Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 106
86 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Það á ekki af landsliðsmönnum Íslands í handbolta að ganga. Þeir
eru orðnir fastagestir hjá skurðlæknum og sá nýjasti til þess að
leggjast undir hnífinn er ungstirnið Aron Pálmarsson, leikmaður
FH og tilvonandi leikmaður Þýskalandsmeistara Kiel.
Aron er staddur ytra þessa dagana en læknar Kiel munu skera
hann upp á mánudagsmorgun.
„Ég lét Alfreð [Gíslason, þjálfara Kiel] vita af þessum
málum sem og að Binni [Brynjólfur Jónsson, læknir
landsliðsins] vildi skera. Alli vildi endilega láta læknana
skoða mig úti og þeir komust að nákvæmlega sömu
niðurstöðu. Ég fer því í aðgerðina á mánudagsmorgun.
Ég ætti að vera klár eftir sex vikur og verð örugglega
með í landsleikjunum í sumar,“ sagði Aron við Frétta-
blaðið frá Kiel.
„Það er víst í ágætu lagi með sjálft hnéð en það er
einhver sin fyrir neðan hnéð sem er að gera mér lífið
leitt. Það er skemmd í henni og bólgur sem myndast
í kringum hana. Þetta hefur farið versnandi og ég fór
líklega endanlega í Eistaleiknum að Ásvöllum,“ sagði
Aron en það var ekki að sjá á honum í leiknum að hann væri
sárþjáður enda fór hann á kostum í leiknum. „Ég fann alveg fyrir
þessu í leiknum en ég var í finni meðhöndlun þegar ég var með
landsliðinu. Ég var samt mjög aumur eftir leikina, þurfti mikið að
kæla og gat þess utan ekki æft mikið með liðinu.“
Aron er kominn í sumarfrí enda missti FH af sæti í úrslita-
keppninni eftir frábært gengi framan af móti. „Það var
alveg glatað að komast ekki í úrslitakeppnina. Við vorum
fínir fyrir áramót, svakalega gaman en ég veit ekki hvað
gerðist svo hjá okkur. Það er bara eins og tímabilið hafi
ekki orðið að neinu. Það var svo líka svakalega svekkj-
andi að fylgjast með úr stúkunni gegn Fram.“
Aron fer á stórleik Kiel og Croatia Zagreb í Meistara-
deildinni í dag. Fyrri leiknum í Króatíu lyktaði með
jafntefli og því verða einhver átök í dag. „Það er bót í
máli að fá að sjá þennan leik hér úti áður en maður
fer í aðgerðina. Annars hugsar félagið svakalega vel
um mig. Ég er með flottan nýjan Audi til afnota og
allt er frítt hérna á hótelinu,“ sagði Aron léttur.
ARON PÁLMARSSON: FER Í HNÉAÐGERÐ Í KIEL Á MÁNUDAG EN VERÐUR EKKI LENGI FRÁ
Verð örugglega klár í landsleikina í sumar
KÖRFUBOLTI Brenton Birmingham
er kominn í sjöunda sinn í loka-
úrslitin um Íslandsmeistaratitil-
inn og nú ætlar hann sér að gera
það sem honum hefur aldrei tekist
– að vinna KR í úrslitaeinvíginu.
Fyrsti leikur úrslitaeinvígis KR og
Grindavíkur fer fram í DHL-Höll-
inni í dag og hefst klukkan 16.
„Ég hef verið í úrslitunum
nokkrum sinnum áður og veit
alveg hvernig það er að vera í þess-
ari stöðu. Þetta verður þó í eitt af
örfáum skiptum þar sem mitt lið
kemur inn í lokaúrslitin og er ekki
spáð sigri. Við höfum 110 prósent
trú á okkar liði og vitum að við
getum alveg eins unnið titilinn
eins og KR,“ segir Brenton.
Brenton hefur þrisvar sinnum
orðið Íslandsmeistari en hann
tapaði í tveimur fyrstu lokaúrslit-
unum sem og síðast þegar hann
komst svona langt með Njarðvík-
urliðinu 2007. „Það er kominn tími
á að vinna KR í úrslitum. Ég hef
bara unnið þá í undanúrslitunum,“
segir Brenton, sem tapaði fyrir KR
í úrslitum 2000 og 2007.
