Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 94
74 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Á níunda áratugnum naut hönnuðurinn Hervé
Leger mikilla vinsælda hjá ofurfyrirsætum
og kvikmyndaleikkonum, en hann varð fræg-
ur fyrir stutta og níðþrönga kjóla sem nefnd-
ust „bandage dresses“ og voru gerðir úr
eins konar vafningum úr þykku teygjuefni
sem gerðu heilmikið fyrir kvenlegan vöxt.
Hönnuðirnir Christopher Kane og Proenza
Schouler fengu hugmyndina að láni síðasta
sumar en þá slógu slíkar flíkur rækilega
í gegn. Hönnuðurinn Max Azria hefur
tekið við Leger-tískuhúsinu og sýndi
mjög flotta línu fyrir vor og sumar 2009
þar sem sítruslitir og svart voru áber-
andi. Einnig vakti sundfatnaðurinn mikla
athygli fyrir kynþokkafull snið. - amb
HERVÉ LEGER STIMPLAR SIG INN
Kynþokka-
fullir kjólar
FLOTTUR Sundbolur
fyrir konur með línur
frá Hervé Leger.
VAFNINGAR Efnis lítill
sundbolur í svörtu
frá Hervé Leger.
HVÍTT Sumar-
legur hvítur
þröngur kjóll.
SEXÍ Svartur stuttur kjóll með
áberandi munstri á hliðum.
GULT Fallegur,
stuttur og sexí
kjóll í sumarlit.
HNÉSÍTT Fallegur
pastellitaður kjóll
með sítrusívafi.
STUTT Þröngur
jakki og pils
minna mikið
á tísku níunda
áratugarins.
ELDRAUTT Sexý sumar-
flík frá Hervé Leger.
... þessi skær-
bleiki varalitur
frá Estée Lauder
kemur manni í
sumarskapið.
Nú tekur við hið skrýtna tímabil tískunnar þegar árstíðirnar fara að
breytast og íslenskar píur fara að lifa í þeirri sjálfsblekkingu að vorið
sé á næsta leiti. Það versta við þetta allt saman er að í raun og veru
kemur aldrei neitt almennilegt sumar, bara einhvers konar vor og
venjulega er maður hríðskjálfandi í röðinni fyrir utan Kaffibarinn þó
að það sé miður júlímánuður. Það er mér að minnsta kosti nokkuð ljóst
að allir þessir Hawaii-blómakjólar í anda Gucci eða víðar kvennabúrs-
buxur munu ekki birtast í fataskápnum mínum í vor. Norræni tísku-
tvíæringurinn er nýyfirstaðinn og það mátti sjá litríkar ljósmyndir af
stórglæsilegum stelpum í ævintýralega flottum fötum og ég verð alltaf
jafn impóneruð af flottum og frumlegum íslenskum stíl. Ég get ímynd-
að mér að margar þeirra séu þeim kostum gæddar að kunna á sauma-
vél og eigi ekki í erfiðleikum með að töfra fram dress eftir dress sem
er væntanlega skynsamlegur kostur eins og efnahagsstaða landsins er
í dag. Það kemur oftast mikill sorgarsvipur á vinkonur mínar þegar
talað er um tísku þessa dagana því enginn tímir að kaupa sér eitthvað
nýtt, hvað þá að kíkja í búðarglugga þegar freistingarnar eru margar
og lítið af peningum milli handanna. „Hvar finnur maður eiginlega
ódýr og flott föt,“ er alltaf viðkvæðið og eins leiðinlegt og mér þykir að
segja það þá er úrval af ódýrum fatnaði bara nokkuð slæmt hér í borg.
Ekki erum við komin með H&M, búðina sem allar konur elska, og ein-
hvern veginn er verðið á fötum úr tískuvörukeðjum óeðlilega hátt. Ef
maður hefur ekki efni á nýjum kjól eða flottu dressi við öll þessi partí-
tækifæri sem eru fram undan í vor, hvort sem það eru útskriftir eða
árshátíðir, þá klikkar samt aldrei að bæta nokkrum nýjum fylgihlutum
við. Einfaldur, þröngur svartur kjóll verður æðislegur við himinháa
hælaskó í flottum sterkum lit, rauður varalitur gerir kraftaverk, og
svo er hægt að vera sniðugur og nota til dæmis stóra slaufu til að
poppa upp á einfaldan kjól eða fá gamla flotta pelsslá lánaða. Það er
hægt að finna fínustu hælaskó í ódýrari búðum eins og Top Shop og
Zöru sem apa eftir nýjustu tísku og enginn sæi nokkurn tímann mun-
inn. Svo stendur nú „grunge“-rokk lúkkið alltaf fyrir sínu og þá þarf
maður ekki annað en gallabuxur, bol og leðurjakka og vænan skammt
af „attitude“.
Tíska fyrir lítinn pening
> KATE MOSS LÍNAN Á NETINU
Þeir sem geta ekki beðið eftir að nýja lína fyrir-
sætunnar Kate Moss komi í Top Shop geta nælt
sér í flíkur á www.topshop.com innan skamms.
Nýja línan fyrir sumarið 2009 er blanda af
blómamynstrum og rokki, algerlega í anda
tískudívunnar.
... flottustu skó í
bænum sem fást
í svörtu, bláu,
skærbleiku, gulu
og grænu í verslun-
inni Einveru á
Laugavegi.
... Body Excellence
Slim kremið frá
Chanel sem hjálpar til
við að koma manni í
form fyrir laugarnar í
sumar.
MÁL OG MENNING
www.forlagid.is