Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 37
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
NNFA QUALITY
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
MEÐ kvikmynd sinni um hinn
óþægilega sannleika tekur hinn
stórvaxni Al Gore að sér hlutverk
hrekklausa litla barnsins hans H. C.
Andersens og bendir á að keisarinn
Bush og félagar séu ekki í neinu
þegar þeir spranga sperrtir og gera
lítið úr hættunni af meðferð manns-
ins á loftinu sem þeir fylla lungun
með.
Kvikmynd Gores
um þennan óþægilega
sannleika er lofsvert
framtak. Sérstaklega
líkar mér sú áhersla
sem hann leggur á að
koltvísýringur loftsins
hafi nú skyndilega
vaxið jafn mikið og
hann hefur gert í
hvert skipti sem of-
urhlýnun hefur orðið
frá ísöld til hlýskeiðs á
undanförnum hundr-
uðum þúsunda ára.
Hann var sem sagt um 180 millj-
ónarpartar andrúmsloftsins á ísöld-
um, 280 á hlýskeiðum,eins og fram
að iðnbyltingu um 1800, en er nú
orðinn 380. Það ætti reyndar að
vera honum undrunarefni að slík
dæmalaus hlýnun hefur mjög látið á
sér standa og hennar sér fremur
litla staði. Það varð 10 stiga hlýnun
í grennd við heimskautin í hvert
sinn sem ísaldarjöklunum miklu var
svipt af fjöllunum en vegna jafn
mikillar aukningar koltvísýrings
eru nú aðeins komnar fram svo sem
tvær gráður í grennd við pólana.
Hann hefði getað bent á þá senni-
legu ástæðu að núverandi aukning
koltvísýringsins þarf að afla gíf-
urlega mikils varma frá sólinni til
að hita fjögurra kílómetra djúp
heimshöfin svo að jafnvægi náist í
hitabúskap hnattarins með núver-
andi koltvísýringi í loftinu. Það gæti
tekið hundruð ára. Þarna held ég að
voðinn sé enn meiri en Al Gore ger-
ir grein fyrir. Jafnvel þó að nú þeg-
ar yrði stöðvuð öll
aukning koltvísýrings,
sem ekkert útlit er fyr-
ir, væru hin ógnvæn-
legu eftirmál óhjá-
kvæmileg.
Annar kafli í kvik-
mynd Al Gores finnst
mér reyndar orka
nokkurs tvímælis.
Hann er hallur undir
kenningu sem með
þversögn sinni hefur
hlotið furðu mikið
fylgi. Hún er sú að
Golfstraumurinn
stöðvist vegna hlýnunarinnar, jafn-
vel fyrir sunnan Ísland, og hér
renni upp ísöld, einangruð frá hin-
um heita heimi. En nýlega flutti
norskur prófessor, Helge Drange í
Bergen, erindi í Reykjavík um ýt-
arlega útreikninga á loftslagi allt til
ársins 2100, þar sem tekið var sem
nákvæmast tillit til allra viðbragða
andrúmslofts, hafs og hafíss, við
væntanlegum gróðurhúsaáhrifum.
Niðurstaða hans var að vísu að eitt-
hvað mundi draga úr Golf-
straumnum, en á móti því kæmi að
hann yrði hlýrri en áður. Einnig
mundu hlýna allir vindar sem til
okkar blása, og þess vegna væru
líkurnar á ísöld af þessum sökum
mjög litlar. Hins vegar benti þessi
spá til þess að með hálfrar aldar
millibili mundi draga mjög úr gróð-
urhúsaáhrifum og kólna í bili, en
hlýna svo því meira á eftir. Þetta er
áhugaverð niðurstaða. Hún er í
góðu samræmi við gamla könnun
mína á hafís liðinna alda, en í 400 ár
hefur yfirleitt hlýnað hér á landi á
um það bil 50 ára fresti, en kólnað
þess á milli. Sömu sérkenni lofts-
lagsins má lesa úr borunum í Græn-
landsjökul. Ég hef lengi fengist við
spennandi athugun á þeirri keðju-
verkun sem þessu veldur í höfunum
norður undan og orkar síðan á allt
norðurhvelið, en ætla ekki að fjöl-
yrða um hana í þetta skipti. Sem
aukaafurð þykist ég hafa fundið til-
tölulega augljósa mælingu sem seg-
ir til um gróðurhúsaáhrifin en flest-
um sést yfir. Það er einfaldlega
hitinn á suðurhveli sem fræðir okk-
ur um þetta því að þangað ná ekki
hitabrigðin miklu sem eiga líklega
upptök sín að miklu leyti í hafinu
norður af Íslandi.