Jón Arnór og Jakob
„Það vita allir að KR-liðið snýst í
kringum Jón Arnór og Jakob. Þeir
eru aðalmennirnir og svo mun
Jason skila sínu. Þeir eru með
þrjá aðalmenn en hinir mennirnir
í liðinu eru mjög góðir hlutverka-
leikmenn sem skila sínu vel,“ segir
Brenton, sem kemur örugglega til
með að dekka Jón Arnór. „Það
er líklega ekki hægt að stoppa
Jón Arnór en við ætlum að reyna
að hægja á honum eins mikið og
mögulegt er, “ segir Brenton.
Brenton og Nick Bradford
hafa verið í fimm af síðustu átta
Íslandsmeistaraliðum hér á landi
og þar fara menn sem vita hvað
þarf til þess að vinna. „Ég og
Nick vitum að það er ætlast til
mikils af okkur í þessum leikj-
um. Við eigum það sameigin-
legt að við getum gert miklu
meira en að skora. Við reyn-
um að hjálpa til á öðrum svið-
um eins og í vörninni,“ segir
Brenton.
Brenton hefur skorað
minna síðustu tímabil en
mikilvægi hans er þó engu
minna. „Ég lenti oft í leikj-
um þar sem ég er ekki
að skora mikið en er að draga að
mér athygli varnarinnar. Ég er
oft í hlutverki tálbeitunnar,“ segir
Brenton og gott dæmi er síðasti
leikur Grindavíkur og KR sem
Grindavík vann með 11 stigum.
Tók 3 skot í síðasta KR-leik
„Ég skoraði bara 2 stig og tók
aðeins 3 skot en ég gat spilað góða
vörn og gat dregið að mér athygli
á meðan aðrir í liðinu voru að setja
niður skotin,“ segir Brenton.
„Bæði lið búa yfir mikill breidd
og miklum hæfileikum. Ég held að
það muni svo litlu á þessum liðum
að þetta verði bara spurningin um
hvort liðið sé að framkvæma hlut-
ina betur, mætir grimmara til
leiks eða spilar betri vörn,“ segir
Brenton. Liðin hafa mæst fjór-
um sinnum í vetur. KR vann þrjá
fyrstu leikina en Grindavík þann
síðasta. „Þegar við töpuðum fyrir
þeim síðast í DHL-Höllinni var
Nick nýkominn og við vorum
ekki búnir að mynda nægi-
lega sterkan liðsanda. Það
sást í þeim leik og líka
á muninum á okkar liði
þegar liðin mættust síðan
aftur í Grindavík nokkr-
um vikum síðar. Á þess-
um tíma ársins skiptir
litlu hvernig hefur farið í vetur því
allt getur gerst,“ segir Brenton og
talar af mikilli reynslu.
Gætum fyllt Höllina fimm sinnum
Brenton hefur engar áhyggjur
af því þótt hraðinn verði mikill í
leikjunum. „Ég býst við háu tempói
í þessum leikjum því bæði lið vilja
keyra upp hraðann. Ég samþykki
það alveg og mun reyna að halda
í við ungu strákana. Ég er í góðu
formi,“ segir Brenton.
„Þetta verður skemmtilegt ein-
vígi fyrir áhorfendur. Ég hef heyrt
fólk vera að tala um það að við
gætum líklegt fyllt Laugardals-
höllina fyrir alla fimm leikina. Það
eru rosalega margir búnir að segja
mér að þeir ætli að mæta á leikina
í stað þess að horfa á þá í sjónvarp-
inu,” segir Brenton og rifjar upp
lokaúrslitin fyrir tveimur árum
þegar fólk troðfyllti DHL-
Höllina á fjórða og síð-
asta leiknum.
Það má búast við
DHL-höllinni troð-
fullri í dag enda er
körfuboltaáhuga-
fólk búið að bíða
eftir þessu ein-
vígi í allan vetur
eða allt frá því að
liðin hófu tímabilið
á frábærum úrslita-
leik í Powerade-bik-
arnum.
ooj@frettabladid.is
Komið að því að vinna KR
Brenton Birmingham á ekki eftir að vinna margt í íslenskum körfubolta en
hann hefur þó aldrei unnið KR í lokaúrslitum. Úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur
hefst í dag. Búist er við hröðum og spennandi leikjum og troðfullum húsum.
