
nýjum liðsmönnum svarar Guðmundur:
„Þeir Höskuldur og Paul eru auðvitað
báðir sterkir einstaklingar og eiga að baki
langa sögu í rokkinu svo tónlistin okkar tek-
ur mið af því. Tónlistin hefur orðið rokkaðri
og hrárri fyrir vikið og betri að mínu mati.“
Ske kemur til með að leika ný lög í bland
við eldri á tónleikunum á
laugardaginn en sveitin
stefnir á að senda frá
Stórtónleikar í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardagskvöld og Langi Seli enn í fullu fjöri
Hljómsveitin Ske
Guðmundur
Steingrímsson,
Paul Maguire,
Frank Hall,
Höskuldur
Ólafsson, Eiríkur
Þorleifsson og
Hrannar
Ingimarsson.
Jeff, Seli, Ske og Skuggarnir
sér sína þriðju breiðskífu í byrjun næsta
árs.
Það er því ýmislegt fram undan hjá sveit-
inni en Ske treður meðal annars upp í
Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni fimmtudaginn 19. október
næstkomandi.
Húsið verður opnað klukkan 23 og stíga
Langi Seli og Skuggarnir á svið hálftíma síð-
ar. Miðaverð er 1.000 krónur.
Staðurstund
Bé-in eru vinsæl í plötubrans-
anum, því Brain Police, Björk og
Baggalútur koma öll við sögu á
Tónlistanum þessa vikuna. »46
tónlist
Hallur Karl Hinriksson mynd-
listarmaður sýnir málverk í
Óðinshúsi á Eyrarbakka um
þessar mundir. » 47
Johnny Depp bregður sér í
hlutverk svallara nokkurs í
kvikmynd, sem telst þó vart
hans besta. » 47
kvikmynd
George Lucas færði gamla há-
skólanum sínum í Kaliforníu
peningagjöf upp á röska 12
milljarða króna. » 48
fólk
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
HAGÞENKIR, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna, hefur
úthlutað starfsstyrkjum til rit-
starfa árið 2006.
Heildarstyrkir ársins nema 6,7
milljónum króna og njóta 38
verkefni góðs af.
Stærsti styrkurinn að þessu
sinni nemur kr. 400.000 og renn-
ur til dr Guðrúnar Sveinbjarn-
ardóttur fornleifafræðings til út-
gáfu bókar um fornleifarannsóknir í
Reykholti á árunum 1987-1989 og 1997-
2003.
Styrk að upphæð kr 300.000 hljóta:
Björn Hróarsson til að vinna að alþýðlegu
fræðiriti um hraunrennsli og hellafræði,
Ármann Jakobsson til fræðilegrar útgáfu
Morkinskinnu og þær Anna Guðrún Júl-
íusdóttir og Sigríður Ólafsdóttir til að búa
til námsefnið „Ég vil læra íslensku“.
Fimm styrkir renna að þessu sinni til
verkefna sem gefin verða út á stafrænu
formi.
Þegar blaðamaður náði tali af Guðrúnu
Sveinbjarnardóttur kvaðst
hún hæstánægð með að
hafa hlotið styrkinn: „Í
ritinu sem um ræðir
verða teknar saman
helstu niðurstöður forn-
leifarannsókna í bæj-
arstæði Reykholts. Gerð-
ar hafa verið
framvinduskýrslur að
loknum uppgreftri hvert
ár en niðurstöður rann-
sóknarinnar ekki verið
teknar saman í einu riti
fyrr en nú,“ útskýrði hún um ritið sem
hún vinnur að.
Meðal þess sem rannsóknirnar í Reyk-
holti leiddu í ljós voru merkilegar minjar
um notkun hverahita á miðöldum: grjót-
hlaðnir stokkar sem notaðir hafa verið til
að veita bæði gufu og vatni í hús.
Fræðirit | Stærsti styrkurinn til rits um fornleifarannsóknir í Reykholti
Minjar Guðrún Sveinbjarnardóttir við rannsóknarstörf.
Ármann
Jakobsson
Morgunblaðið/Sverrir
Hagþenkir úthlutar 6,7
milljónum til ritstarfa
Anna Guðrún
Júlíusdóttir
Björn
Hróarsson
Sigríður
Ólafsdóttir
|fimmtudagur|21. 9. 2006| mbl.is
Haruki Murakami og bókin Nor-
wegian Wood er umfjöllunarefni
Árna Matthíassonar í Af listum
að þessu sinni. » 47
bækur myndlist