Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 33
✝ Ólafur Sveins-son fæddist í
Gerði á Barða-
strönd 28. júlí 1925.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans við Hring-
braut aðfaranótt 4.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Sveinn Ólafsson, f.
15.10. 1882, d. 2.6.
1950, og Ingveldur
Jóhannesdóttir, f.
30.5. 1893, d. 18.7.
1966. Systkini Ólafs
eru: Jóhannes Hjálmar (sam-
feðra), f. 9.5. 1902, Jón Ingivald-
ur, f. 16.6. 1915, Svava, f. 17.2.
1917, Ólafía Margrét, f. 6.9. 1926,
og Hulda, f. 11.3. 1929, sem öll eru
látin. Eftirlifandi systur Ólafs eru
Klara, f. 21.7. 1922, og Valgerður,
f. 10.11. 1931.
Hinn 10. nóvember 1956 kvænt-
ist Ólafur Huldu Ólafsdóttur frá
Litla-Laugardal í Tálknafirði, f.
16.12. 1922. Foreldrar hennar
voru Ólafur Jósúa Guðmundsson,
f. 4.10. 1900, d. 5.11. 1993, og
Sesselja Ólafsdóttir, f. 19.6. 1897,
d. 28.4. 1988. Ólafur og Hulda
eignuðust sjö börn. Þau eru: 1)
Stúlka, andvana fædd 31.8. 1955.
2) Ingveldur Hafdís, f. 6.3. 1957,
maki Steindór Tómas Hall-
dórsson, f. 16.12. 1948, börn
þeirra eru Elmar og Heiðrún Ósk.
3) Sveinn, f. 19.6. 1958, maki
Steinunn Sturludóttir, f. 14.9.
1959, börn þeirra eru Sif, Ólafur
og Una Hlín. 4) Aðalsteinn Már, f.
24.7. 1959, maki
Ingibjörg Rósa Guð-
mundsdóttir, f. 23.9.
1966, börn þeirra
eru Guðmundur
Freyr, Hulda Sólrún
og Sigurlín Elfa. 5)
Ellen Ólafsdóttir, f.
25.7. 1960, börn
hennar eru Linda,
d. 20.2. 2004, Kári,
andvana fæddur
23.12. 1993, og Ólöf
Ása. 6) Birna Jó-
hanna, f. 10.11.
1963, maki Vil-
hjálmur Ólafsson, f. 25.10. 1960,
börn þeirra eru Arnór og Helga
María. 7) Haraldur, f. 8.10. 1964,
maki Arnbjörg Pétursdóttir, f.
21.4. 1974, barn hans er Hrefna,
börn þeirra eru Pétur Ingi, Ingi-
björg og Aníta Arnbjörg. Dóttir
Huldu og fósturdóttir Ólafs er
Sesselja Guðrún Arthúrsdóttir, f.
10.8. 1951, maki Þórir Bjarnason,
f. 7.9. 1954, börn hennar eru
Hulda Jóanna, Hlíf, Guðmunda
Lára og Einar. Barnabarnabörn
Ólafs og Huldu eru orðin níu tals-
ins.
Ólafur fluttist til Patreks-
fjarðar vorið 1947 og stundaði
sjómennsku á togurum sem gerð-
ir voru út þaðan, lengst af á
togaranum Verði. Eftir að Ólafur
hætti til sjós starfaði hann sem
verkstjóri í Hraðfrystihúsi Pat-
reksfjarðar.
Ólafur verður jarðsunginn frá
Patreksfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Okkur systurnar langar að minn-
ast föður okkar sem lést eftir stutt
veikindi þann 4. janúar síðastliðinn.
Á kveðjustund er margs að minnast.