SJÖUNDU LOKAÚRSLITIIN
Brenton Birmingham ætlar sér
að verða Íslandsmeistari í fjórða
sinn á ferlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1999
Brenton leikur með Njarðvík sem
tapar í oddaleik í Keflavík eftir
að hafa komist í 2-1 og feng-
ið tvo leiki til þess að tryggja
sér titilinn. Brenton skorar
28,2 stig að meðaltali auk
þess að taka 11,2 fráköst og
gefa 4,6 stoðsendingar.
2000
Brenton leikur með Grinda-
vík sem tapar 1-3 fyrir KR
eftir að hafa unnið fyrsta leik-
inn. Brenton skorar 23,8 stig
að meðaltali í leik.
2001
Brenton leikur með Njarðvík og vinn-
ur sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil
þegar Njarðvík vinnur Tindastól
3-1 í úrslitum. Brenton á
stórkostlega úrslitaseríu
þar sem hann er með
23,3 stig, 8,3 fráköst,
9,0 stoðsendingar og
4,8 stolna bolta að meðal-
tali í leik.
2002
Brenton leikur með Njarðvík sem
vinnur Keflavík 3-0 í lokaúrslitum.
Brenton er með 19,3 stig, 8,0 fráköst
og 4,7 stoðsendingar að meðaltali.
2006
Brenton leikur með Njarðvík sem
vinnur Skallagrím 3-1 í lokaúrslitum.
Brenton er kosinn besti leikmaður
úrslitanna eftir að hafa skoraði 21,0
stig, tekið 8,3 fráköst og gefið 4,3
stoðsendingar að meðaltali í leik.
2007
Brenton leikur með Njarðvík sem
tapar 1-3 fyrir KR eftir að hafa unnið
fyrsta leikinn og verið yfir í nánast
öllu einvíginu. Brenton er með 17,3
stig, 6,5 fráköst og 6,0 stoðsendingar
að meðaltali í leik.
LOKAÚRSLIT BRENTONS BIRMINGHAM UM ÍSLANDSMEISTARATITILINN 1999-2009:
> Betra að tapa í dag?
Ætli KR-ingar og Grindvíkingar að fylgja uppskriftinni
að síðustu Íslandsmeistaratitlum sínum þurfa þeir
væntanlega að keppast um að tapa fyrsta leiknum í
lokaúrslitunum í Iceland Express-deild karla í DHL-höll-
inni í dag. KR tapaði fyrsta leiknum á móti
Grindavík 2000 og fyrsta leiknum á móti
Njarðvík fyrir tveimur árum en tryggði
sér titilinn í bæði skiptin með því að
vinna þrjá næstu leiki. Þetta á líka
við hjá Grindavík því þegar liðið varð
Íslandsmeistari í eina skiptið 1996
tapaði það fyrsta leiknum í úrslita-
einvíginu á heimavelli en vann síðan
einvígið 4-2 eftir að hafa unnið alla
þrjá útileikina í lokaúrslitunum.
Faxafeni 12 (2. hæð), 108 Reykjavík
Opnunartímar
opið alla helgina
K
ra
kk
ar
D
öm
ur
&
h
er
ra
r
Fl
ís
pe
ys
ur
1
.5
0
0
-3
.0
0
0
k
r.
Pollabuxur
1.500 kr.
Pollajakkar
1.500 kr.
500 kr.
Fl
ís
pe
ys
ur
4
.0
0
0
-6
.5
0
0
k
r.
1.000 kr.
Regnkápur/jakkar
2.000 kr.
V
in
ds
ta
kk
ur
2
.0
0
0
k
r.
V
in
db
ux
ur
1
.0
0
0
k
r.
Ö
nd
un
ar
ja
kk
ar
6
.0
0
0
-1
0
.0
0
0
k
r.
Öndunarbuxur
6.000 kr.
Buxur
3.000 kr.