Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 60
50 ára afmæli. Ítilefni fimm- tugsafmælis Hrafn- hildar Blomster- berg býður hún og fjölskylda hennar til veislu í samkomusal Haukahússins að Ásvöllum laug- ardagskvöldið 21. október kl. 19. Þætti þeim vænt um að ættingjar og vinir gætu komið og samfagnað þeim á þess- um tímamótum. 60 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ verji því fyrir sér hvort upplýsingarnar á vefn- um séu nógu nýjar. x x x Sömuleiðis er Vík-verji ekki alltaf sammála þeim ráðlegg- ingum, sem vefurinn gefur um fljótlegustu leiðina á milli staða. Þær duga vissulega til að komast á leið- arenda, en leitarvélin „veit“ t.d. augljóslega ekki um umferð- arteppur og seinagang, sem gera má ráð fyrir á tilteknum götum. Það virðist því enn vera töluverð forritunarvinna eftir, áður en vef- urinn verður jafngóður og ýmsir er- lendir vefir sama eðlis. x x x Og reyndar virðist vefurinnstundum vera í lamasessi og svarar fyrirspurnum þannig: „Ekki er hægt að reikna leið á milli þess- ara staða. Hugsanlega er þjónustan tímabundið óvirk, reynið aftur síð- ar.“ Víkverji hlakkar til þegar þessi þjónusta verður orðin eins og hún á að vera og hann getur farið að skipuleggja sumarfríið sitt innan- lands á Netinu. Víkverji heimsótti ívikunni nýja kortavefinn map24.is. Þetta er fyrsti vef- urinn á Íslandi, sem býður upp á ökuleið- sögn á milli staða eins og ýmsir erlendir vef- ir, t.d. ViaMichel- in.com og Krak.dk, sem Víkverji hefur notað mikið til að skipuleggja sumarfríið sitt. Víkverja finnst frábært að geta slegið inn framandleg göt- unöfn, sem hann hefur aldrei heyrt áður og eru einhvers staðar í útmóum höfuðborgarsvæðisins, og fengið nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig á að komast þangað. Hver veit nema hann fari einhvern- tímann þangað! x x x Hitt er svo annað mál að sumirútmóar eru bara ekki með í leitarmöguleikunum. Þegar Hádeg- ismóar 2, heimilisfang Morg- unblaðsins, er til dæmis slegið inn á vefinn, koma annars vegar upp Hrísmóar í Garðabæ og hins vegar Frades (Moar) á Spáni! Svona í ljósi þess að heimilisfangið er búið að vera til í a.m.k. þrjú ár, veltir Vík-       víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: „Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður.“ (Jóh. 14,20.) Í dag er föstudagur 20. október, 293. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þjóðarsálin, sál allra landsmanna EINLEIKHÚSIÐ setti upp á dög- unum nýtt verk, Þjóðarsálina eða verk sem nefnist Þjóðarálin. Ég er að skrifa hér af því að mér fannst það ekki fá þá viðurkenningu sem það á skilið. Verkið er flutt af frábærum leikurum, stórkostlegum sirkus og yndisfögrum hestum. Að- alsveitin samanstendur af Sigrúnu Sól Ólafsdóttur, sem er hugmynda- smiðurinn að verkinu og er leikstjór- inn, og Pálma Sigurhjartarsyni sér um tónlistina. Myrra Leifsdóttir sér um búninga og Linda Stefánsdóttir sér um sviðsmynd. Aðalleikararnir Arnar Pétur Guðjónsson, Harpa Arnardóttir, Jóhann G. Jóhann- esson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Árni Salómonsson eru hreint frá- bær. Mér finnst verkið uppfullt af boð- skap og kærleika. Eftir að hafa séð það vakna ýmsar spurningar sem ég hafði aldrei pælt í. Veruleiki lífsins greip mig. Verkið er stórt hug- myndaverk. Gleði, sorg, ástir og átök koma fram á skemmtilegan og eftirtektarverðan hátt. „Ég fílaði það í botn,“ eins og maður