Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 6
6 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Með þéttingu gjald-
eyrishaftanna hafa Íslending-
ar sjálfir viðurkennt að krónan
er ekki gjaldgeng í alþjóðavið-
skiptum,“ segir Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Hann bætir við
að hagkerfinu
sé í æ meiri
mæli stefnt inn
á braut efna-
hagslegrar ein-
angrunar sem
get i rey nst
sársaukafullt að
brjótast út úr.
Viðskiptaráð
sendi í gær frá sér harðorða skoð-
un þar sem segir að staðan í gjald-
eyrismálum sé óviðunandi. Þar
segir að krónan sé rúin trausti
á alþjóðlegum fjármálamörkuð-
um eftir þrot bankanna í fyrra og
með inngripi stjórnvalda á gjald-
eyrismarkaði með setningu víð-
tækra hafta.
Höftin takmarki verulega
umsvif íslenskra fyrirtækja
erlendis og getu landsins til
utanríkis viðskipta. Þá sé ekki
ljóst hvernig krónan verði losuð
úr viðjum þeirra án þess að því
fylgi verulegt gengisfall með til-
heyrandi áföllum fyrir hagkerfið.
Lausn á vandamálinu sé mikil-
vægasta viðfangsefnið í dag enda
muni örlög heimila og atvinnulífs
að miklu leyti ráðast af gengis-
þróun næstu missera.
Viðskiptaráð telur haftastefn-
una ekki duga til að koma í veg
fyrir fjármagnsflótta. Máli skipti
að sannfæra innlenda aðila um
að betri tímar séu fram undan.
Stjórnmálamenn gegni lykilhlut-
verki til að skapa trúverðuga
og ákjósanlega framtíðarsýn í
efnahags málum.
Upptaka annarrar myntar hér
á landi, í fullri sátt og samráði
við alþjóðasamfélagið, geti orðið
verulega til bóta fyrir innlend-
an efnahag, jafnt til skemmri og
lengri tíma. „Í raun stendur valið
ekki lengur á milli áframhaldandi
sjálfstæðrar peningastefnu og
upptöku annarrar myntar, heldur
má færa gild rök fyrir því að valið
standi einfaldlega á milli upptöku
annarrar myntar eða framhalds á
núverandi stöðu,” segir Viðskipta-
ráð.
jonab@markadurinn.is
Krónan rúin trausti
Viðskiptaráð segir gjaldeyrishöftin stefna þjóðinni inn á braut einangrunar.
Sársaukafullt getur reynst að brjótast undan þeim, segir framkvæmdastjórinn.
Ráðið telur haftastefnuna ekki duga til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta.
FINNUR ODDSSON
„Ég deili þessari skoðun með Viðskiptaráði. Við verðum
að brjótast út úr gjaldeyrishöftunum sem allra fyrst. Til
að það sé hægt verður að létta þrýstingi af krónunni,“
segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að
hafa ekkert orðið ágengt í þeim brýnu efnahagslegu
aðgerðum sem hún boðaði við stjórnarskiptin. Þvert á
móti hafi aðstæður þróast á verri veg. „Ég geri orð Við-
skiptaráðs frá 2006 að mínum: Við eigum enga valkosti
í gjaldmiðilsmálum fyrr en við náum hér stöðugleika og
jafnvægi,“ segir Bjarni.
BJARNI
BENEDIKTSSON
SÖMU SKOÐUNAR OG VIÐSKIPTARÁÐ
UMRÆÐUR Á ALÞINGI Í vikunni samþykkti Alþingi ný lög sem herða á gjaldeyris-
höftunum. Lögunum er ætlað að tryggja styrkingu krónunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Telur þú að hvalveiðar muni
eyðileggja uppbyggingu hvala-
skoðunarfyrirtækja?
Já 24,3%
Nei 75,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að einelti í íslenskum
grunnskólum sé vanmetið
vandamál?
Segðu skoðun þína á vísir.is
FÓLK Rauðri málningu var í gær
skvett á hús Hannesar Smára-
sonar á Fjölnisvegi. Sjálfur var
Hannes ekki heima þegar spjöllin
voru unnin en starfslið hans kall-
aði skjótt til málara til að lagfæra
skemmdirnar.
