Morgunblaðið - 06.10.2006, Side 14

Morgunblaðið - 06.10.2006, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF   #$%&' ($%)% *&+, *&+#      '$&&) '$&,) *&+' *&+)       !!"# )$#-. ($&'& *&+' *(+%    $"%&' (!!)( /&. ('$//. *&+' *#+%   *   + , ') '$#.) (($-', *(+/ *&+(                       - .( /0 12 "&# 3&)- "&#  0! /0 12 "&# .( ' /0 12 "&# 4 !! .%0 /0 12 "&#  5607' "&# 8 /0 12 "&# /3('(0 6 '!( "&# $ 129('5 6 '!( "&# 8 '6 '!( :3 ' "&#  0)3 "&#   (-  "( ' "&# ; 3 '(- )0 3)1< 0 1<10=410> 0? @?0&#6 '!( "&# A10 "&#     B( "&# 3 5 /0 12 "&# *-)3 '(- /0 12 "&# C")0@( "&# 0D55('5 <(>%>(' "&# E(''31%>(' "&#       ! 3?10&F3 5 1>103 ' .&# "# $% *G H>  .(>!#.)0> '.+&& )+&) '+/, %(+#& )-+/& )+&. ##+#& #&+%& -),+&& #'+/& ,,+&& (,+%& ))-+&& (,+(& (#%+)& #%+&& %+,% (.%'+&& 40)D('5 &0? &D00 .(>!#.)0> = = = = =  =   = = = = = = = = =  I J = I = J I J I = J I J = I = J I  J = I J I =J = I =J I J I  J I =J = = = = = I J K)(3 0.(>!(2(  5(' (36 > H 3 !  5L $ 12 3 # # # # # #  # # # # # # ## # # # # #  = = = = = #                    =                         = = =  E(>!(2( H 97# !0# K# M "151' 03(( @%3( .(>!(2          = = = = = ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● RYANAIR gerði í gær yfirtöku- tilboð í írska flug- félagið Aer Ling- us. Hljóðar tilboðið upp á tæplega 1,5 millj- arða evra, um 132 milljarða króna, en á þeim tíma sem tilboðið var gert var það 12% hærra en markaðsvirði bréf- anna. Ryanair á um 16% hlut í Aer Lingus, sem var skráð á markað fyrir níu dögum. Írska ríkið, sem á um 28% hlut í Aer Lingus, hefur neitað að taka tilboðinu. Frá skráningu hafa bréf félagsins hækkað um 31,4%. Ryanair gerir yfirtöku- tilboð í Aer Lingus ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkaði um 1,4% í gær og nam 6.295 stigum í lok dags. Veltan nam rúmum 19 milljörðum en mest hlutabréfaviðskipti voru með bréf Mosaic Fashions. Bréf Actavis Gro- up hækkuðu um 3,9% og bréf Kaup- þings banka um 3,3%. Bréf Flögu Group lækkuðu um 2,9%. Actavis hækkar um tæp 4% Og Vodafone og Vodafone Group hafa gert samning um nánara sam- starf. Samningurinn þýðir m.a. að ís- lenska fyrirtækið fær leyfi til að nota vörumerki Vodafone að fullu og mun því hér eftir heita Vodafone, en þetta er í fyrsta sinn sem sjálfstætt far- símafélag gerir slíkan samning við Vodafone. Með samstarfinu fá GSM-notend- ur Vodafone jafnframt aðgang að Vodafone Passport þjónustu fyrir- tækisins, en hún gerir viðskiptavin- um félagsins kleift að nota GSM- síma í útlöndum á sama verði og hér heima. Ávinningur og viðurkenning Vodafone Passport virkar þannig að við hvert símtal eru greiddar 139 krónur í upphafsgjald þegar hringt er heim eða símtal móttekið að heim- an. Mínútuverðið fyrir símtöl heim er það sama og á Íslandi og getur verið mismunandi eftir áskriftarleið hvers og eins, en ekkert mínútugjald er fyrir móttekin símtöl. Þjónustan gildir í átján löndum þaðan sem um 83% af öllum reiki- símtölum Íslendinga eru. Umtals- verðum sparnaði er hægt að ná í millilandasímtölum með þjónust- unni, t.d. lækkar fimm mínútna sím- tal frá Bretlandi og Hollandi um 76%. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone á Íslandi, segir samning- inn viðurkenningu fyrir þá starfsemi sem hér sé rekin. „Vodafone er lang- sterkasta og verðmætasta vöru- merkið á símamarkaðinum í dag og því er það stórt skref að fá að nota nafnið.