segir á lé- legri íslensku. Ég hvet alla til þess að fara og mynda sér sína eigin skoðun. Ásta María Harðardóttir, forseti nemendafélags fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Hver er maðurinn? ÉG vil vekja athygli á manni sem komið hefur hér í hverfið a.m.k. tvisvar sinnum. Þessi maður kom fyrir helgina og komst þá inn með öðrum – og þegar maður opnar stendur hann fyrir utan og ýtir að manni blómi og segir: „Gjörið svo vel,“ og segist vera að safna fyrir fá- tæk börn í Rúmeníu. Þessi maður er með spjald framan á sér með nafninu sínu en ekkert merki frá félagasamtökum. Hann sagði: „Þú ræður hvað þú borgar fyrir.“ Ég sótti 500 kr. og lét hann fá. Þessi maður hefur komið hér áður og verið rekinn út. Mér finnst þetta ekki hægt. Ég hringdi í Rauða krossinn og spurði hvort einhver söfnun væri í gangi hjá þeim og var sagt að svo væri ekki. Sagði ég þeim alla söguna, og þá var mér sagt að þeir hefðu frétt af þessum manni sem væri einn á ferð og virtist vera að sníkja peninga. Mér var sagt að einhver hefði haft samband við lögregluna en hún sagðist ekkert gera gert. Það eru all- ir óánægðir með þetta hér og vil ég vara fólk við þessum manni. Ein ósátt. Hringur í óskilum FYRIR u.þ.b. mánuði fannst hring- ur á bílastæði við Garðaborg. Þetta er hugsanlega trúlofunarhringur, merktur og með steini. Upplýsingar í síma 869 1666. Rauð dúnúlpa týndist ALDA, 7 ára, týndi rauðri Hummel dúnúlpu með hettu, ekki er vitað hvar. Alda er í Valdorf-skóla í Lækj- arbotnum og gæti hafa skilið hana eftir einhvers staðar. Skilvís finn- andi vinsamlega hafi samband í síma 557 5831 eða 899 7877. árnað heilla ritstjorn@mbl.is 85 ára afmæli. Ídag, 20. októ- ber, er 85 ára Jón Eiríksson, Vorsabæ 3, Skeiðum. Gullbrúðkaup | Í dag, 20. október, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Lena Gunnlaugsdóttir og Jóhann Sig- urbjörnsson, til heimilis að Laug- arbóli í Svarfaðardal. Demantsbrúðkaup | Í dag, 20. októ- ber, eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjón- in Elísabet Þorvaldsdóttir og Finn- bogi Jónsson, til heimilis að Gullsmára 9. Þau eyða deginum í faðmi fjölskyldunnar. Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins BYGGÐ Á METSÖLUBÓK ARNALDAR INDRIÐASONAR NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI. eee BBC eee ROLLING STONE eeee EMPIRE eeee TOPP5.IS eeee SV, MBL eee MMJ, KVIKMYNDIR.COM eee EGB, TOPP5.IS MÝRIN kl. 5 - 7 - 9 - 10 B.i. 12.ára. THE GUARDIAN kl. 6 - 9 B.i. 12.ára. WORLD TRADE CENTER kl. 8 - 10:30 B.i. 12.ára. THE QUEEN kl. 6 - 8 B.i. 12.ára. AN INCONVENIENT TRUTH kl. 6 - 10:10 LEYFÐ ZIDANE kl. 6 BÖRN kl. 8 B.i. 12.ára. Munið afsláttinn BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eee Ó.H.T. RÁS2 eeee HEIÐA MBL HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN. VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA HEFUR MYNDIN AFTUR VERIÐ TEKIN TIL SÝNINGA. eeeee H.J. MBL eeee TOMMI/KVIKMYNDIR.IS eeee V.J.V. TOPP5.IS ÖRFÁAR SÝNINGAR! EINN AF BESTU KNATTSPYR- NUMÖNNUM SÖGUNNAR WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919 Frá leikstjóra “The Fugitive” Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK Mýrin er ein besta mynd, ef ekki sú albesta sem gerð hefur verið á Íslandi. Ef þetta er ekki myndin sem skilar íslenskri mynd Óskar þá veit ég ekki hvað þarf til. Davíð Örn Jónsson Kvikmyndir.com e e
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.