Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 52
„Við hefjum ferðina á slóðum land-
námsmanna á níundu öld og þar
verður skoðað ýmislegt áhugavert
eins og sverð og kuml með beina-
grindum.“ Þannig byrjar Helga á
að lýsa göngu sinni um grunnsýn-
ingu Þjóðminjasafnsins með börn-
um á aldrinum fimm til átta ára
sem boðið verður uppá á morgun
klukkan 14. Hefð er komin á slíka
leiðsögn fyrsta sunnudag hvers
mánaðar, nema yfir sumartímann,
og er fólki að kostnaðarlausu. Hún
bendir foreldrum á að fá sér kaffi
á meðan eða skoða aðrar sýningar
safnsins.
Helga segir börnunum sögur sem
tengjast því sem fyrir augu ber, til
dæmis um álfapott og gamla hurð
með útskornum myndum sem líkja
má við teiknimyndasögur nútímans.
„Við lítum líka á leikföng sem börn
léku sér með í gamla daga og ég
reyni að útskýra fyrir þeim hvern-
ig lífið í baðstofunni var,“ segir hún
og kveðst bæði sýna þeim mynd úr
baðstofu og ýmsa hluti sem tengjast
slíkri vistarveru.“ En fá börnin að
snerta hlutina sem hún sýnir þeim?
„Nei og þau eru ótrúlega dugleg að
stilla sig um það. Við segjum þeim
frá reglunum og yngri krakkarn-
ir virða þær ótrúlega vel. Auðvit-
að er freistandi að koma við hluti,
alveg eins og fyrir okkur fullorðna
fólkið.“
En hvað er það sem börnin
heillast mest af? „Það eru hinar
fornu beinagrindur af karli, konu
og barni og líka 1000 ára gamalt
skyr sem hefur varðveist í jörð og
er nú orðið að steingervingum.“
Leiðsögnin tekur um 45 mínútur
að sögn Helgu. Á eftir mælir hún
með að foreldrarnir gefi sér tíma til
að fylgja börnunum um ljósmynda-
sýningu sem heitir Þrælkun, þroski,
þrá og birtir myndir af börnum við
vinnu, bæði á sjó og landi á árun-
um 1930 til 1950. Einnig bendir hún
á sýninguna Endurfundir í kjallar-
anum. Þar er afrakstur fornleifa-
funda á kirkjustöðum og klaustr-
um á Íslandi. Sýningin er hönnuð í
barnahæð, kíkjugöt eru lág og þar
eru borð sem börn geta setið við,
búið til líkön af gömlum verslunar-
stað og stimplað nafnið sitt með got-
nesku letri. Í Skemmtimenntuninni
geta þau svo föndrað, mátað hringa-
brynju og sverð og fleira þannig að
af nógu er að taka.
gun@frettabladid.is
Fylgt aftur til fortíðar
Beinagrindur, álfapottur og átta hundruð ára gamall skór er meðal þess sem Helga Einarsdóttir safn-
fræðslufulltrúi sýnir börnum sem fylgja henni um Þjóðminjasafnið á morgun klukkan tvö.
Í baðstofunni var sofið, unnið og leikið eins og Helga lýsir fyrir börnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KEIKO KURITA er ung japönsk listakona sem opnar
sýningu sína tree/sleep í Listasafni ASÍ í dag. Á sýningunni
eru tíu paraðar ljósmyndir sem fjalla um tré og svefn og hið
draumkennda ástand sem tengist þessum fyrirbærum.
Gólfdúkur skynsamleg,
-léttur í þrifum
-auðveldur í lögn
-glæsilegt úrval
-fæst í 2, 3 og 4 m rúllum.
FLOORING SYSTEMS
Heimilisdúkur, sígild lausn:
smekkleg og hagkvæm lausn
þægilegt andrúmsloft
Svefnherbergið
hjarta heimilisins
Eldhúsið
einfaldara verður það ekki
Forstofan
SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
Sérverslun með
gólfdúk og teppi
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
HEILSA