Morgunblaðið - 06.10.2006, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær gamanmynd
um þrjár vinkonur
sem standa saman
og hefna sín á
fyrrverandi kærasta
sem dömpaði þeim!
Draugahúsið kl. 6 B.i. 7 ára
Talladega Nights kl. 8 og 10
Crank kl. 6 og 10 B.i. 16 ára
John Tucker Must Die kl. 8
Monster House m.ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Talladega Nights kl. 5.30, 8 og 10.25
Talladega Nights LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.25
John Tucker Must Die kl. 6, 8 og 10
Clerks 2 kl. 10:15 B.i. 12 ára
Þetta er ekkert mál kl. 8
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 4
ÞAÐ ER GOTT AÐ VERA AUMINGI!
HEILALAUS!
BREMSULAUS
Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri
STÆRS
TA GAM
ANMY
ND
ÁRSIN
S Í USA
eeee
Empire magazine
eee
LIB, Topp5.is
eeee
- Topp5.is
eee
MMJ Kvikmyndir.com
“Talladega Nights er ferskur blær á annars frekar slöku
gamanmyndaári og ómissandi fyrir aðdáendur Will Ferrell.”
eeee
SV. MBL
Ekki hata leikmanninn, taktu heldur á honum!
Með hinni sjóðheitu Sophia
Bush úr One Tree Hill.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Æðislega spennandi ævintýramynd fyrir alla
fjölskylduna með ensku og íslensku tali.
staðurstund
Námskeið um vinaheimsóknir verð-
ur haldið í Fella- og Hólakirkju
laugardaginn 7. október kl. 10–14.
Í upphafi mun Ragnhildur Ás-
geirsdóttir djákni sjá um helgistund
í kirkju. Fyrirlesarar á námskeiðinu
verða Valgerður Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Ellimálaráðs, en hún
mun fjalla um mikilvægi vinaheim-
sókna, Sr. Gunnar Matthíasson sjúkrahúsprestur fjallar um efnið í nálægð
sorgar, Vilborg Edda Lárusdóttir, fulltrúi eldri borgara í Árbæ, fjallar um
samtalstækni og Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri hjá Landsbjörg,
fjallar um slysavarnir í heimahúsum.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Skráning í Fella- og Hólakirkju í
síma 557 3280. Allir velkomnir.
Námskeið
Námskeið um vinaheimsóknir
í Fella- og Hólakirkju
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Café Rosenberg | Bergþór Smári úr Mood
spilar ásamt góðum gestum í kvöld. http://
www.mood.is
Reykholtskirkja | Kvennakór Garðabæjar
heldur tónleika í Reykholtskirkju 7. október
kl. 17. Fjölbreytt efnisskrá með íslenskum
og erlendum verkum frá öllum tímum með
áherslu á íslensk þjóðlög og sönglög. Stjórn-
andi er Ingibjörg Guðjónsdóttir en píanóleik-
ari er Helga Laufey Finnbogadóttir. Að-
gangseyrir 1000 kr.
Salurinn, Kópavogi | Caput heldur tónleika í
Salnum vegna Norrænna músíkdaga föstu-
daginn 6. okt. kl. 19. Stjórnandi: Guðni
Franzson. Einsöngvari: Marta Halldórsdóttir
sópran. Miðaverð: 1.500 kr. í síma 5700400
eða á www.salurinn.is
Laugardaginn 7. október kl. 13: Tónleikar
kennara Tónlistarskóla Kópavogs. Eydís
Franzd. óbó, Kristín Mjöll fagott og Guðrún
Óskarsd. sembal. Titillinn vísar til töfrandi
tóna sembals, fagotts og óbós, en þau hafa
verið utangarðshljóðfæri í tónlistarskólum.
Miðasala í s 5700400 og á salurinn.is
Sunnudaginn 8. október kl. 20 Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir mezzósópran og Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleikari koma fram í
Salnum og flytja sönglög eftir Grieg og
Schumann. Miðaverð: 2.000/1.600, miða-
sala í síma 5700 400 og á www.salurinn.is
Myndlist
101 gallery | Sýning Spessa, Verkamenn!
Workers. Sýningartími fimmmtudag til
laugadags frá kl. 14–17. Til 14. október.
