Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 49

Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 49 FRÉTTIR ALÞJÓÐADAGS flugumferð- arstjóra er minnst víða um heim 20. október, þar á meðal hér á landi, í tilefni af því að þennan dag árið 1961 voru stofnuð Al- þjóðasamtök flugumferðarstjóra, IFATCA, í Amsterdam. Félög í 12 Evrópuríkjum stóðu að stofnun samtakanna fyrir 45 árum, þar á meðal Félag íslenskra flugumferðarstjóra. Nú eru alls um 50.000 félagsmenn skráðir í 135 aðildarfélög Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra og þeim fjölg- ar ört. „Flugumferðarstjórn er aug- ljóslega ung starfsgrein sem þróast hefur hratt á síðustu ára- tugum. Háþróuð tækni hefur rutt sér til rúms á nánast öllum svið- um, og það kallar á fjölbreytt og vandað nám fyrir verðandi flug- umferðarstjóra og markvissa þjálf- un og endurmenntun þeirra sem þegar starfa við fagið. Miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem veljast til starfans en ávinning- urinn er krefjandi og fjölbreytt starf þar sem nýjar aðstæður og úrlausnarefni koma upp á hverjum degi. Æðsta markmið flugumferð- arstjórans hefur alltaf verið að tryggja öryggi í flugi. Auk þess ber honum að vinna skipulega að starfi sínu og veita hraða og góða þjónustu. Á síðustu árum hafa ógnir steðjað að flugöryggi og í ár, á degi flugumferðarstjórans, verður áhersla lögð á að öryggið hefur alltaf forgang við flug- umferðarstjórn,“ segir í frétta- tilkynningu. Alþjóðadagur flugumferðar- stjóra KJÖRSTJÓRN Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur auglýst eftir framboðum í forval Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs vegna alþingiskosninga 2007 í kjördæmunum Reykjavík suður, Reykjavík norður og Suðvestur- kjördæmi. Forvalið fer fram 2. desember nk. samkvæmt reglum sem samþykktar hafa verið í aðildarfélögum VG sem um ræðir. Markmið forvalsins er að velja fjóra efstu frambjóðendur flokks- ins í hverju þessara kjördæma í næstu alþingiskosningum og eru niðurstöður þess leiðbeinandi fyrir kjörstjórn við röðun frambjóðenda á lista, segir í fréttatilkynningu. Framboðsfrestur er til kl. 17 hinn 11. nóvember 2006 og skulu tilkynningar um framboð berast skriflega fyrir þann tíma. Þeir sem vilja stinga upp á frambjóð- anda eiga einnig að koma uppá- stungum sínum skriflega til kjör- stjórnar eigi síðar en 4. nóvember. Kosningarétt í forvalinu hafa allir félagsmenn í VGR og VGSV sem skráðir eru fyrir kl. 17, 25. nóvember. Kjörstjórn VG á höfuðborgarsvæðinu skipa Einar Ólafsson, Margrét Pétursdóttir, Svanhildur Kaaber, Sverrir Jak- obsson og Úlfar Þormóðsson. Framboðsfrestur hjá VG til 11. nóv. SJÁLFSAFGREIÐSLA stofnana eykur hagræði fyrir fyrirtæki og almenning. Rafræn þjónusta, raf- ræn skilríki og rafræn innkaup verða meginumræðuefni UT- dagsins sem haldinn verður í ann- að sinn fimmtudaginn 8. mars 2007. Það eru forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti sem standa að UT-deginum sem hefur þann til- gang að beina sjónum að hinum ýmsu möguleikum og tækifærum sem felast í nýtingu upplýsinga- tækninnar á Íslandi. Á UT-deginum verður að þessu sinni lögð áhersla á sjálfs- afgreiðslu í þjónustu opinberra stofnana og fjallað um lausnir á borð við rafræna þjónustu, rafræn skilríki og rafræn opinber innkaup. Slík þjónusta sparar fyr- irtækjum og almenningi tíma og fyrirhöfn í samskiptum við opinberar stofnanir sem skilar sér m.a. í auknum gæðum og miklu hagræði í rekstri stofnana. Ýmsar hindranir hafa verið á vegi stofnana sem haft hafa hug á að koma á sjálfsafgreiðslu en unnið er að því að ryðja þeim helstu úr vegi, segir í frétta- tilkynningu. UT-dagurinn verður haldinn í tengslum við sýninguna Tækni og vit 2007, fagsýningu tækni- og þekkingariðnaðarins, sem mun fara fram í Fífunni í Kópavogi dagana 8.