Al Gore og loftslagið
Páll Bergþórsson skrifar um
kvikmynd Als Gores »Kvikmynd Gores um þennan óþægi-
lega sannleika er
lofsvert framtak.
Páll Bergþórsson
Höfundur er veðurfræðingur
og rithöfundur.
Í MORGUNBLAÐINU 15. októ-
ber sl. birtist grein eftir Signýju
Sigurðardóttir, for-
stöðumann flutn-
ingasviðs Samtaka
verslunar og þjón-
ustu, undir fyrirsögn-
inni „Hvað gengur
Neytendasamtök-
unum til?“ Í greininni
lýsir Signý furðu
sinni á samþykkt
þings Neytenda-
samtakanna sem
haldið var 29.–30.
september sl. um
vöruflutningaþjón-
ustu til og frá lands-
byggðinni. Af þessu
tilefni er rétt að birta
samþykktina í heild
sinni:
„Samkvæmt
skýrslu sem gerð var
af Hagfræðistofnun
HÍ á árinu 2005 er
skattlagning á
strandflutninga með
skipum u.þ.b. 780
prósent hærri en sem
nemur kostnaði hins opinbera. Aft-
ur á móti eru vöruflutningar um
þjóðvegi landsins skattlagðir miklu
minna en sem nemur kostnaði hins
opinbera við þá flutninga. Minnt er
á að einn stór flutningabíll hlaðinn
vörum slítur þjóðvegunum að
minnsta kosti á við 50 þúsund
fólksbíla.
Mikilvægt er að vöruflutningar
til og frá landsbyggðinni séu sem
hagkvæmastir. Því telur þing
Neytendasamtakanna mikilvægt að
þeir aðilar sem stunda strandflutn-
inga þurfi ekki að greiða meira en
sem nemur kostnaði við þá þjón-
ustu sem hið opinbera veitir þess-
um aðilum. Einnig er nauðsynlegt
að hækka verulega opinberar álög-
ur á vöruflutningabíla, einkum þá
stærstu, enda eðlilegt að þeir
greiði mun meira vegna mikils
slits þeirra á vegum. Þjóðvegir
landsins eru víðast hvar ekki hann-
aðir fyrir svo stóra og þunga bíla.
Því ber stjórnvöldum með aðgerð-
um sínum að beina vöruflutningum
til og frá landsbyggðinni þannig að
þeir séu sem þjóðhagslega hag-
kvæmastir en það er með strand-
flutningum. Þingið leggur jafn-
framt áherslu á að
strandflutningar með skipum eru
umhverfisvænni kostur en með
vöruflutningabílum.“
Í þessari samþykkt vísar þingið í
sömu skýrslu og Signý gerir í sinni
grein. Sá er þó munurinn að þingið
vísar efnislega rétt í skýrsluna, en
tilvísun Signýjar er í besta falli
villandi. Þannig nefnir hún það
ekki einu orði að skattlagning hins
opinbera á strandflutninga með
skipum er 780 prósent hærri en
sem nemur kostnaði
stjórnvalda af þessum
flutningum.
Það sem Neytenda-
samtökunum gengur
til með þessari sam-
þykkt er að bæta hag
neytenda almennt en
það er ekki okkar
verkefni að gæta sér-
hagsmuna eins og
Signý hefur jú vinnu
við. Það liggur fyrir að
það eru ekki hags-
munir almennings að
stórir flutningabílar
séu að sliga vegakerfið
á landsbyggðinni,
hvattir áfram með nið-
urgreiðslum frá
stjórnvöldum. Auk
þess eykst slysahætt-
an á þjóðvegunum
verulega með þessum
þungaflutningum.