Anima gallerí | Skoski myndlistarmaðurinn
Iain Sharpe sýnir til 7. október. Opið
þriðjud.–laugard. kl. 13–17 www.animagall-
eri.is
Art-Iceland.com | Charlotta Sverrisdóttir
með sýninguna Litasinfóníu í Míru-Art, Bæj-
arlind 6, Kópavogi. Íslenski mosinn og
hraunið greipa sig sterkt í undirvitund Char-
lottu og leitast hún við að flétta þessi hug-
hrif inn í sköpunina.
Artótek Grófarhúsi | Sigríður Rut Hreins-
dóttir sýnir olíumálverk í Artóteki, Borg-
arbókasafni Tryggvagötu 15. Til 10. okt.
Aurum | Aron Bergmann sýnir til 13. okt.
Café Karólína | Linda Björk Óladóttir með
sýninguna „Ekkert merkilegur pappír“.
Linda sýnir koparætingar þrykktar á graf-
íkpappír og ýmiskonar pappír. Til 6. okt.
Gallerí 100° | Guðmundur Karl Ásbjörns-
son – málverkasýning í sýningarsal Orku-
veitunnar – 100°. Opin frá kl. 8.30–16 alla
virka daga og laugard. frá kl. 13–17. Sjá nán-
ar www.or.is/gallery.
Gallerí Fold | Halldór Baldursson sýnir
myndir sínar úr tveimur nýjum barnabók-
um, Einu sinni átti ég gott og Sagan af und-
urfögru prinsessunni og hugrakka prins-
inum hennar. Halldór er þekktur fyrir
skopmyndir sínar sem birst hafa í ýmsum
blöðum. Meðal bóka hans eru Marta
Smarta, Djúpríkið, Dýr og Fíasól. Til 8. okt.
Gerðuberg | Sýning á afrískum minjagripum
sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræð-
ingur hefur safnað saman.
Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni 220
ára afmælis Reykjavíkurborgar. Ljósmynd-
irnar sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir veita
eftirtekt í daglegu amstri.
Sýning Sigurbjörns Kristinsson stendur yfir.
Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í anda
gömlu íslensku meistaranna. Opin virka
daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
www.gerduberg.is
Grafíksafn Íslands | Elva Hreiðarsdóttir
sýnir grafíkverk unnin með collagraph-
tækni. Opið fimmtud.–sunnud. frá kl. 14–18.
Sýningin stendur til 8. október.
Hallgrímskirkja | Haustsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju á myndverkum Haf-
liða Hallgrímssonar verður í forkirkju Hall-
grímskirkju. Þetta er önnur sýning Hafliða í
Hallgrímskirkju og sýnir hann 12 verk með
trúarlegu ívafi. Til 23. október.
Hoffmannsgallerí | „Tölvuprentið tekið út.“
Myndlistarverk í formi tölvuprents eftir 11
listamenn í Hoffmannsgalleríi í húsnæði
ReyjavíkurAkademíunnar, fjórðu hæð, opið
kl. 9–17, alla virka daga.
Hrafnista Hafnarfirði | Þórhallur Árnason
og Guðbjörg S. Björnsdóttir sýna myndlist í
Menningarsal til 24. október.
i8 | Sýning Hildar Bjarnadóttur, Bakgrunnur,
opin þriðjudaga–föstudaga kl. 11–17 og laug-
ardaga kl. 13–17. Til 21. október.
Listasafn ASÍ | Nú standa yfir tvær sýn-
ingar í Listasafni ASÍ. Ásmundarsalur:
„Storð“. Ragnheiður Jónsdóttir sýnir stórar
kolateikningar. Gryfja: „Teikningar“. Inn-
setning eftir Hörpu Árnadóttur. Arinstofa:
„Öll þessi orð og hljóðnaðir sálmar“. Insetn-
ing eftir Hörpu Árnadóttur. Opið kl. 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 8. okt.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafn Reykjanesbæjar | Verk Stein-
unnar Marteinsdóttur frá 1961–2006. Ker-
amikverk og málverk. Til 15. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Inn-
setningar og gjörningar eftir 11 íslenska
listamenn sem fæddir eru eftir 1968. Sýn-
ingin markar upphaf nýrrar sýningarstefnu í
Hafnarhúsinu sem miðar að því að kynna
nýjustu stefnur og strauma í myndlist og
gera tilraunir með ný tjáningarform. Til 22.
