Morgunblaðið - 20.10.2006, Qupperneq 64
Icelandair samdi við Olíu-
félagið um eldsneytiskaup
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
ICELANDAIR Group hefur tekið
tilboði Olíufélagsins hf. (ESSO) í
flugvélaeldsneytisviðskipti til eins
árs, en undanfarin ár hefur félagið
keypt flugvélaeldsneyti hér innan-
lands af Skeljungi. Samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Karls Ólafssonar,
forstjóra Icelandair Group, er hér
um að ræða mjög stóran samning,
ríflega helming alls eldsneytis sem
félagið kaupir á ári, eða um 28 millj-
ónir gallona, viðskipti upp á þrjá til
fjóra milljarða króna.
Icelandair er stærsti einstaki
eldsneytiskaupandinn á Íslandi.
„Við höfum haft þann háttinn á,
hvað varðar eldsneytiskaup félags-
ins, að við bjóðum út kaupin mjög
reglulega, auðvitað til þess að leita
hverju sinni eftir hagstæðasta til-
boðinu. Nú fengum við bestu kjörin
frá Olíufélaginu og það munaði þó-
nokkuð miklu. Heildareldsneytis-
reikningur félagsins á ári er á milli
sjö og átta milljarðar króna, þannig
að hvert sent sem verðið á gallon-
inu lækkar um skiptir okkur gríð-
arlegu máli, í þessu tilviki einhverj-
um milljónatugum,“ sagði Jón Karl.
Jón Karl segir að viðskiptin að
þessu sinni hafi verið gerð með
sama hætti og félagið ástundi við
eldsneytiskaup sín erlendis.
Ákveðnum aðilum hafi verið send
bréf, þar sem þeim var boðið að
bjóða í þessi viðskipti og þessi hafi
orðið niðurstaðan.
Olíufélagið bauð betur
„Skeljungur hefur haft þessi við-
skipti við Icelandair undanfarin ár.
Við gerðum þessa verðkönnun nú
um daginn og þá kom á daginn að
Olíufélagið bauð betur. Á grund-
velli þessa höfum við gengið til
samninga við Olíufélagið um elds-
neytiskaup til eins árs, með fram-
lengingarákvæðum, þannig að
þetta getur orðið samningur til
tveggja ára, áður en til næsta út-
boðs kemur.“
Í HNOTSKURN
»Aðaleigendur Esso, Bene-dikt og Einar Sveinssynir,
eiga einnig Naust ehf. sem
keypti 11,1% í Icelandair
Group í liðinni viku, en Lang-
flug, dótturfélag Samvinnu-
trygginga keypti þá 32%.
»Skeljungur er í eiguFons eignarhaldsfélags,
sem Pálmi Haraldsson og Jó-
hannes Kristinsson eiga. Fons
á einnig Iceland Express, sem
nú hefur hafið harða sam-
keppni í flugi innanlands og
utan, við Icelandair Group.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
BEÐIÐ er afstöðu sveitarstjórnar
Flóahrepps vegna beiðni Flug-
fjarskipta ehf., sem er dótturfélag
flugmálastjórnar og rekur fjar-
skiptamöstrin á Rjúpnahæð, um að
fá að reisa tíu möstur á hæð-
arbilinu 18–36 metrar í landi Galt-
arstaða í Flóahreppi. Skiptar skoð-
anir eru um þessi áform innan
sveitarfélagsins.
Félagið keypti nýverið hluta
jarðarinnar á Galtarstöðum, eða 86
hektara, sem ætlaður er undir
möstrin, sem nú eru staðsett á
Rjúpnahæð við Vatnsenda en
verða flutt ef sveitarstjórn veitir
leyfi fyrir sitt leyti.
Búið er að leggja fram tillögu að
breytingu á aðal- og deiliskipulagi
Flóahrepps, sem er sameinað
sveitarfélag Villingaholtshrepps,
Hraungerðishrepps og Gaulverja-
bæjarhrepps. Athugasemdafrestur
er til 1. nóvember og hefur verið
boðað að athugasemdir muni ber-
ast sveitarstjórn.
Ómönnuð sendistöð
Að sögn Brands Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Flug-
fjarskipta ehf., eru möstrin notuð
til fjarskipta við flugvélar á ís-
lenska flugstjórnarsvæðinu. Hann
segir að félagið muni ekki taka
neinar ákvarðanir varðandi flutn-
ing mastranna fyrr en Flóahrepp-
ur hafi gefið sitt svar.
