Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 75
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr.
Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr.
Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.500 kr.
London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr.
München . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
New York . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr.
Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 30.130 kr.
Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr.
Seattle . . . . . . . . . . . . . . . . frá 49.980 kr.
Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr.
Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr.
*Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum.
Besta verðið okkar*
+ Bókaðu á www.icelandair.is
Allt verð miðast við lægsta verð í verðskrá
og getur á einhverjum tímapunkti verið uppselt.
Í Halifax eru meira en 450 veitinga- og
matsölustaðir, skyndibitastaðir, staðir sem bjóða
mat frá öllum heimsins hornum og fínir veitinga-
staðir sem kenndir eru við „haute cuicine“.
Innlend matargerð hefur þegið ýmislegt frá
öðrum menningarsvæðum og fjölbreytnin er svo
mikil að allir hljóta að finna eitthvað við sitt hæfi.
Seven
Við Grafton Street; gott andrúmsloft og bar.
Di Maurizio
Við Lower Water Street; kannski notalegasti
veitingastaðurinn í bænum.
Cobequid-flóa inn af Fundy-flóa. Þarna er mesti
munur flóðs og fjöru sem þekkist í heiminum,
verður allt að 15 metrar við smábæinn Economy
á norðurströnd fjarðarins. Ævintýraferðir í
gúmbátum þegar flæðir að og sjórinn geysist að
landi líkt og straumhart fljót. Sérstæðar
jarðmyndanir og steingervingar. Fundy Geologi-
cal Museum í Parrsboro og Joggins Fossil
Centre í Joggins við Chignecto-flóa.
CAPE BRETON ISLAND
Þessi ökuleið, sem margir telja eina af hinum
fegurstu í Norður-Ameríku, er ásamt fjórum
öðrum merktum ferðamannaleiðum á Cape
Breton Island, austur af meginlandi Nova Scotia.
Cabot-leiðin liggur með fram ægifagurri
ströndinni og yfir fjalllendið fram hjá Cape-
Breton þjóðgarðinum þar sem bjóðast ótal
möguleikar til gönguferða og útivistar í
stórbrotnu umhverfi. Í Baddeck er stórt
minningarsafn um uppfinningamanninn
Alexander Graham Bell.
AUSTURSTRÖNDIN (THE EASTERN SHORE)
Hún liggur með fram ströndinni milli Halifax og
Cape Breton Island. Heillandi fiskimannaþorp á
vogskorinni strönd, baðstrendur og útvistar-
svæði. Frá Musquodoboit Harbour er merkt
ferðamannaleið inn til landsins, upp í
Musquodoboit-dal, en á skógi vöxnum hálsum
sunnan þessa dals (Elgsheiðum) var hin
skammæja landnemabyggð Íslendinga
(„Markland“) á árunum 1875–1882.
SKEMMTILEGAR ÖKULEIÐIR
Ferðamálaráð Nova Scotia hefur látið merkja
nokkrar valdar ferðamannaleiðir, „Scenic
Travelways“, þar sem ferðamönnum er beint
af umferðarþungum aðalbrautum inn á eilítið
fáfarnari vegi sem þræða á milli áhugaverðra
og fallegra staða. Nánari upplýsingar um
þessar leiðir má t.d. fá á novascotia.com, en
hér eru taldar hinar helstu:
SUÐURSTRÖNDIN
(THE SOUTH SHORE)
Liggur með fram ströndinni frá Halifax vestur til
Yarmouth. Fallegir smábæir og fiskimannaþorp.
Stórt safn um sögu fiskveiða og siglinga á
þessum slóðum í Lunenburg.
ANNAPOLIS VALLEY OG FUNDY SHORE
Liggur með fram norðurströnd fylkisins frá
Yarmouth, um fyrrum frönsku Acadíu-héruðin
með fram Maríuflóa og eftir Annapolis-dal.
Ekið er með fram strönd Minas Basin og
DAGUR01 Komið til Halifax og gist þar
í eina nótt.
DAGUR02 Ekið til Peggy’s Cove og eftir
Suðurstrandarleiðinni. Gist í Wolfville.
DAGUR03 Ekið um Grand Pré
og Caribou til Pictou.
FLUG OG BÍLL
DÆMI UM FERÐATILHÖGUN
DAGUR04 Ekið frá Pictou til Cape Breton
eyjar og um Cape Breton-þjóðgarðinn.
Gist í Baddeck.
DAGUR05 Ekið frá Baddeck og eftir
Austurstrandarleiðinni til Halifax. Gist í Halifax.
DAGUR06 Tími til að skoða borgina, flogið
heim um kvöldið.
AX
Fid
Við Dresden Row; örugglega sá staður í Halifax
þar sem sköpunargleðin fær að njóta sín best
við matreiðsluna.
Gio
Í Prince George hótelinu; hlýlegur og með
sínum sérstaka blæ.
Bish
Við Bishop Landing.
Nánari upplýsingar á Netinu:
www.destinationhalifax.com
www.halifaxinfo.com
Veitingastaðir
Frábærar ferðir og útivistarmöguleikar á
www.destinationhalifax.com