okt. Umræður um sýninguna Pakkhús post-
ulanna með þátttöku sýningarstjóra, lista-
manna og fræðimanna verður 7. okt. kl. 14–
16. – Stúka Hitlers liggur sem hrúgald í
Hafnarhúsinu.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum Þórdísar Aðalsteinsdóttur,
ungrar, íslenskrar listakonu sem búið hefur
og starfað í New York. Málverk Þórdísar eru
frásagnarkennd og vekja spurningar um til-
finningar sem lúta að samskiptum fólks.
Lóuhreiður | Árni Björn opnar málverkasýn-
ingu í veitingahúsinu Lóuhreiðrinu, Kjör-
garði, Laugaveg 59, annarri hæð. Sýningin
er opin til 10. október kl. 9.30–22.30 dag-
lega. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýn-
ing á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðs-
son myndhöggvara. Safnið og kaffistofan
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasalur Mosfellsbæjar | Steinunn Mar-
teinsdóttir sýnir í Listasal Mosfellsbæjar,
nýjustu málverk sín sem fjalla um land og
náttúru. Hún nálgast náttúruna sem lifandi
veru hlaðna vissri dulúð. Opið virka daga kl.
12–19 og laugard. kl. 12–15. Til 14. okt.
Listhús Ófeigs | Sara Elísa sýnir málverk
sem fjalla um tilvist mannsins í borg. Sýn-
ingin stendur til 18. október.
Næsti Bar | Ásgeir Lárusson með rýming-
arsölu á eldri og nýrri verkum sínum. Hátt í
70 verk verða boðin til sölu.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
William Thomas Thompson stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. William er vel
þekktur listamaður í Bandaríkjunum. Sýn-
inguna kallar hann Sýnir og stendur hún til
6. nóvember. Saltfisksetrið er opið alla daga
frá 11–18.
Sveinssafn, Krísuvík | Síðasti reglubundni
sýningartími Sveinssafns í Krýsuvík á þessu
sumri verður nk. sunnudag, 8. október í
framhaldi af haustmessunni í Krýsuvík-
urkirkju. Sveinshús verður opið kl. 15–18. Ný
sýning á verkum Sveins Björnssonar, sem
ber yfirskriftina „Siglingin mín“ var opnuð í
safninu sl. vor.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Það er Hörður G. Ólafsson
sem spilar og syngur á Catalinu í kvöld.
Trix | Hljómsveitin Bermuda spilar laug-
ardagskvöld.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tekið á
móti hópum eftir samkomulagi.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
Gamla Presthúsinu. Opið eftir sam-
komulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga kl. 10–17. Hljóðleiðsögn á íslensku,
ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýn-
ing og gönguleiðir í nágrenninu.
www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin KVARTS
stendur yfir til 15. okt. í sýningarsal safnsins
við Garðatorg 7, Garðabæ. Þar sýna tvær
finnskar listakonur: Camilla Moberg hönn-
uður, sem vinnur í gler, og Karin Widnäs leir-
listakona. Opið 14–18, nema mánudaga. Að-
gangur ókeypis.
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Á safninu er
kynnt starfsemi 70 fyrirtækja sem áttu sinn
þátt í því að Akureyri var oft nefnd iðn-
aðarbær á 20. öldinni. Nú gefst gestum
tækifæri á að fá leiðsögn um safnið með
hjálp einnar af tækninýjungum 21. aldar þ.e.
með i–pod. Opið alla laugardaga kl. 14–16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík
2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá
Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað-
ur, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir
bera vott um. Sýningin spannar æviferil
Jónasar í máli og myndum. Sjá nánar á
heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist – sýn-
ingartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Unnið í
samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið
laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember
frá 14–16. Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá
öndverðu og Akureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10–
18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda
leikmynda sem segja söguna frá landnámi
til 1550. www.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið
alla daga kl. 11–18. www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Saga þjóðargersem-
anna, handritanna, er rakin í gegnum ár-
hundruðin. Ný íslensk tískuhönnun. Ferðir
íslenskra landnema til Utah-fylkis og skrif
erlendra manna um land og þjóð fyrr á öld-
um.