Ástæður þess að land Galtar-
staða varð fyrir valinu eru fjölþætt-
ar að hans sögn. „Við erum að leita
að stað með tiltölulega opnum sjón-
deildarhring og með tryggu að-
gengi að rafmagni,“ segir Brandur
og bætir við: „Einnig þurfa að vera
fyrir hendi góðar símatengingar og
annarskonar fjarskiptatengingar
auk þess sem staðurinn má ekki
vera of langt frá Reykjavík. Við
gerum ráð fyrir að reka þessa
sendistöð ómannaða en með við-
haldsþjónustu frá Reykjavík.“
Nágrannar Galtarstaða munu
vera mishrifnir af þessum áform-
um og segist Elvar Ingi Ágústsson
á Hamri vera mótfallinn hugmynd-
unum sem og sumir bændur í ná-
grenninu. „Það er réttur okkar
sem búum nálægt þessu að mót-
mæla og ég vil ekki fá möstrin fyrir
utan eldhúsgluggann hjá mér,“
segir hann. „Við sem næst búum
erum á móti þessu. Það er sjón-
mengun af þessu og sumir eru
hræddir við bylgjur frá möstr-
unum. Og svo lengi sem maður býr
hér er þetta aldrei annað en ljótt.
Auk þess hlýtur þetta að hafa mikil
áhrif á verðgildi eigna hér í ná-
grenninu. Ef fólk vill ekki fá þetta
ofan í sig, þá vill fólk heldur ekki
flytjast að þessu. Ég gæti verið
með óseljanlega eign og það er al-
varlegt.“
Flugfjarskipti ehf. keyptu jörð
undir tíu möstur í Flóahreppi
Morgunblaðið/Ómar
Skógur Mörg möstur eru á Rjúpnahæð en Flugfjarskipti ehf. færa aðeins þau möstur sem tilheyra fyrirtækinu
ef sveitarstjórn Flóahrepps samþykkir beiðni fyrirtækisins að lokinni umræðu um athugasemdir sem berast.
Andstaða meðal íbúa nágrannabæja sem kæra sig ekki um möstrin
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA-átt, 18–25
m/s með SA-
ströndinni en 8–13
annars staðar. Dá-
litlar skúrir NA-lands, bjart
S-lands og vestan. » 8
Heitast Kaldast
8°C 2°C
KOSTNAÐUR Strætós bs. af því að taka
upp rafræn greiðslukort er kominn í 216
milljónir króna og að minnsta kosti 10
milljónir eiga eftir að bætast við, en upp-
haflega var gert ráð fyrir að kostnaður
Strætós við verkefnið yrði 50 milljónir
króna.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í
stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. sem unnin
var að ósk stjórnar fyrirtækisins og kynnt
var á blaðamannafundi í gær. Fram kemur
einnig að pólitísk afskipti hafa verið tölu-
verð af fyrirtækinu og því skaðleg og að
stefnumótun skortir, t.a.m. hvað varðar
leiðakerfi, þjónustustig og kostnað. | 22
Kostnaður Strætós
vegna rafrænna
korta 216 milljónir
♦♦♦
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
-6
14
2
Allir fíla
Nýr, mjúkur, ferskur ostur
ASÍ-ÞING á tveggja ára
fresti koma í stað árs-
funda ef samþykktar
verða nýjar tillögur sem
lagðar verða fyrir árs-
fund ASÍ næstkomandi
fimmtudag. Lagðar eru
til róttækar breytingar á
stjórnskipulagi ASÍ og
er búist við að tekist
verði á um þær á fund-
inum. Lögð er til fjölgun
í miðstjórn úr 15 í 31 en fundum hennar
verði fækkað og hún komi saman ekki
sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Í staðinn
verði mynduð 11 manna framkvæmda-
stjórn forseta, varaforseta, formanna
landssambanda og þriggja stærstu aðild-
arfélaganna.
Verði lagabreytingarnar samþykktar
þarf að kjósa á ársfundinum um forseta og
varaforseta ASÍ til næstu tveggja ára.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, staðfesti í
gær að hann gæfi kost á sér áfram í emb-
ætti forseta. Tvö framboð eru komin fram
til varaforseta þar sem fulltrúar stærstu
landssambandanna, það er verslunar-
manna og Starfsgreinasambandsins, munu
sækjast eftir embætti varaforseta. Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, núverandi vara-
forseti og formaður Landssambands versl-
unarmanna, gefur kost á sér áfram og
einnig hefur Signý Jóhannesdóttir, formað-
ur Vöku á Siglufirði, tilkynnt framboð sitt.
Risið hafa deilur um hvort breytingarnar
muni draga úr áhrifum landsbyggðarinnar
innan hreyfingarinnar. Grétar segir að með
breytingunum sé síður en svo verið að
draga úr vægi miðstjórnar þótt um það séu
deildar meiningar meðal félaganna. „Þess-
ar skipulagstillögur miða að því að reyna að
gera skipulagið eins og valdastrúktúrinn er
í raun og veru í hreyfingunni,“ segir Gunn-
ar Páll Pálsson, formaður VR.
Róttækar
breytingar
á ASÍ
Grétar
Þorsteinsson
Tvær konur hafa lýst yfir
framboði til varaforseta
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is