Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 54
4. apríl 2009 LAUGARDAGUR4
Í Garðheimum geta dýravinir
orðið sér úti um gæludýr um helg-
ina en Dýrahjálp Íslands stendur
þar fyrir Ættleiðingardögum.
„Við verðum hér í Garðheimum í
dag og á morgun frá klukkan 12 til
18 og hingað getur fólk komið sem
er að leita sér að dýri sem það vill
veita heimili,“ segir Ásbjörg Una
Björnsdóttir hjá Dýrahjálp.
Starf Dýrahjálpar hófst á síð-
asta ári en samtökin vinna að
því að koma dýrum, sem eru ein-
hverra hluta vegna á hrak hólum,
til nýrra eigenda. Starfið er algjör-
lega byggt á sjálfboðavinnu. Dýra-
hjálp heldur úti heimasíðu þar sem
hún auglýsir dýr fyrir fólk en
einnig eru samtökin með fóstur-
heimili fyrir dýr.
„Við auglýsum á heimasíðunni
okkar dyrahjalp.org og líka á Face-
book. Stundum getur fólk ekki
haft dýrið heima hjá sér þang-
að til við höfum fundið því nýtt
heimili og þá erum við með fóstur-
heimili til dæmis hér í Reykja-
vík, Keflavík, Selfossi og víðar,
þar sem dýrin geta verið í nokkra
daga eða vikur. Einnig tökum við
stundum við dýrum frá dýralækn-
um sem átt hefur að lóga en ekk-
ert amar að.“
Ásbjörg segir ýmsar ástæð-
ur fyrir því að dýr lendi undir
verndarvæng samtakanna. Stund-
um komi upp ofnæmi í fjölskyld-
um fyrir gæludýrinu svo það
verður að fara, eða í ljós komi að
fólk hafi hvorki tíma né getu til
að sinna gæludýri. Einnig segir
hún reglur um dýrahald í fjöl-
býlishúsum á Íslandi vera mjög
strangar svo fólk þurfi oft að láta
gæludýrin frá sér ef það flytur í
fjölbýli. Frá því að samtökin tóku
til starfa hefur því fjöldi gæludýra
fengið nýtt heimili.
„Við útveguðum um 300 dýrum
nýtt heimili á síðasta ári Ef við
þurfum að taka dýr í fóstur tökum
við vaktgjald fyrir það. Stundum
þurfum við líka að sendast eftir
dýrinu eða fara með það til dýra-
læknis og þá reynum við að safna
fyrir því. Um helgina verðum við
með fjölda dýra sem þurfa heimili.
Við hvetjum fólk til að koma endi-
lega við og vita hvort það sér ekki
sætustu kisu í heimi hjá okkur, eða
myndi einhver tengsl við eitthvert
dýranna og vilji taka það með sér
heim. Við erum að leita að fólki
sem er tilbúið til að veita dýrinu
heimili til framtíðar.“
heida@frettabladid.is
Nýtt heimili og athvarf
Dýrahjálp Íslands stendur fyrir ættleiðingardögum í Garðheimum nú um helgina. Þar gefst dýravinum
tækifæri til að eignast dýr sem þarf á heimili að halda en hefur verið í fóstri hjá Dýrahjálpinni.
Ásbjörg Una Björnsdóttir og Helena Rafnsdóttir með hundana sína en Helena fékk einmitt hundinn sinn gegnum Dýrahjálp.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LAUGAVEGUR
Langur
laugardagur
Frábær tilboð
í Ecco búðinni
68994 00222
Litir: Brúnt
Stærðir: 40-47
Verð: 9.995
68994 00201
Litir: Svart
Stærðir: 40-47
Verð: 9.995
68993 00201
Litir: Svart
Stærðir: 36-42
Verð: 9.995
68973 22152
Litir: Hvítt
Stærðir: 36-42
Verð: 9.995
68993 02152
Litir: Hvítt
Stærðir: 36-42
Verð: 9.995
68974 02114
Litir: Brúnt
Stærðir: 40-47
Verð: 9.995
65383 00101
Litir: Svart
Stærðir: 36-41
Verð: 7.995
68973 00201
Litir: Svart
Stærðir: 36-42
Verð: 9.995
68974 00201
Litir: Svart
Stærðir: 40-47
Verð: 9.995
65503 00101
Litir: Svart
Stærðir: 36-42
Verð: 6.995
Auglýsingasími