Við Fréttablaðið kvaðst starfs-
liðið telja að síður bæri að greina
frá þessum atburði opinberlega
þar sem það virtist einmitt vera
það sem skemmdarvargurinn von-
aðist eftir.
Eins og kunnugt er hefur Hann-
es ásamt fleirum kaupsýslumönn-
um legið undir ámæli í opinberri
umræðu eftir hrun íslenska fjár-
málakerfisins. - gar
Skemmdarverk unnið á einbýlishúsi fyrrverandi milljarðamærings á Fjölnisvegi:
Málningu skvett á hús Hannesar
Á FJÖLNISVEGI Málari var strax fenginn
að húsi fjölskyldu Hannesar Smárasonar
á Fjölnisvegi til að afmá rauða málningu
sem skvett var á húsið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
OPNUM Í DAG
KOSNINGAMIÐSTÖÐ
Í TRYGGVAGÖTU 11,
REYKJAVÍK.
Kaffi og kökur
Frambjóðendur taka á móti gestum
kl. 16-18.
Ellen Kristjánsdóttir syngur.
ALLIR VELKOMNIR
OPNUM SUNNUDAG
KOSNINGAMIÐSTÖÐ
Í KRAGANUM,
HAMRABORG 1-3,
KÓPAVOGI.
Kaffi og kökur
Frambjóðendur taka á móti gestum
kl. 14-16.
Guðrún Gunnarsdóttir syngur.
ALLIR VELKOMNIR
KOSNINGAR Á kjörskrá vegna
alþingiskosninganna í apríl eru
227.896 kjósendur, þar af eru
konur 114.295 en karlar 113.601.
Konur eru því 694 eða 0,6 pró-
sentum fleiri en karlar, að því er
fram kemur í tölum frá Hagstof-
unni. Í kosningunum 2007 voru
221.330 á kjörskrá. Fjölgunin
nemur 3,0 prósentum.
Kjósendur með lögheimili
erlendis eru 9.924 og hefur þeim
fjölgað um 1.131 frá síðustu
alþingiskosningum eða um 12,9
prósent. Þeir sem vegna aldurs
fá nú að kjósa í fyrsta sinn til
Alþingis eru 9.398 eða 4,1 prósent
af kjósendatölunni. - kg
Kosningatölur frá Hagstofu:
700 fleiri konur
á kjörskránni
BANKAHRUNIÐ Útlán til hundrað
stærstu skuldara föllnu viðskipta-
bankanna var um helmingur heildar-
útlána þeirra. Því er ljóst að um 300
aðilar hafa fengið að láni þúsundir
milljarða í því ljósi að heildar eignir
bankanna, sem að stórum hluta eru
útlán, námu tífaldri landsfram-
leiðslu þegar mest var.
Rannsóknarnefnd Alþingis
vinnur nú að frekari greiningu á
útlánum bankanna og þróun þess-
ara lána með tilliti til trygginga og
í hvað verið var að lána.
Þetta og önnur vinna nefndar-
innar var kynnt forseta Alþingis,
formönnum flokkanna og forsætis-
nefnd Alþingis í gær.
Nefndin hefur aflað gagna frá
bönkunum og Fjármálaeftirlit-
inu og fengið skýrslur frá endur-
skoðendum sem falið var að skoða
starfsemi bankanna síðustu misser-
in fyrir hrun þeirra.
Er nú unnið að frekari greiningu
á útlánum og annarri fyrirgreiðslu
sem bankarnir veittu, sérstaklega
á árunum 2007 og 2008 eða fram að
falli þeirra.
Rannsóknin beinist bæði að fyrir-
greiðslu sem veitt var hér á landi
og í útibúum og dótturfélögum sem
tilheyrðu viðkomandi samstæðu í
öðrum löndum.
Rannsóknarnefndin hefur, auk
þess að athuga sérstaklega við-
skipti með hlutabréf og stofnfjár-
hluti í fjármálafyrirtækjum, lagt
grunn að því að gera með rafrænum
hætti úttekt á hlutabréfaviðskiptum
í Kauphöll Íslands á síðustu árum.
- shá
Stærstu skuldarar gömlu viðskiptabankanna fengu helming heildarútlána:
Fáir fengu þúsundir milljarða
RANNSÓKNARNEFND ALÞINGIS Tryggvi
Gunnarsson, Páll Hreinsson og Sigríður
Benediktsdóttir.
KJÖRKASSINN