Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 60
4. apríl 2009 LAUGARDAGUR106
Auglýsing um deiliskipulag
á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórn Seltjarnarness auglýsir hér með tillögu að
deiliskipulagi Vestursvæðis á Seltjarnarnesi skv. 25 gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari
breytingum.
Skipulagssvæðið nær til ysta hluta Framness, Gróttu,
Suðurness og Vestursvæðis. Svæðið afmarkast af
jaðri núverandi byggðar og strönd, ásamt spildu á
norðaustanverðu svæðinu. Undanskilið frá þessu
skipulagi er afmarkað svæði umhverfis fyrirhugað
Lækningjaminjasafn.
Tillaga verður til sýnis á bæjarskrifstofum að Austurströnd
2 og á Bókasafni Seltjarnarness við Eiðistorg frá og með
mánudeginum 6. apríl til miðvikudagsins 6. maí 2009.
Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Seltjarnarness,
www. seltjarnarnes.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skriflegum
athugasemdum ef einhverjar eru skal skilað á
bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, eigi síðar
en 21. maí 2009. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við
tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Ólafur Melsted
Skipulagsstjóri Seltjarnarness
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
SUNDLAUG SELTJARNARNESS
Endurbætur á þaki
ÚTBOÐ
Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í
endurbætur á þaki búningsklefa og afgreiðslu
sundlaugar bæjarins.
Verkefnið felst í að fjarlægja núverandi pappa
og klæðningu, skipta út hluta burðarvirkis, bæta
við einangrun og klæða með borðaklæðningu
og þakpappa ásamt því að koma fyrir nýjum
loftventlum í þaki.
Helstu magntölur eru:
- Þak 715 m2
- Einangrun 700 m2
Útboðsgögn verða afhent frá og með
þriðjudeginum 7. apríl 2009 á skrifstofu VSÓ
Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Hægt er að óska eftir gögnum á rafrænu formi
með því að senda póst á netfangið vso@vso.is
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
kl. 14:00, miðvikudaginn 29. apríl 2009.
Nú eru tækifæri fyrir þá sem vilja vinna
sjálfstætt eða sameinast öðrum
Það er ekki nauðsynlegt að vera iðnaðarmaður til að
reka iðnfyrirtæki
Mjög gott iðnaðarhúsnæði BG Bílakringlunnar ehf
að Grófi nni 7 er til leigu. Húsið er 827 m2 að stærð
að gólffl eti og skiptist í vinnusali og skrifstofur, auk
þess er um 120 m2 geymsluloft í húsinu. Húsnæðið
er byggt á árunum 1968-1972 sem bílasprautunar
og réttingarverkstæði og hefur verið slíkur rekstur
i húsnæðinu lengst af. Á húsinu eru 9 innkeyrs-
luhurðir.
Bifreiða- og hjólbarðaverkstæði sem rekið er að
Grófi nni 8 er til leigu. Miklir möguleikar fyrir
duglegan aðila. Tilvalið til að sameina öðru s
ambærilegu eða til stækkunar.
Höfum einnig til leigu 4 herbergja íbúð í
nágrenninu.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Guðnason
í síma 421-4242 og 897-5246.
Grófi n 8 Grófi n 7
Þar sem bjartsýnin ríkir
Atvinnutækifæri
í Reykjanesbæ
Þar se bjartsýnin ríkir
t i t if i
í j
Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs
á auglýstum tillögum að deiliskipulagi og breyttu aðalskipulagi.
Kópavogsbær
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögu:
Smiðjuvegur 7, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar
samþykkt þann 24. mars 2009 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Smiðjuveg 7. Athugasemdir bárust og hefur þeim
aðilum sem sendu inn athugasemdir verið send umsögn skipulagsnefndar. Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 26 . gr.
Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar
með kæru sbr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar
um samþykkt deiliskipulagsins í B- deild Stjórnartíðinda.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar skipulagsáætlanir er hægt að nálgast á Skipulags- og umhverfi ssviði
Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi milli kl. 8:30 og 16:00 mánudaga til fi mmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til
15:00.
Smári Smárason.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Alþingiskosningar 25. apríl 2009
Auglýsing frá yfi rkjörstjórn Norðausturkjördæmis um móttöku framboðslista
Framboðsfrestur til alþingiskosninga í Norðausturkjördæmi, sem fram eiga að fara þann 25. apríl 2009, rennur út kl. 12:00 á hádegi þriðju-
daginn 14. apríl nk. Framboð skal tilkynna skrifl ega til yfi rkjörstjórnar, sem veitir þeim viðtöku í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, 4. hæð, Akureyri,
þriðjudaginn 14. apríl 2009 kl. 11:00 til 12:00.
Á framboðslista skulu vera nöfn 20 frambjóðenda eða tvöfalt fl eiri frambjóðenda en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fl eiri né færri.
Tilgreina skal skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili.
Framboðslista skal fylgja skrifl eg yfi rlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nafn sitt á listann. Framboðs-
lista skal og fylgja skrifl eg yfi rlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi. Tilgreina skal nafn meðmælanda,
kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 300 hið fæsta og eigi fl eiri en 400. Framboðslista skal fylgja skrifl eg yfi rlýsing
meðmælenda hans um það fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn er borinn fram.
Yfi rkjörstjórn fer þess á leit að framangreindar upplýsingar um frambjóðendur og meðmælendur séu jafnframt afhentar á tölvutæku formi
(excel-skjali).
Þá skal fylgja skrifl eg tilkynning frá frambjóðendum listans hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Fundur yfi rkjörstjórnar með umboðsmönnum framboðslista verður haldinn í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, 4. hæð, Akureyri, miðvikudaginn
15. apríl 2009 kl. 13:00.
Yfi rkjörstjórn Norðausturkjördæmis,
Inga Þöll Þórgnýsdóttir
Halldór Þormar Halldórsson
Ólafur Rúnar Ólafsson
Páll Hlöðvesson
Sigurjón Bjarnason
Orlofshús óskast
Fyrirtæki með 55 starfsmenn, óskar að taka á
leigu orlofshús fyrir tímabilið júní - ágúst 2009.
Óskað er eftir fullbúnu húsi með húsgögnum,
borðbúnaði og sængum. Svefnpláss að minnsta
kosti fyrir 8 manns, heitum potti og gott aðgengi
að bústaðnum.
Allt kemur til greina með staðsetningu,
en fyrirtækið er staðsett í Reykjavík.
Upplýsingar um stærð, verð, staðsetningu og
búnað ásamt myndum óskast sent fyrir 6. apríl
n.k. á netfangið orlofshus1@gmail.com