“ Matthias Jungemann, fram- kvæmdastjóri hjá Vodafone Group, segir fyrirtækið hafa valið starfsem- ina hér til samstarfs m.a. vegna þess hve fljótir íslenskir notendur séu að tileinka sér nýjungar. Og Vodafone tekur upp nafnið Vodafone Morgunblaðið/Sverrir Samstarfssamningur Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, tekur í hönd Matthias Jungemann, framkvæmdastjóra hjá Vodafone Group. Sama mínútuverð erlendis og heima í nýrri þjónustu Í HNOTSKURN » Samstarfssamningurinnvið Vodafone Group þýðir að notendur á Íslandi fá greiðari aðgang að þeirri tækni og nýjungum sem al- þjóðafyrirtækið er að þróa. » Vodafone er stærsta far-símafyrirtæki heims en starfsmenn þess eru 62.672 í 27 löndum alls. Viðskiptavinir Vodafone á heimsvísu eru um 187 milljónir. GREININGARDEILD Landsbank- ans telur kauptækifæri á hlutabréfa- markaði góð þrátt fyrir 15% hækkun hlutabréfa á þriðja ársfjórð- ungi. Í nýrri afkomuspá er gert ráð fyrir að samanlagður hagnaður fyrir- tækja í Kauphöll- inni hækki um 70% á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra. Skýrist þessi aukning m.a. af miklum söluhagnaði Kaupþings vegna Exista og FL Gro- up vegna Icelandair, eða um 26 millj- örðum króna í hvoru tilviki fyrir sig. Þá væntir greiningardeildin 14% ávöxtunar á næstu 12 mánuðum. Spáir 20% hækkun á árinu Greining Glitnis birti einnig afko- muspá í gær en þar er gert ráð fyrir því að Úrvalsvísitalan hækki um 20% frá ársbyrjun til ársloka. Þar með hverfur Greining aftur til fyrri spár en í júlí lækkaði Greining spá sína í 8%. „Frá því spá okkar í júlí var gefin út hefur glæðst yfir hlutabréfamark- aðnum og ríkir nú minni óvissa um helstu áhrifaþætti hlutabréfaverðs. Við teljum að þrátt fyrir góða hækk- un hlutabréfaverðs á þriðja fjórðungi sé enn ágætt kauptækifæri í hluta- bréfum nokkurra félaga,“ segir í spá Greiningar. Telja kaup- tækifæri á markaði NYHEDSAVISEN kemur út í fyrsta sinn út í dag í 500 þúsund ein- tökum. Blaðinu verður dreift á heim- ili í Kaupmannahöfn, Óðinsvéum og Árósum en það er sameiginlegt fyr- irtæki 365 Media Scandinavia og Post Danmark sem mun sjá um að bera blaðið út. Búið er að selja auglýsingar fyrir meira en 12 milljónir íslenskra króna í fyrsta tölublaðið. Það er svona í lagi í fyrsta blaði, segir Svenn Dam, for- stjóri Nyhedsavisen, við Ritzau. Frí- blöðunum Dato og 24Timer hefur fram til þess ekki tekist að selja nægjanlega mikið af auglýsingum til þess að standa straum af áætluðum daglegum framleiðslu- og dreifing- arkostnaði sem slagar upp í 12 millj- ónir. Hagfræðingurinn Jørn Astrup Hansen segir það ekki trúverðugt að enn skuli ekki liggja fyrir hverjir fjárfestarnir á bak við Nyhedsavisen eru, að ekki sé enn búið að stofna sjóðinn sem sjá á um útgáfu blaðsins né greina frá því hvenær það verður gert en Hansen hefur áður fjallað um Nyhedsavisen í Journalisten, tímariti danska blaðamannafélags- ins. Nyhedsavisen kemur út í dag GENGIÐ hefur verið frá sölu svokall- aðs Grímseyjarkvóta úr eynni í fjóra staði. Um er að ræða ígildi 1.160 tonna af þorski og er verðmætið um 1.960 milljónir króna. Þannig er staðið að sölunni að bátar þeirra feðga Óla og Óla Ólason- ar eru seldir hver í sínu lagi með áhvílandi aflaheimildum. Mestur kvóti var á Óla Bjarnasyni, 557 þorskígildistonn, og var hann seldur til Grindavíkur. Bjargey var með næstmestan kvóta, 433 tonn, og fer hún til Húsavíkur. Felix fer á Snæ- fellsnesið með 98 tonnum og Hrönn til Siglufjarðar með 100 tonn. Uppi eru hugmyndir um að GPG fiskverkun á Húsavík, sem keypti Bjargey, muni láta veiða fiskinn fyrir sig frá Grímsey, en GPG er með tvo báta í Grímsey í