Pabbi ólst upp í Gerði á Barðaströnd
og þótti honum alla tíð vænt um
sveitina sína. Eftir að við fluttum að
heiman höfum við farið vestur á Pat-
reksfjörð á hverju sumri í heimsókn
til pabba og mömmu. Þá höfum við
séð við til þess að pabbi kæmist inn
á Strönd og heim að Gerði. Fannst
honum alltaf gaman að koma þangað
þótt ekkert stæði þar eftir nema
lambhúsið. Þar naut hann þess að
miðla af þekkingu sinni til okkar og
afabarna sinna en á Barðaströndinni
þekkti hann nánast hvern stein og
hverja þúfu með nafni og berjalönd-
in eins og lófann á sér. Alla tíð var
hann alveg ótrúlega minnugur, jafnt
á gamla sem nýja tíma. Allt fram á
síðasta dag fylgdist hann með því
sem var að gerast bæði heima og
heiman, las blöðin og fylgdist með
fréttum bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Hann fylgdist vel með veðrinu,
hvernig gæfi á sjóinn og fékk fréttir
af fiskeríi hjá Halla bróður sem er
sjómaður.
Þegar við minnumst pabba eru
það fyrst og fremst sögurnar sem
hann sagði okkur fyrir svefninn og
lögin sem hann söng fyrir okkur sem
koma upp í hugann. Hann var natinn
við að koma okkur í bólið á kvöldin
og ef það átti að segja sögu flýttum
við okkur að hátta. Sögurnar voru
bæði ævintýri sem hann lenti í í
sveitinni og frumsamdar sögur.
Minnisstæðust er jólasaga sem hann
samdi og hefur sú saga gengið til
næstu kynslóða. Lögin sem hann
söng fyrir okkur voru af ýmsum
toga, allt frá Kötukvæði og upp í
revíusöngva. Hann hafði líka mikið
dálæti á lögunum hans Jenna Jóns,
enda var Jenni mágur pabba. Jenni
samdi lagið um Ólaf sjómann sem
hann tileinkaði pabba og lýsir text-
inn í því lagi honum vel. Pabbi var
um tíma sjómaður og var lengst af á
togaranum Verði sem fórst á stríðs-
árunum en málin æxluðust þannig
að hann var ekki með í þeirri ferð.
Þegar við förum að muna eftir
okkur er pabbi hættur sjómennsku
og farin að vinna sem verkstjóri í
Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar.
Heimsóknir í frystihúsið voru alltaf
skemmtilegar. Starfsfólkið tók
ávallt vel á móti okkur og oft fengum
við að blása í verkstjóraflautuna. Af
og til vorum við sendar með kaffið til
hans að heiman og þá var staldrað
við í verkstjórakompunni, horft út
um glerið á fólkið vinna og fylgst
með erlinum í vinnunni hjá pabba.
Eins og venjan var á árum áður fóru
allir heim í hádegismat. Rétt fyrir
hádegið var oft hlaupið af stað til
móts við pabba og honum fylgt
heim.
Þegar við systkinin byrjuðum í
skóla var metnaður foreldra okkar
að vel gengi. Pabbi og mamma
skiptu með sér verkum, pabbi sá um
alla tilsögn í reikningi en mamma að
hlýða okkur yfir bóklegu fögin.
Pabbi útbjó meira að segja æfinga-
próf í reikningi til að búa okkur und-
ir raunverulegu prófin. Þegar við lít-
um til baka og þegar á það er litið að
börnin á heimilinu voru mörg og
vinnudagurinn langur var þetta
ótrúleg elja. Að þessu búum við enn
í dag.
Ekki var til bíll á heimilinu þegar
við vorum börn og eitt af því
skemmtilegasta sem við vissum var
að fara í bíltúr. Pabbi sá til þess að
við færum ekki á mis við það. Hann
fékk til liðs við sig ættingja eða vini
sem áttu bíla til að fara með okkur í
dagsferðir í nokkur sumur. Það
þurfti ekki minna en 2–3 bíla til að
við kæmumst öll með. Það var farið
á Barðaströndina og litið við hjá
systkinum hans eða frændfólki.
Stundum var sjóndeildarhringurinn
víkkaður enn meira og nálægir firðir
skoðaðir.
Við gætum haldið lengi áfram að
rifja upp þann tíma sem við áttum
með pabba. Við erum þakklátar fyr-
ir allt sem hann gerði fyrir okkur og
með okkur.
Elsku mamma, Valla og Klara, við
biðjum Guð að styrkja ykkur.
Inga, Ellen og Birna.
