Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 63
THE MATERIAL Girls segir frá
Marchetta systrunum Ava (Haylie
Duff) og Tanzie (Hilary Duff) sem
skortir ekki neitt.
Þær eru erfingjar risastórs
snyrtivörufyrirtækis og þær lifa
lífinu eins og það sé eitt stórt
stelpupartí.
En hneyksli sem viðkemur
snyrtivörum frá þeim gerir fyr-
irtækið gjaldþrota og systurnar
auralausar, heimilislausar og
ráðalausar.
Stjórn fyrirtækisins vill selja
það aðalkeppinautnum en syst-
urnar vilja það ekki því það
myndi sverta nafn föður þeirra
sem byggði fyrirtækið upp frá
grunni.
Í staðinn ákveða Ava og Tanzie
að vernda það sem er réttilega
þeirra. En til að þær geti það
þurfa þær að gera hluti sem þær
hafa aldrei hugsað út í áður, eins
og að þroskast, taka ákvarðanir,
axla ábyrgð og biðja aðra um
hjálp í staðinn fyrir að búast við
því að allt komi upp í hendurnar
á þeim.
Ef þær finna innri styrk gætu
þær hreinsað nafn fjölskyldunnar
af hneykslinu, ef það tekst ekki
gæti partíið verið búið að eilífu.
The Material Girls hefur verið
flokkuð sem gamanmynd fyrir
stelpur á öllum aldri enda syst-
urnar myndalegu Hilary og Hay-
lie Duff þekktar fyrir leik sinn í
slíkum myndum.
Leikstjóri er Martha Coolidge
og önnur aðalhlutverk eru í
höndum Anjelica Huston, Maria
Conchita Alonso og Lukas Haas.
The Material Girls er frumsýnd
í Sambíóunum í dag, föstudag.
Sætar Systurnar Hilary og Haylie
Duff í hlutverkum sínum.
Frumsýning | The Material Girls
Snyrtivörusystur í klípu
Erlendir dómar
Metacritic: 17/100
New York Times: 30/100
Hollywood Reporter: 0/100
Entertainment weekly: 16/100
Variety: 50/100
Allt skv. Metacritic
Nú er hún Whitney litla Houstonloksins búin að sækja formlega
um lögskilnað við vandræðagripinn
hann Bobbi Brown. Þetta gerði hún
í síðustu viku, mánuði eftir að hún
sótti um skilnað að borði og sæng.
Whitney, sem nú er 43 ára sótti um
forræði yfir Bobbi Kristina, þrettán
ára dóttur þeirra hjóna, en að eig-
inmaðurinn senn fyrrverandi, fengi
umgengnisrétt.
Hjónaband Whitney og Bobbi hef-
ur verið afar skrautlegt frá því þau
gengu í það, árið 1992. Bobbi hefur
nokkrum sinnum verið handsam-
aður fyrir misnotkun áfengis og eit-
urlyfja og frúin hefur tvisvar þurft
að fara í eiturlyfjameðferð. Um dag-
inn sögðum við frá vanskilum Bobbis
á meðlagi með eldri börnunum
tveimur sem hann á með konu í
Massachusetts, en nú er hann búinn
að greiða þær skuldir sem hljóðuðu
upp á andvirði tæpra átta hundraða
þúsunda króna og var ekki seinna
vænna því yfir höfði hans vofði enn
ein handtakan og lögreglumálið fyr-
ir þau vanskil. Því hefði hann varla
mátt við.
Fólk folk@mbl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
0
8
6
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
Nissan X-Trail er kröftugur, sérstakur og hentar öllum aðstæðum – hverjar sem þær
eru. Þú átt jafn auðvelt með að leggja fyrir framan fínt veitingahús og klöngrast í
giljadrögum. Stíllinn snýst ekki aðeins um glæsilegt útlit. Hönnun fram- og afturenda
bílsins er miðuð við að akstur í torfærum, grjóti og snjó verði auðveldari og að þú sjáir
öll fjögur hornin úr ökumannssætinu og getir stjórnað og lagt X-Trail af öryggi.
Komdu og reynsluaktu Nissan X-Trail, hann er leikur á hjólum!
Nissan X-Trail Sport
Verð aðeins 2.890.000 kr.
Verð áður 3.290.000 kr. VERÐLÆKK
UN!
Nissan X-Trail Elegance
Verð aðeins 2.990.000 kr.
Verð áður 3.490.000 kr. VERÐLÆKK
UN!
ALVÖRU VETRARBÍLL Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
VERÐLÆKKUN ALLA LEIÐ!
NISSAN X-TRAIL
GARMIN NUVI 310LEIÐSÖGUTÆKI FYLGIRFRÍTT MEÐ AÐ AUKI!
Í TILEFNI af útkomu bókarinnar
Ein til frásagnar er höfundurinn,
Immaculée Ilibagiza, væntanleg til
landsins. Immaculée fæddist og ólst
upp í Rúanda í faðmi ástríkrar fjöl-
skyldu og lagði stund á rafmagns-
verkfræði í Háskóla Rúanda en árið
1994 var fjölskylda hennar miskunn-
arlaust brytjuð niður í þjóðarmorði
hútúa á tútsum en morðæðið stóð í
þrjá mánuði og kostaði nærri eina
milljón landsmanna lífið. Immaculée
lifði blóðbaðið af því í 91 dag sat hún
ásamt sjö öðrum konum þögul í
hnipri í þröngri baðherbergiskytru
sóknarprests nokkurs meðan hundr-
uð morðingja með sveðjur á lofti leit-
uðu þeirra. Í bókinni segir hún frá
þessari ótrúlegu lífsreynslu en aðrar
þjóðir fréttu lítið af helförinni í Rú-
anda fyrr en löngu síðar.
Immaculée býr nú á Long Island
með manni sínum og tveimur börn-
um. Hún starfar fyrir Sameinuðu
þjóðirnar í Bandaríkjunum og hefur
sett á laggirnar stofnun til að hlúa að
þeim sem þjást af völdum þjóð-
armorða og styrjalda. Immaculée
kemur hingað á vegum JPV útgáfu
sem gefur bók hennar út á Íslandi.
Viðtal verður við Immaculée Iliba-
giza í Morgunblaðinu á sunnudag.
Bjargaðist Immaculée Ilibagiza
faldi sig í baðherbergiskytru prests
ásamt sjö öðrum konum meðan
morðaldan reið yfir.
Lifði af þjóð-
armorð hú-
túa á tútsum