Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 4. apríl 2009 35 borð við Norðmenn telja að það sé kominn tími til að endurmeta for- gangsröðunina. „NATO virðist í augum almennings vera stofnun sem tekur syni okkar og sendir þá til Afganistans,“ hefur The Econ- omist eftir Espen Barth Eide, aðstoðarvarnarmálaráðherra Noregs. Að beina meiri athygli að verkefnum á og nær heima- velli gæti bætt tengsl NATO við hinn almenna borgara í Evrópu, og aukið í framhaldinu stuðning við verkefni „utan svæðis“, að mati Barths Eide. Slíkir „ný-hefðarsinnar“ vilja að stefnumótendur í hernaðar- höfuðstöðvum NATO í Belgíu, SHAPE (Supreme Headquart- ers Allied Powers Europe), setji saman trúverðugar áætlanir um varnir landamæra Evrópu og loft- og hafsvæðanna í kring. Norðurslóðamál á dagskrá? Norðmenn, ásamt Íslending- um, Dönum og fleiri bandalags- þjóðum með hagsmuni í Norður- höfum, eru mjög áfram um að slíkar áætlanir séu til fyrir norður slóðir, þar sem ísbráðnun, hugsanleg opnun nýrra skipa- leiða og aðgengi að olíu- og gasl- indum kalla á grundvallarendur- mat á hernaðarlegu mikilvægi þessa svæðis fyrir bandalagið í heild. Á NATO-þingi sem fram fór í Reykjavík í vetur kom fram mikill vilji til að NATO gæfi norð- urslóðum meiri gaum. Athyglis- vert verður að sjá hvort þess mun sjá merki í lokaályktun afmælis- leiðtogafundarins í dag. Sumir innan bandalagsins óttast að slíkar ályktanir myndu minna um of á „víglínur“ kalda stríðsins og yrðu af hálfu Rússa túlkaðar sem ögrun. Að mati Barths Eide eru slíkar áætlanir og heræfing- ar á grunni þeirra hins vegar til þess fallnar að hindra NATO í að bregðast of hart við ef til spennu- ástands skyldi koma. Fjallað verður um jafnvæg- ið milli verkefna NATO heima fyrir og „utan svæðis“ í „Álykt- un um öryggi bandalagsins“ sem á að samþykkja á leiðtogafundin- um í dag. Þessi ályktun á að skapa grunninn að betur útfærðri áætl- un um varnarkerfi NATO sem síðan á að leggjast fyrir næsta leiðtogafund að ári. Óbreytt aðdráttarafl Rússneski forsetinn Dmítrí Med- vedev, sem Obama og fleiri af voldugustu NATO-leiðtogunum hittu á G20-fundinum í Lundún- um, varaði þá við því að opna á frekari stækkun NATO. Það fer ekkert á milli mála að með þessu er átt við að Rússar muni taka því mjög illa ef frekari skref skyldu verða stigin í átt að því að veita fyrrverandi Sovétlýðveldun- um Úkraínu og Georgíu aðild að bandalaginu. Hvað sem ákveðið verður í því efni þá mæta leiðtogar tveggja annarra fyrrverandi austurblokk- arlanda, Albaníu og Króatíu, sem fulltrúar nýrra NATO-ríkja á leið- togafundinn. Viðvarandi aðsókn nýrra ríkja inn í bandalagið virðist því stað- festa að það er enn eitt af kjöl- festusamtökum vestræns sam- starfs, þótt hlutverk þess sé orðið óskýrara en það var í upp- hafi kalda stríðsins fyrir sex ára- tugum. Á VAKT VIÐ HINDUKUSH Áhöfn bandarísks herjeppa á vakt við veg í Nuristan-sýslu í Afganistan í gær. Hjálparstofnanir vöruðu við því að fyrirhuguð fjölgun bandarískra hermanna í Afganistan myndi sennilega leiða til fleiri dauðsfalla meðal óbreyttra borgara. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, staðfesti í gær að hann gæfi kost á sér til að taka við embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Þar með batt hann enda á vangaveltur sem staðið hafa yfir vikum saman. Þar sem Fogh virðist vera án keppinauta um hið áhrifamikla embætti hafa líkur aukist til muna á því að hann verði formlega útnefndur arftaki Hollendingsins Jaap de Hoop Scheffer á afmælisleiðtogafundi NATO í Strassborg í dag. Það sem helst stendur í vegi fyrir því er að ráða- menn í Tyrklandi eru ósáttir við framboð hans. Er þá óánægju Tyrkja að rekja til þess er hann neitaði í nafni tjáningar frelsis að beita ríkisvaldinu til að banna birtingu skopteikninga af Múhameð, spámanni múslima, í dönsku dagblaði, og neitaði að biðja múslima heims afsökunar á að hið danska dagblað skyldi hafa birt teikningarnar. Þá er Tyrkjum einnig uppsigað við Fogh fyrir að hann skyldi ekki vilja verða við beiðni Tyrklandsstjórnar um að banna útsendingar kúrdískrar útlagasjón- varpsstöðvar frá Danmörku. Í þriðja lagi eru Tyrkir ósáttir við að Fogh skuli hafa gagnrýnt horfur á að Tyrkir fengju aðild að Evrópusam- bandinu. Vangaveltuvélin um valið á eftirmanni Jaap de Hoop Scheffers bendir líka á að val Foghs í embætti kynni að falla illa í kramið í Kreml og þannig ekki vera til þess fallið að hjálpa til við að bæta samskipti NATO við Rússa. Ástæðu þess er að rekja til þess að Fogh neitaði að framselja téténskan uppreisnarmann, sem sótti ráðstefnu í Kaupmannahöfn haustið 2002. Vladimír Pútín, núverandi forsætisráðherra Rússlands og þáverandi forseti, brást við með því að aflýsa áformaðri heimsókn til Kaupmannahafnar, þar sem til stóð að hann mætti á leiðtogafund ESB. Sá fundur var því færður til Brussel. ➜ ANDERS FOGH Í FRAMKVÆMDARSTJÓRANN ANDERS FOGH RASMUSSEN www.kaupthing.is Til fyrrum viðskiptavina SPRON og Netbankans Ágæti viðskiptavinur Fjármálaeftirlitið yfirtók SPRON vegna fjárhagsörðugleika 21. mars 2009 og setti skilanefnd yfir rekstur SPRON. Samhliða yfirtökunni gerðu stjórnvöld samkomulag við Nýja Kaupþing um að innlánsreikningar fyrrum viðskiptavina SPRON og Netbankans færðust yfir til Nýja Kaupþings. Ég vil því bjóða fyrrum viðskiptavini SPRON innilega velkomna í hóp viðskiptavina Nýja Kaupþings. Yfirfærsla innlánsreikninga tókst vonum framar Starfsfólk Nýja Kaupþings hefur lagt nótt við nýtan dag til að tryggja að fyrrum viðskiptavinir SPRON og Netbankans verði sem minnst varir við þessa yfirfærslu. Það hefur tekist vonum framar. Nýir viðskipta- vinir bankans hafa t.d. getað notað greiðslukort sín og haft fullan aðgang að netbönkum. Þá hefur Nýja Kaupþing ráðið til sín um tuttugu fyrrum starfsmenn SPRON. Ákvörðun skilanefndar SPRON Til að tryggja viðskiptavinum heildstæða þjónustu lagði Nýja Kaupþing áherslu á að fá einnig að þjónusta þau útlán sem SPRON og Netbankinn höfðu veitt viðskiptavinum sínum. Til að sinna útlánaþjónustu þarf aðgang að ákveðnum upplýsingakerfum. Því miður hafnaði skilanefnd SPRON beiðni Nýja Kaupþings um slíkan aðgang en gerði þjónustusamning vegna útlána við þriðja aðila. Við í Nýja Kaupþingi teljum þetta miður og hörmum að ákvörðun hafi ekki verið tekin með heildarhagsmuni fyrrum viðskiptavina SPRON og Netbankans að leiðarljósi. Meginmarkmið okkar er að tryggja rétt til eðlilegra bankaviðskipta Nýja Kaupþing hefur lagt kapp á að finna farsæla lausn með stjórnvöldum. Það er meginmarkmið okkar að nýjum viðskiptavinum Nýja Kaupþings verði tryggður réttur til eðlilegra bankaviðskipta og þeir verði fyrir sem minnstum óþægindum vegna breyttra aðstæðna á íslenskum fjármálamarkaði. Reykjavík, 4. apríl 2009 Með góðri kveðju, Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings banka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.