Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI4. apríl 2009 — 82. tölublað — 9. árgangur
Tekist á um
framtíð NATO
60 ÁRA AFMÆLI 34
KANNABIS 36
FÓLK 94
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
VIÐTAL 60
Mín Borg
ferðablað Icelandair
fylgir með
Fréttablaðinu í dag.
GEYMIÐ BLAÐIÐ
Kári Stefáns son
með ljósmynda-
sýningu
Margt nei-
kvætt fylgir
banninu
LÍF OKKAR BREYTTIST
Á EINNI NÓTTU
Palestínskir flóttamenn á
Akranesi segja frá
VIÐTAL 28
TÓNLISTAR-
MAÐURINN
EBERG Í
YFIRHEYRSLU
DAGAR TIL PÁSKA
KR – Grindavík í dag kl. 16.00
apríl 2009
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
FRAMHALD Á BLS. 6
Pönnukökur á páskunum
Ragnhildur Lára Finnsdóttir
lumar á uppskrift að ljúf-
fengum blinis-pönnu-kökum sem henta í öll mál og við ýmis tæki-færi og hátíðleg tilefni eins og um páska.
Páskegg með konfekti Matgæðingurinn Elísa-bet Guðrún Jónsdóttir brá sér á námskeið í páskaeggjagerð og útbjó egg stútfullt af góðgæti.
BLS. 4
Litríkt yfir páskana
Listin við að útbúa litrík egg, saga páska-
hérans og annar skemmtilegur fróðleikur
sem tengist páskunum.
BLS. 2
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
B linis-pönnukökur eru þeim eigin-leikum gæddar að þær henta jafnt sem forréttur, aðalréttur og eftirréttur allt eftir því hvað sett er ofan á þær,“ segir Ragnhildur Lára Finnsdóttir, meistaranemi í blaða- og fréttamennsku, sem lætur lesendum Frétta-blaðsins í té hugmynd að skemmtilegum eftirrétti sem er hægt er að gæða sér á tím-unum saman. „Ég fékk uppskriftina hjá
fyrrverandi meðleigjanda mínum sem
er hálfur Færeyingur og hálfur Tékki.
Hún bar pönnsurnar fram með sultu,
rjóma, búðingi og niðurskornum ávöxt-
um. Ég týndi uppskriftinni hennar, sem
var með bókhveiti, en fann aðra sem
er líkari hefðbundinni pönnukökuupp-
skrift.“
Ragnhildur segir suma hafa kökurnar
á stærð við spælegg og að þá minni þær
mest á lummur. Henni finnst skemmti-
legra að hafa þær minni og miðar frekar
við tíkall. „Úr verða litlir munnbitar sem
fólk getur dundað sér við að raða ofan á
og tína upp í sig langt fram eftir kvöldi.“
Ragnhildur hefur líka borið kökurnar
fram sem forrétt en þá með reyktum sil-
ungi, sýrðum rjóma og dilli.
Ragnhildur hefur gaman af að bjóða
gestum í mat og hefur sankað að sér
ótalmörgum uppskriftabókum. Þá safn-
ar hún uppskriftum frá ættingjum og
vinum í stílabók og er sú bók í mestri
notkun. „Yfirleitt hef ég smakkað þessa
rétti og veit að þeir virka.“
- ve
heimili&
hönnun
LAUGAR
DAGUR
4. APRÍL
2009
KÓSÍ Í
KYRRÐINN
I
Steinunn
Aldís He
lgadóttu
r nýtur
lífsins í n
áttúrufeg
urð Álfta
ness.
BLS. 6-7
Á FERÐ U
M LANDI
Ð
Fyrirtækið
Síbyr he
fur sett
á markað
nýstárle
gt
fataheng
i þar sem
fyrirmyn
din er
landið sj
álft.
BLS. 2
EINU SIN
NI ER Han
dverk
og hönn
un opna
r sýning
u í
Safnahú
sinu á Sv
albarðs-
strönd í
dag. Þar
verða til
sýnis ve
rk eftir 2
4 lista-
menn.
BLS. 4
ÍSLENS
KA PAR
IÐ
Whirlpo
ol AWZ7
465
6kg tvíátt
a barkala
us ÞURRK
ARI með
6th Sense
rakaskyn
jara, 2 hit
astigum
og köldum
blástri. Ís
lenskur le
iðarvísir.