föstum viðskiptum. Óli Ólason segir að allt of mikið sé gert úr því að þessi kvóti sé að fara úr Grímsey. Þeir feðgar hafi verið að kaupa þennan kvóta á síðustu miss- erum að miklu leyti. Auk þess hafi þessi fiskur ekki komið til vinnslu í eynni, heldur verið seldur til vinnslu víða um land, bæði gegn um fisk- markað og í föstum viðskiptum. Loks megi nefna það að á bátunum hafi verið aðkomumenn. Þetta eigi því ekki að skipta miklu máli, þótt auð- vitað hafi þeir feðgar greitt sína skatta og skyldur af útgerðinni í Grímsey. Óli segir að það sé kominn tími til að hætta þessu og slaka á, þótt hann sé reyndar í mjög góðu formi, 75 ára gamall. Hann var reyndar í heilsu- ræktinni, þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Selt í fernu lagi Grímseyjarkvótinn er nú farinn ● EINN möguleikinn fyrir frekari stækkun rússneska álframleiðand- ans Rusal er að kaupa Alcan, móð- urfélag álversins í Straumsvík. Þetta segir Jim Southwood, stjórn- arformaður Commodity Metals Inc. og fyrrum framkvæmdastjóri hjá Alcoa, í viðtali við Wall Street Journal. Segir hann að slík kaup yrðu snilldarbragð, sem myndu gera Rusal að leiðandi afli í álframleiðslu. Í frétt WSJ segir að líkur séu til þess að samningaviðræður Rusal við annað rússneskt álfyrirtæki, Sual, leiði til þess að Rusal verði stærsti ál- framleiðandi heims. Svo geti hins vegar farið að Rusal láti ekki staðar numið þar. Er í því sambandi haft eftir Jim Southwood að það sé spurning hvað Rusal muni gera næst og nefnir hann kaup á Alcan sem mögulegt framhald hjá Rusal. Kaup á Alcan gætu verið næsta skref Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- ráðherra og Jakob K. Kristjánsson, formaður stjórnar deildar um sjáv- arrannsóknir á samkeppnissviði, hafa kynnt skipulagsbreytingar á Verkefnasjóði sjávarútvegsins. Þær breytingar hafa verið gerðar á skipu- lagi sjóðsins að stofnuð hefur verið ný deild innan hans – deild um sjáv- arrannsóknir á samkeppnissviði – og starfar sjóðurinn nú í tveimur deild- um. Deild um sjávarrannsóknir á sam- keppnissviði veitir styrki til verkefna einstaklinga, fyrirtækja, rann- sókna-, þróunar- og háskólastofn- ana. Úthlutað er til verkefna sem efla rannsóknar- og þróunarverkefni á lífríki sjávar umhverfis Ísland og efla til lengri tíma litið sjálfbæra nýt- ingu auðlinda hafsins og samkeppn- ishæfni sjávarútvegs. Til deildarinn- ar renna árlega í þrjú ár (2006, 2007 og 2008) kr. 25.000.000,- eða samtals 75.000.000,- af fé í eigu Verkefna- sjóðsins. Auglýst verður í fjölmiðlum eftir umsóknum um styrki til sjáv- arrannsókna á samkeppnissviði sem allir geta sótt um. Styrkir verða veittir til eins árs í senn en heimilt er að veita framhaldsstyrk á grundvelli nýrrar umsóknar, enda standist verkefnið kröfur um framvindu og gæði. Sjávarútvegsráðherra skipar þrjá menn í stjórn deildar um sjávarrann- sóknir á samkeppnissviði. Stjórnina skipa Jakob K. Kristjánsson sem er formaður stjórnar, Rannveig Björnsdóttir og Kristján G. Jóa- kimsson. Markmiðið með stofnun deildar um sjávarrannsóknir á sam- keppnissviði er að gefa fleirum, ekki síst þeim sem starfa utan Hafrann- sóknastofnunarinnar, færi á að sækja um styrk til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins til að stunda haf- rannsóknir, en sá hópur hefur haft mjög takmarkaðan aðgang að styrkjum til þessa. Samkeppni um rannsóknir Sjávarrannsóknir Jakob. K. Krist- insson og Einar K. Guðfinnsson. Morgunblaðið/Sverrir ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.