Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 4. apríl 2009 57
1. KEILIR – AÐALBYGGING
Miðstöð fræða, vísinda og atvinnulífs
á Reykjanesi sem mun bjóða upp á
nám í fjórum mismunandi skólum:
Heilsu- og uppeldisskóla, Orku- og
tækniskóla, Skóla skapandi greina og
Samgöngu- og öryggisskóla. Fyrsti
árgangurinn mun ljúka námi við skóla
skapandi greina í haust, en orku- og
tækniskólinn hefur starfsemi næsta
haust. Markmiðið er að þessi miðstöð
þekkingar verði drifkraftur vaxtar
í framtíðinni. Keilir er ekki háskóli
heldur er ætlunin að byggja upp
fyrirtækjafélag um menntauppbygg-
ingu á svæðinu.
2. ELDEY
Samstarf Keilis, NMÍ, HÍ og Þróunar-
félags Keflavíkurflugvallar. Sjö
fyrirtæki hafa starfsemi í húsinu,
þar á meðal orkufyrirtæki, og fleiri
fyrirtæki eru væntanleg í Eldeyjar-
húsið. Að sögn Óla Arnar Eiríkssonar,
verkefnastjóra Kadeco, nefnist eitt
þeirra fyrirtækja sem hafa aðsetur í
húsnæðinu Hydro-boost technology,
og framkvæmdastjóri þess er Jóhann
Benediktsson, fyrrum sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli.
Frumkvöðlasetur er staðsett í Eld-
eyjarhúsinu auk Orku- og tækniskóla
og Samgöngu- og öryggisskóla Keilis.
3. VIRKJUN
Aðstaða til að þróa nýjar atvinnuhug-
myndir og koma þeim í framkvæmd
í gegnum Eldey, og Nýsköpunarmið-
stöð hjá Keili. Samstarfsverkefni allra
sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Markmiðið er að einstaklingar njóti
hér ráðgjafar á sviði atvinnumála, fjár-
mála, heilsu, sálfræði- og félagsþjón-
ustu. Þeir séu studdir til sjálfshjálpar
og hvatt sé til samstarfs í fjölskyldu-
verkefnum, til að mynda heimilishaldi
og heimanámi.
4. GAGNAVER VERNE GLOBAL
Verne Global áætlar að byggja fyrsta
græna gagnaverið á þessum stað.
Upphaf framkvæmda mun vera á
næsta leiti. Forstöðumenn fyrirtækisins
hafa gert samning um að fyrsta verk-
efni gagnaversins verði lokið í árslok
2010 og ætlunin er að standa við þær
skuldbindingar. Verne Global er í eigu
Novators og bandaríska fjárfestingar-
fyrirtækisins General Catalyst. Áætlað
er að verið muni kosta um tuttugu
milljarða króna í framkvæmd. Áætlað-
ur starfsmannafjöldi er um 100 manns
og er Verne Global þegar byrjað að
auglýsa eftir starfsmönnum.
5. KVIKMYNDAVER ATLANTIC FILM
STUDIOS
Til stóð að AFS festi kaup á þessu
húsnæði, sem er kvikmyndaver á
Íslandi. Lausafjárkreppan kom hins
vegar í veg fyrir að svo yrði og voru
þess í stað gerðir samningar þess
efnis að AFS leigði húsnæðið um
óákveðinn tíma. Inni- og sjávartökur
fyrir kvikmyndina Reykjavík Whale
Watching Massacre fóru fram í mynd-
verinu í ágúst og september 2008.
Enn þarf að gera nokkrar lagfæringar
á húsnæðinu, en áhugasamir kaup-
endur skoða verið reglulega, að sögn
Óla Arnar Eiríkssonar, verkefnastjóra
Kadeco.
6. OFFICERA-KLÚBBURINN
Þessi sögufrægi staður hefur farið í
gegnum yfirhalningu undir forystu
Einars Bárðarsonar og Atla Rúnars
Hermannssonar. „Ég lít á það sem
mikið traust að Kadeco fái okkur til
að sjá um Officera-klúbbinn. Þetta er
án efa sá dansstaður á landinu sem
flestir þekkja en fæstir hafa fengið
tækifæri til að komast inn á. Þarna
eru miklir salir og stórir barir og
skemmtileg fundarherbergi þannig að
við hlökkum til að slá aftur til veislu
þarna,“ sagði Einar Bárðarson við
undirritun samningsins við Kadeco í
febrúar síðastliðnum.
7. FJÖRHEIMAR
Félagsmiðstöð þar sem fram fer
æskulýðsstarf í samvinnu við grunn-
skóla Reykjanesbæjar. Félagsmið-
stöðin þjónar öllum aldurshópum en
sérstök áhersla er lögð á skipulagt
starf fyrir unglinga 13-16 ára. Félags-
miðstöðin er rúmlega 1.400 fermetrar
á einni hæð.
8. DETOX JÓNÍNU BEN
Detox ehf., Heilsufélag Reykjaness og
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar skrif-
uðu í gær undir samstarfssamning um
uppbyggingu á detox-meðferðarstöð
á Ásbrúar-svæðinu. Þetta samkomu-
lag á að marka upphaf að heilsuþorpi
sem ætlað er að rísa á svæðinu. Í
fréttatilkynningu segir að meðferðar-
stöðin verði opin allan ársins hring,
allan sólarhringinn.
10. ÍÞRÓTTAVELLIR
Samstarfsverkefni Keilis, Reykjanes-
bæjar og Kadeco. Íþróttaaðstaða fyrir
íbúa á Ásbrúarsvæðinu sem inni-
heldur meðal annars stóran íþrótta-
sal, lyftingasal og veggjatennissal.
Handknattleiksfélag Reykjaness, sem
stofnað var síðastliðið haust, leikur
heimaleiki sína í þessu húsnæði.
Þar er einnig starfræktur Ballettskóli
Bryndísar Einarsdóttur, sá eini sinnar
tegundar á Reykjanesi. Notkun íbúa á
húsnæðinu hefur farið ört vaxandi að
undanförnu.
11. HÁSKÓLAVELLIR
Stærsti háskólagarður landsins með
yfir 2.000 íbúum. Keilir hefur umsjón
með útleigunni. Samkvæmt könnun
Capacent eru 92 prósent leigjenda
ánægðir með íbúðina sem þeir hafa
leigt á Vallarheiðinni.
12. TÓMSTUNDATORG
Hugmyndin að baki Tómstunda-
torginu er að glæða nýtt miðsvæði
bæjarlífsins lífi, auk þess að styðja
við starfsemi Virkjunar, efla starf-
semi Listasmiðjunnar og Fjörheima
og styðja rekstrargrundvöll nýrra
þjónustuaðila svæðisins. Þar á meðal
annars að með inni- og útileiksvæði,
spark – og leikvelli, og samstarfi við
Golfklúbb Suðurnesja.
UPPTAKA Kvikmyndaverið er stærsta
sinnar tegundar á Íslandi.
GAMAN Innileikvöllurinn á Tómstunda-
torginu.
BOCCIA Eldri borgarar iðka íþróttir í
salnum.