Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 92
4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Sunnudaginn 19. apríl kl. 14 og
sumardaginn fyrsta 23. apríl kl. 14
Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögum
Vilborgar Dagbjartsdóttur. Fyrir áhorfendur á aldrinum 1-7 ára
21. mars - 24. maí
Myrkur sannleikur Kolanámumenn í Kína
Ljósmyndasýning Cinziu D’Ambrosi
www.cinziadambrosi.com
2009
Girnilegur hádegismatseðill
Í Gerðubergi er góð aðstaða fyrir ráðstefnur, fundi
og veislur. Kynnið ykkur þjónustuna á gerduberg.is
og galleryfiskur.is
Opið virka daga frá kl. 10-16 og um helgar frá kl. 13-16
21. mars - 3. maí
Draumsýnir
Magnús H. Gíslason, alþýðulistamaður
sýnir landslagsmyndir
„Heyrðist eins og harpan væri að gráta”
Sýning á brúðum Leikbrúðulands úr Völsungasögu
hefur verið framlengd um óákveðinn tíma
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
Menningarmiðstöðin verður lokuð yfir páskana frá 9. - 13. apríl
www.moguleikhusid.is
Aðgangseyrir kr. 1.500
Miðasala í síma 555 2222 og á
frumsýnt 4. apríl í Hafnarfjarðarleikhúsinu
miðasala á midi.is eða í síma: 555 2222
ég og vinir mínir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Í gær hófst Páskaævintýri á
Akureyri með fjölda við-
burða af ýmsu tagi á menn-
ingarsviðinu. Páskaævin-
týri stendur til 13. apríl.
Áhugamenn um tónlistarupp-
lifun eru ekki sviknir nyrðra:
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
heldur á skírdag stórtónleika. Þá
mun hljómsveitin ásamt Kór Gler-
árkirkju og félögum úr Kammer-
kór Norðurlands flytja Gloríu eftir
Vivaldi. Einnig eru á efnisskránni
verkið Canon eftir J. Pachelbel og
Svíta nr. 3. í D-dúr e. J.S. Bach.
Kammerkórinn Hymnodia verð-
ur með miðnæturtónleika í Akur-
eyrarkirkju á föstudaginn langa
þar sem flutt verður píslarvotta-
tónlist eftir Pergolesi og Charp-
entier.
Á Græna hattinum verður þétt
og góð tónlistardagskrá alla pásk-
ana þar sem fram koma m.a. Guð-
rún Gunnarsdóttir, hljómsveitin
Mannakorn og Hvanndalsbræð-
ur. Á Hótel KEA verða svo tón-
leikar með þeim félögum Stefáni
Hilmarssyni og Eyjólfi Kristj-
ánssyni.
Í leiklistinni er nóg í boði: Leik-
félag Akureyrar sýnir Fúlar á
móti og Skoppu og Skrítlu. Tenór-
inn stingur upp kollinum með eina
sýningu í samkomuhúsinu á föstu-
daginn langa. Sýningin Opnunar-
hátíð Valhalla Bank er líka allrar
athygli verð og rétt fyrir utan
Akureyri sýnir Freyvangsleikhús-
ið verkið Vínlandið og Leik félag
Hörgdæla sýnir farsann Stundum,
stundum ekki.
Í Listagilinu verða gallerí og
Listasafnið opið en þar er nú uppi
athyglisverð sýning fimm kvenna
sem hafa allar lagt sig eftir
abstraktmálverkinu: Kenjóttar
hvatir. Auk þess opna nokkur gall-
eríanna nýjar sýningar. Í Jónas
Viðar Gallery er opnuð árleg
páskasýning, í Laxdalshúsi sýning-
in Förumenn og flakkarar og Anna
Richards bæjarlistakona opnar
sýningu í GalleríBOX auk þess
sem hún mun bjóða upp á konfekt
fyrir augu og eyru í Ketil húsinu.
Um djarfa tilraunastarfsemi er að
ræða þar sem ýmsar listgreinar
mætast.
Hlíðarfjall er opið alla páskana.
Áhugamönnum um hreyfingu þarf
ekki að segja af frábærri aðstöðu
í Hlíðarfjalli, sundlauginni og
góðum gönguleiðum. Þeim sem
hafa gaman af þjálfuðum skrokk-
um er bent á að Íslandsmótið
í fitness og vaxtarrækt hefst í
Íþróttahöllinni á Akureyri föstu-
daginn langa og stendur fram á
laugardag. Frekari upplýsingar
er að finna á heimasíðunni www.
visitakureyri.is pbb@frettabladid.is
Fjölbreytt hátíð á Akureyri
MENNING Frá sýningu Listasafns Akureyrar, Kenjóttar hvatir. MYND/LISTASAFN AKUREYRAR