Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 28
daglegt líf 28 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Þetta byrjaði allt saman árið1971 þegar ég fór með föð-ur mínum í Norðurleit ogætlaði að vera fjallmaður í fyrsta skipti, þá var enginn sér- stakur á traktornum sem fór inn yf- ir sand og Geiri heitinn í Skáldabúð- um, sem var þá fjallkóngur, setti mig á traktorinn og ég hef verið á honum síðan. Í 29 ár hef ég svo far- ið alla leið inn að Arnarfelli við Hofsjökul með þeim fjallmönnum sem lengst fara, en þær leitir taka níu daga. Fyrstu árin flutti ég ein- göngu trússið og fjallmenn tóku sjálfir með sér mat, en fyrir 15 til 20 árum síðan fór ég að sjá um mat- inn líka fyrir þá sem fóru alla leið en það er styttra síðan ég fór að elda í alla fjallmenn,“ segir Óli, eins og hann er alltaf kallaður, þegar blaðamaður leit í kaffi til hans einn haustdag eftir fyrrasafn. Leið Óla um Gnúpverjaafrétt liggur víða í einni fjallferð og þarf hann að dvelja margar nætur í mis- góðum afréttarhúsum. „Það er ein nótt í Hólaskógi, önnur í Bjarna- lækjabotnum, tvær nætur í Tjarn- arveri og þá smala ég Þjórsárverin með fjallmönnum. Svo er farið aftur til baka og verið tvær nætur í Bjarnalækjabotnum og Norðurleitin smöluð, skilur þá leiðir milli fjall- manna Gnúpverja og Flóa og Skeiða. Ég held í Gljúfurleit þar sem Dalsársmalarnir bætast við auk Höllu í Ásum sem sér um elda- mennskuna með mér seinustu þrjá dagana þar og í Hólaskógi.“ Farið sjötíu ferðir Þrátt fyrir að trússarahlutverkið hafi tilheyrt Óla svona lengi komst hann einu sinni sem fjallmaður í eft- irsafn árið 1975, með þeirri ferð hefur hann farið sjötíu ferðir á af- rétti í tengslum við smalamennsku. „Ég trússa nú orðið þrisvar á ári, í fyrrasafni í níu daga, í eftirsafni sem eru sex dagar og svo eftirleit á Flóa- og Skeiðamannaafrétt um miðjan október í um fjóra daga.“ Óli hefur aldrei þurft að sleppa úr ferð og hefur sjaldan lent í veseni þó einn atburður sé honum minn- isstæður. „Fyrir sextán árum lent- um við í brjáluðu veðri í eftirsafni, ég komst ekki leiðar minnar vegna ófærðar og vissi ekkert um fjall- menn frekar en þeir um mig. Ég var samt alltaf í sambandi við byggð og frétti að þeir hefðu komist í Gljúfurleit við illan leik, daginn eftir kom leiðangur og ruddi leiðina fyrir mig. Ég óttaðist þennan dag um af- drif þeirra sem voru ríðandi en allt endaði vel.“ Vinsæll vagn Þeir sem sjá til Óla á leið á fjall halda oft að þar sé sirkus á ferð, en Óli keyrir um á skínandi blárri og vel bónaðri New Holland-dráttarvél og er með tvo vagna í eftirdragi. Í þeim fyrri er eldunaraðstaða og langborð og í þeim seinni er hann með hey fyrir fjallhesta og trúss- kofort, allt er vel skipulagt og snyrtilegt. „Afréttarhúsin eru oft lítil svo það er mikill munur að geta eldað í rúmgóðum vagninum en svo minnkar vagninn stundum á kvöldin þegar hann breytist í samkomuhús. Fjallmenn sækja svolítið í að sitja í honum á kvöldin til að hressa sig við og syngja. Ég fór jafnvel að hugsa um að halda vagnakvöld í byggð því það myndast oft svo skemmtileg stemning í honum á fjöllum,“ segir Óli og hlær. Spurður út í undirbúning fyrir hverja fjallferð segir Óli hann vera heilmikinn. „Ég þarf að kaupa í matinn fyrir fjölda manns og huga að ýmsum smáatriðum. Það hefur stundum verið gert grín að mér fyr- ir að vera með allt sem fjallmenn vantar, en það eru nú ýkjur.