Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 78
58 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR Eftirminnilegar fermingargjafir Tími ferminga er runninn upp og gjafirnar sem fermingar- barninu eru færðar geta allt eins átt sinn stað á heimili þess fram á fullorðinsár eða þá lent í ruslinu eftir tvo, þrjá flutn- inga. Júlía Margrét Alexandersdóttir rifjaði upp gamla pakka og fermingar með góðu fólki. Ég fermdist aldrei en engu að síður fékk ég tvær fermingar- gjafir. Önnur var bókin Íslenskir þjóðhættir sem frændi minn og kona hans færðu mér um svipað leyti og ég varð stúdent. Var gjöfin gefin með þeim formála að þau hefðu alltaf verið að bíða eftir að ég yrði fermd- ur en þeim fannst greinilega útséð loks þarna að ekkert yrði úr því. Góð frænka gafst hins vegar upp á biðinni eftir fermingarveislu fyrr og færði mér kúlupenna ári eftir að ég hefði átt að fermast. Þetta var ekki eins mikið tap fyrir mig og það leit út í fyrstu. Ég var hvað ánægðust með hljómflutningstæki sem ég fékk; Crown-plötuspilara og segulbands- tæki. Ég man að ég fékk líka svakalega mikið af stórum hringjum. Ég fatta hvað það er langt síðan þetta var þegar ég man eftir krullujárninu sem systir mömmu kom með til að nota við að setja í mig fermingargreiðsluna. Járnið þurfti að hita á eldavélarhellu. Eftirminnilegustu gjafirnar fékk ég frá foreldrum mínum – það sem alla drengi dreymdi um á þessum tíma – græjur með fullt af blikkljós- um. Á þessum tíma skipti hljóðið kannski ekki öllu máli en því betri voru græjurnar sem það voru fleiri ljós á þeim og því meiri hávaða sem þær gátu skapað. Ég fékk líka fjögurra vikna utanlandsferð til Danmerkur þar sem ég dvaldi einn hjá vinafólki mömmu og pabba rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Ég hafði þá ekki farið mikið til útlanda þannig að það var mikið sport. Ég fékk kass- ettutæki frá foreldrunum eins og var þá nokkuð klassískt og ýmsa skart- gripi og hluti sem allir eru löngu týndir þar sem ég hef örugglega flutt um HUNDRAÐ sinnum síðan þá. Ef ég gæti fengið einn af þessum hlutum aftur þá myndi ég velja lampa sem var í laginu eins og sveppur og var mjög vinsæl fermingar- gjöf þetta árið. Ég sé stundum svona lampa í gluggum á húsum sem ég keyri framhjá og þá sakna ég hans aðeins. Rúmið sem foreldrar mínir gáfu mér er eftir- minnilegasta fermingargjöfin. Það var mjög sætt, með púðum, en alveg pínulítið og örmjótt. Og í þessu örmjóa, pínulitla þrönga rúmi svaf ég fram eftir öllu. Ég valdi það sjálf út af púðunum. Það var með tveimur litlum skúffum sér og ég geymdi alls kyns leyndarmál í þeim skúffum, alls kyns ástarbréf og fleira. Þannig að rúmið mitt var líka í raun svona hirsla fyrir leyndarmál. Ég hef aldrei átt betra rúm. Ég fermdist ekki og fékk því engar eiginlegar fermingargjafir, heldur bara talsvert veglegri afmælis- og jólagjafir það árið. Meðal annars forláta Sinclair Spectrum tölvu sem ef til vill hefur átt þátt í að ég er tölvunarfræðingur í dag. Þetta voru því eins konar uppbótargjafir sem ég fékk það árið. Ég man ekki eftir einni einustu fermingar- gjöf sem ég fékk fyrir fjörutíu árum. Í þá daga náðu áhrif kaupmann- anna ekki vestur í djúp og þar fyrir utan neitaði presturinn að ferma mig. Þar til honum var fyrirskipað af biskupi að gera það. Þetta setti sinn svip á athöfnina. Við þetta má bæta