Elsku afi. Við munum sakna þín
mikið. Það verður skrýtið að koma á
Patreksfjörð núna. Það var alltaf
gaman að koma á Patró til ykkar
ömmu. Þið stóðuð á tröppunum þeg-
ar við komum og tókuð á móti okkur.
Núna verður amma bara ein. Það
var gaman þegar þú sagðir okkur
sögur frá því í gamla daga.
Þú og amma gáfuð okkur oft pen-
ing til að fara út í búð að kaupa eitt-
hvað gott. Þessi texti var saminn um
þig og lýsir þér svo vel:
Hann Ólafur sjómaður sagði,
það sínar ær og kýr
að segja fólkinu sögur,
um sjómennskuævintýr.
(Höf.: Jenni Jónsson)
Elsku afi nú ertu kominn til
himna og búinn að hitta Lindu, Kára
og litlu stelpuna þína.
Þau hafa glaðst þegar þú komst.
Helga María og Ólöf Ása.
Ólafur Sveinsson
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA GRÓA AÐALBJÖRNSDÓTTIR,
Mýrarvegi 111,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 8. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 18. janúar kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hennar láti líknarstofnanir
njóta þess.
Eygló Sigurliðadóttir, Birgir Pálsson,
Una Sigurliðadóttir, Þórir Haraldsson,
Björn Sigurliðason,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær bróðir okkar og frændi,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
(Danni),
lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 12. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristján Helgason.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
ÞÓRIR GUÐMUNDSSON
bifreiðarstjóri,
Brekkubæ 33,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 11. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hlíf Samúelsdóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HARALDUR LEÓ HÁLFDÁNARSON,
Hábæ 33,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 10. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnhildur Oddný Guðbjörnsdóttir,
Jónína Haraldsdóttir,
Stefanía Halldóra Haraldsdóttir,
Sigurður Már Haraldsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR JÓNSSON
flugvirki,
sem andaðist fimmtudaginn 4. janúar, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. janúar
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð
Grundar.
Molly Jónsson,
Jón Steingrímsson, Guðrún Ólafsdóttir,
Skorri Steingrímsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
SÆFRÍÐAR INGÓLFSDÓTTUR,
Víðilundi 20,
Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu
Seli og hjúkrunarfræðingar heimahlynningar á Aku-
reyri ásamt Nick Cariglia.
Katrín Hermannsdóttir, Jón Magnússon,
Sigríður Stefanía Bragadóttir, Emil Vilhjálmsson,
Ingólfur Bragason, Arndís Heiða Magnúsdóttir,
Axel Bragi Bragason, Ingibjörg Ragnarsdóttir,
Karl Sævar Bragason,
Kristín Björg Bragadóttir, Marteinn Sigurðsson,
Ásdís Björk Bragadóttir, Einar Axel Schiöth,
Rakel Hrönn Bragadóttir, Árni Jón Erlendsson,
Sigurður Bragason, Erla Björgvinsdóttir,
Magnús Hörður Bragason,
Iðunn Bragadóttir, Stefán Bragi Bjarnason,
Svanhildur Bragadóttir, Hákon Þröstur Guðmundsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
NÍNU G. HJALTADÓTTUR,
Neðstutröð 6,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Útför hefur farið fram að ósk hinnar látnu.
Hjalti E. Hafsteinsson, Þórdís Eygló Sigurðardóttir,
Rannveig Einarsdóttir, Jón Sævar Þorbergsson,
Sigurður Hrannar Hjaltason,
Pálmi G. Hjaltason, Anna Rakel Ólafsdóttir,
Jón Þór Jónsson, Sigrún Gróa Jónsdóttir,
Clara Hrönn Pálmadóttir,
Þorsteinn L. Hjaltason, Elín Einarsdóttir,
Anna Hilmars Hjaltadóttir, Össur Torfason.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför okkar ástkæru
BJARGAR JÓHANNESDÓTTUR,
Tjarnargötu 25,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir hlýja og góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll og færi ykkur farsæld á nýju ári.
Vilmar Guðmundsson,
Margrét Vilmarsdóttir, Reynir Guðjónsson,
Alexander Vilmarsson, Lilja Friðriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.