“ Fjall- menn vakna um hálfsex að morgni og því er Óli vanalega kominn á fætur um fimm til að elda hafra- graut ofan í þá. Óli sér aftur um að elda í fjallmenn á kvöldin og er orð- inn rómaður fyrir þann veislumat sem hann ber fram á fjöllum. Þar sem Óli hefur farið svona oft sem trússari er vert að spyrja hann hvort honum finnist þetta ekki örugglega skemmtilegt. „Jú, jú, annars væri ég ekki að þessu,“ svarar hann hógvær. „Stundum hugsa ég eftir hverju ég sé að sækj- ast því þetta er bara puð en eftir því sem nær dregur hausti vex fjalla- veikin. Ég sæki mikið inn úr og toppurinn er að smala Þjórsárverin, þeim vil ég alls ekki láta sökkva.“ Oft gaman á fjalli Það eru ýmsar hefðir hjá Óla í fjallferðum og ein þeirra er að hann stillir Norðurleitarmönnum og Sandleiturum alltaf upp við Bjarna- lækjabotna og tekur af þeim mynd, jólin á eftir fá fjallmennirnir jóla- kort frá Óla með myndinni og er þessi hefð orðin þeim mörgum kær. „Það er oft gaman hjá okkur á fjalli þó að smalamennskan geti verið strembin, ég man sérstaklega eftir því árið 1990 þegar við reistum kamar inni í Tjarnarveri. Þá und- irbjó ég smá fíflalæti, tók upp á kassettu lúðrasveit spila Fífil- brekka, gróin grund, lagði traktorn- um hjá kamrinum og setti spóluna í, svo var dansað í kringum kamarinn og dansinn endaði á því að allir tróðu sér inn á kamarinn. Það er ýmislegt sem fólk finnur sér til skemmtunar á fjalli,“ segir Óli kankvís og bætir við að hann stefni á að trússa nokkur ár í viðbót. Trússari með fjallaveiki að hausti Ljósmynd/Ólafur Jónsson Lopapeysulið Ólafur lengst til vinstri ásamt fjallmönnum Gnúpverja og Flóa- og Skeiðamanna sem fóru í Norður- og Sandleit haustið 2006. Trússari Óli við traktorinn og vagnana uppi á Flóamannaöldu á Gnúpverjaafrétti, í eftirsafni haustið 2006. Þeir sem sjá til Óla á leið á fjall halda oft að þar sé sirkus á ferð, en Óli keyrir um á skín- andi blárri og vel bón- aðri New Holland- dráttarvél og er með tvo vagna í eftirdragi. Á haustin er farið í fjár- smölun á afréttum víðs vegar um land. Þar sem lengst er farið fylgir oft maður fjallmönnum með farangur þeirra og eldar ofan í þá í afréttarhús- unum, er hann kallaður trússari. Ólafur Jónsson í Eystra-Geldingaholti í Gnúpverjahreppi í Ár- nessýslu hefur verið trússari fyrir fjallmenn Gnúpverja síðan 1971, Ingveldur Geirsdóttir forvitnaðist um starfið. ingveldur@mbl.is Kærleikurinn er hinn sanni boð-skapur jólanna og gleðin semfylgir því að gefa öðrum er mikil og góð. Og kannski er hún allra best gleðin sem fylgir því að gefa þeim sem lít- ið eiga og sjaldan fá gjafir. Á vegum KFUM og KFUK fer nú í þriðja sinn af stað verkefni sem kallað er Jól í skókassa og gengur út á það að við Íslendingar sem lifum við allsnægtir, höfum tækifæri til að sýna kærleikann í verki með því að setja gjafir til barna í skókassa og koma þeim í höfuðstöðvar KFUM og KFUK Holtavegi 28. Þaðan eru þeir sendir til Úkraínu þar sem fátækt er mikil og köss- unum verður meðal annars komið til barna á munaðarleysingjaheimilum, barnaspítölum og til barna einstæðra for- eldra. Í kassana er til dæmis hægt að setja ritföng, vettlinga, sokka, hreinlæt- isvörur, leikföng og sælgæti. Mikið not- aðir eða illa farnir hlutir mega alls ekki fara í kassana og sama er að segja um matvöru, stríðsdót, vökva, lyf og brot- hætta hluti. Og þó spilastokkar séu eitthvað sem okkur hér heima finnst jólalegt, þá eru þeir tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu og eru því á bannlistanum yfir það sem fara má í kassann. Viðbrögð hafa verið mjög góð þau tvö síð- astliðin ár sem skókassar hafa verið sendir héðan. Fyrsta árið söfnuðust 500 kassar og í fyrra voru þeir 2.600 og vonandi verða þeir enn fleiri fyrir þessi jól. Síðasti mótttökudagur verður laugardag- inn 11. nóvember. Jól í skókassa Gaman að fá jólapakka Úkraínskur drengur gramsar í skókassanum sem hann fékk frá Ís- landi um síðustu jól. Nánari upplýsingar: www.skokassar.net S:588-8899
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.