Morgunblaðið - 06.10.2006, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.10.2006, Qupperneq 33
Morgunblaðið/Ásdís llra lesblindra barna gera sér grein fyrir því að enda börnin í svona próf,“ segir Sigurður. að það er börnin í bara tundan nsson, efndar Alþingis, telur athugasemd Sig- urðar mjög skiljanlega en svo virðist sem lesblind börn hafi fallið milli stafs og hurðar í grunnskólalögum hvað varðar þær reglur sem skólunum er ætl- að að starfa eftir. Því þurfi að breyta. „Þetta þarf að taka til at- hugunar við yfirstandandi endur- skoðun á grunnskólalögum og mér finnst ekkert óeðlilegt að við í menntamálanefnd tökum að- stöðu þessa hóps til sérstakrar athugunar með það að markmiði að reyna að leysa þetta,“ segir hann. „Bréfið vekur mann til um- hugsunar um málefni þessara barna sem mér finnst ástæða til að gefa frekari gaum.“ Ingibjörg Rafnar, umboðs- maður barna, segist áður hafa fengið ábendingar um svipuð til- vik og að ofan var lýst og að embættið hafi tekið upp málefni lesblindra barna við mennta- málaráðuneytið. Þó hefur emb- ættið ekki fjallað um framkvæmd prófa á þeim vettvangi. Ingibjörg tekur fram að embættið muni ekki koma að þessu einstaka máli þar sem umboðsmaðurinn vinnur almennt að réttinda- og hags- munamálum barna og unglinga en má ekki skipta sér af vanda- málum einstakra barna. „Við komum ekki að þessu einstaka máli en munum í framhaldinu skoða þetta,“ segir Ingibjörg. nda nemendur takmarkaða MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 33 d sem yfa- og gar í refna jóri mun mbættis- unnið að enda og embætt- málaráð- ð og hann ham- n, að þar em hefðu gnað í ví ekki í garana rir hinu nýja embætti,“ sagði hann. Fram kom í máli Stefáns Ei- ríkssonar lögreglustjóra í gær að grundvallarmarkmið embættisins væru einföld og skýr. „Við vinnum að því meginmarkmiði að auka ör- yggi og öryggistilfinningu þeirra sem eru á höfuðborgarsvæðinu og við setjum okkur líka markmið um að fækka afbrotum á skil- greindum sviðum,“ sagði hann. Aðgerðahópur öflugra lögreglumanna „Við þurfum að auka sýnilega löggæslu og efla hverfa- og grenndarlöggæslu og forvarn- arstarf. Við leggjum sérstaka áherslu á samvinnu við sveit- arfélögin á höfuðborgarsvæðinu, skólana og félagsmálayfirvöld. Við ætlum líka að beita okkur fyrir því að rannsóknir mála verði betri og skilvirkari.“ Stefán nefndi nokkur lykilatriði sem horft verð- ur til. Fjölgað verður lögreglu- mönnum við löggæslustörf s.s. við umferðareftirlit og fleira. Göngu- eftirlit verður aukið og haldnir upplýsingafundir með íbúum. Þá verður heimasíða lögreglunnar efld og gerðir samstarfssamn- ingar við sveitarfélögin. Þá verður sérhæfing í lögreglurannsóknum aukin t.d. í kynferðisbrotum gegn börnum. Þá nefndi Stefán stýr- ingu löggæslu á grundvelli upp- lýsinga með tilliti til mikilvægis áætlana- og upplýsingadeildar lögreglu og tilkomu sérstaks að- gerðahóps lögreglu. „Hugmyndin á bak við hann er að þar verði hópur öflugra lögreglumanna sem fái það verkefni að taka hratt og örugglega við ýmsum vanda sem blasir við okkur á hverjum degi,“ sagði hann og nefndi ofsaakstur á höfuðborgarsvæðinu, fíkniefna- mál, aðgerðir gegn veggjakroti og fleira sem kallaði á aðkomu að- gerðahópsins. boðar nýjar áherslur í löggæslumálum rða sýnilegri fbrotum efldar Morgunblaðið/Júlíus ri, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Stefán