Morgunblaðið - 06.10.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 55
menning
Höfuðborg Slóveníu
LJUBLJANA
Verð frá
59.740
á mann í tvíbýli í 3 nætur
Gullfalleg, vinaleg og hlý!
Ljubljana sameinar töfra
liðinna alda og nútímann.
Í Ljubljana fáum við á
tilfinninguna að við séum
í litlu fjallaþorpi og samt erum
við í kraftmikilli menningarborg
þar sem bíður okkar fjöldi
kaffihúsa, veitingastaðir,
verslanir, leikhús og óperuhús.
Úrvals gisting
Frábærar skoðunarferðir
– Gönguferð um gamla bæinn
– Náttúruperlan Bled-dalur
– Dropasteinshellarnir og
Predjama-kastalinnÍSLE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
U
RV
3
43
00
09
/2
00
6
Sími 585 4000
www.urvalutsyn.is
Helgarferðir til Ljubljana
12., 19. okt og 2. nóv.
með zen
meistaranum
Kwong-roshi,
Laufásvegi 22,
10. okt. kl. 18.00
Ertu með sjálfum þér?
Námskeið í Zen hugleiðslu
Nánari
upplýsingar á
www.zen.is og í
síma 697 4545
Hvað segirðu gott?
Allt ágætt bara.
Hefurðu farið með pabba þínum í
bað? (spurt af síðasta aðalsmanni
Auðuni Blöndal)
Ég minnist þess nú ekki.
Kanntu þjóðsönginn?
Ég þykist svona taka undir þegar
hann er spilaður, „mæma“.
Áttu þér gælunafn?
Það kemur fyrir að fólk segir
„Solda“.
Hvað talarðu mörg tungumál?
Fjögur. Þarf síðan að bæta við einu
rómönsku.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Ísland er mitt útland. Ég bý í NY og
kem oft í heimsókn.
Friðrik Þór eða Baltasar Kormák-
ur?
Baltasar í augnablikinu. Friðrik áð-
ur fyrr. Sjáum til hvað Friðrik Þór
gerir næst.
Uppáhaldsmaturinn?
Allur íslenskur matur er ótrúlega
góður. Um þessar mundir er ég
mjög spennt fyrir humarsúpu.
Bragðbesti skyndibitinn?
Hmm … ein með öllu.
Hvaða bók lastu síðast?
Ég er í miðju kafi að lesa A Killer
Life um ævi og störf Christin Vac-
hon sem þekkt er fyrir framleiðslu
óháðra kvikmynda í New York. Hún
er þekkt fyrir Boys Don’t Cry, Kids,
Far From Heaven og fleiri góðar.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég held bara að ég hafi séð aðal-
leikkonuna mína Aðalbjörgu Þóru í
Footloose. Frábær skemmtun og
Alla B, eins og hún kallast, stelur
„sjóinu“. Jörundur var ekki síðri.
En kvikmynd?
Red Road eftir Andrea Arnold, hina
sömu og vann óskarinn fyrir stutt-
mynd sína „Wasp“. Mögnuð kvik-
myndagerðarkona.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég er alltaf að hlusta á Cat Power og
TV on the Radio. Ég á þær nefnilega
á vínyl.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
RÚV og NPR
Besti sjónvarpsþátturinn?
„Studio 60 on the Sunset Strip“ er
nýkominn á skjáinn úti og datt ég
aðeins inn í hann. Hann fjallar um
það sem gerist á bak við tjöldin hjá
stórri sjónvarpsstöð. Annars hef eig-
inlega aldei tíma til að horfa á sjón-
varpið.
Þú ferð á grímuball sem?
Pönkari eða trúður.
Helstu kostir þínir?
Þrautseigja.
En gallar?
Á það til að slá hlutum á frest.
Fyrsta ástin?
Strákur úr 5-A í Melaskóla.
Besta líkamsræktin?
Ég get ímyndað mér að það sé þrí-
þraut.
Algengasti ruslpósturinn?
Tilboð um Viagra. Ég er enn að
hugsa málið.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Kenzo.
Hvar myndirðu vilja búa annars
staðar en á Íslandi?
Ég væri til í að prófa Suður-
Ameríku.
Ertu með bloggsíðu?
Ég var með eina. Hana þarf að upp-
færa við fyrsta tækifæri.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Sástu stuttmyndina „Góðir gestir“ í
Iðnó 6. október?
„Mæmar“ þjóðsönginn
Aðalskona vikunnar er
kvikmyndaleikstjóri
búsett í New York.
Hún frumsýnir í dag kl.
16 stuttmyndina „Góðir
gestir“, á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni
sem fer fram um þess-
ar mundir í Reykjavík.
Morgunblaðið/Eyþór
New York-búi Ísland er útlandið hennar Ísoldar Uggadóttur.
Íslenskur aðall | Ísold Uggadóttir
SOFFÍA Sæmundsdóttir er löngu
þekkt að smámyndum sínum af
hnellnum kerlingum í íslensku lands-
lagi. Á morgun opnar Soffía sýningu í
Fold á Rauðarárstíg, og er þessi
mynd af einu af verkunum sem þar
verða, en sýninguna kallar hún Ræt-
ur.
Soffía er með MFA gráðu frá Mills
College í Oakland í Bandaríkjunum.
Hún útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskóla Íslands vorið 1991 úr
grafíkdeild og árið 1985 var hún við
nám í Kunstschule í Vín í Austurríki.
Soffía hefur haldið margar einka-
sýningar hér á landi en einnig hefur
hún haldið sýningar í Noregi og Belg-
íu. Sýningin stendur til 22. október.
Rætur
Soffíu í Fold
ÞEGAR maður er orðinn uppgefinn
á því að reyna að spila Jimi Hendrix-
lög á selló, tólf ára gamall, þá fer
maður auðvitað að læra á gítar.
Þetta gerði ameríski gítarleik-
arinn Greg Koch sem nú er staddur
hér á landi. Koch heldur námskeið
og tónleika með tríói sínu á Hótel
Borg á mánudaginn. Námskeiðið er
á vegum Fender Europe í samstarfi
við Hljóðfærahúsið, sem veitir nán-
ari upplýsingar.
Greg Koch er frá Milwaukee þar
sem hann ólst upp, en hann eignaðist
sinn fyrsta gítar 12 ára gamall eftir
lífsreynsluna sem að ofan er lýst.
Eftir að hafa
numið jazzgít-
arleik í Háskól-
anum í Wisconsin
í fjögur ár vann
hann fyrstu verð-
laun í Blues-
breaker Guitar
Showdown
keppninni, í dóm-
nefnd var hin
frægi blúsleikari Buddy Guy. Greg
stofnaði eigin hljómsveit, Greg Koch
and the Tone Controls, sem varð
fljótt þekkt fyrir frábæran flutning á
blústónlist.
Greg Koch með gítarnámskeið
Greg Koch