Neytendasamtök-
unum er þó ljóst að
það er óraunhæft að
ætlast til að slíkir flutningar á veg-
um landsins hætti með öllu. Þann-
ig munu flutningar með vörur sem
hafa stutt geymsluþol verða áfram
á landi. Ef strandflutningar með
skipum verða teknir upp að nýju
og á réttum forsendum er ljóst að
hægt verður að senda mikinn hluta
vara til og frá landsbyggðinni með
skipum. Ef slíkt tekst er um mjög
þjóðhagslega hagkvæma aðgerð að
ræða og sem almenningur hvar
sem hann býr á landinu mun hagn-
ast á. Og það er einmitt það sem
Neytendasamtökunum gengur til í
þessu máli.
Þeim, sem vilja kynna sér áð-
urnefnda skýrslu Hagfræðistofn-
unar HÍ, er bent á að hana má
finna á vef Morgunblaðsins en
slóðin er:
http://mbl.is/morgunbladid/
itarefni/184.pdf
Vöruflutningar
eiga að vera sem
hagkvæmastir
Jóhannes Gunnarsson svarar
grein Signýjar Sigurðardóttur
um vöruflutningaþjónustu til
og frá landsbyggðinni
Jóhannes Gunnarsson
» Það semNeytenda-
samtökunum
gengur til með
þessari sam-
þykkt er að
bæta hag neyt-
enda almennt.
Höfundur er formaður Neytenda-
samtakanna.
Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu-
mati fyrir Kárahnjúkavirkjun
er ekki ábótavant.
Oddur Benediktsson:
Áhættumati fyrir Kárahnjúka-
virkjun er ábótavant
Páll Jóhann Einarsson skrifar
um trú og vísindi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Í TILEFNI af alþjóðamat-
væladegi Sameinuðu þjóðanna 16.
október sl. skrifar Valgerður Sverr-
isdóttir utanríkisráðherra ágæta
grein í Morgunblaðið. Í greininni
segir Valgerður að hún sem utanrík-
isráðherra hafi gert þróunaraðstoð
að forgangsverkefni, með sérstaka
áherslu á hlutverk kvenna á land-
búnaðarsvæðum í því
að skapa sér og sínum
fæðuöryggi.
Allir flokkar hafi
stefnu í þróun-
armálum
Ég fagna mjög þess-
ari yfirlýsingu ráð-
herrans sem er löngu
tímabær í íslenskri ut-
anríkispólitík. Allt of
lengi höfum við Íslend-
ingar látið sem þessi
mál komi okkur ekkert
við og því miður hafa
stjórnmálamenn ekki haft neinn sér-
stakan áhuga á þessum málum enda
kannski ekki til þess fallin að veiða
atkvæði. Nú hefur hins vegar orðið
breyting á og vona ég að það sé ekki
eingöngu vegna ákvörðunar stjórn-
valda um að bjóða sig fram til setu í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Þróunarfræði eru nú kennd við ís-
lenska háskóla, fjölmiðlar fjalla
meira um stöðu fátækra landa en
fyrr og almenningur hefur margoft
sýnt vilja sinn í verki með mjög
góðri þátttöku í söfnunum fyrir
neyðaraðstoð og þróunarhjálp. Ég
vona því að þessi málaflokkur verði
til umræðu nú í komandi kosninga-
baráttu og skýr markmið í þróun-
armálum verði á stefnu allra flokka.
Góðir stjórnarhættir og svo að-
stoð? Eða öfugt?
Í grein sinni bendir utanrík-
isráðherra á að með því að stuðla að
auknu fæðuöryggi í heiminum renn-
um við jafnframt stoðum undir lýð-
ræði, mannréttindi, góða stjórn-
arhætti og heilbrigð viðskipti á milli
þjóða. Það er gleðilegt að heyra því
ríkar þjóðir vilja oft ekki sinna þró-
unar- og hjálparstarfi í löndum þar
sem spilling ríkir og gera kröfu um
að stjórnarháttum verði fyrst breytt
til hins betra. Vissulega er það mik-
ilvægt að aðstoða þjóðir við að koma
á góðum og skilvirkum stjórn-
arháttum en forsendur þess að það
takist eru að efla menntun, aðgang
að heilbrigðisþjónustu og tryggja
fæðuöryggi. Það er mikilvægt, ekki
bara fyrir þá sem búa við aðstæð-
urnar heldur okkur hin líka. Og sem
betur fer er fólk að átta
sig betur á því. Fátækt
og misskipting veldur
óstöðugleika og átök-
um á milli þjóða og
stétta. Með aukinni
misskiptingu eykst
hættan. Hlutverk
frjálsra félagsamtaka
er mjög mikilvægt í
þessu sambandi. Þau
ná oft betur til þeirra
sem verst eru settir og
því heppilegur farveg-
ur fyrir fjármuni
stjórnvalda.