eglustjóri og staðgengill lögreglustjóra. Í HNOTSKURN »Hjá nýju embætti lög-reglustjóra verður lögð áhersla á sýnileika löggæslu. Hún birtist m.a. í því að borg- arar geta vænst þess að fá hverfafundi með yfirmönnum lögreglunnar og séð lög- regluþjóna meira á ferðinni. »Fólk getur farið á endur-bætta heimasíðu og skoðað þar yfirlit afbrota í sínu hverfi og athugað hvernig mál þróast frá einu hverfi til annars. »Stefán Eiríksson er æðstiyfirmaður löggæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og jafn- framt langyngstur þeirra sem skipa yfirstjórn embættisins. Eftir Andra Karl andri@mbl.is Við erum að verða meiraog meira meðvituð ummikilvægi þess að virðanáttúruna, nýta hana skynsamlega og um leið og mark- aðurinn er farinn að sjá að pen- ingar eru í þessu, að menn geta grætt á því að vera umhverfis- vænir og skynsamir, þá gerist eitthvað stórt, sagði Illugi Gunn- arsson hagfræðingur á morgun- fundi Samtaka iðnaðarins um náttúruvernd og nýtingu auðlinda sem haldinn var á Hótel Nordica í gær. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Andri Snær Magnason rithöfundur héldu einnig erindi. Illugi velti fyrir sér hvaða meg- inlögmál og aðferðafræði ættu að ríkja þegar rætt er um nýtingu náttúruauðlinda, hvort það væri ríkisvaldið sem ætti að hafa for- ystuna með reglusetningu, með því að ákveða hvaða lausnir væru heppilegar og hverjar ekki, eða hvort það væri markaðurinn. „Þegar um er að ræða lausnir sem koma að ofan, frá ríkisvald- inu, þá nýtum við þekkingu til- tölulega fárra. Hins vegar þegar við nýtum lausnir sem koma frá markaðnum nýtum við þekkingu mjög margra,“ sagði Illugi sem tók nokkur dæmi um umhverf- isvæna hluti sem eru að ryðja sér til rúms á markaðnum, vegna þess að almenningur gerir sér sí- fellt betur grein fyrir því að virða beri náttúruna og kaupi því frek- ar hluti sem menga síður eða ganga á náttúruauðlindir. Hann sagði hlutverk stjórnvalda skýrt í þessum málum. „Þau hafa fyrst og fremst þeirri skyldu að gegna að gæta þess að markaðirnir virki, og virki sem skyldi,“ sagði hann og bætti síðar við að „menn koma ekki með fram með skil- greindar lausnir í umhverfismál- um. Ég held að það snúi miklu frekar að okkur, sem viljum gefa okkur að stjórnmálum, að koma með þennan ramma sem gerir síðan öllum kleift að koma með lausnina – að kalla fram lausn- ina“. Illugi sagðist telja að allflestir væru komnir á þá skoðun að ríkið ætti ekki að stunda stóriðjurekst- ur eða standa að stóriðjustefnu og viðraði í kjölfarið skoðun sína á ríkisafskiptum í raforkuiðnaði en hann telur að ríkið eigi ekki að sitja beggja vegna borðsins. Hann telur grunnnetinu þó best borgið í ríkiseign. Kárahnjúkar tilheyra gamla kerfinu Jón Sigurðsson sagði að hlut- verk iðnaðarráðuneytisins hefði einkum verið fyrirgreiðsla og að- stoð en ekki forysta eða stýring eftir árið 2003 þegar tímabili virkrar stóriðju- og virkjana- stefnu íslenskra stjórnvalda lauk. „Þau verkefni sem nú eru helst á döfinni, á Húsavík, í Helguvík og í Straumsvík og Hafnarfirði, eru þá á vegum heimamanna og undir stjórn þeirra og sjálfstæðra fyr- irtækja en ekki undir forræði iðn- aðarráðuneytisins. Kárahnjúka- virkjun og það sem henni tengist er eitt það síðasta sem tilheyrir gamla kerfinu og ákvarðanir voru teknar á þeim tíma,“ sagði Jón og bætti við að afstaða langflestra Íslendinga til verndunar og nýt- ingar auðlinda væri sama afstaða og ríkisstjórnarinnar. „Langflest- ir eru í senn nýtingarsinnar og verndunarsinnar og sjá ekki and- stöðu í því. Aðeins örfáir vilja hamast áfram með framkvæmdir sem allra víðast og aðeins örfáir vilja stöðva allar framkvæmdir og ný verkefni.