–11. mars. Einnig verð- ur ráðstefna í Salnum í Kópavogi þar sem meðal annars verður fjallað um hvernig auka megi raf- ræna sjálfsafgreiðslu opinberra stofnana. AP sýningar standa að sýning- unni ásamt samstarfsaðilum. Upp- lýsingar um Tækni og vit má finna á www.taekniogvit.is. Rafræn þjónusta rædd á UT-degi BÚIST ER við harðri keppni á Ís- landsmóti skákfélaga 2006 sem hefst í dag, föstudag, kl. 20 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Ís- landsmótið er fjölmennasta skák- mótið sem haldið er innanlands á þessu ári, en þátttakendur eru um 400 talsins. Fyrirfram þykir líklegast að Ís- landsmeistarar Taflfélags Reykja- víkur og Taflfélag Vestmannaeyja, sem í fyrra hlaut silfrið, verði sterkust. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en teflt verður í Mennta- skólanum við Hamrahlíð sem hér segir: 1. umferð föstudag kl. 20 2. umferð laugardag kl. 11 3. umferð laugardag kl. 17 4. umferð sunnudag kl. 11. Fjölmennasta skákmót ársins HINN árlegi kjötsúpudagur verð- ur haldinn hátíðlegur á Skóla- vörðustígnum í Reykjavík á morgun, laugardag. Þeir sem búa og starfa við Skólavörðustíginn taka höndum saman og taka á móti gestum og gangandi. Verslanir og veitinga- staðir við stíginn verða opnir upp á gátt, og góða skapið verður allsráðandi. Auk hefðbundinna sérkjara hjá verslunum verða margskonar skemmtiatriði allan daginn um allan Skólavörðustíg. Fyrirtækin opna kl. 11 árdegis en loka ekki fyrr en kl. 17.19 síðdegis. „Ýmsir þekktir menn og kunn- ar konur taka þátt í framreiðslu lífrænu kjötsúpunnar alkunnu, sem er samansett af hráefni frá Markaðsnefnd kindakjöts, afurð- um frá völdum ræktendum líf- ræns grænmetis, og eldamennsku hins alþjóðlega meistarakokks Sigga Hall. Það má búast við þó nokkrum „frambjóðendum“ við kjötsúpukatlana, enda tilvalið tækifæri til að hitta fólk á ferli á Kjötsúpudaginn,“ segir í frétta- tilkynningu. Kjötsúpudagur á Skólavörðustíg Á AÐALFUNDI kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi, sem haldinn var á Ísafirði helgina 7.–8. okt. sl., var skipuð kjörnefnd vegna uppstillingar á framboðslista flokksins fyrir komandi alþing- iskosningar 12. maí 2007. Kjörnefnd hefur hafið störf og er formaður hennar Ásbjörn Ótt- arsson, forseti bæjarstjórnar í Snæ- fellsbæ. Starfsmaður kjörnefndar er Bjarki Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri kjördæmisráðs sjálf- stæðismanna í NV-kjördæmi. Þeir aðilar sem áhuga hafa á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins í NV-kjördæmi geta haft samband við starfsmann kjör- nefndar á netfangið bjarki@xd.is eða í síma 660 8245 fyrir laugardag- inn 28. október. Framboðin skulu vera bundin við flokksbundna sjálf- stæðismenn, segir í fréttatilkynn- ingu. Kjörnefnd vegna uppstillingar VIÐSKIPTARÁÐ varar við hækk- un fjármagnstekjuskatts. Í frétt frá ráðinu segir: Samfara góðu gengi á íslensk- um hlutabréfamarkaði und- anfarin ár hafa fjármagnstekjur þjóðarinnar vaxið af miklum hraða. Með stærri hlutdeild fjár- magnstekjuskatts hefur umrædd- ur tekjustofn vakið aukna athygli ákveðinna stjórnmálamanna. Lagt hefur verið fram frum- varp þar sem kveðið er á um að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður í 18% þegar í stað. Markmið frumvarpsins er annars vegar að auka tekjur ríkissjóðs og hins vegar að sporna við ætl- uðu óréttlæti sem stafar af mis- ræmi í skattlagningu fjármagns- og launatekna. Viðskiptaráð telur frumvarpið hvorki til þess fallið að vinna gegn óréttlæti og því síður lík- legt til að auka tekjur ríkisins. Nánar er fjallað um málið á vi@vi.is. Viðskiptaráð varar við hækkun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.