ÉL MEÐ
ÍSLENSK
U
BANKAHRUNIÐ „Útskrift af samtali
fjármálaráðherrans við íslenska
fjármálaráðherrann staðfestir
ekki að íslenska ríkisstjórnin hafi
haldið því fram að hún myndi ekki
virða skuldbindingar sínar,“ segir
í skýrslu nefndar breska þingsins
sem rannsakar meðal annars fall
íslensku bankanna og áhrif þess á
breskt efnahagslíf.
Skýrslan var gerð opinber
klukkan ellefu í gærkvöldi. Hún er
sú fyrsta af nokkrum sem munu
fjalla um fall íslensku bankanna
í Bretlandi.
Hér er vitnað til samtals sem
Árna Mathiesen, fyrrverandi
fjármálaráðherra, átti við starfs-
bróður sinn Alistair Darling
snemma dags 7. október síðast-
liðinn; daginn eftir að neyðarlög
voru sett og bankarnir hrundu.
Nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að beiting hryðjuverka-
laganna sé mjög gagnrýniverð
aðgerð. Einnig að í raun sé engin
löggjöf til sem geti tekið á viðlíka
vanda og kom upp í október.
„Við hvetjum fjármálaráðu neytið
til að íhuga hversu viðeigandi beit-
ing laganna væri við áþekkar
aðstæður í framtíðinni,“ segir í
skýrslunni. Kemur fram að önnur
löggjöf, sem ekki er eins harkaleg,
væri vænlegri. Eindregið er hvatt
til að slík löggjöf verði sett hið
fyrsta. Þá segir nefndin augljóst
að beiting hryðjuverkalaganna
hafi haft mikil áhrif á tilraunir
íslenskra stjórnvalda til að verja
íslenska bankakerfið falli.
Um atburðarásina í október
segir að aðgerðir Alistair Darling
til að vernda hagsmuni breskra
innistæðueigenda hafi haft mikil
áhrif á getu Kaupþings til að halda
velli. Hins vegar finnur nefndin
þess engin merki að líkur séu til að
Kaupþing hefði getað haldið áfram
starfsemi; sem hefur verið grund-
vallarágreiningur á milli breskra
og íslenskra stjórnvalda frá upp-
hafi. Ummæli Darlings gerðu
bresk stjórnvöld að virkum þátt-
takanda á markaði, sem er óheppi-
legt að mati nefndarmanna.
Ekkert er minnst á þung orð
Gordons Brown, forsætisráðherra
Breta, í garð Íslands í stærstu
fjölmiðlum landsins á þessum
tíma sem ollu deilu ríkjanna
frekar en nokkuð annað, sem er
nokkuð athyglisvert í ljósi gagn-
rýni á Darling og bresk stjórnvöld
almennt.
Nefndarmenn lýsa furðu sinni á
því að látlaus umfjöllun fjölmiðla
um íslenska banka fyrir banka-
hrunið hafi ekki orðið til þess að
ráðgjafar fjármálafyrirtækja
gerðu skjólstæðingum sínum
grein fyrir aukinni áhættu í við-
skiptum við þá. - shá
Darling rangtúlkaði orð
Árna segir bresk þingnefnd
Beiting hryðjuverkalaga gegn íslenskum fyrirtækjum er mjög gagnrýniverð aðgerð, segir rannsóknarnefnd
breska þingsins. Alistair Darling er sagður hafa rangtúlkað orð Árna Mathiesen í frægu símtali 7. október.
ÞAÐ EINA GLEÐILEGA HINGAÐ TIL
„Ef þetta er svona þá er þetta það eina gleðilega í
þessu öllu saman hingað til,“ sagði Árni Mathiesen
þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða hans í gærkvöldi.
„Þetta hjálpar okkur hins vegar lítið núna þegar þetta
er búið.“
Árni telur að þessi niðurstaða bendi til að bresk
stjórnvöld hafi verið meiri gerendur í bankafallinu en
almennt hafi verið talið.
ÖRLAGATÍMAR Örlagaríkt samtal Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, við Árna Mathiesen að morgni 7. október var talið hafa valdið því að Bretar gripu til hryðjuverka-
laga til að tryggja hagsmuni breskra þegna sem áttu fé á Icesave-reikningum Landsbankans. Árni sagði það hugsanlegt að ekki væri nægilegt fé til í tryggingasjóði innlána til
að tryggja innistæðurnar. Það túlkaði Darling sem svo að íslensk stjórnvöld ætluðu ekkert að borga. NORDICPHOTOS/AFP