“ Áliðnaðurinn þarf að vaxa Jón sagði að framundan væri að móta verklagsreglur markaðar og jafnræðis á þessu sviði, leggja þyrfti grunn að nýtingar- og verndaráætlun til langs tíma, áætlun er ætti að geta stuðlað að víðtækri sátt meðal þjóðarinnar. „En þessi heildaráætlun verður varla tilbúin fyrr en eftir nokkur ár og þangað til tel ég að við verðum að fylgja samþykktum, skilgreindum mælistikum í ákvörðunum.“ Andri Snær var að vanda harð- orður í garð áliðnaðarins og sagði klárt að hann þyrfti að vaxa og verksmiðjurnar hér á landi – og þær sem eru fyrirhugaðar – væru nú þegar orðnar of litlar fyrir al- þjóðlega samkeppni. „Áliðnaður- inn þarf að vaxa, verður að vaxa og ef hann fær ekki að vaxa þá fer hann annað. Álverið í Straumsvík byrjaði í 30 þúsund tonnum, menn eru að byrja núna í 600 þúsund tonnum. Þetta er iðnaður sem er í samkeppni og það er hreinlega þannig að fram- tíðarsýnin er svona. Það er núna verið að raða upp verksmiðjum víðs vegar um landið sem eru of litlar fyrir alþjóðlega samkeppni.“ Hann sagði að ef sú staða kæmi upp að álfyrirtækin settu afar- kosti, annaðhvort myndu álverin stækka eða fara héðan burt, væri staðan erfið. „Fólkið mun vinna í sinni verksmiðju, hún mun vera undirstaða atvinnulífsins, hún mun hafa sigrað í samkeppni við aðrar atvinnugreinar og mann- auður mun hafa farið þarna inn. Fólkið mun ekki vilja loka verk- smiðjunum,“ sagði Andri og líkti ástandinu við kettling sem yrði ávallt að ketti – þrátt fyrir að ekki væri sérstaklega rætt um það. „Það er ekki illska sem rek- ur fyrirtækin, þau munu þurfa að stækka.“ Iðnaðarráðherra svaraði því reyndar síðar til í umræðum eftir erindin að stjórnvöld væru undir það búin að álverin myndu krefj- ast stækkunar. „Það liggur alveg fyrir hvernig þróunin er. Það er álbylting í veröldinni, þetta er að- eins lítill angi af því, og við erum undir það búin. Það stendur ekki til [að láta undan], samningar eru ekki þannig að það geti verið hert að okkur,“ sagði Jón. Gjörbreytt mynd Andri benti einnig á að djúp- boranir gætu gjörbreytt heildar- myndinni. „En það er eitthvað sem við vitum ekki um núna og kannski ábyrgðarlaust að gera ráð fyrir. En á hinn bóginn er kannski ábyrgðarlaust að fara og raska fegurstu svæðunum þegar hugsanlega eftir tíu, tuttugu eða þrjátíu ár kemur í ljós að það er bara hægt að bora við hliðina á álverinu í Straumsvík og fá orkuna beint þaðan.“ Morgunblaðið/Sverrir Náttúruvernd og nýting Guðfinna S. Bjarnadóttir rekstor, Andri Snær Magnason, rithöfundur og Jón Sigurðs- son ráðherra hlýða á erindi Illuga Gunnarssonar á fundi Samtaka iðnaðarins á Hótel Nordica. Flestir í senn verndun- ar- og nýtingarsinnar Í HNOTSKURN »Stuðlað verður að víð-tækri þjóðarsátt með gerð heildstæðrar ramma- áætlunar um nýtingu og vernd náttúruauðlinda. »Áætlunin verður ekki tilfyrr en eftir nokkur ár og þangað til verður sam- þykktum, skilgreindum mæli- stikum fylgt í ákvarð- anatöku. »Stefnan verður miðuð viðábyrgð, varúð og aðgát.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.