Fréttablaðið - 04.04.2009, Page 80
60 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Hver er maðurinn á bak við
Eberg? Áttatíu prósent maður,
tuttugu prósent fita.
Hvenær varstu hamingjusam-
astur? Ég held ég hafi verið ham-
ingjusamastur á öllum þeim móm-
entum sem ég man ekki eftir.
Ef þú værir ekki tónlistar-
maður hvað myndirðu þá vera?
Jarðfræðingur.
Barði Jóhannsson semur eitt lag
á plötunni. Hvernig byrjaði sam-
starf ykkar? Við tókum að okkur
nokkur verkefni saman á síðasta
ári. Það er ljómandi ljúft að vinna
með drengnum.
Hvað er það dýrasta sem þú
hefur nokkurn tímann keypt þér?
Húsið sem ég byggði í Kjósinni,
sem er að mestu tilbúið en skortir
þó ýmis nútímaþægindi.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig? 1. apríl.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík,
hvar myndirðu vilja búa? Í Kjós-
inni. Þar er gott að vera.
Uppáhaldstónlistarmaður/kona
og af hverju? Nói Steinn, því hann
er snillingur.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Svartá í byrjun september.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tíman gegnt? Að
vera uppvaskari á Hótel Íslandi
var allnokkuð sérstakt. Djobbið
var svo sem í lagi en það voru
margir pirraðir þjónar á svæðinu.
Alltaf verið að skamma þá úti í sal
og þeir náðu að létta á pirringnum
með því að skammast í uppvöskur-
unum. Þá lærði ég fyrst að brjóta
diska. Það er sérlega frískandi.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á
jörðinni? Eurostar-lestin á milli
London og Parísar.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag hlustar
þú oftast á í dag? Góð tónlist er
áhrifaríkust. Léleg tónlist hefur
áhrif líka ef hún er afburða léleg.
Ég var að grafa upp gamla, góða
Super Mario Bros-lagið, fann
Japana að spila það á YouTube á
tvo gítara og einn sem spilaði það
á ellefu strengja bassa! Ég vissi
ekki einu sinni að svoleiðis app-
arat væri til.
Ef þú ættir tímavél, hvert
myndirðu fara og af hverju?
Ég færi aftur til gærdagsins og
keypti klósettpappír. Þetta var
neyðarlegt í morgun.
Er eitthvað sem heldur fyrir
þér vöku á nóttunni? Fiskiflugur
og ryksugur.
Ef þú gætir breytt einhverju í
fortíð þinni, hvað myndi það vera?
Það er þetta með gærdaginn og
klósettpappírinn.
Hvenær fékkstu síðast hláturs-
kast? Þegar ég sá fyrrnefndan ell-
efu strengja bassa.
Áttu þér einhverja leynda
nautn? Já, skynsamlegt að halda
henni leyndri.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
1000 Nudes.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til? Foreldra minna.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki? Kynslóð stjórnmála-
manna sem stórkostlega ofmeta
mikilvægi sitt.
Uppáhaldsorðið þitt? Dvergur.
Hvaða eitt atriði myndi full-
komna lífsgæði þín? Böns af hluta-
bréfum í Haugur Group.
Hvaða lag á að spila í jarðarför-
inni þinni? „If you don´t know me
by now.“
Hver verða þín frægu hinstu
orð? Ég redda þessu á morgun.
Hvað er næst á dagskrá? Og
kemur platan út annars staðar en á
Íslandi? Það verða útgáfutónleikar
á Sódómu 22. apríl. Síðasta vetrar-
dag. Þar verða tvöfaldir útgáfu-
tónleikar þar sem Dr. Gunni ætlar
einnig að fagna útkomu á nýrri
plötu sinni. Ég er mjög spenntur
að heyra þann grip. Antidote er nú
þegar komin út í Japan og útgáfa í
Evrópu á dagskrá seinna á árinu.
Var að uppgötva ellefu strengja bassa
Maðurinn á bak við Eberg er áttatíu prósent maður og tuttugu prósent fita segir tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg sem gefur
út aðra breiðskífu sína, Antidote, nú um helgina. Anna Margrét Björnsson tók hann í þriðju gráðu yfirheyrslu.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Einar Tönsberg
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Stílabókastokkari, uppvaskari,
vídeóleigugaur, áfylling í Hag-
kaupum, þýðingar á kvikmynd-
um, ýmis störf í tónlist og í
hljóðverum.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1973 en þá var eldgos í Vest-
mannaeyjum. Móðir mín var
send heim af fæðingardeildinni
svo Eyjapeyjar gætu fengið
rúmstæði.
■ Á uppleið
Teknóstaðir í mið-
borginni. Bærinn er
að fyllast af trylltum
dansstöðum sem eru
opnir fram á morgun.
Hvers konar tímanna tákn
ætli þetta sé?
Íslensk tíska. Norræni tískutví-
æringurinn var með eindæmum vel
heppnaður og vonandi fer slíkum
viðburðum að fjölga.
Kúrekaskyrtur. Þykja ægilega töff
bæði á
konum og
karlmönn-
um um
þessar
mundir og
stelpurnar
geta meira
að segja
klætt sig
í köflótta
kjóla ef
þær vilja
fara alla
leið í kán-
trí-lúkkinu.
Þýskur matur.
Tilgerðarlegur matur er á útleið og því
upplagt að tileinka sér strangheiðar-
lega rétti Þjóðverja sem einkennast af
kjöti, kartöflum og súrkáli.
■ Á niðurleið
Goth. Þótti mjög töff í fyrra en er nú
orðið leiðinlega „mainstream“ eftir
að myndin Twilight gerði unglinga að
emo-vampírum með svart glimmer
á kinnunum. Svartur varalitur er því
opinberlega dauður.
Facebook-mont. Hverjum er ekki
sama hversu oft þú fórst í líkamsrækt
í dag eða hvort þú sért á leiðinni til
Spánar. Iss.
Borgaralegar fermingar. Er það
ekki dálítið mikið 2007 að krakkarnir
sem trúa ekki á guð heimti líka ferm-
ingargjafir?
Að tala eins og hálfviti. Það er
ekki töff að ávarpa aðra hverja mann-
eskju „ hæ sæta“ eða „hæ sæti“ eða
„OMGZZZZZZZZZ HOOOJJJJ!“ þegar
maður kemur auga á kunningja á
Laugaveginum.
MÆLISTIKAN
EBERG, EINNIG ÞEKKTUR
SEM EINAR TÖNSBERG Nýja
platan „Antidote“ er vænt-
anleg í verslanir um helgina
og útgáfutónleikar verða
haldnir á Sódómu síðasta
vetrardag.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ STEFÁ
N