að presturinn kom ekki fram eftir til okkar fyrr en viku fyrir athöfnina, setti mér fyrir, kom aftur tveimur dögum seinna og hlýddi mér ekki yfir neitt nema trúarjátninguna, sem var eins og bögglað roð fyrir brjósti mínu. Hins vegar talaði hann mikið um kynferðismál, aðallega til að láta mig roðna, en það var auðvelt í þá daga. Fyrir vikið tel ég mig trúleysingja og finnst mjög gott að vera laus úr viðjum stjórnseminnar sem kirkjan rígheldur í eins og hundur í roð. Margt af því sem ég fékk í fermingargjöf hefur lifað góðu lífi. Til dæmis sóma skrifborðið og stóllinn, sem ég fékk frá mömmu og pabba, sér vel í herbergi dóttur minnar í dag. Þrjár gjafir töluðu þó beint við hjartað í mér: Ferðataska, bakpoki og svefnpoki. Allt var þetta notað þar til það beinlínis datt í sund- ur enda kom það fljótt í ljós að þetta fermingar- barn vildi helst vera á stöðugu ferðalagi. Ég fermdist um hvítasunnu og fékk fullt af fínum gjöf- um. Meðal annars Ísfólksbækur númer 1-24, frá föðurafa mínum og móður- ömmu saman, ásamt forláta rafmagns- ritvél, sem var enn nauðsyn á þessum tíma. Ég hafði beðið um bækurnar, til að fullkomna Ísfólks- bókasafnið mitt, en ég hafði fengið þær lánaðar hjá stelpunni í næsta húsi, þangað til hún flutti. Fyrsta bókin í minni eigu, fram að fermingu, var því sú númer 25, sem var augljóslega ótækt. Svo þykir mér mjög vænt um bók af allt öðrum toga; Plöntuhandbókina, sem góður vinur minn gaf mér, þá á 99. aldursári. Hún á sinn stað í hillunni hjá mér, eins og Ísfólksbækurnar, en ritvélin er úti í skúr. Lítið notuð í seinni tíð. Mínar eftir- minnilegustu fermingargjafir voru annars vegar ritvél sem ég reyndar á ennþá og virkar vel (það er spurning hvort einhver á 28 ára gamla tölvu sem virkar) og hins vegar trompet. Ég notaði hvort tveggja mjög mikið, hamraði heilu ritbálkana á vélina og þrælaðist í gegnum bæði Mozart og Miles Davis á trompetinn. Það fór reyndar þannig fyrir hljóðfærinu að ég seldi það á drykkjuárum mínum og keypti jeppa fyrir peningana. Vélin í honum sprakk þegar ég var á leið út á land. Hvað kennir það manni? Jeppar sem eru keyptir fyrir andvirði trompeta eiga það til að springa. SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR FERMDIST ÁRIÐ 1981 FATAHÖNNUÐUR FERMDIST ÁRIÐ 1984 LINDA BJÖRG ÁRNADÓTTIR AUGLÝSINGAGERÐARMAÐUR FERMDIST ÁRIÐ 1981 ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON SAMSKIPTASVIÐI SAGA CAPITAL FERMDIST ÁRIÐ 1981 BRYNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR FERMDIST ÁRIÐ 1989 ÁSGEIR KOLBEINSSON RITHÖFUNDUR FERMDIST ÁRIÐ 1977 YRSA SIGURÐARDÓTTIR VEÐURFRÆÐINGUR HEFÐI ÁTT AÐ FERMAST ÁRIÐ 1979 HARALDUR ÓLAFSSON ÞÝÐANDI FERMDIST ÁRIÐ 1969 GÍSLI ÁSGEIRSSON BAGGALÚTUR HEFÐI ÁTT AÐ FERMAST ÁRIÐ 1987 KARL SIGURÐSSON STJÓRNMÁLAMAÐUR FERMDIST ÁRIÐ 1986 GUÐFRÍÐUR LILJA GRÉTARSDÓTTIR Sýning: Verðum með sýningu nú um helgina á glæsilegum íbúðum bæði í : Beykidal 6 Reykjanesbæ og Fossabrekku 21 Snæfellsbæ Laugardag og Sunnudag frá kl. 11 til 17 Nýtt sölufyrirkomulag á heimasíðu okkar. www.nesbyggd.is Pokaz: W najbliższy weekend przygotowujemy pokaz eleganckich mieszkań: Beykidalur 6 w Reykjanesbær oraz Fossabrekka 21 w Snæfellsbær, w sobotę i niedzielę w godz. od 11 do 17 Nowe zasady sprzedaży na naszej stronie internetowej www.nesbyggd.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.