Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 108
88 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Enski boltinn fer á fullt
eftir landsleikjahléið í dag. Topp-
baráttan er heldur betur orðin
hörð. Liverpool sækir Fulham
heim á Craven Cottage í dag en þar
missteig lið Manchester United sig
hrapallega á dögunum. Með sigri í
dag fer Liverpool á toppinn en Unit-
ed gæti endurheimt toppsætið með
sigri á Aston Villa á sunnudag.
Liverpool er búið að vinna þrjá
leiki í röð og er það í fyrsta skipti
síðan í október sem liðið kemst á
slíkt flug. Liðsmenn Fulham mæta
eflaust til leiks með sjálfstraustið
í lagi eftir magnaðan sigur á Unit-
ed í síðasta heimaleik sínum. Ful-
ham er þess utan búið að vinna tvo
leiki í röð. Liðinu hefur ekki tekist
að vinna þrjá leiki í röð síðan það
bjargaði sér frá falli á ævintýra-
legan hátt á síðustu leiktíð.
Stuðningsmenn Newcastle hafa
ekki verið eins spenntir fyrir leik
í háa herrans tíð enda stýrir uppá-
hald stuðningsmannanna, Alan
Shearer, liðinu í fyrsta skipti í
dag. Það hefur lengi verið draumur
stuðningsmannanna að sjá Shear-
er í brúnni og nú er loksins komið
að því. Newcastle er í fallsæti og
Shearer byrjar á því erfiða verk-
efni að spila á móti Chelsea.
„Chelsea er lið með heimsklassa-
leikmenn og reyndan, frábæran
stjóra. Þetta er lið á mikilli sigl-
ingu. Þetta er samt frábær leikur
fyrir okkur á þessum tímapunkti.
Ég sætti mig ekki við það viðhorf
að fólk telji okkur ekki eiga mögu-
leika í þessum leik. Við verðum
að fá eitthvað úr þessum leik eða
hætta á að lenda fimm stigum á
eftir keppinautum okkar,“ sagði
Shearer.
Hollendingurinn Guus Hiddink,
stjóri Chelsea, gerir sér fyllilega
grein fyrir því að það verði enginn
hægðarleikur að taka öll stigin frá
St. James´s Park um helgina enda
verði lið Newcastle líklega allt
annað lið en í síðustu leikjum.
„Það vita allir hvaða stöðu liðið
er í og það verða viðbrögð frá bæði
leikmönnum og stuðningsmönnum
vegna nýjustu tíðinda,“ sagði Hidd-
ink. „Við búumst við erfiðum leik
og gríðarlegum baráttuanda hjá
heimaliðinu. Ég ber mikla virðingu
fyrir Shearer. Ég þekki hann sem
leikmann. Hann er mikill karakter
sem mun smita leikmenn sína bar-
áttuanda.“ henry@frettabladid.is
Liverpool getur komist í
toppsætið á nýjan leik
Liverpool getur klifrað í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar, í að minnsta kosti
22 tíma, á nýjan leik í dag. Þá þarf liðið að gera það sem Man. Utd tókst ekki
– að vinna Fulham á Craven Cottage. Spenna fyrir fyrsta leik Shearers.
TREYSTA Á SHEARER Stuðningsmenn Newcastle treysta á að goðsögnin Alan Shearer
bjargi liðinu frá falli. Fyrsta verkefni Shearers er í dag þegar Chelsea kemur í heim-
sókn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGESENSKI BOLTINN
Laugardagur:
Arsenal - Manchester City
Blackburn - Tottenham
Bolton - Middlesbrough
Fulham - Liverpool
Newcastle - Chelsea
West Bromwich Albion - Stoke
West Ham - Sunderland
Sunnudagur:
Everton - Wigan
Manchester United - Aston Villa
HESTAR Eyjólfur Þorsteinsson
heldur áfram að gera það gott í
Meistaradeild VÍS en hann vann
fimmganginn á fimmtudag á
Ögra frá Baldurshaga.
Sigurbjörn Bárðarson var
annar á Stakk frá Halldórs-
stöðum og Viðar Ingólfsson og
Segull frá Miðfossum hrepptu
bronsið.
Eyjólfur er sem fyrr efstur í
stigakeppninni. Hann er nú kom-
inn með 41 stig, ellefu stigum
meira en gamla brýnið Sigur-
björn Bárðarson sem skaust í
annað sætið með fínum árangri í
fimmganginum.
Hinrik Bragason er svo þriðji
með 28 stig og Sigurðar Sigurðar-
son fjórði með 27 stig. - hbg
Meistaradeild VÍS:
Aftur sigur
hjá Eyjólfi
FLOTTIR Eyjólfur og Ögri frá Baldurshaga
sjást hér í fimmgangskeppninni.
MYND/ÖRN KARLSSON
Merktir
stuðnings-
menn fá
stóran
bjór þegar
þeirra lið
skorar!
Fótbolti
og stór bjór
14.00
11.45
16.30
15.00
Leikir
helgarinnar:
Laugardagur
Blackburn -
Tottenham
Newcastle -
Chelsea
Fulham -
Liverpool
Sunnudagur
Man. Utd -
Aston Villa
Auglýsingasími
– Mest lesið