Því miður aldrei of seint
Það er gleðiefni að íslensk stjórn-
völd ætli að auka verulega opinber
framlög til þróunar- og neyð-
arhjálpar og vinna þannig gegn því
að þúsaldarmarkmiðin verði orðin
tóm. Þótt líklega séu þau búin að
missa af lestinni fyrir árið 2015 verð-
ur þörfin ekki horfin og enn verk að
vinna. Til að ná sem bestum árangri
er mikilvægt að stjórnvöld auki sam-
starf sitt við íslenskar hjálparstofn-
anir sem margar hverjar hafa einar
sér og/eða sem hluti af alþjóðlegum
hjálparsamtökum, áratuga reynslu
af þessum málum. Með þetta í huga
er gleðilegt að lesa á heimasíðu ráð-
herrans, valgerður.is að nú sé unnið
að gerð verklagsreglna um stuðning
stjórnvalda við starfsemi frjálsra fé-
lagasamtaka en félagasamtök á Ís-
landi hafa í nokkurn tíma kallað eftir
slíkum reglum.
Hjálparstarfið kynnir sann-
gjörn viðskipti
Ljóst er að heilbrigð og sanngjörn
viðskipti skipta miklu máli í að bæta
hag fátækra landa. Viðskiptahöml-
ur, tollar og mörg alþjóðafyrirtæki
sem einoka markaðinn hafa staðið í
vegi fyrir réttlátum viðskiptum á
milli þjóða. Við hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar höfum undanfarnar vik-
ur kynnt hugtakið „Fairtrade“ eða
sanngjörn viðskipti. Fairtrade-
vörumerking er staðfesting á því að í
viðskiptum með vöruna hafi sann-
girni verið gætt gagnvart framleið-
anda. Fairtrade er engin góðgerð-
arstarfsemi heldur eingöngu
sanngjörn viðskipti. Hjálparstarfið
efndi til samstarfs við Kaupás um að
bjóða Fairtrade-merktar vörur í
verslunum sínum og Kaupás styrkti
einnig útgáfu upplýsingabæklings
um sanngjörn viðskipti. En einnig
fást þessar vörur t.d. í verslunum
Hagkaupa. Nú kemur til kasta neyt-
enda því án þeirra verða engin við-
skipti, hvorki sanngjörn né önnur.
Friðarsetur
Undirritaður fagnar þeirri
ákvörðun Reykjavíkurborgar að
stofna hér friðarsetur. Ég er sann-
færður um að við Íslendingar séum í
einstæðri stöðu til að miðla málum
með þúsund ára sögu lýðræðis og
friðar að baki. Staða okkar er sterk
og trúverðug ólíkt þátttöku okkar í
vopnaðri friðargæslu þar sem fer
vopnlaus þjóð með enga reynslu af
þannig störfum. Við eigum vel
menntað, reynsluríkt fólk sem getur
fengið stríðandi öfl að samninga-
borðinu. Og ef þörf er á alþjóðlegri
viðurkenningu má ætla að Íslend-
ingar yrðu meira metnir fyrir slíkt
framlag. Til hamingju, ráðherra,
með einarða afstöðu til þróunarmála
og borgarstjóri með friðarsetur. Ef
svona er haldið á málum mun fram-
tíðin verða björt.
Hungur, friður og framfarir
Jónas Þórir Þórisson skrifar
um þróunaraðstoð » Til hamingju, ráð-herra, með einarða
afstöðu til þróunarmála
og borgarstjóri með
friðarsetur.
Jónas Þórir Þórisson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar og hefur
áratuga reynslu af hjálparstörfum.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni